Fara í efni

Fyrirspurn um nýja norðurgarðinn við Sauðárkrókshöfn

Málsnúmer 2610109

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 213. fundur - 15.10.2026

Lögð fram fyrirspurn frá Einari E. Einarssyni fyrir hönd Framsóknarflokksins, dagsett 11. október 2026.

Í fyrirspurninni óskar Einar eftir að staða framkvæmda, fjármögnun og áætluð verklok á nýja Norðurgarðinum við Sauðárkrókshöfn verði tekin á dagskrá fundar byggðarráðs.

Svör byggðarráðs við fyrirspurninni eru eftirfarandi:

Framkvæmdir við nýja Norðurgarðinn við Sauðárkrókshöfn eru komnar vel á veg. Núverandi verk við brimvörn er um 63% lokið miðað við samningsfjárhæð og er áætlað að brimvörninni ljúki vorið 2027. Samhliða er unnið að fyllingu fyrir nýjan hafnarkant og er gert ráð fyrir að fylling og farg verði komin út í lok árs 2026. Að því loknu þarf fyllingin að standa þar til ásættanlegu sigi hefur verið náð áður en unnt verður að hefja framkvæmdir við stálþil og steypta þekju.

Áætlaður kostnaður við brimvörn er 915 m.kr. og nemur framlag ríkissjóðs 60% að frádregnum virðisaukaskatti. Fyllingin nýtur sama styrkhlutfalls. Fyrirstöðugarður, sem áætlaður er að kosti 80 m.kr., er hins vegar ekki ríkisstyrktur. Dýpkun, áætluð árið 2028, er ekki komin inn á samgönguáætlun og framkvæmdir við stálþil og steypta þekju, sem áætlaðar eru um 1.100 m.kr., eru ekki fullfjármagnaðar. Ekki liggur því fyrir endanleg tímasetning verkloka heildarframkvæmdarinnar, en samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum er gert ráð fyrir framkvæmdum fram yfir árið 2031.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra, sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs og hafnarstjóra að funda með fulltrúum Vegagerðarinnar og vinna að raunhæfri tíma- og kostnaðaráætlun fyrir þá verkþætti sem eftir standa, með það að markmiði að tryggja áframhaldandi framgang verkefnisins. Niðurstöður þessa samtals skulu lagðar fyrir byggðarráð eins fljótt og auðið er. Byggðarráð leggur áherslu á mikilvægi uppbyggingar Sauðárkrókshafnar, enda er verkefnið mikið hagsmunamál fyrir Skagafjörð og Norðurland vestra í heild.