Lagt fram erindi frá Söru Björk Þorsteinsdóttur, verkefnastjóra farsældarráðs hjá SSNV, dagsett 2. október 2026. Í erindinu er lagt til að sveitarfélögin á Norðurlandi vestra sameinist um að Bergið headspace hafi fasta viðveru á Norðurlandi vestra einu sinni í mánuði. Ungmenni á aldrinum 12-25 ára hefðu með því móti aðgang að gjaldfrjálsum einstaklingsviðtölum og stuðningi án tilvísunar.
Gert er ráð fyrir að viðveran verði á Sauðárkróki í samstarfi við FNV, sem leggi til rými í sínu húsnæði, auk þess sem fjarviðtöl verði í boði á milli heimsókna þannig að þjónustan geti nýst ungmennum af öllu svæðinu.
Árlegur kostnaður verkefnisins er áætlaður um 1,9 m.kr. og samkvæmt framlagðri tillögu er gert ráð fyrir að sveitarfélögin standi undir 60% kostnaðar á móti 40% hlut Bergsins. Jafnframt er lagt til að sveitarfélögin sæki sameiginlega um styrk til Stjórnarráðsins í þágu farsældar barna vegna verkefnisins.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og telur mikilvægt að efla aðgengi ungmenna á Norðurlandi vestra að þjónustu af þessu tagi. Byggðarráð leggur til að kannað verði hvort verkefnið geti verið áhersluverkefni SSNV og verði fjármagnað af samtökunum, enda falli það vel að áherslum sóknaráætlunar um aukin lífsgæði, heilsu og vellíðan íbúa. Jafnframt telur byggðarráð rétt að skoðað verði hvort viðvera Bergsins geti verið á fleiri en einum stað á Norðurlandi vestra þannig að aðgengi ungmenna að þjónustunni verði sem best.