Greiðsluviðmið jafnaðarstunda NPA samninga 2027
Málsnúmer 2608208
Vakta málsnúmerFélagsmála- og tómstundanefnd - 47. fundur - 01.10.2026
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að miðað verði við jafnaðartaxta NPA-miðstöðvarinnar frá 1. janúar 2027 við útreikning á jafnaðarstundum í NPA-samningum. Stuðst verði við þrjá mismunandi taxta sem taka mið af þörfum notenda. Skipting kostnaðar felur í sér framlag til launakostnaðar (85%), umsýslukostnaðar (10%) og starfsmannakostnaðar (5%). Vísað til byggðarráðs.