Fara í efni

Nýtt rekstrarform á skíðasvæði í Tindastól

Málsnúmer 2608043

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 213. fundur - 15.10.2026

Árið 1998 gerðu Skíðadeild Tindastóls og Sveitarfélagið Skagafjörður samning um uppbyggingu skíðasvæðis í vestanverðum Tindastóli, sem tekið var í notkun árið 2000. Skíðadeildin hefur frá þeim tíma annast rekstur svæðisins samkvæmt samningi við sveitarfélagið.

Skíðadeild Tindastóls sagði upp gildandi rekstrarsamningi með bréfi dagsettu 27. febrúar 2026. Fulltrúar skíðadeildar og aðalstjórnar Tindastóls gerðu grein fyrir uppsögninni á 186. fundi byggðarráðs þann 19. mars 2026. Uppsögnin kallar á endurskoðun á fyrirkomulagi rekstrar skíðasvæðisins.

Fyrir fundinum lá minnisblað um mögulegt framtíðarfyrirkomulag rekstrar skíðasvæðisins í Tindastóli.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir byggðarráð að nýju.