Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Áætlun um fjárfestingar og meiriháttar viðhald 2027-2030
Málsnúmer 2611015Vakta málsnúmer
2.Framkvæmdir við stækkun á höfn - fjármögnun o.fl.
Málsnúmer 2611016Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar minnisblað frá Vegagerðinni, dags. 3. nóvember 2026, um framkvæmdir og fjármögnun við Útgarð við Sauðárkrókshöfn. Fram kemur að framkvæmdir hófust haustið 2025 og felast m.a. í gerð brimvarnargarðs, stálþils, dýpkun og gerð þekju. Verkefnið er umfangsmikið og framkvæmdir standa yfir samkvæmt fyrirliggjandi verkáætlun.
Ljóst er að misræmi er á milli framvindu framkvæmda og tímasetningar ríkisframlaga samkvæmt samgönguáætlun. Af þeim sökum þarf höfnin tímabundið að standa undir fjármögnun hluta framkvæmda sem gert er ráð fyrir að ríkissjóður taki þátt í að fjármagna. Óvissa er jafnframt um tímasetningu hluta framlaga þar sem hún ræðst af fjárveitingarramma Hafnabótasjóðs.
Byggðarráð leggur þunga áherslu á að ríkið tryggi Hafnabótasjóði fjárheimildir sem gera sjóðnum kleift að standa við fyrirliggjandi áætlanir um ríkisþátttöku í hafnarframkvæmdinni. Óásættanlegt er að sveitarfélagið og hafnarsjóður þurfi að bera kostnað og fjármögnun vegna ríkisframlags til verkefnis sem þegar hefur verið samþykkt og framkvæmdir hafnar.
Byggðarráð skorar því á stjórnvöld að tryggja Hafnabótasjóði fullnægjandi og fyrirsjáanlegt fjármagn þannig að staðið verði við áformaða ríkisþátttöku í verkefninu og að fjárveitingar fylgi framvindu verkefnisins.

3.Viðauki 8 við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 2610263Vakta málsnúmer
Lagður fram viðauki 8 við fjárhagsáætlun Skagafjarðar árið 2026. Viðaukinn felur í sér 33,7 m.kr. lækkun á rekstrarniðurstöðu A-hluta og breytingar á fjárfestingum og eignabreytingum að fjárhæð 432,2 m.kr.
Helstu breytingar á rekstri tengjast leiðréttingu á álagningu fasteignaskatts, sölu fasteignanna að Háholti og Furulundi 5 og því að fallið hefur verið frá eftirstandandi eignasölu á árinu. Þá er gert ráð fyrir auknum tekjum Byggðasafns og hækkun launakostnaðar hjá Vinnuskóla Skagafjarðar, stjórnsýlu- og fjármálasvið, Húsi frítímans og Sundlaug Sauðárkróks. Jafnframt eru fjárheimildir vegna lögfræði- og sérfræðiþjónustu, tölvuþjónustu, þjónustu- og færslugjalda, félags- og aðildargjalda og framlaga til samstarfsverkefna hækkaðar. Auknum launakostnaði er að hluta mætt með millifærslu úr launapotti.
Breytingar á fjárfestingaráætlun felast meðal annars í því að fjárheimildir vegna menningarhúss, stækkunar verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, íþróttahúss við Grunnskólann austan Vatna, gatnagerðar, opinna svæða og sjóveitu eru lækkaðar. Á móti eru fjárheimildir vegna bifreiða og tækja, gatnagerðar við Borgarsíðu, sorpmóttökustöðvar, fráveituframkvæmda og aðstöðuhúss Hitaveitu Skagafjarðar hækkaðar. Þá er fallið frá áætluðum kaupum á fasteignum.
Eftir viðaukann verður áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 518,5 m.kr. og rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta jákvæð um 2.165,5 m.kr. Áætlað handbært fé í árslok verður 943,9 m.kr. hjá A-hluta og 1.448,1 m.kr. hjá samstæðu A- og B-hluta.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka 8 við fjárhagsáætlun Skagafjarðar árið 2026 og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.

4.Framtíðaruppbygging á golfsvæði Golfklúbbs Skagafjarðar
Málsnúmer 2405555Vakta málsnúmer
Mál áður á dagskrá 207. fundi byggðarráðs Skagafjarðar þar sem Golfklúbbur Skagafjarðar hafði farið þess á leit við byggðarráð að fá fyrirframgreiddan styrk samkvæmt styrktarsamningi aðila. Málinu var vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
Fyrir fundinum liggur tölvupóstur þar sem beiðnin er ítrekuð.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að eftirstöðvar styrksins verði greidd út í janúar 2027.
Fyrir fundinum liggur tölvupóstur þar sem beiðnin er ítrekuð.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að eftirstöðvar styrksins verði greidd út í janúar 2027.
5.Frístundaakstur
Málsnúmer 2609288Vakta málsnúmer
Máli vísað frá 48. fundi félagsmála- og tómstundanefnd sem haldinn var 5. nóvember sl. Þar lagði félagsmála- og tómstundanefnd til við byggðarráð að frístundaakstur verði tryggður báðar leiðir á þriðjudögum og föstudögum með það að markmiði að stuðla að bættu aðgengi barna að skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi óháð búsetu.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fallast á tillöguna og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að tryggja frístundaakstrinum fjármagni fyrir báðum leiðum tvo daga í viku í fjárhagsáætlun ársins 2027. Byggðarráð samþykkir jafnframt samhljóða að samhliða aukinni þjónustu frístundaaksturs verði tekið upp virkt samtal við skóla, íþróttafélög og aðra sem gætu nýtt þjónustuna svo að nýting verði sem best.

6.Nýtt rekstrarform á skíðasvæði í Tindastól
Málsnúmer 2608043Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga um að gera nýjan rekstrarsamning milli skíðadeildar Tindastóls og Skagafjarðar út núlíðandi vetur, en skíðadeildin sagði fyrri rekstrarsamning upp skriflega 27. febrúar 2026. Í tillögunni er lagt til að framlag Skagafjarðar hækki í 27 m.kr. á ári. Í tillögunni er gert ráð fyrir útgreiðslu á 7 mánuðum en lagt er til að samningsdrögum verði breytt og gert ráð fyrir útgreiðslu á 12 mánuðum. Einnig verði betur skilgreint um hvernig haga skuli frágangi eftir vetrarstarf, samhliða að svæðið verði tekið út í lok rekstrarárs af starfsmanni sveitarfélagsins.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að samningi með áorðnum breytingum og felur sveitarstjóra að ganga til samninga við skíðadeild Tindastóls.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að samningi með áorðnum breytingum og felur sveitarstjóra að ganga til samninga við skíðadeild Tindastóls.
7.Slit Söguseturs íslenska hestsins
Málsnúmer 2611072Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Ylfu Leifsdóttur, dagsett 4. nóvember 2026. Í erindinu er farið yfir að starfsemi Sögusetur íslenska hestsins færist yfir í þekkingarsetur HÍ á Hólum og því er unnið að því að slíta félaginu um Sögusetur íslenska hestsins.
Eftir að útistandandi kröfur hafa verið greiddar er gert ráð fyrir að um 50 þúsund krónur verði eftir á reikningi setursins. Samkvæmt upplýsingum frá RH endurskoðun má hins vegar gera ráð fyrir að kostnaður við slitin verði um 200-250 þúsund krónur. Þar sem fyrir liggur að starfsemi Sögusetursins í núverandi mynd verður lögð niður eru ekki forsendur til að sækja um frekari rekstrarstyrki fyrir setrið og því fer Ylfa þess á leit að stofnaðilar setursins komi að því að brúa bilið svo hægt sé að ljúka slitum félagsins.
HÍ á Hólum hefur þegar samþykkt að taka helming útistandandi kostnaðar til móts við Skagafjörð.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita helming útistandandi kostnaðar við slitin.

8.Ágóðahlutagreiðsla EBÍ 2026
Málsnúmer 2611009Vakta málsnúmer
Lagt fram bréf, dagsett 28. október 2026, frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands (EBÍ). Í bréfinu er tilkynnt um að stjórn álíti aðstæður þannig að ekki sé svigrúm til útgreiðslu ágóðahluta til eigenda og því verði enginn ágóðahlutur greiddur til sveitarfélagsins þetta árið.
9.Gjaldskrá Norðurár bs 2027
Málsnúmer 2611040Vakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar gjaldskrá Norðurár bs. fyrir árið 2027 sem samþykkt var á fundi stjórnar Norðurár bs. þann 26. október sl. Í gjaldskránni hækka liðir hennar milli 1,8%-2,5%.
10.Verum viðbúin - upplýsingar til sveitarfélaga
Málsnúmer 2611019Vakta málsnúmer
Lagt fram kynningarefni frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vegna bæklingsins Verum viðbúin, sem hefur það að markmiði að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins. Í efninu er m.a. fjallað um hlutverk sveitarfélaga við upplýsingagjöf, stuðning við íbúa og samhæfingu þjónustu þegar á reynir.
11.Kerfisáætlun Landsnets 2025-2034 - Kynning umhverfismatsskýrslu (Umhverfismat áætlana)
Málsnúmer 2504112Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar erindi Landsnets hf., dagsett 5. nóvember 2026, vegna Kerfisáætlunar Landsnets 2025-2034, þar sem kynnt er umhverfismatsskýrsla áætlunarinnar.
Fundi slitið - kl. 12:17.
Hjörvar Halldórsson lagði fram áætlun eignasjóðs um meiriháttar viðhald fasteigna annars vegar og hins vegar framkvæmdaáætlun eignasjóðs og B-hluta fyrirtækja á árinu 2027-2030.
Einar E. Einarsson, fulltrúi framsóknarflokks lagði fram svohljóðandi tillögu:
"Fyrir Byggðarráði liggja drög að framkvæmda- og viðhaldsáætlun vegna ársins 2027. Í henni er gert ráð fyrir nokkrum mikilvægum verkefnum eins og fyrsta áfanga í Menningarhúsi Skagfirðinga, stækkun verknámshúss Fjölbrautarskólans og áframhaldandi vinnu við nýjan Norðurgarð í Sauðárkrókshöfn og fleira mætti nefna. Margt vantar þó inn sem brýn þörf er á og ber þar hæst að einungis er gert ráð fyrir 120 m.kr. í íþróttahús á Hofsósi. Það þýðir að þar verður mjög lítið framkvæmt árið 2027 og því ekki líklegt að hægt verði að klára það hús fyrr en í fyrsta lagi á árinu 2029 eða 2030, en áætla má að þetta verði framkvæmd upp á a.m.k 6-700 m.kr. Ég legg því til að þær 150 m.kr. sem ennþá eru til ráðstöfunar ásamt 40 m.kr. sem ætlaðar eru í sniðræsi við Strandveg auk 12 m.kr. sem ætlaðar eru í niðurrif á gömlum húsum í Norðurbænum (Tengilshús og Leikborg) verði flutt í byggingu íþróttahúss á Hofsósi árið 2027. Þannig væri hægt að leggja í það verk á árinu 2027 samtals 322 m.kr. sem gæti verið um helmingur af framkvæmdinni og þá raunhæft að það hús yrði klárað á árinu 2028, en eftir þessari aðstöðu er mikið ákall frá íbúum á Hofsósi. Rétt er að taka fram að ekki liggja fyrir neinar samþykktir um niðurrif á húsum í Norðurbænum á Sauðárkróki og deiliskipulag þar er enn í vinnslu. Sama á við um frárennsliskerfið en heildarhönnun og útfærsla á því til framtíðar liggur ekki fyrir. Því er rétt að klára þá vinnu áður en fjármunum verður ráðstafað til þeirra verkefna."
Fulltrúar meirihluta Byggðalista og Sjálfstæðisflokks óska bókað:
"Meirihlutinn tekur ekki undir þá fullyrðingu að of litlu fjármagni sé varið til uppbyggingar nýs íþróttahúss á Hofsósi á árinu 2027. Uppbygging íþróttahúss á Hofsósi hefur verið til umræðu og lofað um árabil án þess að af framkvæmdum hafi orðið. Nú er verkefnið hins vegar komið inn í fjárfestingaáætlun sveitarfélagsins og markmið meirihlutans er skýrt: framkvæmdir hefjist á árinu 2027 og íþróttahúsið rísi á þessu kjörtímabili.
Meirihlutinn telur jafnframt ekki ábyrgt að fjármagna eitt verkefni með því að fella önnur mikilvæg verkefni úr framkvæmdaáætlun. Fjárfestingaáætlunin sem hér liggur fyrir er ein sú metnaðarfyllsta sem sveitarfélagið hefur ráðist í um langt árabil. Á árinu 2027 er meðal annars gert ráð fyrir áframhaldandi uppbyggingu Sauðárkrókshafnar, fyrsta áfanga nýs menningarhúss, stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, upphafi framkvæmda við nýtt íþróttahús á Hofsósi, endurnýjun gatna og fráveitu, auk fjölmargra annarra framkvæmda og fjárfestinga víða um sveitarfélagið.
Mörg stærstu verkefnanna eru unnin í samstarfi við ríkið. Með þeim verkefnum koma verulegir fjármunir frá ríkinu inn í uppbyggingu í Skagafirði, sem gerir sveitarfélaginu kleift að ráðast í umfangsmeiri framkvæmdir en ella væri mögulegt. Slíkt samstarf hefur eðli máls samkvæmt áhrif á tímasetningar og framkvæmd einstakra verkefna og mikilvægt er að sveitarfélagið sé í stakk búið til að standa við sinn hluta þegar tækifærin gefast.
Því skiptir máli að horfa á fjárfestingaáætlunina í heild, forgangsraða af ábyrgð og tryggja að þessi mikla uppbygging leiði ekki til óhóflegrar skuldasöfnunar sveitarfélagsins."
Tillagan borin upp til afgreiðslu byggðarráðs og felld með tveimur atkvæðum meirihluta. Einar E. Einarsson greiðir atkvæði með tillögunni.
Einar E. Einarsson, fulltrúi framsóknarflokks óskar bókað:
"Ég harma að meirihlutinn skuli ekki vilja flýta framkvæmdum við íþróttahús á Hofsósi. Eins má benda á að mjög mörg verkefni bíða þess að fara í framkvæmd og voru sett til hliðar í þeim drögum sem hér liggja fyrir frá meirihluta sveitarstjórnar. Má þar nefna margs konar viðhald sem þörf er á í skólahúsnæðum sveitarfélagsins, á slökkvistöðinni og svo eru engin umhverfisverkefni, göngustígar eða álíka í þessari fjárhagsáætlun svo eitthvað sé nefnt. Eins bíða áfram margar margræddar framkvæmdir eins og tónlistarskóli við Árskóla og nauðsynlegar áframhaldandi framkvæmdir við Sundlaug Sauðárkróks og fleira mætti nefna."
Högni Elfar Gylfason, fulltrúi Miðflokks óskar bókað:
"Fulltrúi Miðflokksins í byggðarráði gagnrýnir að ekkert fjármagn sé ætlað til úrbóta á eldri hluta Birkimels í Varmahlíð í fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun ársins 2027. Íbúðabyggð við eldri hluta götunnar nær meira en fjóra áratugi aftur í tímann og enn vantar þar samfellda gangstétt. Íbúar hafa kallað eftir úrbótum árum saman og óásættanlegt er að þeim skuli enn frestað.
Byggðarráð fól veitu- og framkvæmdasviði í febrúar 2025 að kostnaðarmeta lagningu gangstéttar við eldri hluta Birkimels frá þeim stað þar sem núverandi gangstétt endar. Íbúasamtök Varmahlíðar ítrekuðu beiðni sína um frágang götunnar í október sama ár.
Þar sem gangstéttina vantar er sums staðar malarslóði og annars staðar engin gönguleið meðfram götunni. Gangandi vegfarendur, þar á meðal börn á leið í skólann, ganga því gjarnan eftir akbrautinni. Malbikið er jafnframt víða skemmt og þarfnast lagfæringa.
Birkimelur hefur verið lengdur og ný hús eru að rísa við götuna. Með fjölgun íbúa má búast við aukinni umferð bíla og gangandi, þar á meðal fleiri börnum á leið í skólann sem er skammt frá. Það er óforsvaranlegt að börn þurfi áfram að ganga eftir akbrautinni á leið í skólann þegar hægt er að tryggja þeim samfellda gönguleið meðfram götunni.
Fulltrúi Miðflokksins leggur til að í framkvæmdaáætlun ársins 2027 verði gert ráð fyrir fjármagni til að ljúka lagningu gangstéttar og lagfæra skemmt malbik á eldri hluta Birkimels. Við forgangsröðun framkvæmdanna verði öryggi barna á leið í skólann haft að leiðarljósi.
Fulltrúi Miðflokksins í byggðarráði telur það slæmt mál að ekki sé gert ráð fyrir úrbótum á götulýsingu í hesthúsahverfinu við Flæðagerði á Sauðárkróki í fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun ársins 2027.
Götulýsing í hverfinu er víða ófullnægjandi og á köflum engin. Þar fara börn og fullorðnir um gangandi og ríðandi á sömu götum og ökutæki. Á dimmasta tíma ársins er erfiðara fyrir ökumenn að sjá gangandi vegfarendur, knapa og hesta í tæka tíð. Bætt lýsing er því brýnt umferðaröryggismál fyrir fólk og hesta, ekki síst börnin sem fara um hverfið.
Samkvæmt minnisblaði veitu- og framkvæmdasviðs frá 10. september 2026 er beinn framkvæmdakostnaður við uppsetningu 20 ljósastaura, skurðgröft og lagningu rafstrengja áætlaður um 13,1 m.kr. með virðisaukaskatti. Þá má benda á að álögð fasteignagjöld og lóðarleiga vegna eigna við Flæðagerði samtals um 6,9 m.kr. árið 2026.
Fulltrúi Miðflokksins leggur til að úrbætur á götulýsingu verði teknar inn í framkvæmdaáætlun ársins 2027 sem fyrsti áfangi í uppbyggingu innviða hverfisins og að götur þar sem lýsingu vantar fái forgang."
Fulltrúar meirihluta Byggðalista og Sjálfstæðisflokks óska bókað:
"Birkimelur í Varmahlíð:
Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að bæta umferðaröryggi við Birkimel. Í framkvæmdaáætlun ársins 2027 er gert ráð fyrir að malbika nýja hluta götunnar sem enn er ómalbikaður. Jafnframt hefur sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs verið falið að vinna tillögur að bráðabirgðalausn fyrir gönguleiðir við eldri hluta götunnar til að bæta þar öryggi gangandi vegfarenda.
Ljóst er að eldri hluti Birkimels þarfnast heildarendurnýjunar. Meirihlutinn telur rétt að varanlegar gangstéttir, lýsing og aðrar nauðsynlegar úrbætur verði unnar samhliða þeirri framkvæmd fremur en að ráðist verði nú í einstaka hluta áður en heildarendurnýjun götunnar fer fram.
Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað í Varmahlíð undanfarin ár og þeirri uppbyggingu verður haldið áfram. Á árinu 2027 er jafnframt gert ráð fyrir úrbótum á merkingum við skóla- og íþróttasvæðið til að auka umferðaröryggi og bæta skipulag umferðar. Sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs hefur þegar verið falið að undirbúa þá vinnu.
Með vísan til framangreinds fellir meirihlutinn tillöguna.
Götulýsing við Flæðagerði:
Í framkvæmdaáætlun ársins 2027 er gert ráð fyrir fjármagni til hönnunar á götulýsingu og gatnakerfi í hesthúsahverfinu við Flæðagerði. Meirihlutinn telur mikilvægt að framtíðaruppbygging innviða á svæðinu byggi á heildstæðri sýn og skýrri forgangsröðun.
Sveitarstjóra og sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs er falið að boða forsvarsmenn svæðisins til fundar þar sem farið verður yfir framtíðarskipulag, þarfir svæðisins og forgangsröðun verkefna.
Með vísan til framangreinds fellir meirihlutinn tillöguna."
Tillaga um Birkimel í Varmahlíð borin upp til afgreiðslu byggðarráðs og felld með atkvæðum meirihluta. Einar E. Einarsson greiðir atkvæði með tillögunni.
Tillaga um götulýsingu við Flæðagerði borin upp til afgreiðslu byggðarráðs og felld með atkvæðum meirihluta. Einar E. Einarsson greiðir atkvæði með tillögunni.
Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum framlagða áætlun eignasjóðs um meiriháttar viðhald fasteigna og framkvæmdaáætlun með áorðnum breytingum, sem hvoru tveggja verður hluti fjárhagsáætlunar 2027-2030. Einar E. Einarsson situr hjá við afgreiðslu málsins.