Lagður fram viðauki 8 við fjárhagsáætlun Skagafjarðar árið 2026. Viðaukinn felur í sér 33,7 m.kr. lækkun á rekstrarniðurstöðu A-hluta og breytingar á fjárfestingum og eignabreytingum að fjárhæð 432,2 m.kr.
Helstu breytingar á rekstri tengjast leiðréttingu á álagningu fasteignaskatts, sölu fasteignanna að Háholti og Furulundi 5 og því að fallið hefur verið frá eftirstandandi eignasölu á árinu. Þá er gert ráð fyrir auknum tekjum Byggðasafns og hækkun launakostnaðar hjá Vinnuskóla Skagafjarðar, stjórnsýlu- og fjármálasvið, Húsi frítímans og Sundlaug Sauðárkróks. Jafnframt eru fjárheimildir vegna lögfræði- og sérfræðiþjónustu, tölvuþjónustu, þjónustu- og færslugjalda, félags- og aðildargjalda og framlaga til samstarfsverkefna hækkaðar. Auknum launakostnaði er að hluta mætt með millifærslu úr launapotti.
Breytingar á fjárfestingaráætlun felast meðal annars í því að fjárheimildir vegna menningarhúss, stækkunar verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, íþróttahúss við Grunnskólann austan Vatna, gatnagerðar, opinna svæða og sjóveitu eru lækkaðar. Á móti eru fjárheimildir vegna bifreiða og tækja, gatnagerðar við Borgarsíðu, sorpmóttökustöðvar, fráveituframkvæmda og aðstöðuhúss Hitaveitu Skagafjarðar hækkaðar. Þá er fallið frá áætluðum kaupum á fasteignum.
Eftir viðaukann verður áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 518,5 m.kr. og rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta jákvæð um 2.165,5 m.kr. Áætlað handbært fé í árslok verður 943,9 m.kr. hjá A-hluta og 1.448,1 m.kr. hjá samstæðu A- og B-hluta.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka 8 við fjárhagsáætlun Skagafjarðar árið 2026 og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.