Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
Í upphafi fundar fór formaður þess á leit við byggðarráð að mál 2608198 - "Gjaldskrá sorphirðu- og sorpeyðingar 2027" og 2608196 - "Gjaldskrá Skagafjarðarhafna 2027" verði tekin á dagskrá byggðarráðs með afbrigðum. Samþykkt samhljóða.
1.Gjaldskrá sorphirðu- og sorpeyðingar 2027
Málsnúmer 2608198Vakta málsnúmer
Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum lið.
Máli vísað frá 55. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar sem haldinn var þann 4. nóvember sl. Nefndin leggur til við byggðarráð að samþykkja framlagða gjaldskrá sem felur í sér 3,1-7,2% hækkun vegna áætlaðs kostnaðar við þjónustuna.
Samkvæmt gildandi lögum skal gjaldtaka sveitarfélaga vegna sorpþjónustu endurspegla raunkostnað við þjónustuna. Þetta er því ekki hefðbundin skattlagningarheimild þar sem hægt er að ákveða gjaldið óháð kostnaði heldur þarf kostnaðargrunnurinn að vera rekjanlegur og gjaldskráin studd raunverulegum kostnaði.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

2.Gjaldskrá Skagafjarðarhafna 2027
Málsnúmer 2608196Vakta málsnúmer
Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum lið.
Máli vísað frá 55. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar sem haldinn var þann 4. nóvember sl. Nefndin lagði til við byggðarráð að samþykkja fyrirliggjandi gjaldskrá fyrir Sauðárkróks- og Hofsóshafnir.
Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Máli vísað frá 55. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar sem haldinn var þann 4. nóvember sl. Nefndin lagði til við byggðarráð að samþykkja fyrirliggjandi gjaldskrá fyrir Sauðárkróks- og Hofsóshafnir.
Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
3.Fjárhagsáætlun 2027-2030
Málsnúmer 2606022Vakta málsnúmer
Undir þessum lið sátu Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, Bryndís Lilja Hallsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri.
Tekin fyrir fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árið 2027 ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030 milli umræðna í sveitarstjórn. Sviðsstjórar lögðu fram greinargerðir með fjárhagsáætlun sinna sviða og í kjölfarið lagði fjármálastjóri fram fjárhagsáætlun 2027-2030.
Að lokinni kynningu viku gestir af fundi.
Byggðarráð samþykkir fjárhagsáætlunina með tveimur atkvæðum og vísar henni til síðari umræðu og endanlegrar afgreiðslu í sveitarstjórn. Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks situr hjá við afgreiðslu málsins.

4.Reglur um heilsueflingarstyrki - breyting
Málsnúmer 2611084Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að uppfærðum reglum um heilsueflingarstyrki til starfsfólks Skagafjarðar fyrir árið 2027. Í fyrirlögðum drögum er gerð tillaga um að uppfæra 8. grein reglnanna á þann hátt að einnig sé hægt að nýta heilsueflingarstyrk upp í kostnað við heilsunudd.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

5.Maddömukot
Málsnúmer 2608167Vakta málsnúmer
18. ágúst 2026 auglýsti Skagafjörður eftir áhugasömum aðilum til að taka við Maddömukoti í núverandi ástandi án endurgjalds, gegn því skilyrði að húsið verði flutt á nýjan stað og gert upp í samræmi við kröfur Minjastofnunar Íslands. Húsið er aldursfriðað samkvæmt lögum um menningarminjar nr. 80/2012, sem þýðir að hvorki má rífa það né breyta á nokkurn hátt án samþykkis Minjastofnunar Íslands.
Ein umsókn barst um að fá að taka við húsinu frá Guðríði Björk Magnúsdóttir með það í huga að staðsetja húsið í Viðvík. Ætlunin er að veita húsinu hlutverk við að varðveita sögur sem hafa tengingar við Viðvík.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að verða við umsókn Guðríðar Bjarkar Magnúsdóttur og felur sveitarstjóra að ganga til samninga við hana. Húsið skal flutt af núverandi stað fyrir 1. júní 2027.

6.Nýtt rekstrarform á skíðasvæði í Tindastól
Málsnúmer 2608043Vakta málsnúmer
Mál áður á 217. fundi byggðarráðs þann 12. nóvember síðastliðinn. Þá voru lögð fyrir drög að samningi um rekstur skíðasvæðis í Tindastóli milli Skagafjarðar og skíðadeildar Tindastóls. Skíðadeildin hefur óskað eftir að fjárframlag vegna samningsins verði greitt út á 7 mánuðum í stað 12 mánaða eins og lagt var upp með í fyrri drögum. Í fyrirliggjandi drögum hefur greiðslufyrirkomulag verið uppfært til samræmis við ósk skíðadeildar.
Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks óskar bókað:
"Fyrr á þessu ári sagði Magnús Barðdal, þáverandi formaður Ungmennafélagsins Tindastóls, fyrir hönd aðalstjórnar upp gildandi rekstrarsamningi Skíðadeildar Tindastóls við Skagafjörð. Ástæðurnar voru að reksturinn væri orðinn of umfangsmikill og ábyrgðarmikil fyrir skíðadeildina. Jafnframt vonaðist þá Aðalstjórn til að reksturinn færðist til aðila með bolmagn og faglega getu til rekstarins. Nú hefur hins vegar meirihluti Skagafjarðar ákveðið að semja aftur við Skíðadeild Tindastóls til 7 mánaða og greiða fyrir það 27 milljónir sem er hækkun á ári um 5 milljónir en þar sem hér er einungis um 7 mánaða samning að ræða verður þetta um helmingshækkun á mánuði þann tíma sem samningurinn gildir, en hann nær til loka apríl 2027.
Þó það sé fagnaðarefni að rekstur svæðisins sé tryggður í vetur þá er þetta því miður engin lausn til framtíðar á þeim vandamálum sem verið hafa. Ekki hefur heldur verið prófað að bjóða reksturinn út til utanaðkomandi aðila, en nánast öll önnur skíðasvæði á landinu eru ýmist rekin af einkaaðilum með stuðningi sveitarfélaga eða þá beint af sveitarfélögum. Ég harma því að hér hafi ekki verið reynt að leita betri langtímalausna fyrir rekstur svæðisins með samningi til lengri tíma og þá við aðila sem treysta sér í rekstur sem þennan."
Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum fyrirliggjandi drög og felur sveitarstjóra að ganga til samninga við skíðadeild Tindastóls. Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks situr hjá við afgreiðslu málsins.

7.Tjaldsvæði á Hofsósi - Umsókn um stofnun lóðar
Málsnúmer 2611121Vakta málsnúmer
Fyrir fundinum liggur fyrir minnisblað, dagsett 12. nóvember 2026, þar sem lögð er upp tillaga um afmörkun tjaldsvæðis á Hofsósi.
Tillagan byggir á því landsvæði sem fram til þessa hefur verið nýtt sem tjaldsvæði.
Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að láta vinna lóðarblöð í samræmi við tillöguna og óska eftir stofnun lóðar.

8.Framkvæmdir við húsnæði Flugbjörgunarsveitarinnar og Brunavarna Skagafjarðar í Varmahlíð.
Málsnúmer 2610019Vakta málsnúmer
Mál áður á dagskrá 212. fundar byggðarráðs þann 5. október sl. Flugbjörgunarsveitin hafði lagt fyrir beiðni um að Skagafjörður taki þátt í framkvæmda- og viðhaldskostnaði við tækjasal sem er í sameign aðila, en ráðist var í framkvæmdirnar án undangengins samráðs við sveitarfélagið. Þá samþykkti byggðarráð að fela sveitarstjóra að kalla eftir ítarlegri gögnum. Þau gögn liggja nú fyrir og eru lögð fyrir byggðarráð.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela umsjónarmanni eignarsjóðs að taka umræddar framkvæmdir út og skila byggðarráði í kjölfarið ítarlegu minnisblaði. Byggðarráð samþykkir jafnframt samhljóða að boða forsvarsmenn Flugbjörgunarsveitarinnar á fund byggðarráðs þegar minnisblað umsjónarmanns eignarsjóðs liggur fyrir.

9.Umsóknir um rekstur sundlaugarinnar á Sólgörðum
Málsnúmer 2611132Vakta málsnúmer
Á 210. fundi byggðarráðs þann 22. september sl. samþykkti byggðarráð að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að taka við rekstri sundlaugarinnar frá og með næstu áramótum. Auglýsing þess efnis birtist á heimasíðu sveitarfélagsins 30. október sl. með umsóknarfrest til 15. nóvember. Auglýst var eftir háhugasömum aðilum til að taka við rekstrinum til þriggja ára. Rekstraraðili skal samkvæmt nánari þjónustusamningi annast daglegan rekstur og umsjón með starfsemi sundlaugarinnar.
Ein umsókn barst um rekstur sundlaugarinnar. Umsækjandi er Sótahnjúkur ehf. sem óskar eftir að endurnýja samning um rekstur laugarinnar, en félagið hefur haft umsjón með rekstri sundlaugarinnar síðastliðin 6 ár.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að ganga til samninga við forsvarsmenn Sótahnjúks ehf. um rekstur Sundlaugarinnar á Sólgörðum með gildandi samning að fyrirmynd.

10.Ósk um uppsetningu hverfahleðslu við Sundlaug Sauðárkróks
Málsnúmer 2611133Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur frá Halldóri Guðmuyndssyni dagsettur 11. nóvember sl. Í tölvupóstinum óskar Halldór, fyrir hönd Orku náttúrunnar, eftir að setja upp hverfahleðslu á nýju stækkuðu bílastæði austan við Sundlaug Sauðárkróks. Óskað er eftir að setja upp tvo staura, samtals fjögur tengi.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að verða við erindinu.

Fundi slitið - kl. 17:38.