Fara í efni

Framkvæmdir við húsnæði Flugbjörgunarsveitarinnar og Brunavarna Skagafjarðar í Varmahlíð.

Málsnúmer 2610019

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 212. fundur - 05.10.2026

Lagt fram erindi Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð, dags. 30. september 2026, undirritað af Einari Ólasyni formanni fyrir hönd stjórnar sveitarinnar. Í erindinu er gerð grein fyrir umfangsmiklum viðhalds- og endurbótaframkvæmdum á húsnæði sveitarinnar í Varmahlíð. Húsnæðið skiptist annars vegar í félagsaðstöðu í eigu björgunarsveitarinnar og hins vegar tækjasal sem er í 60% eigu Flugbjörgunarsveitarinnar og 40% eigu Skagafjarðar (Brunavarna Skagafjarðar).

Í erindinu er óskað eftir að sveitarfélagið taki þátt í um 8 milljóna króna framkvæmda- og viðhaldskostnaði við tækjasal sem er í sameign aðila, en ráðist var í framkvæmdirnar án undangengins samráðs við sveitarfélagið.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að kalla eftir ítarlegri gögnum og boða fulltrúa Flugbjörgunarsveitarinnar á fund byggðarráðs.