Á 210. fundi byggðarráðs þann 22. september sl. samþykkti byggðarráð að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að taka við rekstri sundlaugarinnar frá og með næstu áramótum. Auglýsing þess efnis birtist á heimasíðu sveitarfélagsins 30. október sl. með umsóknarfrest til 15. nóvember. Auglýst var eftir háhugasömum aðilum til að taka við rekstrinum til þriggja ára. Rekstraraðili skal samkvæmt nánari þjónustusamningi annast daglegan rekstur og umsjón með starfsemi sundlaugarinnar.
Ein umsókn barst um rekstur sundlaugarinnar. Umsækjandi er Sótahnjúkur ehf. sem óskar eftir að endurnýja samning um rekstur laugarinnar, en félagið hefur haft umsjón með rekstri sundlaugarinnar síðastliðin 6 ár.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að ganga til samninga við forsvarsmenn Sótahnjúks ehf. um rekstur Sundlaugarinnar á Sólgörðum með gildandi samning að fyrirmynd.