18. ágúst 2026 auglýsti Skagafjörður eftir áhugasömum aðilum til að taka við Maddömukoti í núverandi ástandi án endurgjalds, gegn því skilyrði að húsið verði flutt á nýjan stað og gert upp í samræmi við kröfur Minjastofnunar Íslands. Húsið er aldursfriðað samkvæmt lögum um menningarminjar nr. 80/2012, sem þýðir að hvorki má rífa það né breyta á nokkurn hátt án samþykkis Minjastofnunar Íslands.
Ein umsókn barst um að fá að taka við húsinu frá Guðríði Björk Magnúsdóttir með það í huga að staðsetja húsið í Viðvík. Ætlunin er að veita húsinu hlutverk við að varðveita sögur sem hafa tengingar við Viðvík.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að verða við umsókn Guðríðar Bjarkar Magnúsdóttur og felur sveitarstjóra að ganga til samninga við hana. Húsið skal flutt af núverandi stað fyrir 1. júní 2027.