Fara í efni

Gjaldskrá íþróttamannvirkja 2027

Málsnúmer 2608185

Vakta málsnúmer

Félagsmála- og tómstundanefnd - 47. fundur - 01.10.2026

Lögð er fram tillaga að gjaldskrá íþróttamannvirkja fyrir árið 2027. Breytingarnar fela almennt í sér um 2,5% hækkun í samræmi við fjárhagsramma. Helstu breytingar eru eftirfarandi:

- Gjaldskrárliðir íþróttasala, gervigrasvallar, búnaðarleigu og almennra sundmiða hækka um 2,5% að jafnaði.
- Gjald fyrir börn 0?6 ára helst óbreytt (0 kr.) og handhafar þjónustukorta Skagafjarðar hafa áfram endurgjaldslausan aðgang að sundlaugum.
- Árskort í sund lækka um 6,4% (úr 42.600 kr. í 39.900 kr.) til að hvetja til reglulegrar hreyfingar, samveru og lýðheilsu.
- Stakt sundgjald hækkar um 7,1% og 10 miða kort fullorðinna hækka um 7,4% sem vegur á móti lækkun á árskortum.

Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að fyrirliggjandi gjaldskrá íþróttamannvirkja fyrir árið 2027 verði samþykkt með áorðnum breytingum. Málinu er vísað til byggðarráðs til afgreiðslu.