Helgi Níelsson, endurskoðandi hjá KPMG sat fundinn undir þessum lið.
Á 196. fundi byggðarráðs, þann 27. maí 2026 lagði Einar E. Einarsson, fulltrúi framsóknarflokks fram tillögu um framkvæmd milliuppgjörs fyrir fyrri helming ársins. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Milliuppgjörið liggur nú fyrir og lagði Helgi fram uppgjörið og kynnti helstu niðurstöður fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026. Rekstrartekjur A- og B-hluta námu 4.962,6 m.kr. og rekstrargjöld, að meðtöldum afskriftum og breytingu lífeyrisskuldbindingar, 4.457,6 m.kr. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var því jákvæð um 505,0 m.kr. Að teknu tilliti til 336,3 m.kr. nettó fjármagnsgjalda var rekstrarniðurstaða A- og B-hluta jákvæð um 168,7 m.kr. A-hluti var hins vegar rekinn með 22,2 m.kr. halla á tímabilinu.
Heildareignir A- og B-hluta í lok júní námu 17.614,7 m.kr., eigið fé 6.284,2 m.kr. og skuldir og skuldbindingar 11.330,5 m.kr. Handbært fé frá rekstri nam 844,6 m.kr. á fyrri helmingi ársins og handbært fé í lok tímabilsins var 897,0 m.kr. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu 391,7 m.kr. á tímabilinu. Við mat á uppgjörinu er jafnframt rétt að hafa í huga að sala fasteigna Félagsíbúða til Bríetar leigufélags hses. hefur ekki verið færð inn í uppgjörið þar sem þeim viðskiptum var ekki lokið við gerð þess.
Stutt hlé gert á fundi.
Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks lagði fram svohljóðandi bókun:
"Framlagt árshlutauppgjör fyrir fyrstu 6 mánuði ársins vekur upp margar spurningar um raunverulega stöðu sveitarfélagsins en niðurstaðan á rekstri bæði A og B hluta eru vonbrigði. Í uppgjörinu er ekki gert ráð fyrir sölu félagslegu íbúðanna til Bríetar þó samningur um það hafi verið samþykktur af bæði sveitarstjórn Skagafjarðar og stjórn Bríetar. Vissulega er hann ekki kominn til framkvæmda en engu að síður er búið að samþykkja hann með formlegum hætti af báðum aðilum og setja hann inn í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026. Því má spyrja sig hvort sú áætlun sem núna er unnið eftir og hefur verið uppfærð með 7 viðaukum á árinu sé trúverðug."