Samtal hefur staðið yfir milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og forsvarsmanna Sýndarveruleika ehf. um framtíðarfyrirkomulag og nýtingu húsnæðisins að Aðalgötu 21. Markmiðið er að byggja áfram á þeirri starfsemi sem þar er fyrir, en jafnframt skapa forsendur fyrir fjölbreyttari starfsemi og betri nýtingu húsnæðisins.
Í samtali sveitarstjóra við forsvarsmann Sýndarveruleika ehf. kom fram jákvæð afstaða til breytts fyrirkomulags. Breytt nýting húsnæðisins er talin geta bætt rekstrarlegar forsendur, aukið fjölbreytni starfsemi og styrkt Aðalgötu 21 sem áfangastað fyrir íbúa og gesti.
Í framlögðu minnisblaði er gert ráð fyrir að áfram verði starfsemi 1238 í afmörkuðum hluta hússins og að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum til samtals um aðra starfsemi í húsnæðinu, annars vegar um veitingarekstur og hins vegar um aðra starfsemi í hluta þess rýmis sem nú er nýtt undir 1238 sýninguna. Auglýsingin verði opin hvað varðar mögulega starfsemi með það að markmiði að kalla fram hugmyndir sem geta aukið fjölbreytni, starfsemi og mannlíf í húsinu.
Gert er ráð fyrir að allir notendur hússins greiði markaðsleigu í samræmi við hlutdeild sína í húsnæðinu.
Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við núverandi leigutaka um fyrirhugaðar breytingar á nýtingu húsnæðisins að Aðalgötu 21 og samþykki þeirra fyrir því að unnið verði áfram á þeim grundvelli sem lýst er hér að framan. Málið skal lagt fyrir byggðarráð að nýju þegar frekari upplýsingar liggja fyrir. Fulltrúi Framsóknarflokks greiðir atkvæði á móti tillögunni.
Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks óskar bókað:
"Meirihluti Byggðarráðs hefur nú samþykkt tillögu þar sem Sýndarveruleika ehf., er gefinn kostur á að segja upp núverandi samningum en fá í staðinn forgang að leigu í húsnæðinu að Aðalgötu 21.
Tillagan gengur út á að Sýndarveruleiki ehf. segi upp núverandi samningum um þá starfsemi sem samið var um en fái í staðinn forgang að öðrum rekstri í húsinu, en í minna umfangi en er í dag. Þeir halda því áfram rekstri sýningarinnar 1238 og nýti til þess þá fermetra sem þeir óska eftir. Þá mun félagið greiða einungis hóflega greiðslu fyrir starfsemi sína, en engar upplýsingar liggja fyrir um hvað sé hófleg greiðsla. Ekki liggja heldur fyrir upplýsingar um hvað aðrir aðilar þurfa að greiða fyrir ónýtt svæði í kringum starfsemi Sýndarveruleika ehf., en til stendur að auglýsa það ásamt rekstri veitingaþjónustunnar.
Þær tillögur sem hér eru lagðar fram og gefa Sýndarveruleika ehf., forskot að leigu í húsnæðinu eru mjög óljósar og óskýrar ásamt því að ekkert liggur fyrir um kostnað eða fyrirgreiðslu sveitarfélagsins af þessum hugmyndum, hvorki til Sýndarveruleika ehf., né annarra aðila sem hugsanlega myndu hafa starfsemi í húsinu.
Það væri mun eðlilegra ef Sýndarveruleiki vill segja upp núverandi samningum að auglýsa þá eftir nýjum aðilum sem hefðu áhuga á starfsemi í húsinu, hvort sem hún þá tengdist ferðaþjónustu, veitingasölu eða annarri atvinnustarfsemi. Þannig væri húsnæðið opnað fyrir nýja aðila og þá sætu núverandi notendur og nýir aðilar við sama borð."
Högni Elfar Gylfason, fulltrúi Miðflokks óskar bókað:
"Áheyrnarfulltrúi Miðflokks telur að sveitarfélagið eigi ekki að standa að eða fyrir samkeppnisrekstri við einkaaðila beint eða óbeint."
Fulltrúar meirihluta Byggðalista og Sjálfstæðisflokks óska bókað:
"Meirihluti byggðarráðs áréttar að með þeirri leið sem hér er lögð til er verið að leita leiða til að tryggja áframhaldandi rekstur og starfsemi í húsnæðinu að Aðalgötu 21, um leið og skapaðar eru forsendur fyrir fjölbreyttari starfsemi og betri nýtingu hússins.
Í því samhengi er rétt að árétta að gert er ráð fyrir að allir notendur húsnæðisins, þar með taldir núverandi leigutakar, greiði markaðsleigu í samræmi við hlutdeild sína í húsnæðinu. Því er ekki gert ráð fyrir sérkjörum eða ívilnunum til einstakra rekstraraðila.
Meirihlutinn telur það eðlilegt hlutverk sveitarfélagsins að leita leiða til að skapa góðar forsendur fyrir atvinnustarfsemi og vinna með atvinnulífinu að lausnum sem stuðla að aukinni starfsemi og verðmætasköpun, fremur en að vinna gegn slíkri þróun."