Sveitarstjórn Skagafjarðar
1.Byggðarráð Skagafjarðar - 213
Málsnúmer 2610015FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Helgi Níelsson, endurskoðandi hjá KPMG sat fundinn undir þessum lið.
Á 196. fundi byggðarráðs, þann 27. maí 2026 lagði Einar E. Einarsson, fulltrúi framsóknarflokks fram tillögu um framkvæmd milliuppgjörs fyrir fyrri helming ársins. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Milliuppgjörið liggur nú fyrir og lagði Helgi fram uppgjörið og kynnti helstu niðurstöður fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026. Rekstrartekjur A- og B-hluta námu 4.962,6 m.kr. og rekstrargjöld, að meðtöldum afskriftum og breytingu lífeyrisskuldbindingar, 4.457,6 m.kr. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var því jákvæð um 505,0 m.kr. Að teknu tilliti til 336,3 m.kr. nettó fjármagnsgjalda var rekstrarniðurstaða A- og B-hluta jákvæð um 168,7 m.kr. A-hluti var hins vegar rekinn með 22,2 m.kr. halla á tímabilinu.
Heildareignir A- og B-hluta í lok júní námu 17.614,7 m.kr., eigið fé 6.284,2 m.kr. og skuldir og skuldbindingar 11.330,5 m.kr. Handbært fé frá rekstri nam 844,6 m.kr. á fyrri helmingi ársins og handbært fé í lok tímabilsins var 897,0 m.kr. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu 391,7 m.kr. á tímabilinu. Við mat á uppgjörinu er jafnframt rétt að hafa í huga að sala fasteigna Félagsíbúða til Bríetar leigufélags hses. hefur ekki verið færð inn í uppgjörið þar sem þeim viðskiptum var ekki lokið við gerð þess.
Stutt hlé gert á fundi.
Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks lagði fram svohljóðandi bókun:
"Framlagt árshlutauppgjör fyrir fyrstu 6 mánuði ársins vekur upp margar spurningar um raunverulega stöðu sveitarfélagsins en niðurstaðan á rekstri bæði A og B hluta eru vonbrigði. Í uppgjörinu er ekki gert ráð fyrir sölu félagslegu íbúðanna til Bríetar þó samningur um það hafi verið samþykktur af bæði sveitarstjórn Skagafjarðar og stjórn Bríetar. Vissulega er hann ekki kominn til framkvæmda en engu að síður er búið að samþykkja hann með formlegum hætti af báðum aðilum og setja hann inn í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026. Því má spyrja sig hvort sú áætlun sem núna er unnið eftir og hefur verið uppfærð með 7 viðaukum á árinu sé trúverðug." Bókun fundar Afgreiðsla 213. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
Einar E. Einarsson ítrekar bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"Framlagt árshlutauppgjör fyrir fyrstu 6 mánuði ársins vekur upp margar spurningar um raunverulega stöðu sveitarfélagsins en niðurstaðan á rekstri bæði A og B hluta eru vonbrigði. Í uppgjörinu er ekki gert ráð fyrir sölu félagslegu íbúðanna til Bríetar þó samningur um það hafi verið samþykktur af bæði sveitarstjórn Skagafjarðar og stjórn Bríetar. Vissulega er hann ekki kominn til framkvæmda en engu að síður er búið að samþykkja hann með formlegum hætti af báðum aðilum og setja hann inn í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026. Því má spyrja sig hvort sú áætlun sem núna er unnið eftir og hefur verið uppfærð með 7 viðaukum á árinu sé trúverðug" -
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Árið 1998 gerðu Skíðadeild Tindastóls og Sveitarfélagið Skagafjörður samning um uppbyggingu skíðasvæðis í vestanverðum Tindastóli, sem tekið var í notkun árið 2000. Skíðadeildin hefur frá þeim tíma annast rekstur svæðisins samkvæmt samningi við sveitarfélagið.
Skíðadeild Tindastóls sagði upp gildandi rekstrarsamningi með bréfi dagsettu 27. febrúar 2026. Fulltrúar skíðadeildar og aðalstjórnar Tindastóls gerðu grein fyrir uppsögninni á 186. fundi byggðarráðs þann 19. mars 2026. Uppsögnin kallar á endurskoðun á fyrirkomulagi rekstrar skíðasvæðisins.
Fyrir fundinum lá minnisblað um mögulegt framtíðarfyrirkomulag rekstrar skíðasvæðisins í Tindastóli.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir byggðarráð að nýju. Bókun fundar Afgreiðsla 213. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Samtal hefur staðið yfir milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og forsvarsmanna Sýndarveruleika ehf. um framtíðarfyrirkomulag og nýtingu húsnæðisins að Aðalgötu 21. Markmiðið er að byggja áfram á þeirri starfsemi sem þar er fyrir, en jafnframt skapa forsendur fyrir fjölbreyttari starfsemi og betri nýtingu húsnæðisins.
Í samtali sveitarstjóra við forsvarsmann Sýndarveruleika ehf. kom fram jákvæð afstaða til breytts fyrirkomulags. Breytt nýting húsnæðisins er talin geta bætt rekstrarlegar forsendur, aukið fjölbreytni starfsemi og styrkt Aðalgötu 21 sem áfangastað fyrir íbúa og gesti.
Í framlögðu minnisblaði er gert ráð fyrir að áfram verði starfsemi 1238 í afmörkuðum hluta hússins og að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum til samtals um aðra starfsemi í húsnæðinu, annars vegar um veitingarekstur og hins vegar um aðra starfsemi í hluta þess rýmis sem nú er nýtt undir 1238 sýninguna. Auglýsingin verði opin hvað varðar mögulega starfsemi með það að markmiði að kalla fram hugmyndir sem geta aukið fjölbreytni, starfsemi og mannlíf í húsinu.
Gert er ráð fyrir að allir notendur hússins greiði markaðsleigu í samræmi við hlutdeild sína í húsnæðinu.
Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við núverandi leigutaka um fyrirhugaðar breytingar á nýtingu húsnæðisins að Aðalgötu 21 og samþykki þeirra fyrir því að unnið verði áfram á þeim grundvelli sem lýst er hér að framan. Málið skal lagt fyrir byggðarráð að nýju þegar frekari upplýsingar liggja fyrir. Fulltrúi Framsóknarflokks greiðir atkvæði á móti tillögunni.
Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks óskar bókað:
"Meirihluti Byggðarráðs hefur nú samþykkt tillögu þar sem Sýndarveruleika ehf., er gefinn kostur á að segja upp núverandi samningum en fá í staðinn forgang að leigu í húsnæðinu að Aðalgötu 21.
Tillagan gengur út á að Sýndarveruleiki ehf. segi upp núverandi samningum um þá starfsemi sem samið var um en fái í staðinn forgang að öðrum rekstri í húsinu, en í minna umfangi en er í dag. Þeir halda því áfram rekstri sýningarinnar 1238 og nýti til þess þá fermetra sem þeir óska eftir. Þá mun félagið greiða einungis hóflega greiðslu fyrir starfsemi sína, en engar upplýsingar liggja fyrir um hvað sé hófleg greiðsla. Ekki liggja heldur fyrir upplýsingar um hvað aðrir aðilar þurfa að greiða fyrir ónýtt svæði í kringum starfsemi Sýndarveruleika ehf., en til stendur að auglýsa það ásamt rekstri veitingaþjónustunnar.
Þær tillögur sem hér eru lagðar fram og gefa Sýndarveruleika ehf., forskot að leigu í húsnæðinu eru mjög óljósar og óskýrar ásamt því að ekkert liggur fyrir um kostnað eða fyrirgreiðslu sveitarfélagsins af þessum hugmyndum, hvorki til Sýndarveruleika ehf., né annarra aðila sem hugsanlega myndu hafa starfsemi í húsinu.
Það væri mun eðlilegra ef Sýndarveruleiki vill segja upp núverandi samningum að auglýsa þá eftir nýjum aðilum sem hefðu áhuga á starfsemi í húsinu, hvort sem hún þá tengdist ferðaþjónustu, veitingasölu eða annarri atvinnustarfsemi. Þannig væri húsnæðið opnað fyrir nýja aðila og þá sætu núverandi notendur og nýir aðilar við sama borð."
Högni Elfar Gylfason, fulltrúi Miðflokks óskar bókað:
"Áheyrnarfulltrúi Miðflokks telur að sveitarfélagið eigi ekki að standa að eða fyrir samkeppnisrekstri við einkaaðila beint eða óbeint."
Fulltrúar meirihluta Byggðalista og Sjálfstæðisflokks óska bókað:
"Meirihluti byggðarráðs áréttar að með þeirri leið sem hér er lögð til er verið að leita leiða til að tryggja áframhaldandi rekstur og starfsemi í húsnæðinu að Aðalgötu 21, um leið og skapaðar eru forsendur fyrir fjölbreyttari starfsemi og betri nýtingu hússins.
Í því samhengi er rétt að árétta að gert er ráð fyrir að allir notendur húsnæðisins, þar með taldir núverandi leigutakar, greiði markaðsleigu í samræmi við hlutdeild sína í húsnæðinu. Því er ekki gert ráð fyrir sérkjörum eða ívilnunum til einstakra rekstraraðila.
Meirihlutinn telur það eðlilegt hlutverk sveitarfélagsins að leita leiða til að skapa góðar forsendur fyrir atvinnustarfsemi og vinna með atvinnulífinu að lausnum sem stuðla að aukinni starfsemi og verðmætasköpun, fremur en að vinna gegn slíkri þróun." Bókun fundar Afgreiðsla 213. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með sjö atkvæðum. Fulltrúar Framsóknarflokks greiða atkvæði gegn afgreiðslunni.
Einar E. Einarsson ítrekar bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"Meirihluti Byggðarráðs hefur nú samþykkt tillögu þar sem Sýndarveruleika ehf., er gefinn kostur á að segja upp núverandi samningum en fá í staðinn forgang að leigu í húsnæðinu að Aðalgötu 21.
Tillagan gengur út á að Sýndarveruleiki ehf. segi upp núverandi samningum um þá starfsemi sem samið var um en fái í staðinn forgang að öðrum rekstri í húsinu, en í minna umfangi en er í dag. Þeir halda því áfram rekstri sýningarinnar 1238 og nýti til þess þá fermetra sem þeir óska eftir. Þá mun félagið greiða einungis hóflega greiðslu fyrir starfsemi sína, en engar upplýsingar liggja fyrir um hvað sé hófleg greiðsla. Ekki liggja heldur fyrir upplýsingar um hvað aðrir aðilar þurfa að greiða fyrir ónýtt svæði í kringum starfsemi Sýndarveruleika ehf., en til stendur að auglýsa það ásamt rekstri veitingaþjónustunnar.
Þær tillögur sem hér eru lagðar fram og gefa Sýndarveruleika ehf., forskot að leigu í húsnæðinu eru mjög óljósar og óskýrar ásamt því að ekkert liggur fyrir um kostnað eða fyrirgreiðslu sveitarfélagsins af þessum hugmyndum, hvorki til Sýndarveruleika ehf., né annarra aðila sem hugsanlega myndu hafa starfsemi í húsinu.
Það væri mun eðlilegra ef Sýndarveruleiki vill segja upp núverandi samningum að auglýsa þá eftir nýjum aðilum sem hefðu áhuga á starfsemi í húsinu, hvort sem hún þá tengdist ferðaþjónustu, veitingasölu eða annarri atvinnustarfsemi. Þannig væri húsnæðið opnað fyrir nýja aðila og þá sætu núverandi notendur og nýir aðilar við sama borð."
Fulltrúar meirihluta ítreka bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"Meirihluti byggðarráðs áréttar að með þeirri leið sem hér er lögð til er verið að leita leiða til að tryggja áframhaldandi rekstur og starfsemi í húsnæðinu að Aðalgötu 21, um leið og skapaðar eru forsendur fyrir fjölbreyttari starfsemi og betri nýtingu hússins.
Í því samhengi er rétt að árétta að gert er ráð fyrir að allir notendur húsnæðisins, þar með taldir núverandi leigutakar, greiði markaðsleigu í samræmi við hlutdeild sína í húsnæðinu. Því er ekki gert ráð fyrir sérkjörum eða ívilnunum til einstakra rekstraraðila.
Meirihlutinn telur það eðlilegt hlutverk sveitarfélagsins að leita leiða til að skapa góðar forsendur fyrir atvinnustarfsemi og vinna með atvinnulífinu að lausnum sem stuðla að aukinni starfsemi og verðmætasköpun, fremur en að vinna gegn slíkri þróun." -
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 213. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Lagt fram erindi frá Söru Björk Þorsteinsdóttur, verkefnastjóra farsældarráðs hjá SSNV, dagsett 2. október 2026. Í erindinu er lagt til að sveitarfélögin á Norðurlandi vestra sameinist um að Bergið headspace hafi fasta viðveru á Norðurlandi vestra einu sinni í mánuði. Ungmenni á aldrinum 12-25 ára hefðu með því móti aðgang að gjaldfrjálsum einstaklingsviðtölum og stuðningi án tilvísunar.
Gert er ráð fyrir að viðveran verði á Sauðárkróki í samstarfi við FNV, sem leggi til rými í sínu húsnæði, auk þess sem fjarviðtöl verði í boði á milli heimsókna þannig að þjónustan geti nýst ungmennum af öllu svæðinu.
Árlegur kostnaður verkefnisins er áætlaður um 1,9 m.kr. og samkvæmt framlagðri tillögu er gert ráð fyrir að sveitarfélögin standi undir 60% kostnaðar á móti 40% hlut Bergsins. Jafnframt er lagt til að sveitarfélögin sæki sameiginlega um styrk til Stjórnarráðsins í þágu farsældar barna vegna verkefnisins.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og telur mikilvægt að efla aðgengi ungmenna á Norðurlandi vestra að þjónustu af þessu tagi. Byggðarráð leggur til að kannað verði hvort verkefnið geti verið áhersluverkefni SSNV og verði fjármagnað af samtökunum, enda falli það vel að áherslum sóknaráætlunar um aukin lífsgæði, heilsu og vellíðan íbúa. Jafnframt telur byggðarráð rétt að skoðað verði hvort viðvera Bergsins geti verið á fleiri en einum stað á Norðurlandi vestra þannig að aðgengi ungmenna að þjónustunni verði sem best. Bókun fundar Guðlaugur Skúlason vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Afgreiðsla 213. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með átta atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Lagður fram tölvupóstur frá Lindu Dröfn Gunnarsdóttur, framkvæmdastýru kvennaathvarfsins, dagsettur 6. október 2026. Í tölvupóstinum leggur hún fram beiðni um rekstrarstyrk til Kvennaathvarfsins fyrir árið 2027 að fjárhæð 300.000 kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita 300.000 kr. styrk til Kvennaathvarfsins á árinu 2027 og tekur fjármagnið af deild 21990 á því fjárhagsári.
Bókun fundar Afgreiðsla 213. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Máli vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar sem haldinn var 1. október sl.
Félagsmála- og tómstundanefnd lagði til við byggðarráð að gjaldskrá heimaþjónustu árið 2027 taki mið af launaflokki 128 í kjarasamningum Öldunnar/Kjalar frá 1. apríl 2026, með 8% persónuálagi og launatengdum gjöldum. Jafnframt lagði nefndin til að tekjuviðmið til lækkunar gjalda taki mið af greiðslum Tryggingastofnunar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá heimaþjónustu 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Máli vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar sem haldinn var 1. október sl.
Félagsmála- og tómstundanefnd lagði til við byggðarráð að miðað verði við jafnaðartaxta NPA-miðstöðvarinnar frá 1. janúar 2027 við útreikning á jafnaðarstundum í NPA-samningum. Stuðst verði við þrjá mismunandi taxta sem taka mið af þörfum notenda. Skipting kostnaðar felur í sér framlag til launakostnaðar (85%), umsýslukostnaðar (10%) og starfsmannakostnaðar (5%).
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Greiðsluviðmið jafnaðarstunda NPA samninga 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Máli vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar sem haldinn var 1. október sl.
Félagsmála- og tómstundanefnd afgreiddi gjaldskránna frá sér með því að miðað var við að hún hækkaði að jafnaði um 2,5% en nokkrir liðir hennar hækka umfram 2,5% viðmiðið sem samþykkt var samhliða ramma fjárhagsáætlunar.
Umræður á fundinum snéru að því að leiðrétta gjaldskránna og miða alfarið við 2,5% viðmiðið og hækka því allir liðir gjaldskrár íþróttamannvirkja 2027 eingöngu um 2,5% eins og samþykkt var í meðferð rammaáætlunar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá með áorðnum breytingum og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá íþróttamannvirkja 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Máli vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar sem haldinn var 1. október sl.
Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga fyrir árið 2027 var samþykkt á 48. fundi Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar Skagafjarðar og staðfest á 53. fundi sveitarstjórnar. Berglind Þorsteinsdóttir forstöðumaður byggðasafns Skagfirðinga hefur óskað eftir að gerð verði breyting á gjaldskránni og að bætt verði við gjaldlið. Um er að ræða verð á sameiginlegum miðum á byggðasafnið og sundlaugarnar fyrir árið 2027.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkti viðbótina við gjaldskránna fyrir sitt leiti á 49. fundi nefndarinnar þann 24. september sl. og vísaði til afgreiðslu félagsmála- og tómstundanefndar vegna aðkomu sundlauganna að gjaldaliðnum. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkti gjaldskránna fyrir sitt leiti og vísaði til afgreiðslu byggðarráðs.
Umræður á fundinum snéru að því að leiðrétta gjaldskránna og miða alfarið við 2,5% viðmiðið og hækka því gjaldaliðirnir eingöngu um 2,5% eins og samþykkt var í meðferð rammaáætlunar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá með áorðnum breytingum og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Máli vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.
Landbúnaðar- og innviðanefndin samþykkti gjaldskránna og vísaði henni til afgreiðslu byggðarráðs.
Gjaldskráin hækkar almennt um 2,5% en mælagjöld tóku hærri hækkunum í þeirri gjaldskrá sem vísað var til afgreiðslu byggðarráðs.
Umræður á fundinum snéru að því að leiðrétta gjaldskránna og miða alfarið við 2,5% viðmiðið og hækka því allir liðir gjaldskrárinnar eingöngu um 2,5% eins og samþykkt var í meðferð rammaáætlunar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá með áorðnum breytingum og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá vatnsveitu 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Lögð fram gjaldskrá skipulagsfulltrúa fyrir árið 2027.
Gjaldskrá vegna framkvæmdaleyfa og skipulagsmála byggir á skipulagslögum nr. 123/2010 og þeirri meginreglu að umsækjandi standi straum af kostnaði sveitarfélagsins vegna vinnslu máls, þar með talið vinnu við skipulagsáætlanir og framkvæmdaleyfi, kynningu, auglýsingar, umhverfismat og eftir atvikum aðkeypta þjónustu.
Gjaldskráin tekur að hámarki 2,5% hækkun frá núverandi gjaldskrá í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá skipulagsfulltrúa þjónustu- og framkvæmdagjöld 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Með lögum nr. 96/2021 sem tóku gildi í júní 2021 samþykkti Alþingi nýtt ákvæði við sveitarstjórnarlög sem fjallar um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags. Samkvæmt 130. gr. a sveitarstjórnarlaga skal sveitarstjórn móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú árin eftir það, um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum viðkomandi sveitarfélags.
Lögð voru fram drög að þjónustustefnu 2027-2030 sem byggja á gildandi þjónustustefnu.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að auglýsa eftir athugasemdum og ábendingum um breytingar á gildandi þjónustustefnu og vísar stefnunni jafnframt til fyrri umræðu í sveitarstjórn. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Þjónustustefna Skagafjarðar 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Lögð fram fyrirspurn frá Einari E. Einarssyni fyrir hönd Framsóknarflokksins, dagsett 11. október 2026.
Í fyrirspurninni óskar Einar eftir að staða framkvæmda, fjármögnun og áætluð verklok á nýja Norðurgarðinum við Sauðárkrókshöfn verði tekin á dagskrá fundar byggðarráðs.
Svör byggðarráðs við fyrirspurninni eru eftirfarandi:
Framkvæmdir við nýja Norðurgarðinn við Sauðárkrókshöfn eru komnar vel á veg. Núverandi verk við brimvörn er um 63% lokið miðað við samningsfjárhæð og er áætlað að brimvörninni ljúki vorið 2027. Samhliða er unnið að fyllingu fyrir nýjan hafnarkant og er gert ráð fyrir að fylling og farg verði komin út í lok árs 2026. Að því loknu þarf fyllingin að standa þar til ásættanlegu sigi hefur verið náð áður en unnt verður að hefja framkvæmdir við stálþil og steypta þekju.
Áætlaður kostnaður við brimvörn er 915 m.kr. og nemur framlag ríkissjóðs 60% að frádregnum virðisaukaskatti. Fyllingin nýtur sama styrkhlutfalls. Fyrirstöðugarður, sem áætlaður er að kosti 80 m.kr., er hins vegar ekki ríkisstyrktur. Dýpkun, áætluð árið 2028, er ekki komin inn á samgönguáætlun og framkvæmdir við stálþil og steypta þekju, sem áætlaðar eru um 1.100 m.kr., eru ekki fullfjármagnaðar. Ekki liggur því fyrir endanleg tímasetning verkloka heildarframkvæmdarinnar, en samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum er gert ráð fyrir framkvæmdum fram yfir árið 2031.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra, sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs og hafnarstjóra að funda með fulltrúum Vegagerðarinnar og vinna að raunhæfri tíma- og kostnaðaráætlun fyrir þá verkþætti sem eftir standa, með það að markmiði að tryggja áframhaldandi framgang verkefnisins. Niðurstöður þessa samtals skulu lagðar fyrir byggðarráð eins fljótt og auðið er. Byggðarráð leggur áherslu á mikilvægi uppbyggingar Sauðárkrókshafnar, enda er verkefnið mikið hagsmunamál fyrir Skagafjörð og Norðurland vestra í heild. Bókun fundar Afgreiðsla 213. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 213 Lagt fram erindi frá Karli Tómassyni og Líneyju Ólafsdóttur, dagsett 11. október 2026, varðandi íbúð í eigu sveitarfélagsins að Austurgötu 9 á Hofsósi.
Í erindinu gera þau grein fyrir húsnæðisstöðu sinni og samskiptum við sveitarfélagið vegna áhuga á langtímaleigu á íbúðinni. Jafnframt óska þau eftir því að við ráðstöfun eignarinnar verði tekið mið af þörfum umsækjenda.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið og biðst velvirðingar á þeirri meðferð sem málið hefur fengið á fyrri stigum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að bíða með ráðstöfun fasteignarinnar að Austurgötu 9, enda er eigninni ætlað að þjóna þeim tilgangi að tryggja framboð félagslegs leiguhúsnæðis. Staðan verði endurmetin að sex mánuðum liðnum hafi þá enginn umsækjandi, sem uppfyllir skilyrði samkvæmt reglum sveitarfélagsins um félagslegt leiguhúsnæði, óskað eftir íbúðinni.
Einar E. Einarsson fulltrúi Framsóknarflokks óskar bókað:
"Með hliðsjón af þessu máli og þróun þess má ljóst vera að eitthvað hefur farið verulega úrskeiðis í upplýsingaflæði frá sveitarfélaginu um í hvaða farveg þessi umrædda íbúð ætti að fara, yrði hún laus til umsóknar. Það er miður að svo skuli hafa farið og að fólk sem leitaði til sveitarfélagsins eftir upplýsingum um stöðu sveitarfélagsins hafi fengið misvísandi upplýsingar um í hvaða farveg íbúðin færi í. Það er mjög mikilvægt að sá ferill sem lausar íbúðir fara í sé alveg skýr og ef það á að setja íbúð í leigu á almenna markaðnum sé hún auglýst með opinberum hætti og þá dregið úr umsækjendum séu þeir fleiri en einn." Bókun fundar Afgreiðsla 213. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
Einar E. Einarsson ítrekar bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"Með hliðsjón af þessu máli og þróun þess má ljóst vera að eitthvað hefur farið verulega úrskeiðis í upplýsingaflæði frá sveitarfélaginu um í hvaða farveg þessi umrædda íbúð ætti að fara, yrði hún laus til umsóknar. Það er miður að svo skuli hafa farið og að fólk sem leitaði til sveitarfélagsins eftir upplýsingum um stöðu sveitarfélagsins hafi fengið misvísandi upplýsingar um í hvaða farveg íbúðin færi í. Það er mjög mikilvægt að sá ferill sem lausar íbúðir fara í sé alveg skýr og ef það á að setja íbúð í leigu á almenna markaðnum sé hún auglýst með opinberum hætti og þá dregið úr umsækjendum séu þeir fleiri en einn."
2.Byggðarráð Skagafjarðar - 214
Málsnúmer 2610021FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 214 Á haustþingi SSNV, sem haldið var á Hótel Laugarbakka 1. október 2026, var samþykkt að endurskipa samgöngu- og innviðanefnd SSNV. Nefndina skipar einn fulltrúi frá hverju sveitarfélagi á Norðurlandi vestra. Hlutverk hennar er að yfirfara gildandi samgöngu- og innviðaáætlun Norðurlands vestra frá apríl 2024 og uppfæra hana eftir þörfum, og skal endurnýjuð áætlun lögð fyrir ársþing SSNV 2027. Sveitarfélagið er beðið að tilnefna sinn fulltrúa í nefndina eigi síðar en 30. október 2026.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að tilnefna Svein Þ. Finster Úlfarsson og Guðnýju Axelsdóttur til samgöngu- og innviðanefndar SSNV. Bókun fundar Guðlaugur Skúlason vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með átta atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 214 Ráðgert er að setja saman vinnuhóp um málefni skálans við Ströngukvísl á Eyvindastaðaheiði.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að tilnefna Sólborgu Sigurrós Borgarsdóttur og Magnús Barðdal Reynisson sem fulltrúa Skagafjarðar í vinnuhópnum. Bókun fundar Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 214 Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 15. október 2026, frá Svavari Pálssyni, sveitarstjóra Húnabyggðar. Í tölvupóstinum er borið upp erindi vegna aðgerða við Stafnsrétt til umfjöllunar. Málið má rekja til fjárskaðans við Stafnsrétt árið 1976, þegar fjöldi fjár fórst, m.a. fé sem talið er hafa verið úr Skagafirði. Nú hefur skapast hætta á að rof Svartár í Húnabyggð komist að grafreit fjárins og að jarðvegur og leifar berist í ána.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að óska eftir frekari gögnum. Bókun fundar Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. - 2.4 2609145 Beiðni um endurgjaldslaus afnot af húsnæði vegna viðburða á barnamenningarhátíðinni SkúnaskralliByggðarráð Skagafjarðar - 214 Lagt fram erindi frá Berglindi Björnsdóttur, verkefnastjóra hjá SSNV þar sem hún fer þess á leit að fá afnot af húsnæði Skagafjarðar endurgjaldslaust fyrir viðburði vegna barnamenningarhátíðarinnar Skúnaskrall sem fram fer dagana 21. október til 4. nóvember.
Um er að ræða viðburði sem fram fara m.a. á Héraðsbókasafni Skagfirðinga, í grunnskólum Skagafjarðar og öðrum stofnunum, á opnunartíma þeirra stofnanna sem um ræðir. Að hluta til er verið að óska eftir aðgangi að húsum sem sveitarfélagið hefur gert samninga við rekstraraðila og hefur því ekki fullt forræði til að úthluta þeim húsum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita endurgjaldslaust húsnæði sem er á fullu forræði Skagafjarðar, í samráði við húsráðanda á hverjum stað. Byggðarráð áréttar að haft verði samband beint við rekstraraðila húsnæðis sem ekki eru á forræði sveitarfélagsins. Bókun fundar Guðlaugur Skúlason vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með átta atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 214 Hafnasambandsþing 2026 fer fram dagana 22. og 23. október. Á þinginu verður kosið í stjórn Hafnasambands Íslands til tveggja ára. Kjörgengir í stjórn Hafnasambands Íslands eru kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum og hafnarstjórnum, auk varamanna þeirra. Að auki eru kjörgengir starfsmenn hafna og sveitarfélaga.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að tilnefna Sólborgu Sigurrós Borgarsdóttur til stjórnarsetu í Hafnasambandi Íslands. Bókun fundar Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 214 Skagafjörður auglýsti til sölu fasteignina Furulund 5, F214-0798. Húsið skal selt til flutnings. Áður hafa borist tvö tilboð í eignina sem byggðarráð hafnaði.
Lagt var fram kauptilboð í Furulund 5 sem gildir til kl. 15:00 fimmtudaginn 22. október nk.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að svara tilboðinu með gagntilboði. Byggðarráð felur Fasteignasölu Sauðárkróks að svara tilboðinu. Bókun fundar Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 214 Lagður fram tölvupóstur frá Söru Björk Þorsteinsdóttur, verkefnastjóra farsældarráðs hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), dags. 6. október 2026. Í tölvupóstinum óskar Sara eftir stuðningi sveitarfélagsins við styrkumsóknir vegna verkefna á sviði farsældar barna á Norðurlandi vestra og samþykki fyrir því að SSNV sæki um styrkina fyrir hönd sveitarfélaganna. Þrjár styrkhugmyndanna byggja á aðgerðaáætlun farsældarráðs Norðurlands vestra og sú fjórða lýtur að samræmdu heildarmati á stuðningsþörf barna.
Fyrir fundinum lágu jafnframt fyrir styrkumsóknir og lýsingar á fyrirhuguðum verkefnum, þ.e. fræðsla skólabílstjóra, kortlagning á aðstöðumun og kostnaði barna í íþrótta- og tómstundastarfi, Farsældarvika og Farsældardagur Norðurlands vestra og samræmt heildarmat á stuðningsþörf barna.
Byggðarráð tekur jákvætt í framlagðar styrkumsóknir vegna verkefna á sviði farsældar barna á Norðurlandi vestra. Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita verkefnunum stuðningsyfirlýsingu sína og felur SSNV að sækja um styrkina fyrir hönd sveitarfélagsins í samræmi við framlögð gögn. Bókun fundar Guðlaugur Skúlason vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með átta atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 214 Mál áður á dagskrá 211. fundar byggðarráðs þann 1. október sl. Á þeim fundi sammæltist byggðarráð um að óska eftir lengri gildistíma kauptilboðs auk þess sem óskað var eftir frekari upplýsingum um fyrirhugaða nýtingu hússins. Bjóðandi varð ekki við ósk um lengri frest og hefur fallið frá kauptilboðinu. Bókun fundar Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 214 Mál síðast á dagskrá 209. fundar byggðarráðs þann 17. september sl. Þá voru lögð fram drög að samningi milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og Drangeyjarferða ehf. um nýtingu Drangeyjar til ferðaþjónustu. Þá samþykkti byggðarráð fyrir sitt leiti drögin og liggja nú fyrir athugasemdir frá forsvarsmönnum Drangeyjarferða ehf. um samningsdrögin. Samningurinn er því lagður fram að nýju til afgreiðslu byggðarráðs að teknu tilliti til athugasemda forsvarsmanna Drangeyjarferða ehf.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Skagafjarðar.
Bókun fundar Jóhanna Ey Harðardóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með átta atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 214 Fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 204/2026, "Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki, nr. 100/2025 (lagaumgjörð og innheimta gjaldsins)".
Umsagnarfrestur er til og með 27.10.2026.
Sveitarfélagið fagnar ýmsum þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu. Þar má sérstaklega nefna einföldun og skýrari afmörkun undanþágu ökutækja björgunarsveita, skýrari reglur um undanþágu dráttarvéla í landbúnaði og undanþágu tiltekinna ökutækja sem ekki eða aðeins að mjög takmörkuðu leyti nota almennt vegakerfi.
Samkvæmt b-lið 1. gr. draganna getur reglubundin verktaka leitt til þess að dráttarvél njóti ekki undanþágu frá kílómetragjaldi. Í greinargerðinni er sérstaklega tekið fram að reglubundin snjómokstursþjónusta teljist ekki tilfallandi notkun og að undanþágan taki annaðhvort til ökutækisins í heild eða það beri fullt gjald. Það sama á við um verktaka sem sjá t.d. um slátt og heyrúllun fyrir bændur. Byggðaráð telur þetta fyrirkomulag geta haft óheppilegar afleiðingar fyrir þjónustu í dreifbýli. Bóndi sem tekur að sér takmarkaðan en reglubundinn snjómokstur fyrir sveitarfélag eða verktöku fyrir bændur í heyskap eða öðru gæti misst undanþáguna þótt dráttarvélin sé að langmestu leyti notuð við landbúnað. Það gæti hækkað tilboð í snjómokstur eða dregið úr framboði þjónustu í t.d. heyskap og aukið kostnað bænda við heyöflun og fleira.
Byggðarráð leggur til að afmörkuð snjómokstursverkefni í þágu sveitarfélaga og aðgerðir vegna ófærðar eða neyðaraðstæðna leiði ekki sjálfkrafa til þess að undanþága falli niður í heild. Setja þarf skýr viðmið um umfang slíkrar notkunar og kanna einfalt fyrirkomulag þar sem gjaldtaka taki aðeins til gjaldskylds hluta aksturs. Þá leggur byggðarráð einnig til að verktaka fyrir bændur við heyöflun og fleira verði undanþegin.
Þrátt fyrir framangreinda jákvæða þætti telur sveitarfélagið brýnt að stjórnvöld horfi mun skýrar til ólíkra áhrifa kílómetragjalds eftir búsetu og landfræðilegum aðstæðum.
Í dreifbýlu sveitarfélagi eru ferðir íbúa vegna atvinnu, menntunar, heilbrigðisþjónustu, verslunar og almennrar þjónustusóknar að jafnaði lengri og raunhæfir valkostir aðrir en einkabíll takmarkaðri en á þéttbýlli svæðum. Benda skal á að ýmsa heilbrigðisþjónustu eða opinbera þjónustu er eingöngu mögulegt að sækja á Höfuðborgarsvæðið og kallar það á langar ferðir þeirra íbúa sem lengst búa frá þjónustunni. Sama gildir um fjölmarga atvinnuvegi og þjónustu sveitarfélaga. Kílómetragjald sem miðast fyrst og fremst við ekna vegalengd er því í eðli sínu líklegt til að hafa mismunandi fjárhagsleg áhrif eftir búsetu og aðgengi að þjónustu.
Sveitarfélagið telur því mikilvægt að áhrif gjaldtökunnar á landsbyggðina verði metin sérstaklega, ekki aðeins út frá tekjuöflun ríkissjóðs heldur einnig með tilliti til búsetuskilyrða, atvinnustarfsemi, opinberrar þjónustu og kostnaðar sveitarfélaga við að tryggja sambærilega þjónustu yfir stór landsvæði.
Sveitarfélagið Skagafjörður gerir sérstaka athugasemd við að ekki sé lagt til að slökkvibifreiðar sveitarfélaga verði undanþegnar kílómetragjaldi.
Slökkvilið sinna lögbundnu öryggis- og neyðarhlutverki í almannaþágu. Akstur slökkvibifreiða er ekki valkvæð atvinnustarfsemi heldur stór þáttur í almannavörnum nærsamfélagsins.
Þetta skiptir sérstaklega máli hjá landstórum og dreifbýlum sveitarfélögum þar sem viðbragðsaðilar geta þurft að aka langar vegalengdir við útköll. Kílómetragjald á slíkan akstur verður þannig í reynd viðbótarkostnaður sveitarfélags vegna framkvæmdar lögbundinnar almannavarnarþjónustu.
Sveitarfélagið Skagafjörður leggur því eindregið til að 4. gr. laga um kílómetragjald verði breytt þannig að skráðar slökkvibifreiðar sveitarfélaga verði undanþegnar kílómetragjaldi líkt og björgunarbifreiðar.
Sveitarfélagið gerir jafnframt alvarlega athugasemd við fyrirhugaða hækkun kílómetragjalds um næstu áramót. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum um fjárlagafrumvarp ársins 2027 er lagt til að gjaldið hækki um 15,9%, þar af 5,2% vegna verðlagsforsendna og til viðbótar 4 ma.kr. tekjuauka.
Slík hækkun hefur ekki eingöngu bein áhrif á heimili og fyrirtæki heldur getur hún einnig skilað sér óbeint inn í kostnað sveitarfélaga og gjaldskrár þeirra enda hefur þetta bein áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs og hefur þannig áhrif á flesta þjónustusamninga sveitarfélaga. Hækkunin leggst þungt á vöruflutninga og þar af leiðandi hefur hækkunin neikvæð áhrif á vöruverð í dreifðari byggðum þar sem flutningskostnaður leggst af fullum þunga í álagningu verslana sem þurfa að flytja sínar vörur um langar leiðir.
Að mati sveitarfélagsins skapast hér verulegt ósamræmi ef sveitarfélög eru annars vegar hvött til að gæta ýtrasta aðhalds í gjaldskrárhækkunum en ríkið tekur hins vegar ákvarðanir um verulegar hækkanir á gjöldum sem hafa bein og óbein áhrif á kostnaðargrunn lögbundinnar sveitarfélagaþjónustu.
Sveitarfélagið telur sérstaklega óheppilegt ef ríkisvaldshækkanir leiða til þess að sveitarfélögum reynist ómögulegt að standa við markmið um hóflegar gjaldskrárhækkanir nema með því að taka aukinn rekstrarkostnað þjónustunnar á almennan rekstur sveitarfélagsins. Því telur sveitarfélagið mikilvægt að stjórnvöld meti ekki einungis bein áhrif breytinga á kílómetragjaldi, heldur einnig afleidd áhrif í gegnum vísitölutengingu opinberra þjónustusamninga. Bókun fundar Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir gerði að tillögu sinni að bókun fundar verði gerð að bókun sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða. Bókunin verður þá svohljóðandi:
"Sveitarfélagið fagnar ýmsum þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu. Þar má sérstaklega nefna einföldun og skýrari afmörkun undanþágu ökutækja björgunarsveita, skýrari reglur um undanþágu dráttarvéla í landbúnaði og undanþágu tiltekinna ökutækja sem ekki eða aðeins að mjög takmörkuðu leyti nota almennt vegakerfi.
Samkvæmt b-lið 1. gr. draganna getur reglubundin verktaka leitt til þess að dráttarvél njóti ekki undanþágu frá kílómetragjaldi. Í greinargerðinni er sérstaklega tekið fram að reglubundin snjómokstursþjónusta teljist ekki tilfallandi notkun og að undanþágan taki annaðhvort til ökutækisins í heild eða það beri fullt gjald. Það sama á við um verktaka sem sjá t.d. um slátt og heyrúllun fyrir bændur. Sveitarstjórn Skagafjarðar telur þetta fyrirkomulag geta haft óheppilegar afleiðingar fyrir þjónustu í dreifbýli. Bóndi sem tekur að sér takmarkaðan en reglubundinn snjómokstur fyrir sveitarfélag eða verktöku fyrir bændur í heyskap eða öðru gæti misst undanþáguna þótt dráttarvélin sé að langmestu leyti notuð við landbúnað. Það gæti hækkað tilboð í snjómokstur eða dregið úr framboði þjónustu í t.d. heyskap og aukið kostnað bænda við heyöflun og fleira.
Sveitarstjórn Skagafjarðar leggur til að afmörkuð snjómokstursverkefni í þágu sveitarfélaga og aðgerðir vegna ófærðar eða neyðaraðstæðna leiði ekki sjálfkrafa til þess að undanþága falli niður í heild. Setja þarf skýr viðmið um umfang slíkrar notkunar og kanna einfalt fyrirkomulag þar sem gjaldtaka taki aðeins til gjaldskylds hluta aksturs. Þá leggur sveitarstjórn einnig til að verktaka fyrir bændur við heyöflun og fleira verði undanþegin.
Þrátt fyrir framangreinda jákvæða þætti telur sveitarfélagið brýnt að stjórnvöld horfi mun skýrar til ólíkra áhrifa kílómetragjalds eftir búsetu og landfræðilegum aðstæðum.
Í dreifbýlu sveitarfélagi eru ferðir íbúa vegna atvinnu, menntunar, heilbrigðisþjónustu, verslunar og almennrar þjónustusóknar að jafnaði lengri og raunhæfir valkostir aðrir en einkabíll takmarkaðri en á þéttbýlli svæðum. Benda skal á að ýmsa heilbrigðisþjónustu eða opinbera þjónustu er eingöngu mögulegt að sækja á Höfuðborgarsvæðið og kallar það á langar ferðir þeirra íbúa sem lengst búa frá þjónustunni. Sama gildir um fjölmarga atvinnuvegi og þjónustu sveitarfélaga. Kílómetragjald sem miðast fyrst og fremst við ekna vegalengd er því í eðli sínu líklegt til að hafa mismunandi fjárhagsleg áhrif eftir búsetu og aðgengi að þjónustu.
Sveitarfélagið telur því mikilvægt að áhrif gjaldtökunnar á landsbyggðina verði metin sérstaklega, ekki aðeins út frá tekjuöflun ríkissjóðs heldur einnig með tilliti til búsetuskilyrða, atvinnustarfsemi, opinberrar þjónustu og kostnaðar sveitarfélaga við að tryggja sambærilega þjónustu yfir stór landsvæði.
Sveitarfélagið Skagafjörður gerir sérstaka athugasemd við að ekki sé lagt til að slökkvibifreiðar sveitarfélaga verði undanþegnar kílómetragjaldi.
Slökkvilið sinna lögbundnu öryggis- og neyðarhlutverki í almannaþágu. Akstur slökkvibifreiða er ekki valkvæð atvinnustarfsemi heldur stór þáttur í almannavörnum nærsamfélagsins.
Þetta skiptir sérstaklega máli hjá landstórum og dreifbýlum sveitarfélögum þar sem viðbragðsaðilar geta þurft að aka langar vegalengdir við útköll. Kílómetragjald á slíkan akstur verður þannig í reynd viðbótarkostnaður sveitarfélags vegna framkvæmdar lögbundinnar almannavarnarþjónustu.
Sveitarfélagið Skagafjörður leggur því eindregið til að 4. gr. laga um kílómetragjald verði breytt þannig að skráðar slökkvibifreiðar sveitarfélaga verði undanþegnar kílómetragjaldi líkt og björgunarbifreiðar.
Sveitarfélagið gerir jafnframt alvarlega athugasemd við fyrirhugaða hækkun kílómetragjalds um næstu áramót. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum um fjárlagafrumvarp ársins 2027 er lagt til að gjaldið hækki um 15,9%, þar af 5,2% vegna verðlagsforsendna og til viðbótar 4 ma.kr. tekjuauka.
Slík hækkun hefur ekki eingöngu bein áhrif á heimili og fyrirtæki heldur getur hún einnig skilað sér óbeint inn í kostnað sveitarfélaga og gjaldskrár þeirra enda hefur þetta bein áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs og hefur þannig áhrif á flesta þjónustusamninga sveitarfélaga. Hækkunin leggst þungt á vöruflutninga og þar af leiðandi hefur hækkunin neikvæð áhrif á vöruverð í dreifðari byggðum þar sem flutningskostnaður leggst af fullum þunga í álagningu verslana sem þurfa að flytja sínar vörur um langar leiðir.
Að mati sveitarfélagsins skapast hér verulegt ósamræmi ef sveitarfélög eru annars vegar hvött til að gæta ýtrasta aðhalds í gjaldskrárhækkunum en ríkið tekur hins vegar ákvarðanir um verulegar hækkanir á gjöldum sem hafa bein og óbein áhrif á kostnaðargrunn lögbundinnar sveitarfélagaþjónustu.
Sveitarfélagið telur sérstaklega óheppilegt ef ríkisvaldshækkanir leiða til þess að sveitarfélögum reynist ómögulegt að standa við markmið um hóflegar gjaldskrárhækkanir nema með því að taka aukinn rekstrarkostnað þjónustunnar á almennan rekstur sveitarfélagsins. Því telur sveitarfélagið mikilvægt að stjórnvöld meti ekki einungis bein áhrif breytinga á kílómetragjaldi, heldur einnig afleidd áhrif í gegnum vísitölutengingu opinberra þjónustusamninga." -
Byggðarráð Skagafjarðar - 214 Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 191/2026, "Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga".
Umsagnarfrestur er til og með 13.11.2026.
Skagafjörður fagnar þeirri vinnu sem fram fer við mótun viðmiða um sjálfbæra þróun sveitarfélaga og telur mikilvægt að fyrir liggi góðar og samanburðarhæfar upplýsingar sem geti stutt við stefnumótun og ákvarðanatöku til lengri tíma.
Sveitarfélagið leggur þó áherslu á að við mótun og notkun viðmiðanna verði tekið ríkt tillit til þess hversu ólíkar aðstæður sveitarfélaga eru. Landfræðileg stærð, dreifð byggð, fjarlægðir, fjöldi byggðarkjarna og ólík kostnaðaruppbygging við veitingu þjónustu geta haft veruleg áhrif á rekstur og þróun sveitarfélaga. Mikilvægt er að sameiginleg viðmið nái utan um þennan fjölbreytileika og leiði ekki til einfaldaðs samanburðar milli sveitarfélaga sem búa við ólíkar forsendur.
Sérstaklega telur sveitarfélagið mikilvægt að mat á fjárhagslegri sjálfbærni taki mið af umfangi lögbundinnar þjónustu, kostnaði við rekstur innviða og getu sveitarfélaga til að veita íbúum góða þjónustu til lengri tíma. Í umræðuskjalinu kemur fram að ekki liggi fyrir sameiginleg niðurstaða um hvaða upplýsingar eða kennitölur lýsi fjárhagslegri sjálfbærni sveitarfélaga best.
Jafnframt telur sveitarfélagið mikilvægt að viðmiðin verði fyrst og fremst gagnlegt stjórntæki fyrir sveitarfélög og ríki, en leiði ekki til aukinnar stjórnsýslu eða óþarfa skýrslugjafar. Niðurstöður mælinganna þurfa jafnframt að nýtast við stefnumótun ríkisins, enda ráðast forsendur sjálfbærrar byggðaþróunar ekki eingöngu af ákvörðunum sveitarfélaganna sjálfra.
Skagafjörður styður því áframhaldandi vinnu við mótun viðmiðanna með þeirri áherslu að þau verði einföld, gagnleg og sveigjanleg og endurspegli ólíkar aðstæður sveitarfélaga um allt land. Bókun fundar Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 214 Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 156. mál - frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar).
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 22. október nk.
Sveitarfélagið Skagafjörður tekur undir markmið frumvarpsins um að styrkja hlutverk Byggðastofnunar og skýra stöðu hennar á sviði atvinnu- og byggðaþróunar.
Sveitarfélagið vekur hins vegar sérstaka athygli á því að í greinargerð frumvarpsins kemur fram að fallið hafi verið frá fyrri áformum um að lögfesta að Byggðastofnun skuli staðsett á Sauðárkróki. Sveitarfélagið telur mikilvægt að það ákvæði verði tekið upp að nýju.
Byggðastofnun hefur mikilvægu hlutverki að gegna við að stuðla að jafnvægi í byggðaþróun og störfum hins opinbera. Það væri því í fullu samræmi við markmið frumvarpsins um byggðafestu stofnunarinnar að tryggja með skýrum hætti áframhaldandi staðsetningu hennar á Sauðárkróki. Fjölmörg dæmi eru um að opinber störf séu skilgreind á höfuðborgarsvæðinu og því þykir byggðarráði eðlilegt að slíkt megi skilgreina með skýrum hætti um staðsetningu Byggðastofnunnar á Sauðárkróki eins og gert var í fyrri drögum. Þannig verði með lagasetningunni tryggt að höfuðstöðvar og kjarnastarfsemi verði áfram á Sauðárkróki eins og verið hefur.
Sveitarfélagið leggur því til að í frumvarpið verði tekið ákvæði þess efnis að Byggðastofnun hafi aðsetur á Sauðárkróki. Bókun fundar Hrund Pétursdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með átta atkvæðum. - 2.13 2610160 Samráð; Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu)Byggðarráð Skagafjarðar - 214 Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 198/2026, "Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu)".
Umsagnarfrestur er til og með 25.10.2026.
Sveitarfélagið tekur undir markmið frumvarpsins um að efla faglega getu lögreglu, styrkja rannsóknargetu, auka samhæfingu og skapa sterkari faglegar einingar. Jafnframt er jákvætt að skýrt komi fram í kynningu frumvarpsins að breytingarnar eigi hvorki að leiða til fækkunar starfsfólks lögreglu né lokunar lögreglustöðva og að áfram verði lögð áhersla á staðbundna þjónustu og viðbragðsgetu.
Sveitarfélagið leggur hins vegar ríka áherslu á að þessi markmið verði tryggð við framkvæmd breytinganna en verði ekki aðeins almenn markmið frumvarpsins.
Fyrir Norðurland vestra skiptir grundvallarmáli að fyrirhuguð sameining leiði hvorki til fækkunar stöðugilda né veikingar á staðbundinni löggæslu. Sveitarfélagið gerir því þá skýru kröfu að breytingarnar leiði ekki til fækkunar starfa lögreglu á Norðurlandi vestra og að áfram verði reknar öflugar lögreglustöðvar á Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga þar sem lögð verði áhersla á að verja þá þekkingu og sérhæfðu starfsemi sem þegar hefur verið byggð upp í landshlutanum.
Sveitarfélagið leggur sérstaka áherslu á að rannsóknarlögregla verði áfram með fasta starfsstöð í Skagafirði. Sú staðbundna rannsóknargeta sem byggð hefur verið upp skiptir verulegu máli fyrir öryggi íbúa og möguleika lögreglu til að bregðast hratt við þegar alvarleg brot koma upp. Landfræðilegar aðstæður og veðurfar á Norðurlandi gera það að verkum að ekki er hægt að treysta eingöngu á rannsóknargetu sem staðsett er annars staðar í hinu fyrirhugaða, mjög víðfeðma lögregluumdæmi.
Reynslan sýnir mikilvægi þessa. Áður en rannsóknarlögreglumenn voru staðsettir í Skagafirði komu upp tilvik þar sem rannsóknarlögregla komst ekki frá Akureyri vegna veðurs og færðar. Við rannsókn alvarlegra brota getur tími skipt sköpum og tafir haft þau áhrif að rannsóknarhagsmunir spillist. Að mati sveitarfélagsins væri því verulegt skref aftur á bak ef breyting á stjórnskipulagi lögreglu leiddi til þess að staðbundin rannsóknargeta í Skagafirði hyrfi eða veiktist.
Sveitarfélagið telur jafnframt mikilvægt að horfa á breytingarnar út frá byggðasjónarmiðum. Sameining stjórnsýslueininga má ekki leiða til þess að stjórnunar-, sérfræði- og rannsóknarstörf færist smám saman til stærstu þéttbýlisstaðanna. Þvert á móti felast í breytingunum tækifæri til að efla sérhæfð störf á landsbyggðinni. Frumvarpið gerir sérstaklega ráð fyrir að landsbyggðarembættunum verði falin landsbundin og sérhæfð verkefni. Sveitarfélagið hvetur til þess að sú heimild verði nýtt markvisst til að efla sérfræði- og rannsóknarstörf á starfsstöðvum utan stærstu þéttbýlisstaða, þar á meðal á Sauðárkróki. Bókun fundar Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. - 2.14 2610139 Umsagnarbeiðni; Þingsályktunartillaga um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruváByggðarráð Skagafjarðar - 214 Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 88. mál - tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. október nk.
Sveitarfélagið Skagafjörður fagnar því að til skoðunar sé að endurskoða heildstætt lagaumgjörð um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og aðra náttúruvá. Mikilvægt er að skýr ábyrgð sé á áhættumati, áætlanagerð og undirbúningi varnaraðgerða og að sveitarfélög geti byggt ákvarðanir sínar á samræmdu og faglegu áhættumati.
Sveitarfélagið leggur sérstaka áherslu á að samhliða endurskoðuninni verði tryggð öflug og fyrirsjáanleg fjármögnun ríkisins á nauðsynlegum varnarmannvirkjum. Slík verkefni geta verið umfangsmikil og kostnaðarsöm og mikilvægt að fjárhagsleg geta einstakra sveitarfélaga ráði ekki því hversu vel hægt er að verja byggð, hafnir og mikilvæga innviði gegn náttúruvá.
Jafnframt telur sveitarfélagið mikilvægt að við endurskoðunina verði sérstaklega horft til strandbyggða, hafnarsvæða og annarra svæða þar sem samfélagslega mikilvægir innviðir eru nálægt sjó, auk áhrifa hækkandi sjávarstöðu og aukinnar hættu á sjávarflóðum.
Sveitarfélagið Skagafjörður styður því markmið tillögunnar um heildstæðari umgjörð málaflokksins og telur mikilvægt að sveitarfélög hafi virka aðkomu að þeirri vinnu. Bókun fundar Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. - 2.15 2610180 Samráð;Drög að tillögu til þingsályktunar um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030Byggðarráð Skagafjarðar - 214 Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 210/2026, "Drög að tillögu til þingsályktunar um þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030".
Umsagnarfrestur er til og með 26.10.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 214 Lagður fram tölvupóstur frá Gígju Gunnarsdóttur, verkefnastjóra Heilsueflandi samfélags hjá embætti landlæknis, dags. 13. október 2026, varðandi lýðheilsuvísa 2025 og 2026 fyrir Skagafjörð.
Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða um heilsu og líðan íbúa og tengda áhrifaþætti og sé þeim ætlað að styðja sveitarfélög og heilbrigðisþjónustu við að greina stöðu, styrkleika og áskoranir í nærumhverfi og nýta niðurstöðurnar við markvissa heilsueflingu og forvarnir. Með erindinu fylgja lýðheilsuvísar fyrir Skagafjörð fyrir árin 2025 og 2026. Gögnin sýna stöðu sveitarfélagsins á fjölbreyttum mælikvörðum sem snúa m.a. að samfélagslegum þáttum, lifnaðarháttum, líðan, heilsu og sjúkdómum og gera samanburð við heilbrigðisumdæmið og landið í heild. Bókun fundar Afgreiðsla 214. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
3.Byggðarráð Skagafjarðar - 215
Málsnúmer 2610026FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 215 Sveitarstjóri kynnti stöðu mála á samningaviðræðum við ráðuneyti um stækkun verknámshús við Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra. Ákveðið hefur verið að Skagafjörður haldi utan um framkvæmdina og verið er að útbúa samning milli sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra og ríkisins um fyrirkomulagið. Gert er ráð fyrir að samningurinn verði undirritaður fyrir áramót. Bókun fundar Afgreiðsla 215. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 215 Lögð var fram niðurstaða nýafstaðins útboðs á vátryggingum fyrir sveitarfélagið. Útboðið nær til vátrygginga sveitarfélagsins Skagafjarðar og tengdra aðila fyrir tímabilið 2027-2029. Útboðsgögnin samanstóðu af útboðslýsingu, tilboðsskjali og svörum við fyrirspurnum. Útboðið var auglýst á TED (EES) og útboðsvefnum. Sjóvá, TM, VÍS og Vörður óskuðu eftir gögnunum og skiluðu öll tilboði. VÍS lagði fram lægsta tilboðið og fékk flest stig samkvæmt matsforsendum útboðsins. Tilboðið uppfyllir öll skilyrði útboðsins. Um lækkun er að ræða frá núverandi viðskiptakjörum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að ganga að tilboði VÍS og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að ganga frá samningum fyrir hönd sveitarfélagsins. Bókun fundar Afgreiðsla 215. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 215 Málinu var vísað frá 50. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar sem haldinn var 26. október 2026. Á þeim fundi var farið yfir stöðu á tjaldsvæðum Skagafjarðar, en rekstrarsamningur Skagafjarðar og Álfakletts ehf. er að renna út. Nefndin samþykkti samhljóða að leggja til við byggðarráð að hafinn verði undirbúningur að sölu reksturs með fylgifé tjaldsvæðanna í Varmahlíð og á Hofsósi með það að markmiði að draga úr samkeppnisrekstri sveitarfélagsins og skapa tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila til áframhaldandi reksturs og uppbyggingar svæðanna.
Ákvörðun um framtíð tjaldsvæðisins á Nöfum á Sauðárkróki var frestað þar til frekari undirbúningsvinnu um framtíðarskipulag þess lýkur.
Byggðarráð tekur undir sjónarmið atvinnu-, menningar- og kynningarnefnda og fellst á þau rök að skynsamlegt sé að auglýsa rekstur og fylgifé tjaldsvæðanna á Hofsósi og í Varmahlíð til sölu. Ekki stendur til að selja landið en gerður verði langtíma lóðarleigusamningur um svæðin og rekstur og fylgifé verði selt til hæstbjóðanda.
Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks, óskar bókað:
"Undirritaður leggur áherslu á að tekin verði strax ákvörðun um framtíðarstaðsetningu tjaldsvæðis á Sauðárkróki en núverandi meirihluti hefur frestað þeirri ákvarðanatöku um óákveðinn tíma. Á sama tíma er tjaldsvæðahúsið komið á nafirnar og allt sem bendir til þess að þar verði bæði framtíðartjaldsvæði og mótstjaldsvæði á komandi árum. Vinnu við skilgreiningu á þessu svæði væri því eðlilegast að klára núna og ákveða hvaða hlutar svæðisins eigi að tilheyra almenna tjaldsvæðinu og hvaða hlutar bætist þá við ef um mót er að ræða. Í framhaldinu væri réttast að auglýsa til sölu rekstur allra tjaldsvæðanna þriggja á Sauðárkróki, Varmahlíð og á Hofsósi. Auglýst væri eftir tilboðum í fasteignir svæðanna og rekstur, en gerður samningur um lóðaleigu undir starfsemina, sambærilegur og gerður er við aðra atvinnustarfsemi. Skynsamlegt er að gefa bjóðendum kost á að bjóða í þau hvert og eitt sem sjálfstæða einingu eða sem heild og þá öll þrjú svæðin."
Fulltrúar meirihluta óska bókað:
"Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkti samhljóða að fara í ferli með að selja rekstur tjaldsvæða á Hofsósi og í Varmahlíð. Ástæða fyrir því að tjaldsvæðið á Sauðárkróki er ekki inni í því ferli er sú að vafi hefur leikið á hvar framtíðarstaðsetning tjaldstæðisins verður. Vill meirihluti vanda til verka og kynna vel hvernig fyrirkomulagið er hugsað áður en farið er í sölu á rekstri á tjaldsvæði á Sauðárkróki.
Því samþykkir meirihluti byggðarráðs fyrirliggjandi bókun."
Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að fela sveitarstjóra að undirbúa sölu reksturs tjaldsvæðanna í Varmahlíð og á Hofsósi og leggja fyrir byggðarráð að nýju. Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks situr hjá við afgreiðslu málsins. Bókun fundar Afgreiðsla 215. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með sjö atkvæðum. Fulltrúar Framsóknarflokks sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Einar E. Einarsson ítrekar bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"Undirritaður leggur áherslu á að tekin verði strax ákvörðun um framtíðarstaðsetningu tjaldsvæðis á Sauðárkróki en núverandi meirihluti hefur frestað þeirri ákvarðanatöku um óákveðinn tíma. Á sama tíma er tjaldsvæðahúsið komið á nafirnar og allt sem bendir til þess að þar verði bæði framtíðartjaldsvæði og mótstjaldsvæði á komandi árum. Vinnu við skilgreiningu á þessu svæði væri því eðlilegast að klára núna og ákveða hvaða hlutar svæðisins eigi að tilheyra almenna tjaldsvæðinu og hvaða hlutar bætist þá við ef um mót er að ræða. Í framhaldinu væri réttast að auglýsa til sölu rekstur allra tjaldsvæðanna þriggja á Sauðárkróki, Varmahlíð og á Hofsósi. Auglýst væri eftir tilboðum í fasteignir svæðanna og rekstur, en gerður samningur um lóðaleigu undir starfsemina, sambærilegur og gerður er við aðra atvinnustarfsemi. Skynsamlegt er að gefa bjóðendum kost á að bjóða í þau hvert og eitt sem sjálfstæða einingu eða sem heild og þá öll þrjú svæðin."
Meirihluti ítrekar bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkti samhljóða að fara í ferli með að selja rekstur tjaldsvæða á Hofsósi og í Varmahlíð. Ástæða fyrir því að tjaldsvæðið á Sauðárkróki er ekki inni í því ferli er sú að vafi hefur leikið á hvar framtíðarstaðsetning tjaldstæðisins verður. Vill meirihluti vanda til verka og kynna vel hvernig fyrirkomulagið er hugsað áður en farið er í sölu á rekstri á tjaldsvæði á Sauðárkróki." -
Byggðarráð Skagafjarðar - 215 Magnús Barðdal Reynisson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Málinu var vísað frá 108. fundi skipulagsnefndar sem haldinn var 15. október 2026. Skipulagsnefnd afgreiddi tillögur frá Eflu að umferðaröryggisaðgerðum við göngu- og hjólaþverun yfir innkeyrslu að bílastæði veitingastaðarins Sauðár við Sæmundarhlíð ásamt áætluðum kostnaði.
Tillögurnar fjórar eru eftirfarandi:
1. Upphækkuð, samfelld þverun: meginúrræði sem lækkar hraða akandi umferðar og skýrir að ökutæki þvera göngu- og hjólaleið.
2. Lýsing: bætir sýnileika þverunar og vegfarenda í myrkri.
3. Merki: viðvörun til ökumanna.
4. Þverlínur: viðbótaraðgerð til að vekja athygli hjólandi vegfarenda.
Skipulagsnefnd féllst á allar fjórar tillögur Eflu og lagði til við byggðarráð að samþykkja að ráðist verði í þessar aðgerðir.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að framlagða tillögu. Byggðarráð vísar kostnaði vegna merkinga á götu og gangstétt til gerðar fjárhagsáætlunar 2027. Lóðarhafi standi sjálfur straum af öðrum kostnaði samkvæmt tillögunni. Verkið verði unnið í samráði við veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.
Bókun fundar Magnús Barðdal Reynisson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Afgreiðsla 215. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með átta atkvæðum. - 3.5 2608183 Gjaldskrá og samþykkt um gatnagerðargjöld, stofngjald fráveitu, byggingarleyfis- og þjónustugjöld 2027Byggðarráð Skagafjarðar - 215 Lögð var fram samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu og byggingarleyfis- og þjónustugjöld í sveitarfélaginu Skagafirði. Gjaldskráin tekur mið af uppreiknaðri vísitöluhækkun milli ára á gatnagerðargjöld og stofngjald fráveitu. Byggingarleyfis- og þjónustugjöld taka mið af almennri 2,5 % hækkun.
Ein breyting gerð í texta 11. gr. þar sem fellt er út minka og- refaskálar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá og samþykkt um gatnagerðargjöld, stofngjald fráveitu, byggingarleyfis- og þjónustugjöld 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 215 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 215. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 215 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 20. október 2026 frá Bjarka Sigþórssyni þar sem óskað er upplýsinga um hvort sveitarfélagið hyggist nýta sér forkaupsrétt að Sleipni, SH-141. Skipaskráningarnúmer 2635, þar sem til stendur að selja bátinn án aflaheimilda.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að nýta ekki forkaupsrétt sveitarfélagsins. Bókun fundar Afgreiðsla 215. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 215 Á 214. fundi byggðarráðs samþykkti byggðarráð samhljóða að svara innkomnu tilboði með gagntilboði. Því tilboði hefur nú verið svarað með gagntilboði að upphæð 10 milljónir króna. Bjóðendur eru Felix Jósafatsson og Baldvina Guðrún Valdimarsdóttir.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að ganga að tilboðinu og felur sveitarstjóra að ganga frá sölu hússins.
Högni Elfar Gylfason, fulltrúi Miðflokks óskar bókað:
"Undirritaður óskar bókað að hann leggst gegn samþykkt fyrirliggjandi tilboðs að fjárhæð 10 milljónir króna. Gagntilboð sveitarfélagsins að fjárhæð 12 milljónir króna fól þá þegar í sér svo mikla tilslökun og telja verður þá fjárhæð algjört lágmarksverð. Flutningskostnaður einn og sér réttlætir ekki frekari verðlækkun, enda fellur slíkur kostnaður einnig til við kaup á nýju húsi sem flutt er frá byggingarstað." Bókun fundar Afgreiðsla 215. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 215 Sveitarstjóri hefur átt í samtölum við forsvarsmenn HSN um áframhaldandi rekstur endurhæfingarlaugar HSN á Sauðárkróki. Fyrir fundinum liggur tölvupóstur frá Jóni Helga Björnssyni, dagsettur 28. október 2026. Í tölvupóstinum lýsir Jón Helgi áhuga á að finna leiðir til að tryggja rekstur sundlaugarinnar til frambúðar. Í tölvupóstinum fer Jón Helgi þess á leit að sveitarfélagið leggi til heita vatnið í laugina.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við HSN um sambærileg afsláttarkjör og almenningssundlaugar í Skagafirði njóta. Bókun fundar Afgreiðsla 215. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 215 Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 212/2026, "Greiðslur til sveitarfélaga vegna kosninga".
Umsagnarfrestur er til og með 17.11.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 215. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 215 Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 202. mál - Loftslagslög.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 29. október nk.
Byggðarráð telur mikilvægt að loftslagsstefna Íslands byggist á sérstöðu landsins og þeim árangri sem náðst hefur með nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa. Ísland á að fara eigin leið í umhverfis- og loftslagsmálum fremur en að gangast undir kostnaðarsöm viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. Áhersluna ætti að byggja á raunverulegum umhverfisbótum, hagkvæmni og innlendri matvælaframleiðslu. Byggðarráð leggst gegn því að loftslagsstefna Íslands og framkvæmd hennar verði í auknum mæli bundin við losunarheimildakerfi Evrópusambandsins eða að slíkt kerfi verði útvíkkað með þeim hætti að aukinn kostnaður leggist á íslenskt atvinnulíf og sveitarfélög.
Byggðarráð leggst jafnframt gegn aukinni skriffinnsku og kostnaði fyrir sveitarfélög og atvinnulíf. Frumvarpið gerir ítarlegar kröfur til sveitarfélaga um loftslagsstefnu, greiningu á losun og kolefnisbindingu vegna landnotkunar, aðgerðaáætlanir, árlegt mat á árangri, áhættumat og aðlögunaraðgerðir. Slíkar kröfur geta haft í för með sér aukið vinnuálag og kostnað, ekki síst hjá litlum og meðalstórum sveitarfélögum með takmarkaða stjórnsýslu og sérfræðiþekkingu. Byggðarráð leggur því ríka áherslu á að ábyrgð ríkis, sveitarfélaga og landeigenda verði afmörkuð með skýrum hætti og að öllum nýjum lögbundnum verkefnum fylgi fullnægjandi fjármögnun, samræmdar aðferðir, aðgengileg gögn og faglegur stuðningur af hálfu ríkisins.
Tryggja verður að stjórnvöld nýti upplýsingar sem sveitarfélög, bændur og fyrirtæki hafa þegar afhent ríkisstofnunum áður en frekari upplýsingaskil eru lögð á þessa aðila. Ríkið þarf að samræma eigin upplýsingakerfi og tryggja að gögn séu samnýtt milli stofnana, fremur en að velta kostnaði og vinnu við endurtekna gagnaöflun yfir á sveitarfélög og framleiðendur.
Skagafjörður er landmikið sveitarfélag með öflugan landbúnað og verulegt framlag til innlendrar matvælaframleiðslu, landgræðslu og kolefnisbindingar. Við framkvæmd laganna verður að leggja heildstætt mat á áhrif landbúnaðar og landnotkunar þar sem tekið er tillit til bindingar, bættrar landnýtingar og annarrar umhverfisþjónustu, en ekki eingöngu losunar. Aðgerðir sem tengjast landi og landnotkun þurfa að byggjast á skýrri ábyrgð, raunhæfum gögnum og sanngjörnum hvötum. Ekki verður fallist á að kostnaður eða ábyrgð vegna almennra markmiða ríkisins í loftslagsmálum færist ófjármagnaður yfir á sveitarfélög, landeigendur eða bændur.
Byggðarráð leggur að lokum áherslu á að áður en frumvarpið verður að lögum fari fram fullnægjandi mat á fjárhagslegum áhrifum þess. Þar þarf sérstaklega að meta áhrif á sveitarfélög, landbúnað, innlenda matvælaframleiðslu og fyrirtæki á landsbyggðinni. Framkvæmd laganna verður að styrkja fremur en veikja forsendur búsetu, atvinnuuppbyggingar og verðmætasköpunar um land allt. Bókun fundar Afgreiðsla 215. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 215 Byggðarráð Skagafjarðar hefur tekið til umfjöllunar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um mannvirki nr. 160/2010.
Byggðarráð tekur undir þau meginmarkmið frumvarpsins að einfalda regluverk og stjórnsýslu mannvirkjamála, skýra ábyrgð þeirra sem koma að mannvirkjagerð og gera byggingareftirlit markvissara. Jafnframt telur byggðarráð mikilvægt að við breytingar á fyrirkomulagi byggingareftirlits verði tryggt að þær leiði hvorki til lakari þjónustu eða minni gæða né aukins kostnaðar við mannvirkjagerð. Markmið frumvarpsins eru meðal annars að einfalda stjórnsýslu, innleiða áhættumiðað eftirlit og styrkja neytendavernd.
Byggðarráð bendir á að fyrirhugaðar breytingar fela í sér að verkefni sem sveitarfélög og byggingarfulltrúar sinna í dag færast að hluta til til HMS og faggildra skoðunarstofa. Slík breyting getur haft áhrif á tekjur sveitarfélaga því er mikilvægt að fjárhagsleg áhrif breytinganna á sveitarfélögin verði metin með skýrum hætti samhliða lagasetningunni.
Sérstaklega þarf að horfa til áhrifa breytinganna á landsbyggðina. Færsla eftirlitsverkefna til skoðunarstofa getur skapað hættu á auknum kostnaði fyrir framkvæmdaaðila á svæðum þar sem aðgengi að slíkri þjónustu er takmarkað. Ferðakostnaður, ferðatími og framboð þjónustuaðila geta þar skipt verulegu máli. Mikilvægt er því að tryggja að nýtt fyrirkomulag leiði ekki til mismunandi kostnaðar eða þjónustustigs eftir staðsetningu framkvæmdar.
Þá telur byggðarráð mikilvægt að fyrir liggi með hvaða hætti samkeppni og verðmyndun á markaði skoðunarstofa verði tryggð. Einkareknar skoðunarstofur þurfa eðli máls samkvæmt að standa undir kostnaði við starfsemi sína. Takmarkað framboð þjónustuaðila, ekki síst á landsbyggðinni, getur því skapað hættu á að kostnaður framkvæmdaaðila aukist. Mikilvægt er að þetta verði metið sérstaklega áður en hið nýja fyrirkomulag tekur gildi.
Byggðarráð telur jafnframt að samhliða breytingum á ábyrgð og eftirliti með mannvirkjagerð þurfi að stíga frekari skref til að tryggja hagsmuni eigenda og kaupenda fasteigna vegna byggingargalla. Í því samhengi telur byggðarráð rétt að komið verði á tryggingakerfi vegna byggingargalla og að við útfærslu þess verði sérstaklega horft til reynslu og fyrirkomulags í nágrannalöndum Íslands. Slíkt fyrirkomulag gæti verið mikilvægur þáttur í því að styrkja þá neytendavernd sem frumvarpinu er ætlað að bæta.
Byggðarráð leggur því áherslu á að áður en breytingarnar koma til framkvæmda verði sérstaklega tryggt:
að þjónusta og gæði byggingareftirlits skerðist ekki,
að breytingarnar leiði ekki til óhóflegs kostnaðarauka við mannvirkjagerð,
að áhrif á tekjur og verkefni sveitarfélaga verði metin og skýrð,
að jafnt aðgengi að skoðunarþjónustu verði tryggt óháð staðsetningu framkvæmda,
að áhrif verðlagningar og samkeppni skoðunarstofa á kostnað framkvæmdaaðila verði metin, og
að komið verði á fullnægjandi tryggingakerfi vegna byggingargalla með hliðsjón af reynslu nágrannalanda.
Byggðarráð telur mikilvægt að þessi atriði verði tekin til ítarlegrar skoðunar við áframhaldandi vinnslu frumvarpsins þannig að markmiðum um einfaldara og skilvirkara regluverk verði náð án þess að kostnaður sé færður yfir á framkvæmdaaðila eða þjónusta og aðgengi skerðist, sérstaklega á landsbyggðinni. Bókun fundar Afgreiðsla 215. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
4.Byggðarráð Skagafjarðar - 216
Málsnúmer 2611002FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Verkefnisstjórn samfélagssjóðs Kaupfélags Skagfirðinga, þau Herdís Sæmundsdóttir, Sigfús Ingi Sigfússon, Álfhildur Leifsdóttir og Friðbjörn Ásbjörnsson sátu fundinn undir þessum lið. Einar E. Einarsson fulltrúi Framsóknarflokks í byggðarráði, á auk framangreindra, sæti í verkefnisstjórninni.
Á árinu 2021 samþykkti stjórn Kaupfélags Skagfirðinga að veita 200 milljónum króna til samfélagsverkefna í Skagafirði í samstarfi við sveitarfélagið Skagafjörð. Markmið sjóðsins er að styðja við verkefni sem til þess eru fallin að fegra umhverfið, gera ásýnd samfélagsins meira aðlaðandi og auka lífsgæði íbúa.
Verkefnisstjórnin fór yfir úthlutanir úr sjóðnum og stöðu þeirra verkefna.
Nú hefur Samfélagssjóður Kaupfélags Skagfirðinga lokið við úthlutun á þessum 200 milljónum króna til verkefna víðsvegar í Skagafirði í samstarfi við sveitarfélagið Skagafjörð.
Alls voru 16 verkefni valin og þau styrkt með misháum upphæðum eftir atvikum, en verkefnum þessum er ýmist lokið, þau í framkvæmd eða undirbúningur farinn af stað. Verkefnin eru eftirfarandi:
1.
Gerð göngustíga og lýsing vítt og breitt í sveitarfélaginu
2.
Endurgerð leikskólalóðar á Hólum í Hjaltadal
3.
Aðstöðuhús við íþróttavöll í Varmahlíð
4.
Bætt aðgengi að Bifröst á Sauðárkróki - lyfta, rampur og salerni
5.
Körfuboltavöllur á Hofsósi
6.
Endurbætur á aðstöðu við sundlaugina á Sólgörðum
7.
Rennibrautir við Sundlaug Sauðárkróks
8.
Lóðaframkvæmdir og leiktæki við leik- og grunnskólana á Hofsósi og í Varmahlíð
9.
Lagfæringar á íþróttavelli í Varmahlíð
10.
Frisbígolfvöllur í Varmahlíð
11.
Battavöllur á Steinsstöðum
12.
Nýr golfskáli við golfvöllinn á Sauðárkróki
13.
Styrkur vegna undirbúnings endurbóta og uppbyggingar í gamla bænum á Sauðárkróki
14.
Körfuboltavöllur í Fljótum
15.
Skólahreystibrautir við grunnskólana í Skagafirði
16.
Bekkir á þéttbýlisstöðum í Skagafirði
Byggðarráð þakkar Kaupfélagi Skagfirðinga kærlega fyrir ómetanlegt framlag til samfélagsins og það góða samstarf sem hefur verið um framgang verkefnanna. Jafnframt vill byggðarráð koma á framfæri kærum þökkum til verkefnisstjórnarinnar fyrir gott starf. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
Sveitarstjórn leggur fram svohljóðandi bókun:
"Sveitarstjórn Skagafjarðar þakkar Kaupfélagi Skagfirðinga sérstaklega fyrir 200 milljóna króna framlag til samfélagsverkefna í Skagafirði. Framlagið hefur gert sveitarfélaginu kleift að ráðast í fjölbreytt verkefni sem bæta aðstöðu íbúa og umhverfi víðs vegar í sveitarfélaginu. Sveitarstjórn þakkar Kaupfélaginu einnig fyrir gott samstarf um verkefnin.
Sveitarstjórn hefur farið yfir úthlutanir úr sjóðnum og stöðu verkefnanna. Úthlutun er lokið og alls hlutu 16 verkefni styrk. Þar á meðal eru göngustígar og lýsing, bætt aðgengi að Bifröst og endurbætur á skólalóðum, íþróttasvæðum og sundlaugum. Sumum verkefnanna er lokið en önnur eru í framkvæmd eða undirbúningi.
Sveitarstjórn þakkar jafnframt verkefnisstjórn sjóðsins fyrir gott starf við úthlutun styrkjanna og eftirfylgni með verkefnunum." -
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Lögð fram til kynningar drög að minnisblaði frá Vegagerðinni, dags. 3. nóvember 2026, um framkvæmdir og fjármögnun við Útgarð við Sauðárkrókshöfn.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga og leggja málið fyrir byggðarráð að nýju. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Magnús Barðdal Reynisson, sveitarstjóri lagði fram áætlun eignasjóðs um meiriháttar viðhald fasteigna annars vegar og hins vegar framkvæmdaáætlun eignasjóðs og B-hluta fyrirtækja á árinu 2026.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að halda umræðum áfram á næsta fundi byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 07 - Bruna- og almannavarnir til seinni umræðu fyrir fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 07 - Bruna- og almannavarnir og vísar henni til frekari umræðu og afgreiðslu sem hluta af heildarfjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokka 21, 22, 27 og 28 sameiginlegur kostnaður o.fl. til seinni umræðu fyrir fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlanir fyrir málaflokka 21, 22, 27 og 28 og vísar þeim til frekari umræðu og afgreiðslu sem hluta af heildarfjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 31 - eignasjóður til seinni umræðu fyrir fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 31, með fyrirvara um afgreiðslu máls 2611015 - Áætlun um fjárfestingar og meiriháttar viðhald 2027-2030, og vísar henni til frekari umræðu og afgreiðslu sem hluta af heildarfjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Málið var áður á dagskrá 211. fundar byggðarráðs þann 1. október sl., þar sem farið var yfir stöðu mála vegna fyrirhugaðrar eignasölu og framvindu samnings Skagafjarðar og Bríetar ehf. Sameiginlegur vilji aðila er að tryggja áframhaldandi framgang verkefnisins.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Lagðar fram til kynningar fyrir byggðarráð fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 99. fundi frá 24. ágúst 2026, 100. fundi frá 21. september 2026 og 101. fundi frá 2. október 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
5.Byggðarráð Skagafjarðar - 217
Málsnúmer 2611007FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 217 Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum lið.
Hjörvar Halldórsson lagði fram áætlun eignasjóðs um meiriháttar viðhald fasteigna annars vegar og hins vegar framkvæmdaáætlun eignasjóðs og B-hluta fyrirtækja á árinu 2027-2030.
Einar E. Einarsson, fulltrúi framsóknarflokks lagði fram svohljóðandi tillögu:
"Fyrir Byggðarráði liggja drög að framkvæmda- og viðhaldsáætlun vegna ársins 2027. Í henni er gert ráð fyrir nokkrum mikilvægum verkefnum eins og fyrsta áfanga í Menningarhúsi Skagfirðinga, stækkun verknámshúss Fjölbrautarskólans og áframhaldandi vinnu við nýjan Norðurgarð í Sauðárkrókshöfn og fleira mætti nefna. Margt vantar þó inn sem brýn þörf er á og ber þar hæst að einungis er gert ráð fyrir 120 m.kr. í íþróttahús á Hofsósi. Það þýðir að þar verður mjög lítið framkvæmt árið 2027 og því ekki líklegt að hægt verði að klára það hús fyrr en í fyrsta lagi á árinu 2029 eða 2030, en áætla má að þetta verði framkvæmd upp á a.m.k 6-700 m.kr. Ég legg því til að þær 150 m.kr. sem ennþá eru til ráðstöfunar ásamt 40 m.kr. sem ætlaðar eru í sniðræsi við Strandveg auk 12 m.kr. sem ætlaðar eru í niðurrif á gömlum húsum í Norðurbænum (Tengilshús og Leikborg) verði flutt í byggingu íþróttahúss á Hofsósi árið 2027. Þannig væri hægt að leggja í það verk á árinu 2027 samtals 322 m.kr. sem gæti verið um helmingur af framkvæmdinni og þá raunhæft að það hús yrði klárað á árinu 2028, en eftir þessari aðstöðu er mikið ákall frá íbúum á Hofsósi. Rétt er að taka fram að ekki liggja fyrir neinar samþykktir um niðurrif á húsum í Norðurbænum á Sauðárkróki og deiliskipulag þar er enn í vinnslu. Sama á við um frárennsliskerfið en heildarhönnun og útfærsla á því til framtíðar liggur ekki fyrir. Því er rétt að klára þá vinnu áður en fjármunum verður ráðstafað til þeirra verkefna."
Fulltrúar meirihluta Byggðalista og Sjálfstæðisflokks óska bókað:
"Meirihlutinn tekur ekki undir þá fullyrðingu að of litlu fjármagni sé varið til uppbyggingar nýs íþróttahúss á Hofsósi á árinu 2027. Uppbygging íþróttahúss á Hofsósi hefur verið til umræðu og lofað um árabil án þess að af framkvæmdum hafi orðið. Nú er verkefnið hins vegar komið inn í fjárfestingaáætlun sveitarfélagsins og markmið meirihlutans er skýrt: framkvæmdir hefjist á árinu 2027 og íþróttahúsið rísi á þessu kjörtímabili.
Meirihlutinn telur jafnframt ekki ábyrgt að fjármagna eitt verkefni með því að fella önnur mikilvæg verkefni úr framkvæmdaáætlun. Fjárfestingaáætlunin sem hér liggur fyrir er ein sú metnaðarfyllsta sem sveitarfélagið hefur ráðist í um langt árabil. Á árinu 2027 er meðal annars gert ráð fyrir áframhaldandi uppbyggingu Sauðárkrókshafnar, fyrsta áfanga nýs menningarhúss, stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, upphafi framkvæmda við nýtt íþróttahús á Hofsósi, endurnýjun gatna og fráveitu, auk fjölmargra annarra framkvæmda og fjárfestinga víða um sveitarfélagið.
Mörg stærstu verkefnanna eru unnin í samstarfi við ríkið. Með þeim verkefnum koma verulegir fjármunir frá ríkinu inn í uppbyggingu í Skagafirði, sem gerir sveitarfélaginu kleift að ráðast í umfangsmeiri framkvæmdir en ella væri mögulegt. Slíkt samstarf hefur eðli máls samkvæmt áhrif á tímasetningar og framkvæmd einstakra verkefna og mikilvægt er að sveitarfélagið sé í stakk búið til að standa við sinn hluta þegar tækifærin gefast.
Því skiptir máli að horfa á fjárfestingaáætlunina í heild, forgangsraða af ábyrgð og tryggja að þessi mikla uppbygging leiði ekki til óhóflegrar skuldasöfnunar sveitarfélagsins."
Tillagan borin upp til afgreiðslu byggðarráðs og felld með tveimur atkvæðum meirihluta. Einar E. Einarsson greiðir atkvæði með tillögunni.
Einar E. Einarsson, fulltrúi framsóknarflokks óskar bókað:
"Ég harma að meirihlutinn skuli ekki vilja flýta framkvæmdum við íþróttahús á Hofsósi. Eins má benda á að mjög mörg verkefni bíða þess að fara í framkvæmd og voru sett til hliðar í þeim drögum sem hér liggja fyrir frá meirihluta sveitarstjórnar. Má þar nefna margs konar viðhald sem þörf er á í skólahúsnæðum sveitarfélagsins, á slökkvistöðinni og svo eru engin umhverfisverkefni, göngustígar eða álíka í þessari fjárhagsáætlun svo eitthvað sé nefnt. Eins bíða áfram margar margræddar framkvæmdir eins og tónlistarskóli við Árskóla og nauðsynlegar áframhaldandi framkvæmdir við Sundlaug Sauðárkróks og fleira mætti nefna."
Högni Elfar Gylfason, fulltrúi Miðflokks óskar bókað:
"Fulltrúi Miðflokksins í byggðarráði gagnrýnir að ekkert fjármagn sé ætlað til úrbóta á eldri hluta Birkimels í Varmahlíð í fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun ársins 2027. Íbúðabyggð við eldri hluta götunnar nær meira en fjóra áratugi aftur í tímann og enn vantar þar samfellda gangstétt. Íbúar hafa kallað eftir úrbótum árum saman og óásættanlegt er að þeim skuli enn frestað.
Byggðarráð fól veitu- og framkvæmdasviði í febrúar 2025 að kostnaðarmeta lagningu gangstéttar við eldri hluta Birkimels frá þeim stað þar sem núverandi gangstétt endar. Íbúasamtök Varmahlíðar ítrekuðu beiðni sína um frágang götunnar í október sama ár.
Þar sem gangstéttina vantar er sums staðar malarslóði og annars staðar engin gönguleið meðfram götunni. Gangandi vegfarendur, þar á meðal börn á leið í skólann, ganga því gjarnan eftir akbrautinni. Malbikið er jafnframt víða skemmt og þarfnast lagfæringa.
Birkimelur hefur verið lengdur og ný hús eru að rísa við götuna. Með fjölgun íbúa má búast við aukinni umferð bíla og gangandi, þar á meðal fleiri börnum á leið í skólann sem er skammt frá. Það er óforsvaranlegt að börn þurfi áfram að ganga eftir akbrautinni á leið í skólann þegar hægt er að tryggja þeim samfellda gönguleið meðfram götunni.
Fulltrúi Miðflokksins leggur til að í framkvæmdaáætlun ársins 2027 verði gert ráð fyrir fjármagni til að ljúka lagningu gangstéttar og lagfæra skemmt malbik á eldri hluta Birkimels. Við forgangsröðun framkvæmdanna verði öryggi barna á leið í skólann haft að leiðarljósi.
Fulltrúi Miðflokksins í byggðarráði telur það slæmt mál að ekki sé gert ráð fyrir úrbótum á götulýsingu í hesthúsahverfinu við Flæðagerði á Sauðárkróki í fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun ársins 2027.
Götulýsing í hverfinu er víða ófullnægjandi og á köflum engin. Þar fara börn og fullorðnir um gangandi og ríðandi á sömu götum og ökutæki. Á dimmasta tíma ársins er erfiðara fyrir ökumenn að sjá gangandi vegfarendur, knapa og hesta í tæka tíð. Bætt lýsing er því brýnt umferðaröryggismál fyrir fólk og hesta, ekki síst börnin sem fara um hverfið.
Samkvæmt minnisblaði veitu- og framkvæmdasviðs frá 10. september 2026 er beinn framkvæmdakostnaður við uppsetningu 20 ljósastaura, skurðgröft og lagningu rafstrengja áætlaður um 13,1 m.kr. með virðisaukaskatti. Þá má benda á að álögð fasteignagjöld og lóðarleiga vegna eigna við Flæðagerði samtals um 6,9 m.kr. árið 2026.
Fulltrúi Miðflokksins leggur til að úrbætur á götulýsingu verði teknar inn í framkvæmdaáætlun ársins 2027 sem fyrsti áfangi í uppbyggingu innviða hverfisins og að götur þar sem lýsingu vantar fái forgang."
Fulltrúar meirihluta Byggðalista og Sjálfstæðisflokks óska bókað:
"Birkimelur í Varmahlíð:
Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að bæta umferðaröryggi við Birkimel. Í framkvæmdaáætlun ársins 2027 er gert ráð fyrir að malbika nýja hluta götunnar sem enn er ómalbikaður. Jafnframt hefur sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs verið falið að vinna tillögur að bráðabirgðalausn fyrir gönguleiðir við eldri hluta götunnar til að bæta þar öryggi gangandi vegfarenda.
Ljóst er að eldri hluti Birkimels þarfnast heildarendurnýjunar. Meirihlutinn telur rétt að varanlegar gangstéttir, lýsing og aðrar nauðsynlegar úrbætur verði unnar samhliða þeirri framkvæmd fremur en að ráðist verði nú í einstaka hluta áður en heildarendurnýjun götunnar fer fram.
Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað í Varmahlíð undanfarin ár og þeirri uppbyggingu verður haldið áfram. Á árinu 2027 er jafnframt gert ráð fyrir úrbótum á merkingum við skóla- og íþróttasvæðið til að auka umferðaröryggi og bæta skipulag umferðar. Sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs hefur þegar verið falið að undirbúa þá vinnu.
Með vísan til framangreinds fellir meirihlutinn tillöguna.
Götulýsing við Flæðagerði:
Í framkvæmdaáætlun ársins 2027 er gert ráð fyrir fjármagni til hönnunar á götulýsingu og gatnakerfi í hesthúsahverfinu við Flæðagerði. Meirihlutinn telur mikilvægt að framtíðaruppbygging innviða á svæðinu byggi á heildstæðri sýn og skýrri forgangsröðun.
Sveitarstjóra og sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs er falið að boða forsvarsmenn svæðisins til fundar þar sem farið verður yfir framtíðarskipulag, þarfir svæðisins og forgangsröðun verkefna.
Með vísan til framangreinds fellir meirihlutinn tillöguna."
Tillaga um Birkimel í Varmahlíð borin upp til afgreiðslu byggðarráðs og felld með atkvæðum meirihluta. Einar E. Einarsson greiðir atkvæði með tillögunni.
Tillaga um götulýsingu við Flæðagerði borin upp til afgreiðslu byggðarráðs og felld með atkvæðum meirihluta. Einar E. Einarsson greiðir atkvæði með tillögunni.
Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum framlagða áætlun eignasjóðs um meiriháttar viðhald fasteigna og framkvæmdaáætlun með áorðnum breytingum, sem hvoru tveggja verður hluti fjárhagsáætlunar 2027-2030. Einar E. Einarsson situr hjá við afgreiðslu málsins. Bókun fundar Afgreiðsla 217. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með sjö atkvæðum. Fulltrúar Framsóknarflokks sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Einar E. Einarsson ítrekar bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"Ég harma að meirihlutinn skuli ekki vilja flýta framkvæmdum við íþróttahús á Hofsósi. Eins má benda á að mjög mörg verkefni bíða þess að fara í framkvæmd og voru sett til hliðar í þeim drögum sem hér liggja fyrir frá meirihluta sveitarstjórnar. Má þar nefna margs konar viðhald sem þörf er á í skólahúsnæðum sveitarfélagsins, á slökkvistöðinni og svo eru engin umhverfisverkefni, göngustígar eða álíka í þessari fjárhagsáætlun svo eitthvað sé nefnt. Eins bíða áfram margar margræddar framkvæmdir eins og tónlistarskóli við Árskóla og nauðsynlegar áframhaldandi framkvæmdir við Sundlaug Sauðárkróks og fleira mætti nefna."
Högni Elfar Gylfason ítrekar bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"Fulltrúi Miðflokksins í byggðarráði gagnrýnir að ekkert fjármagn sé ætlað til úrbóta á eldri hluta Birkimels í Varmahlíð í fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun ársins 2027. Íbúðabyggð við eldri hluta götunnar nær meira en fjóra áratugi aftur í tímann og enn vantar þar samfellda gangstétt. Íbúar hafa kallað eftir úrbótum árum saman og óásættanlegt er að þeim skuli enn frestað.
Byggðarráð fól veitu- og framkvæmdasviði í febrúar 2025 að kostnaðarmeta lagningu gangstéttar við eldri hluta Birkimels frá þeim stað þar sem núverandi gangstétt endar. Íbúasamtök Varmahlíðar ítrekuðu beiðni sína um frágang götunnar í október sama ár.
Þar sem gangstéttina vantar er sums staðar malarslóði og annars staðar engin gönguleið meðfram götunni. Gangandi vegfarendur, þar á meðal börn á leið í skólann, ganga því gjarnan eftir akbrautinni. Malbikið er jafnframt víða skemmt og þarfnast lagfæringa.
Birkimelur hefur verið lengdur og ný hús eru að rísa við götuna. Með fjölgun íbúa má búast við aukinni umferð bíla og gangandi, þar á meðal fleiri börnum á leið í skólann sem er skammt frá. Það er óforsvaranlegt að börn þurfi áfram að ganga eftir akbrautinni á leið í skólann þegar hægt er að tryggja þeim samfellda gönguleið meðfram götunni.
Fulltrúi Miðflokksins leggur til að í framkvæmdaáætlun ársins 2027 verði gert ráð fyrir fjármagni til að ljúka lagningu gangstéttar og lagfæra skemmt malbik á eldri hluta Birkimels. Við forgangsröðun framkvæmdanna verði öryggi barna á leið í skólann haft að leiðarljósi.
Fulltrúi Miðflokksins í byggðarráði telur það slæmt mál að ekki sé gert ráð fyrir úrbótum á götulýsingu í hesthúsahverfinu við Flæðagerði á Sauðárkróki í fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun ársins 2027.
Götulýsing í hverfinu er víða ófullnægjandi og á köflum engin. Þar fara börn og fullorðnir um gangandi og ríðandi á sömu götum og ökutæki. Á dimmasta tíma ársins er erfiðara fyrir ökumenn að sjá gangandi vegfarendur, knapa og hesta í tæka tíð. Bætt lýsing er því brýnt umferðaröryggismál fyrir fólk og hesta, ekki síst börnin sem fara um hverfið.
Samkvæmt minnisblaði veitu- og framkvæmdasviðs frá 10. september 2026 er beinn framkvæmdakostnaður við uppsetningu 20 ljósastaura, skurðgröft og lagningu rafstrengja áætlaður um 13,1 m.kr. með virðisaukaskatti. Þá má benda á að álögð fasteignagjöld og lóðarleiga vegna eigna við Flæðagerði samtals um 6,9 m.kr. árið 2026.
Fulltrúi Miðflokksins leggur til að úrbætur á götulýsingu verði teknar inn í framkvæmdaáætlun ársins 2027 sem fyrsti áfangi í uppbyggingu innviða hverfisins og að götur þar sem lýsingu vantar fái forgang."
Fulltrúar meirihluta ítreka bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"Birkimelur í Varmahlíð:
Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að bæta umferðaröryggi við Birkimel. Í framkvæmdaáætlun ársins 2027 er gert ráð fyrir að malbika nýja hluta götunnar sem enn er ómalbikaður. Jafnframt hefur sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs verið falið að vinna tillögur að bráðabirgðalausn fyrir gönguleiðir við eldri hluta götunnar til að bæta þar öryggi gangandi vegfarenda.
Ljóst er að eldri hluti Birkimels þarfnast heildarendurnýjunar. Meirihlutinn telur rétt að varanlegar gangstéttir, lýsing og aðrar nauðsynlegar úrbætur verði unnar samhliða þeirri framkvæmd fremur en að ráðist verði nú í einstaka hluta áður en heildarendurnýjun götunnar fer fram.
Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað í Varmahlíð undanfarin ár og þeirri uppbyggingu verður haldið áfram. Á árinu 2027 er jafnframt gert ráð fyrir úrbótum á merkingum við skóla- og íþróttasvæðið til að auka umferðaröryggi og bæta skipulag umferðar. Sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs hefur þegar verið falið að undirbúa þá vinnu.
Með vísan til framangreinds fellir meirihlutinn tillöguna.
Götulýsing við Flæðagerði:
Í framkvæmdaáætlun ársins 2027 er gert ráð fyrir fjármagni til hönnunar á götulýsingu og gatnakerfi í hesthúsahverfinu við Flæðagerði. Meirihlutinn telur mikilvægt að framtíðaruppbygging innviða á svæðinu byggi á heildstæðri sýn og skýrri forgangsröðun.
Sveitarstjóra og sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs er falið að boða forsvarsmenn svæðisins til fundar þar sem farið verður yfir framtíðarskipulag, þarfir svæðisins og forgangsröðun verkefna.
Með vísan til framangreinds fellir meirihlutinn tillöguna." -
Byggðarráð Skagafjarðar - 217 Lagt fram til kynningar minnisblað frá Vegagerðinni, dags. 3. nóvember 2026, um framkvæmdir og fjármögnun við Útgarð við Sauðárkrókshöfn. Fram kemur að framkvæmdir hófust haustið 2025 og felast m.a. í gerð brimvarnargarðs, stálþils, dýpkun og gerð þekju. Verkefnið er umfangsmikið og framkvæmdir standa yfir samkvæmt fyrirliggjandi verkáætlun.
Ljóst er að misræmi er á milli framvindu framkvæmda og tímasetningar ríkisframlaga samkvæmt samgönguáætlun. Af þeim sökum þarf höfnin tímabundið að standa undir fjármögnun hluta framkvæmda sem gert er ráð fyrir að ríkissjóður taki þátt í að fjármagna. Óvissa er jafnframt um tímasetningu hluta framlaga þar sem hún ræðst af fjárveitingarramma Hafnabótasjóðs.
Byggðarráð leggur þunga áherslu á að ríkið tryggi Hafnabótasjóði fjárheimildir sem gera sjóðnum kleift að standa við fyrirliggjandi áætlanir um ríkisþátttöku í hafnarframkvæmdinni. Óásættanlegt er að sveitarfélagið og hafnarsjóður þurfi að bera kostnað og fjármögnun vegna ríkisframlags til verkefnis sem þegar hefur verið samþykkt og framkvæmdir hafnar.
Byggðarráð skorar því á stjórnvöld að tryggja Hafnabótasjóði fullnægjandi og fyrirsjáanlegt fjármagn þannig að staðið verði við áformaða ríkisþátttöku í verkefninu og að fjárveitingar fylgi framvindu verkefnisins. Bókun fundar Afgreiðsla 217. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 217 Lagður fram viðauki 8 við fjárhagsáætlun Skagafjarðar árið 2026. Viðaukinn felur í sér 33,7 m.kr. lækkun á rekstrarniðurstöðu A-hluta og breytingar á fjárfestingum og eignabreytingum að fjárhæð 432,2 m.kr.
Helstu breytingar á rekstri tengjast leiðréttingu á álagningu fasteignaskatts, sölu fasteignanna að Háholti og Furulundi 5 og því að fallið hefur verið frá eftirstandandi eignasölu á árinu. Þá er gert ráð fyrir auknum tekjum Byggðasafns og hækkun launakostnaðar hjá Vinnuskóla Skagafjarðar, stjórnsýlu- og fjármálasvið, Húsi frítímans og Sundlaug Sauðárkróks. Jafnframt eru fjárheimildir vegna lögfræði- og sérfræðiþjónustu, tölvuþjónustu, þjónustu- og færslugjalda, félags- og aðildargjalda og framlaga til samstarfsverkefna hækkaðar. Auknum launakostnaði er að hluta mætt með millifærslu úr launapotti.
Breytingar á fjárfestingaráætlun felast meðal annars í því að fjárheimildir vegna menningarhúss, stækkunar verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, íþróttahúss við Grunnskólann austan Vatna, gatnagerðar, opinna svæða og sjóveitu eru lækkaðar. Á móti eru fjárheimildir vegna bifreiða og tækja, gatnagerðar við Borgarsíðu, sorpmóttökustöðvar, fráveituframkvæmda og aðstöðuhúss Hitaveitu Skagafjarðar hækkaðar. Þá er fallið frá áætluðum kaupum á fasteignum.
Eftir viðaukann verður áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 518,5 m.kr. og rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta jákvæð um 2.165,5 m.kr. Áætlað handbært fé í árslok verður 943,9 m.kr. hjá A-hluta og 1.448,1 m.kr. hjá samstæðu A- og B-hluta.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka 8 við fjárhagsáætlun Skagafjarðar árið 2026 og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Viðauki 8 við fjárhagsáætlun 2026, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 217 Mál áður á dagskrá 207. fundi byggðarráðs Skagafjarðar þar sem Golfklúbbur Skagafjarðar hafði farið þess á leit við byggðarráð að fá fyrirframgreiddan styrk samkvæmt styrktarsamningi aðila. Málinu var vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
Fyrir fundinum liggur tölvupóstur þar sem beiðnin er ítrekuð.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að eftirstöðvar styrksins verði greidd út í janúar 2027. Bókun fundar Afgreiðsla 217. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 217 Máli vísað frá 48. fundi félagsmála- og tómstundanefnd sem haldinn var 5. nóvember sl. Þar lagði félagsmála- og tómstundanefnd til við byggðarráð að frístundaakstur verði tryggður báðar leiðir á þriðjudögum og föstudögum með það að markmiði að stuðla að bættu aðgengi barna að skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi óháð búsetu.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fallast á tillöguna og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að tryggja frístundaakstrinum fjármagni fyrir báðum leiðum tvo daga í viku í fjárhagsáætlun ársins 2027. Byggðarráð samþykkir jafnframt samhljóða að samhliða aukinni þjónustu frístundaaksturs verði tekið upp virkt samtal við skóla, íþróttafélög og aðra sem gætu nýtt þjónustuna svo að nýting verði sem best. Bókun fundar Afgreiðsla 217. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 217 Lögð fram tillaga um að gera nýjan rekstrarsamning milli skíðadeildar Tindastóls og Skagafjarðar út núlíðandi vetur, en skíðadeildin sagði fyrri rekstrarsamning upp skriflega 27. febrúar 2026. Í tillögunni er lagt til að framlag Skagafjarðar hækki í 27 m.kr. á ári. Í tillögunni er gert ráð fyrir útgreiðslu á 7 mánuðum en lagt er til að samningsdrögum verði breytt og gert ráð fyrir útgreiðslu á 12 mánuðum. Einnig verði betur skilgreint um hvernig haga skuli frágangi eftir vetrarstarf, samhliða að svæðið verði tekið út í lok rekstrarárs af starfsmanni sveitarfélagsins.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að samningi með áorðnum breytingum og felur sveitarstjóra að ganga til samninga við skíðadeild Tindastóls.
Bókun fundar Afgreiðsla 217. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 217 Lagt fram erindi frá Ylfu Leifsdóttur, dagsett 4. nóvember 2026. Í erindinu er farið yfir að starfsemi Sögusetur íslenska hestsins færist yfir í þekkingarsetur HÍ á Hólum og því er unnið að því að slíta félaginu um Sögusetur íslenska hestsins.
Eftir að útistandandi kröfur hafa verið greiddar er gert ráð fyrir að um 50 þúsund krónur verði eftir á reikningi setursins. Samkvæmt upplýsingum frá RH endurskoðun má hins vegar gera ráð fyrir að kostnaður við slitin verði um 200-250 þúsund krónur. Þar sem fyrir liggur að starfsemi Sögusetursins í núverandi mynd verður lögð niður eru ekki forsendur til að sækja um frekari rekstrarstyrki fyrir setrið og því fer Ylfa þess á leit að stofnaðilar setursins komi að því að brúa bilið svo hægt sé að ljúka slitum félagsins.
HÍ á Hólum hefur þegar samþykkt að taka helming útistandandi kostnaðar til móts við Skagafjörð.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita helming útistandandi kostnaðar við slitin. Bókun fundar Afgreiðsla 217. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 217 Lagt fram bréf, dagsett 28. október 2026, frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands (EBÍ). Í bréfinu er tilkynnt um að stjórn álíti aðstæður þannig að ekki sé svigrúm til útgreiðslu ágóðahluta til eigenda og því verði enginn ágóðahlutur greiddur til sveitarfélagsins þetta árið. Bókun fundar Afgreiðsla 217. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 217 Lögð fram til kynningar gjaldskrá Norðurár bs. fyrir árið 2027 sem samþykkt var á fundi stjórnar Norðurár bs. þann 26. október sl. Í gjaldskránni hækka liðir hennar milli 1,8%-2,5%. Bókun fundar Afgreiðsla 217. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 217 Lagt fram kynningarefni frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vegna bæklingsins Verum viðbúin, sem hefur það að markmiði að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins. Í efninu er m.a. fjallað um hlutverk sveitarfélaga við upplýsingagjöf, stuðning við íbúa og samhæfingu þjónustu þegar á reynir. Bókun fundar Afgreiðsla 217. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 217 Lagt fram til kynningar erindi Landsnets hf., dagsett 5. nóvember 2026, vegna Kerfisáætlunar Landsnets 2025-2034, þar sem kynnt er umhverfismatsskýrsla áætlunarinnar. Bókun fundar Afgreiðsla 217. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
6.Byggðarráð Skagafjarðar - 218
Málsnúmer 2611013FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 218 Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum lið.
Máli vísað frá 55. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar sem haldinn var þann 4. nóvember sl. Nefndin leggur til við byggðarráð að samþykkja framlagða gjaldskrá sem felur í sér 3,1-7,2% hækkun vegna áætlaðs kostnaðar við þjónustuna.
Samkvæmt gildandi lögum skal gjaldtaka sveitarfélaga vegna sorpþjónustu endurspegla raunkostnað við þjónustuna. Þetta er því ekki hefðbundin skattlagningarheimild þar sem hægt er að ákveða gjaldið óháð kostnaði heldur þarf kostnaðargrunnurinn að vera rekjanlegur og gjaldskráin studd raunverulegum kostnaði.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá sorphirðu- og sorpeyðingar 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 218 Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum lið.
Máli vísað frá 55. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar sem haldinn var þann 4. nóvember sl. Nefndin lagði til við byggðarráð að samþykkja fyrirliggjandi gjaldskrá fyrir Sauðárkróks- og Hofsóshafnir.
Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Skagafjarðarhafna 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 218 Undir þessum lið sátu Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, Bryndís Lilja Hallsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri.
Tekin fyrir fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árið 2027 ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030 milli umræðna í sveitarstjórn. Sviðsstjórar lögðu fram greinargerðir með fjárhagsáætlun sinna sviða og í kjölfarið lagði fjármálastjóri fram fjárhagsáætlun 2027-2030.
Að lokinni kynningu viku gestir af fundi.
Byggðarráð samþykkir fjárhagsáætlunina með tveimur atkvæðum og vísar henni til síðari umræðu og endanlegrar afgreiðslu í sveitarstjórn. Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks situr hjá við afgreiðslu málsins. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Fjárhagsáætlun 2027-2030, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 218 Lögð fram drög að uppfærðum reglum um heilsueflingarstyrki til starfsfólks Skagafjarðar fyrir árið 2027. Í fyrirlögðum drögum er gerð tillaga um að uppfæra 8. grein reglnanna á þann hátt að einnig sé hægt að nýta heilsueflingarstyrk upp í kostnað við heilsunudd.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð drög og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Reglur um heilsueflingarstyrki - breyting, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 218 18. ágúst 2026 auglýsti Skagafjörður eftir áhugasömum aðilum til að taka við Maddömukoti í núverandi ástandi án endurgjalds, gegn því skilyrði að húsið verði flutt á nýjan stað og gert upp í samræmi við kröfur Minjastofnunar Íslands. Húsið er aldursfriðað samkvæmt lögum um menningarminjar nr. 80/2012, sem þýðir að hvorki má rífa það né breyta á nokkurn hátt án samþykkis Minjastofnunar Íslands.
Ein umsókn barst um að fá að taka við húsinu frá Guðríði Björk Magnúsdóttir með það í huga að staðsetja húsið í Viðvík. Ætlunin er að veita húsinu hlutverk við að varðveita sögur sem hafa tengingar við Viðvík.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að verða við umsókn Guðríðar Bjarkar Magnúsdóttur og felur sveitarstjóra að ganga til samninga við hana. Húsið skal flutt af núverandi stað fyrir 1. júní 2027. Bókun fundar Afgreiðsla 218. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 218 Mál áður á 217. fundi byggðarráðs þann 12. nóvember síðastliðinn. Þá voru lögð fyrir drög að samningi um rekstur skíðasvæðis í Tindastóli milli Skagafjarðar og skíðadeildar Tindastóls. Skíðadeildin hefur óskað eftir að fjárframlag vegna samningsins verði greitt út á 7 mánuðum í stað 12 mánaða eins og lagt var upp með í fyrri drögum. Í fyrirliggjandi drögum hefur greiðslufyrirkomulag verið uppfært til samræmis við ósk skíðadeildar.
Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks óskar bókað:
"Fyrr á þessu ári sagði Magnús Barðdal, þáverandi formaður Ungmennafélagsins Tindastóls, fyrir hönd aðalstjórnar upp gildandi rekstrarsamningi Skíðadeildar Tindastóls við Skagafjörð. Ástæðurnar voru að reksturinn væri orðinn of umfangsmikill og ábyrgðarmikil fyrir skíðadeildina. Jafnframt vonaðist þá Aðalstjórn til að reksturinn færðist til aðila með bolmagn og faglega getu til rekstarins. Nú hefur hins vegar meirihluti Skagafjarðar ákveðið að semja aftur við Skíðadeild Tindastóls til 7 mánaða og greiða fyrir það 27 milljónir sem er hækkun á ári um 5 milljónir en þar sem hér er einungis um 7 mánaða samning að ræða verður þetta um helmingshækkun á mánuði þann tíma sem samningurinn gildir, en hann nær til loka apríl 2027.
Þó það sé fagnaðarefni að rekstur svæðisins sé tryggður í vetur þá er þetta því miður engin lausn til framtíðar á þeim vandamálum sem verið hafa. Ekki hefur heldur verið prófað að bjóða reksturinn út til utanaðkomandi aðila, en nánast öll önnur skíðasvæði á landinu eru ýmist rekin af einkaaðilum með stuðningi sveitarfélaga eða þá beint af sveitarfélögum. Ég harma því að hér hafi ekki verið reynt að leita betri langtímalausna fyrir rekstur svæðisins með samningi til lengri tíma og þá við aðila sem treysta sér í rekstur sem þennan."
Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum fyrirliggjandi drög og felur sveitarstjóra að ganga til samninga við skíðadeild Tindastóls. Einar E. Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks situr hjá við afgreiðslu málsins. Bókun fundar Afgreiðsla 218. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með sjö atkvæðum. Fulltrúar Framsóknarflokks sitja hjá við afgreiðslu þessa máls.
Einar E. Einarsson ítrekar bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"Fyrr á þessu ári sagði Magnús Barðdal, þáverandi formaður Ungmennafélagsins Tindastóls, fyrir hönd aðalstjórnar upp gildandi rekstrarsamningi Skíðadeildar Tindastóls við Skagafjörð. Ástæðurnar voru að reksturinn væri orðinn of umfangsmikill og ábyrgðarmikil fyrir skíðadeildina. Jafnframt vonaðist þá Aðalstjórn til að reksturinn færðist til aðila með bolmagn og faglega getu til rekstarins. Nú hefur hins vegar meirihluti Skagafjarðar ákveðið að semja aftur við Skíðadeild Tindastóls til 7 mánaða og greiða fyrir það 27 milljónir sem er hækkun á ári um 5 milljónir en þar sem hér er einungis um 7 mánaða samning að ræða verður þetta um helmingshækkun á mánuði þann tíma sem samningurinn gildir, en hann nær til loka apríl 2027.
Þó það sé fagnaðarefni að rekstur svæðisins sé tryggður í vetur þá er þetta því miður engin lausn til framtíðar á þeim vandamálum sem verið hafa. Ekki hefur heldur verið prófað að bjóða reksturinn út til utanaðkomandi aðila, en nánast öll önnur skíðasvæði á landinu eru ýmist rekin af einkaaðilum með stuðningi sveitarfélaga eða þá beint af sveitarfélögum. Ég harma því að hér hafi ekki verið reynt að leita betri langtímalausna fyrir rekstur svæðisins með samningi til lengri tíma og þá við aðila sem treysta sér í rekstur sem þennan." -
Byggðarráð Skagafjarðar - 218 Fyrir fundinum liggur fyrir minnisblað, dagsett 12. nóvember 2026, þar sem lögð er upp tillaga um afmörkun tjaldsvæðis á Hofsósi.
Tillagan byggir á því landsvæði sem fram til þessa hefur verið nýtt sem tjaldsvæði.
Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu með áorðnum breytingum og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að láta vinna lóðarblöð í samræmi við tillöguna og óska eftir stofnun lóðar. Bókun fundar Afgreiðsla 218. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. - 6.8 2610019 Framkvæmdir við húsnæði Flugbjörgunarsveitarinnar og Brunavarna Skagafjarðar í Varmahlíð.Byggðarráð Skagafjarðar - 218 Mál áður á dagskrá 212. fundar byggðarráðs þann 5. október sl. Flugbjörgunarsveitin hafði lagt fyrir beiðni um að Skagafjörður taki þátt í framkvæmda- og viðhaldskostnaði við tækjasal sem er í sameign aðila, en ráðist var í framkvæmdirnar án undangengins samráðs við sveitarfélagið. Þá samþykkti byggðarráð að fela sveitarstjóra að kalla eftir ítarlegri gögnum. Þau gögn liggja nú fyrir og eru lögð fyrir byggðarráð.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela umsjónarmanni eignarsjóðs að taka umræddar framkvæmdir út og skila byggðarráði í kjölfarið ítarlegu minnisblaði. Byggðarráð samþykkir jafnframt samhljóða að boða forsvarsmenn Flugbjörgunarsveitarinnar á fund byggðarráðs þegar minnisblað umsjónarmanns eignarsjóðs liggur fyrir. Bókun fundar Afgreiðsla 218. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 218 Á 210. fundi byggðarráðs þann 22. september sl. samþykkti byggðarráð að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að taka við rekstri sundlaugarinnar frá og með næstu áramótum. Auglýsing þess efnis birtist á heimasíðu sveitarfélagsins 30. október sl. með umsóknarfrest til 15. nóvember. Auglýst var eftir háhugasömum aðilum til að taka við rekstrinum til þriggja ára. Rekstraraðili skal samkvæmt nánari þjónustusamningi annast daglegan rekstur og umsjón með starfsemi sundlaugarinnar.
Ein umsókn barst um rekstur sundlaugarinnar. Umsækjandi er Sótahnjúkur ehf. sem óskar eftir að endurnýja samning um rekstur laugarinnar, en félagið hefur haft umsjón með rekstri sundlaugarinnar síðastliðin 6 ár.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að ganga til samninga við forsvarsmenn Sótahnjúks ehf. um rekstur Sundlaugarinnar á Sólgörðum með gildandi samning að fyrirmynd. Bókun fundar Afgreiðsla 218. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 218 Lagður fram tölvupóstur frá Halldóri Guðmuyndssyni dagsettur 11. nóvember sl. Í tölvupóstinum óskar Halldór, fyrir hönd Orku náttúrunnar, eftir að setja upp hverfahleðslu á nýju stækkuðu bílastæði austan við Sundlaug Sauðárkróks. Óskað er eftir að setja upp tvo staura, samtals fjögur tengi.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að verða við erindinu. Bókun fundar Afgreiðsla 218. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
7.Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 50
Málsnúmer 2610014FVakta málsnúmer
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 50 Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni.
Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.
Nefndin þakkar fyrir yfirferðina. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 50 Fjárhagsáætlun fyrir málaflokk nr. 05 - menningarmál lögð fram og tekin til seinni umræðu.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun fyrir menningarmál með áorðnum breytingum og vísar til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 50 Fjárhagsáætlun fyrir málaflokk nr. 11 - atvinnumál lögð fram og tekin til seinni umræðu.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun fyrir atvinnumál og vísar til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 50 Fjárhagsáætlun fyrir málaflokk nr. 21 - kynningarmál lögð fram og tekin til seinni umræðu.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun fyrir kynningarmál og vísar til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 50 Umræður um framtíð tjaldsvæða í Skagafirði.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmanni nefndarinnar að undirbúa sölu tjaldsvæðanna í Varmahlíð og á Hofsósi.
Nefndin telur rétt að sveitarfélagið dragi úr samkeppnisrekstri við einkaaðila og leggi fyrst og fremst áherslu á lögbundin verkefni og þjónustu. Á undanförnum árum hafa byggst upp vel útbúin tjaldsvæði og fjölbreytt ferðaþjónusta víða í Skagafirði. Nefndin telur því tímabært að skapa tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila til að taka við rekstri og áframhaldandi uppbyggingu þessara tjaldsvæða.
Stefnt er að því að tjaldsvæðin í Varmahlíð og á Hofsósi verði auglýst til sölu að loknum næsta fundi nefndarinnar.
Jafnframt leggur nefndin til að ákvörðun um framtíð tjaldsvæðisins á Nöfum á Sauðárkróki verði frestað til næsta fundar nefndarinnar.
Ástæða frestunarinnar er sú að ljúka þarf þeirri undirbúningsvinnu sem þegar er hafin um framtíðarskipulag tjaldsvæðisins. Þar er meðal annars verið að meta staðsetningu þess til skemmri og lengri tíma með hliðsjón af aðalskipulagi, mögulega uppbyggingu svæðisins og kostnaði við nauðsynlegar framkvæmdir.
Erindinu er vísað til byggðarráðs til afgreiðslu. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 50 Á 49. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar fól nefndin starfsmanni nefndarinnar að auglýsa aftur rekstur Félagsheimilisins Ljósheima.
Auglýsingin birtist á heimasíðu sveitarfélagsins, á samfélagsmiðlum þess og í Sjónhorninu í byrjun september.
Umsóknarfrestur var til og með 12. október sl.
Alls barst inn ein umsókn um rekstur Félagsheimilisins Ljósheima og verður fjallað um hana í næsta lið. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 50 Framlögð umsókn um rekstur félagsheimilisins Ljósheima.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmanni nefndarinnar að ganga til samninga við Ísabellu Friðriksdóttur og Hilmi Örn Eiríksson. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 50 Framlagt erindi frá Berglindi Þorsteinsdóttur, safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, dagsett 1. október 2026 um rekstur og umsjón Víðimýrakirkju.
Byggðasafn Skagfirðinga hefur um árabil annast rekstur og umsjón Víðimýrarkirkju samkvæmt samningi við Þjóðminjasafn Íslands, sem hefur runnið úr gildi. Miklar breytingar hafa orðið á afnotum kirkjunnar og rekstrarforsendur breyst. Því leggur forstöðumaður Byggðasafns Skagafjarðar til að Þjóðminjasafnið, sem eigandi kirkjunnar, taki nú ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag reksturs og aðgengis að Víðimýrarkirkju.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að ekki verður sóst eftir endurnýjun samnings við Þjóðminjasafn Íslands um rekstur og umsjón Víðimýrakirkju og vísar erindinu til byggðarráðs.
Jafnframt felur nefndin starfsmanni nefndarinnar að taka deildina út úr fjárhagsáætlun 2027 áður en hún verður framlögð fyrir byggðarráð.
Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 50 Umræður um hátíðina Sveitasæla sem fyrirhuguð er árið 2027.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd felur starfsmanni nefndarinnar að eiga fund með forsvarsmönnum Flugu til að ákveða fyrirkomulag hátíðarinnar á næsta ári. Bókun fundar Afgreiðsla 50. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
8.Félagsmála- og tómstundanefnd - 48
Málsnúmer 2610025FVakta málsnúmer
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 48 Lagt fram minnisblað leiðtoga fatlaðs fólks og eldra fólks. Frá því síðasta minnisblað um málið var lagt fyrir í maí sl. hefur orðið mikilvæg þróun á landsvísu sem hefur áhrif á áframhaldandi stefnumótun Skagafjarðar um stafræna þróun í velferðarþjónustu. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa markað sameiginlega framtíðarsýn um stafræna þróun og gagnamál í félagsþjónustu, ásamt aðgerðaáætlun til ársins 2028. Jafnframt er gert ráð fyrir fjárstuðningi við sveitarfélög vegna áskriftargjalda til loka árs 2028. Í ljósi þessarar þróunar er nú kannað hvort unnt sé að nýta eina sameiginlega stafræna lausn í velferðarþjónustu í stað tveggja aðskilinna lausna.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að fela starfsfólki nefndarinnar, í samstarfi við stjórnsýslu- og fjármálasvið, að vinna málið áfram í samræmi við þær áherslur sem fram koma í minnisblaðinu. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 48 Lagt fram minnisblað leiðtoga frístunda- og íþróttamála um nýtingu og kostnað vegna frístundaaksturs. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir mismunandi útfærslum aksturs á þriðjudögum og föstudögum, meðal annars kostnaði við akstur báðar leiðir.
Félagsmála- og tómstundanefnd leggur til að frístundaakstur verði tryggður báðar leiðir á þriðjudögum og föstudögum. Nefndin telur mikilvægt að fyrirkomulagið stuðli að bættu aðgengi barna að skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi óháð búsetu. Samþykkt samhljóða og vísað til byggðarráðs.
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 48 Lagt er til að hvatapeningar haldist óbreyttir árið 2027.
Fulltrúi Miðflokks óskar eftir því að leggja fram eftirfarandi tillögu:
Lagt er til að hvatapeningur verði í boði fyrir börn frá fæðingu til 18 ára aldurs.
Með breytingunni verði foreldrum gert kleift að nýta hvatapeninginn fyrir börn frá fæðingu í stað þess að rétturinn hefjist við 5 ára aldur, eins og nú er.
Mikilvægt er að skapa öllum börnum tækifæri til þátttöku í fjölbreyttri afþreyingu, tómstundum og skipulögðu starfi frá unga aldri. Fjölbreytt úrræði og afþreying standa nú þegar til boða fyrir þennan aldurshóp og því eðlilegt að hvatapeningurinn taki einnig til yngstu barnanna.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Byggðalista hafnar að svo stöddu tillögu um að breyta aldursviðmiði hvatapeninga úr 5?18 ára í 0?18 ára. Meirihlutinn telur mikilvægt að fyrir ákvörðun um slíka breytingu liggi fyrir upplýsingar um hvaða skipulagða íþrótta-, lista- og tómstundastarf stendur börnum undir fimm ára aldri til boða, þátttöku þeirra í slíku starfi og kostnaðaráhrif mögulegrar útvíkkunar. Starfsfólki er falið að taka þessar upplýsingar saman og leggja fyrir nefndina til frekari skoðunar.
Fulltrúi Miðflokks óskar að eftirfarandi bókun verði færð til fundargerðar fyrir hönd Miðflokksins:
Miðflokkurinn harmar að tillaga um að hvatapeningur nái til barna frá fæðingu til 18 ára aldurs hafi ekki verið samþykkt.
Að okkar mati eiga öll börn að hafa tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum tómstundum, afþreyingu og skipulögðu starfi óháð aldri. Það er engin ástæða til að útiloka yngstu börnin frá þessum stuðningi, enda stendur þeim þegar til boða fjölbreytt afþreying og tómstundastarf.
Miðflokkurinn mun áfram leggja áherslu á að hvatapeningurinn verði aðgengilegur öllum börnum frá fæðingu til 18 ára aldurs.
Nefndin samþykkir samhljóða að óska eftir því að starfsfólk taki saman upplýsingar um hvaða skipulagða íþrótta-, lista- og tómstundastarf stendur börnum undir fimm ára aldri til boða, hver þátttakan er í slíku starfi og kostnaðaráhrif mögulegrar útvíkkunar. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
Högni Elfar Gylfason ítrekar bókun fulltrúa Miðflokks á fundinum, svohljóðandi:
"Miðflokkurinn harmar að tillaga um að hvatapeningur nái til barna frá fæðingu til 18 ára aldurs hafi ekki verið samþykkt.
Að okkar mati eiga öll börn að hafa tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum tómstundum, afþreyingu og skipulögðu starfi óháð aldri. Það er engin ástæða til að útiloka yngstu börnin frá þessum stuðningi, enda stendur þeim þegar til boða fjölbreytt afþreying og tómstundastarf.
Miðflokkurinn mun áfram leggja áherslu á að hvatapeningurinn verði aðgengilegur öllum börnum frá fæðingu til 18 ára aldurs."
Eyþór Fannar Sveinsson lagði fram bókun, svohljóðandi:
„Meirihluti sveitarstjórnar telur mikilvægt að hvatapeningar Skagafjarðar nýtist áfram sem öflugur stuðningur við þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþrótta-, lista- og tómstundastarfi. Núverandi fyrirkomulag hefur gefist vel og eru hvatapeningar í Skagafirði í samræmi við þær fjárhæðir sem almennt tíðkast hjá öðrum sveitarfélögum.
Meirihlutinn hafnar ekki frekari skoðun á því hvort rétt sé að útvíkka aldursviðmið hvatapeninga til barna undir fimm ára aldri, en telur eðlilegt og ábyrgt að áður en slík ákvörðun er tekin liggi fyrir skýrar upplýsingar um hvaða skipulagða starf stendur þessum aldurshópi til boða, hver þátttakan er og hver kostnaðaráhrif slíkrar breytingar yrðu.
Það er því jákvætt að nefndin hafi sammælst um að kalla eftir þessum upplýsingum og fá málið betur upplýst áður en endanleg afstaða er tekin. Með því er tryggt að umræðan byggist á staðreyndum, jafnræði og ábyrgri meðferð fjármuna sveitarfélagsins.“
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 48 Lögð fram tillaga meirihluta að upphæð niðurgreiðslna skv. 6. gr. reglna um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum og um foreldragreiðslur hækki um 10.000 kr. frá 1. janúar 2027 og verði 120.000 kr. á mánuði.
Fulltrúi Miðflokksins óskar eftir að leggja fram eftirfarandi tillögu:
Lagt er til að foreldragreiðslur Skagafjarðar verði hækkaðar úr 110.000 kr. í 150.000 kr. á mánuði.
Það er mat Miðflokksins að mikilvægt sé að styðja vel við barnafjölskyldur í Skagafirði og skapa þeim sem bestar aðstæður til að samræma fjölskyldulíf og atvinnuþátttöku.
Þegar 12 mánaða fæðingarorlofi lýkur getur myndast tímabil þar til barn fær leikskólapláss. Það getur skapað fjölskyldum bæði fjárhagslegar og félagslegar áskoranir.
Með hækkun foreldragreiðslna viljum við styðja betur við þær fjölskyldur sem lenda í þessari stöðu og tryggja þeim aukinn fjárhagslegan stuðning á meðan beðið er eftir leikskólaplássi.
Miðflokkurinn telur jafnframt mikilvægt að horfa til þess að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins geri ráð fyrir rekstri leikskólaplássa fyrir þau börn sem eru á bið eftir vistun. Kostnaður við að greiða foreldrum hærri foreldragreiðslur kann því að vera umtalsvert lægri en sá kostnaður sem fylgir rekstri leikskólaplássa fyrir sömu börn. Því er mikilvægt að skoða fjárhagsleg áhrif breytingarinnar í samhengi við þann kostnað sem ella hefði fallið til vegna leikskólarekstrar.
Þó þarf að fara fram nánara kostnaðarmat áður en endanleg fjárhagsleg áhrif breytingarinnar liggja fyrir.
Miðflokkurinn leggur jafnframt áfram áherslu á að meginmarkmiðið verði að efla leikskóla Skagafjarðar, tryggja nægt framboð leikskólaplássa og skapa fjölskyldum fyrirsjáanleika í dagvistun barna sinna.
Foreldragreiðslur eiga að vera stuðningur við fjölskyldur á meðan beðið er eftir leikskólaplássi, en ekki koma í stað öflugrar leikskólaþjónustu.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Byggðalista minnir á að á síðasta ári voru foreldragreiðslur hækkaðar verulega, úr rúmlega 66 þúsund krónum í 110 þúsund krónur á mánuði, til að koma betur til móts við foreldra barna sem bíða eftir leikskólaplássi. Tillaga um hækkun í 120 þúsund krónur frá 1. janúar 2027 er áframhald þeirrar stefnu og felur í sér enn frekari hækkun stuðnings við fjölskyldur.
Meirihlutinn telur mikilvægt að horfa til þessarar þróunar í heild sinni. Á tveimur árum hafa greiðslurnar þannig hækkað úr rúmlega 66 þúsund krónum í 120 þúsund krónur á mánuði, eða um 81%. Meirihlutinn telur þetta sýna skýran vilja til að styðja við foreldra í þessari stöðu, samhliða því að gæta þarf ábyrgðar í rekstri sveitarfélagsins m.a. í ljósi niðurstöðu 6 mánaðar uppgjörs sveitarfélagsins og vinna áfram að því meginmarkmiði að börn fái leikskólapláss. Tillögu Miðflokksins hafnað.
Miðflokkurinn fagnar því að til standi að hækka foreldragreiðslur í Skagafirði, enda er það mikilvægt skref í stuðningi við barnafjölskyldur. Að okkar mati þarf þó að ganga lengra. Tillaga Miðflokksins um að hækka foreldragreiðslur í 150.000 kr. á mánuði er hugsuð sem fyrsta skref í átt að sanngjarnari og betri stuðningi við þær fjölskyldur sem þurfa að brúa bilið þar til leikskólapláss býðst.
Tillaga meirihluta um hækkun foreldragreiðslna um 10.000 kr. samþykkt með tveimur atkvæðum meirihluta. Fulltrúi Framsóknarflokks situr hjá við afgreiðslu.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Niðurgreiðslur til dagforeldra og foreldragreiðslur 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 48 Lögð fram styrkbeiðni frá Stígamótum vegna starfsemi samtakanna fyrir árið 2027. Nefndin samþykkir samhljóða að hafna erindinu og óskar Stígamótum alls góðs í störfum sínum. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 48 Lagður fram tölvupóstur frá skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra þar sem óskað er eftir því að gjaldtaka fyrir nemendur skólans sem ekki hafa lögheimili í Skagafirði verði endurskoðuð. Félagsmála- og tómstundanefnd felur starfsfólki nefndarinnar að afla frekari upplýsinga um málið hjá skólastjórnendum FNV í takt við umræður fundarins og leggja fyrir á næsta fundi nefndarinnar. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 48 Íþróttafélagið Molduxar óskar eftir endurgjaldslausum aðgangi að íþróttahúsinu á Sauðárkróki vegna jólamóts félagsins þann 26. desember nk. Nefndin samþykkir samhljóða að fella niður leigu á íþróttahúsinu vegna þessa og vísar til 4. gr. reglna um útleigu á íþróttahúsum í ákvörðun sinni. Bókun fundar Guðlaugur Skúlason vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Afgreiðsla 48. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með átta atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 48 Lögð fram til síðari umræðu fjárhagsáætlun fyrir þjónustu við fatlað fólk (málaflokkur 01) fyrir árið 2027. Áætlunin hefur verið unnin í samstarfi við stjórnsýslu- og fjármálasvið sem og forstöðumenn einstakra stofnana. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir áætlunina samhljóða fyrir sitt leyti og vísar henni til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 48 Lögð fram til síðari umræðu fjárhagsáætlun félagsþjónustu (málaflokkur 02) fyrir árið 2027. Áætlunin hefur verið unnin í samstarfi við stjórnsýslu- og fjármálasvið sem og forstöðumenn einstakra stofnana. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir áætlunina samhljóða fyrir sitt leyti og vísar henni til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 48 Lögð fram til síðari umræðu fjárhagsáætlun æskulýðs og íþróttamála (málaflokkur 06) fyrir árið 2027. Áætlunin hefur verið unnin í samstarfi við stjórnsýslu- og fjármálasvið. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir áætlunina samhljóða fyrir sitt leyti og vísar henni til byggðarráðs.
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 48 Lögð fram til kynningar 5. fundargerð frá 27. ágúst sl.
Félagsmála- og tómstundanefnd hefur farið yfir tillögu öldungaráðs um breytingu á 2. gr. samþykkta ráðsins, þess efnis að seta í öldungaráði verði launuð. Nefndin vísar tillögunni til byggðarráðs til afgreiðslu.
Félagsmála- og tómstundanefnd tekur undir mikilvægi þess að stuðla að aukinni þátttöku eldri borgara í heilsueflingu og skipulögðu frístundastarfi. Nefndin telur þó ekki tímabært að taka ákvörðun um sérstakan frístundastyrk fyrir eldri borgara að svo stöddu og leggur til að málið verði skoðað nánar, meðal annars með tilliti til fyrirliggjandi úrræða, kostnaðar og mögulegrar útfærslu.
Nefndin samþykkir samhljóða að fela starfsfólki að taka saman gögn um það hvað stendur eldra fólki til boða, hvernig styrkjum til félagsstarfs eldri borgara er háttað í dag og hvort og hvernig önnur sveitarfélög útfæra þessi mál hjá sér. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 48 Lagðar fram til kynningar tvær fundargerðir, nr. 53 frá 27.október 2026 og nr. 54 frá 29.október 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 48 Lagðar fram til kynningar tvær fundargerðir frá fundi nr. 70 frá 5. október 2026 og fundi nr. 71 frá 2. nóvember 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
9.Fræðslunefnd - 52
Málsnúmer 2610023FVakta málsnúmer
-
Fræðslunefnd - 52 Lögð fram til síðari umræðu fjárhagsáætlun fræðsluþjónustu (málaflokkur 04) fyrir árið 2027. Áætlunin hefur verið unnin í samstarfi við stjórnsýslu- og fjármálasvið sem og forstöðumenn einstakra stofnana.
Fræðslunefnd samþykkir áætlunina samhljóða fyrir sitt leyti og vísar henni til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar fræðslunefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 52 Fulltrúar Byggðalista og Sjálfstæðisflokks leggja fram eftirfarandi tillögu:
Þarfagreininga á aðstöðu Varmahlíðarskóla.
Greinagerð:
Unnið var að mótun skólaumhverfis í Varmahlíð á árunum 2020-2021, íbúar og starfsfólk tóku þátt í þeirri vinnu og nú eftir að ný leikskólabygging var reist við grunnskólann teljum við mikilvægt að endurmeta hvernig best væri hægt að haga framtíðar endurbótum og uppbyggingu skólabygginga í Varmahlíð.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra fjölskyldusviðs að óska eftir að skólastjórnendur Varmahlíðarskóla vinni heildstæða þarfagreiningu á aðstöðu skólans. Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar fræðslunefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. - 9.3 2610222 Til samráðs Bráðabirgðaákvæði um notkun talnakvarða í námsmati við lok grunnskóla skólaárið 2026-2027Fræðslunefnd - 52 Lagður fram tölvupóstur dags. 7. október 2026 þar sem Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 193/2026, „Bráðabirgðaákvæði um notkun talnakvarða í námsmati við lok grunnskóla skólaárið 2026-2027“. Umsagnarfrestur var til og með 21. október 2026. Leiðtogi fræðslumála sendi inn eftirfarandi umsögn í samráðsgátt stjórnvalda:
„Umsögn um bráðabirgðaákvæði um notkun talnakvarða í námsmati við lok grunnskóla skólaárið 2026-2027
Það er gott markmið að námsmat í grunnskólum sé skýrt, gagnsætt og auðskiljanlegt fyrir nemendur og foreldra. Einnig er full ástæða til að endurskoða núverandi fyrirkomulag námsmats og notkun bókstafakvarðans. Gagnrýnin á fyrirliggjandi tillögu snýr því ekki að því að tekið verði upp talnakerfi, heldur að því hvernig staðið er að breytingunni, tímaramma hennar og tengingu við gildandi aðalnámskrá þar sem er að mati undirritaðrar byrjað á röngum enda og gefinn of knappur tími gefinn til innleiðingar.
Núgildandi aðalnámskrá grunnskóla byggir í grunninn á námskrá frá 2011 og greinasviðum frá 2013 þó henni hafi verið breytt og hún uppfærð síðan. Núverandi hæfniviðmið og fyrirkomulag námsmats voru þróuð í samhengi við þá nálgun á námsmat sem þar var innleidd, þ.e. bókstafakerfið. Því hefði verið eðlilegra að hefja vinnuna á heildstæðri endurskoðun aðalnámskrár og hæfniviðmiða og ákveða í framhaldinu hvaða matskvarði þjónaði þeirri námskrá best. Í stað þess er nú gerð grundvallarbreyting á birtingarmynd námsmats innan kerfis sem var ekki hannað með þennan talnakvarða að leiðarljósi.
Sérstakar áhyggjur vekur sá skammi tími sem skólum er ætlaður til innleiðingar. Samkvæmt fyrirliggjandi ákvæði eiga breytingarnar þegar að gilda um þá nemendur sem brautskrást vorið 2027 og skólar eiga að birta endurskoðaða skólanámskrá eigi síðar en 10. janúar 2027. Það er óraunhæft að innleiða svo umfangsmikla breytingu á svo skömmum tíma og að auki fyrst hjá þeim nemendum sem eru á síðasta ári grunnskóla og eiga þess vegna skemmstan tíma til að aðlagast breyttu kerfi. Skynsamlegra væri að hefja innleiðingu við lok 4. og 7. bekkjar og láta breytinguna síðan færast með nemendum upp skólakerfið. Þannig mætti gefa skólum allt að þrjú ár til innleiðingar, samræmingar og faglegrar þróunar áður en nýtt kerfi yrði notað við brautskráningu úr 10. bekk.
Mikilvægt er að stjórnvöld séu skýr gagnvart foreldrum og nemendum um að þetta er ekki afturhvarf til þess talnakerfis sem margir þekkja, þar sem 70% árangur jafngildir einkunninni 7, en það talnakerfi er að öllum líkindum það sem kallað var eftir af foreldrum og nemendum. Mennta- og barnamálaráðuneytið gerir sjálft skýran greinarmun á einkunn fyrir einstakt verkefni, þar sem 7 getur til dæmis þýtt 70% árangur og lokaeinkunn, þar sem talan 7 á að merkja að nemandi hafi náð hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Þannig er ekki verið að taka upp gamla talnakerfið sem flestir þekkja, heldur setja tölur utan um hæfnimiðað námsmat sem að verulegu leyti byggir áfram á þeirri hugmyndafræði sem bókstafakerfið byggði á, breytingin er því einfaldlega hliðrun tölustafa í stað bókstafa.
Sérstaklega þarf að skýra hvað felst í einkunnum 8, 9 og 10 í þessum nýja matskvarða. Ef einkunnin 7 staðfestir að nemandi hafi náð þeim hæfniviðmiðum sem aðalnámskrá gerir ráð fyrir við lok grunnskóla vaknar eðlilega spurningin: hvaða námsefni og hvaða hæfni er þá verið að meta með einkunnum 8-10 og hver á að meta hana? Sérstaklega bendi ég á ósamræmi milli leiðbeininga Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) og upplýsinga frá ráðuneytinu um forsendur einkunna 8-10. Samkvæmt leiðbeiningum MMS er forsenda þess að hæfni nemanda sé metin framúrskarandi og hjóti þar með einkunn á bilinu 8-10, að nemandi hafi lokið grunnskólanámi í viðkomandi námsgrein og nái að ljúka framhaldsskólaáföngum fyrir útskrift úr grunnskóla. Ráðuneytið hefur hins vegar tekið sérstaklega fram að nemandinn þurfi ekki að hafa lokið framhaldsskólaáfanga til þess að fá einkunn á bilinu 8-10. Hér er um verulegt misræmi að ræða í grundvallaratriði námsmatsins sem verður að skýra áður en kerfið er innleitt. Jafnframt vaknar sú spurning, ef nám á framhaldsskólastigi á að hafa áhrif á lokaeinkunn úr grunnskóla hvort eðlilegt sé að grunnskólakennari gefi einkunn fyrir nám sem fer fram á öðru skólastigi og er kennt og metið af öðrum kennara samkvæmt öðrum námsviðmiðum. Er ekki eðlilegra að hvert skólastig kenni og meti það sem því skólastigi er uppálagt að kenna og nýti til þess sinn matskvarða?
Skólasamfélagið er ávallt tilbúið í breytingar og þróunar til hagsbóta fyrir nemendur. Það er eðlilegt að endurskoða námsmat, aðalnámskrá og birtingu upplýsinga um námsárangur í takt við breytta tíma. En breytingar verða að vera faglega undirbyggðar, heildstæðar og vel undirbúnar.
Lagt er til að innleiðing verði endurskoðuð og verði frekar með eftirfarandi hætti og í nánu samstarfi við fagfólkið í skólasamfélaginu:
1. ráðist verði fyrst í heildarendurskoðun aðalnámskrár, hæfniviðmiða og námsmats,
2. tölukvarðinn verði þróaður samhliða þeirri vinnu,
3. 8-10 verði skilgreind með skýrum og samræmdum viðmiðum,
4. tengsl grunnskóla- og framhaldsskólanáms við lokaeinkunn verði skýrð sérstaklega,
5. innleiðing hefjist við lok 4. og 7. bekkjar og kerfinu verði gefin þriggja ára innleiðing, þannig að fyrsti árgangurinn fari í gegnum kerfið með fyrirsjáanlegum og skipulögðum hætti.
Markmið breytinganna um skýrara og samræmdara námsmat er gott en það næst hins vegar ekki með of hraðri innleiðingu. Breytingar einungis breytinganna vegna fela ekki í sér gæði heldur óreiðu og óþarfa álag. Hér þarf að vanda til verka.“
Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar fræðslunefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 52 Lagt fram erindi Kennarasambands Íslands (KÍ), dags. 8. október 2026. Í erindinu er kallað eftir víðtæku samfélagslegu samtali um framtíð íslensks skólastarfs og mótun framtíðarsýnar fyrir menntakerfið frá leikskóla til framhaldsskóla og tónlistarskóla.
Fræðslunefnd þakkar fyrir framlagt erindi og kynnir sér efni ritsins Blásum byr í seglin. Fyrirhugað er að fulltrúar frá Kennarasambandi Íslands fundi með skólastjórnendum, fulltrúum nefndarinnar, sveitarstjóra, sviðsstjóra fjölskyldusviðs og leiðtoga fræðslumála föstudaginn 30. október. Fræðslunefnd væntir mikils af því samtali og leggur áherslu á að niðurstöður þess nýtist við áframhaldandi stefnumótun og faglega uppbyggingu í skólamálum sveitarfélagsins. Bókun fundar Afgreiðsla 52. fundar fræðslunefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
10.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54
Málsnúmer 2610012FVakta málsnúmer
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Lögð fram drög að endurnýjaðri gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald 2027. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða breytingar og 2,5% gjaldskráar hækkun. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá hunda- og kattahalds 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Sigurður Arnar Friðriksson, forstöðumaður framkvæmda, fór yfir tillögur að bættu umferðaröryggi í þéttbýli í Skagafirði.
Nefndin samþykkir tillögu um hraðahindrun í Víðigrund á Sauðárkróki sem unnin yrði samhliða gerð nýrra gangstétta þar.
Nefndin samþykkir samhljóða að lækka hraða úr 50 km/klst í 30 km/klst í Varmahlíð og bæta við merkingum um götuþveranir gangandi vegfarenda, samkvæmt tillögu á fundi.
Nefndin samþykkir samhljóða að lækka hraða úr 50 km/klst í 30 km/klst á Hofsóss frá Prestbakka og framhjá grunnskólanum og innan íbúagatna.
Landbúnaðar- og innviðanefnd fagnar tillögunum og samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna framkvæmdaáætlun fyrir aðrar framkomnar tillögur.
Bókun fundar Afgreiðsla 54. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Sigurður Arnar Friðriksson, forstöðumaður framkvæmda, fór yfir útkomuspá sorphirðu í Skagafirði. Heilt yfir eru gjöld og tekjur í ágætis jafnvægi. Þó nokkur aukning hefur orðið í óflokkuðu á gámastöðvum og eru íbúar hvattir áfram til að flokka, enda getur það skilað sér í lækkaðri gjaldskrá. Bókun fundar Afgreiðsla 54. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Staðarhrepps. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 54. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Úthluta Seyluhrepps. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 54. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Skefilstaðahrepps. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 54. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Skarðshrepps. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 54. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Sauðárkróks. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 54. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Hóla- og Viðvíkurhreppa. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 54. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Framhluta Skagafjarðar. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 54. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Deildardals. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 54. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Austur-Fljóta. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 54. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Nefndin hvetur íbúa til að tilnefna einstaklinga eða fyrirtæki sem það telur eiga verðlaun Bláskeljarinnar skilið.
Sjá nánari upplýsingar á vef Umhverfis- og orkustofnunar: https://uos.is/frettir/auglyst-eftir-tilnefningum-til-blaskeljarinnar
Bókun fundar Afgreiðsla 54. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 7.10.2026 frá Magnúsi Gylfasyni, eiganda Hestabúgarðurinn Prestbær ehf. Þar sem óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar vegna stofnunar lögbýlis á jörðinni Prestbær, 551 Sauðárkróki, fastanúmer 232-1369. Áformað er að nýta jörðina fyrir hrossarækt og skógrækt. Veðbókarvottorð jarðarinnar fylgir erindinu ásamt yfirlitsmynd af landamerkjum hennar gagnvart aðliggjandi jörðum. Landbúnaðar- og innviðanefnd sér ekkert því til fyrirstöðu að lögbýlið verði stofnað og mælir með að það hljóti jákvæða umsögn sveitarstjórnar.
Nefndin samþykkir samhljóða að vísa málinu til sveitarstjórnar.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Stofnun lögbýlis Prestbær - beiðni um umsögn, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 54. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
11.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55
Málsnúmer 2610034FVakta málsnúmer
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Lögð fram drög að endurnýjaðri gjaldskrá Skagafjarðarhafna 2027.
Gert er ráð fyrir 2,5% hækkun. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða og vísar henni til byggðaráðs til afgreiðslu.
Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið. Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun Hafnarsjóðs Skagafjarðar, fyrir árið 2027.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Lögð fram drög að endurnýjaðri gjaldskrá sorphirðu- og sorpeyðingar 2027.
Samningur sveitarfélagsins við Íslenska gámafélagið er bundinn launavísitölu og undirvísitölu neysluverðs fyrir rekstur ökutækja. Hækkanir á þessum vísitölum hafa því áhrif á kostnað við sorpþjónustuna. Hin stóra breytan er úrgangsmagn sem safnast saman á heimilum og á móttökustöðvum, ásamt því hversu vel íbúar flokka.
Samkvæmt gildandi lögum skal gjaldtaka sveitarfélaga vegna sorpþjónustu endurspegla raunkostnað við þjónustuna. Þetta er því ekki hefðbundin skattlagningarheimild þar sem hægt er að ákveða gjaldið óháð kostnaði heldur þarf kostnaðargrunnurinn að vera rekjanlegur og gjaldskráin studd raunverulegum kostnaði.
Til að mæta áætluðum kostnaði við söfnun, flutning og meðhöndlun úrgangs og tekjur af sorpgjöldum standi sem næst undir kostnaði þjónustunnar árið 2027 er lagt til að gjaldskráin hækki um 3,1-7,2% frá árinu 2026.
Nefndin hvetur íbúa sveitarfélagsins til að standa vel að flokkun sorps nú sem fyrr. Góður árangur í flokkun og aukin endurvinnsla verður til þess að minna magn sorps fer til urðunar, sem getur skilað sér í lækkun gjalda til notenda þjónustunnar.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða og vísar henni til byggðaráðs til afgreiðslu.
Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið. Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 08, hreinlætismál, fyrir árið 2027.
Áætlun sorpgjalda hækki um 3,1-7,2% frá árinu 2026. Aðrir þættir málaflokksins hækka um 2,5%.
Samningur sveitarfélagsins við Íslenska gámafélagið er bundinn launavísitölu og undirvísitölu neysluverðs fyrir rekstur ökutækja. Breytingar á þessum vísitölum hafa því áhrif á kostnað við sorpþjónustuna. Hin stóra breytan er úrgangsmagn sem safnast saman á heimilum og á móttökustöðvum, ásamt því hversu vel íbúar flokka.
Til að tekjur af sorpgjöldum standi sem næst undir kostnaði þjónustunnar árið 2027 er lagt til að gjaldskráin hækki um 3,1-7,2% frá árinu 2026.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 09, samgöngumál, fyrir árið 2027.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 69, fráveita, fyrir árið 2027.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
Gunnar Páll Ólafsson bæjarverkstjóri og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið
Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 67, hitaveita, fyrir árið 2027.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
Árni Egilsson skrifstofustjóri SKV og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 65, sjóveita, fyrir árið 2027.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
Árni Egilsson skrifstofustjóri SKV og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 63, vatnsveita, fyrir árið 2027.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
Árni Egilsson skrifstofustjóri SKV og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 11, umhverfis og landbúnaðarmál, fyrir árið 2027.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjárhagsáætlunina samhljóða og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
Sveinn Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Akrahrepps.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum.
Sveinn Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Hofsafréttar.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum.
Sveinn Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Hofsós og Unadals.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum.
Sveinn Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Vestur-Fljóta og Hrolleifsdals.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum.
Sveinn Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Farið yfir fjárhagsáætlun fjallskilanefndar Hegraness.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að vinna endanlega tillögu að úthlutun samkvæmt umræðum á fundinum.
Sveinn Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi og Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 55 Tekin fyrir beiðni frá íbúa við Hólaveg, þar sem farið er fram á að hraðahindrun/þrengingar verði fjarlægðar.
Þrengingin var sett upp í kjölfar formlegra og óformlegra ábendinga íbúa um hraðakstur í götunni og er ætlað að bæta umferðaröryggi, einkum barna og annarra gangandi vegfarenda.
Staðsetning þrengingarinnar tekur mið af göngustíg milli Hólavegar 21 og 23 sem tengir Hólaveg og Hólmagrund. Um er að ræða einu göngutenginguna milli gatnanna á löngum kafla, en önnur tenging er syðst í götunni, í töluverðri fjarlægð.
Markmiðið er að draga úr umferðarhraða þar sem þessi gönguleið kemur að Hólavegi og gangandi vegfarendur þvera götuna. Þrengingin og hraðahindrunin á staðnum þjóna saman þeim tilgangi.
Það er mat nefndarinnar að núverandi staðsetning sé rökrétt með tilliti til gönguleiðarinnar og að flutningur þrengingarinnar myndi ekki þjóna sama öryggistilgangi. Með hliðsjón af framangreindu er það mat nefndarinnar að halda hraðaþrengingunni á núverandi stað.
Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða að hafna beiðni um að fjarlægja hraðaþrenginguna við Hólaveg 21 og 26. Bókun fundar Afgreiðsla 55. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
12.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 56
Málsnúmer 2611011FVakta málsnúmer
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 56 Farið yfir umsóknir fjallskiladeilda um fjárframlög vegna viðhalds og framkvæmda fyrir árið 2027.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða eftirfarandi úthlutun til fjallskiladeilda:
Austur-Fljót: 500.000 kr.
Vestur-Fljót og Hrolleifsdalur: 390.000 kr.
Hofsós og Unadalur: 200.000 kr.
Deildardalur: 550.000 kr.
Hóla- og Viðvíkurhreppur: 900.000 kr.
Hegranes: 840.000 kr.
Skarðshreppur: 1.100.000 kr.
Sauðárkrókur: 350.000 kr.
Staðarhreppur: 700.000 kr.
Úthluti Seyluhrepps: 250.000 kr.
Skefilsstaðahreppur: 1.700.000 kr.
Framhluti Skagafjarðar: 400.000 kr.
Hofsafrétt: 480.000 kr.
Upprekstrarfélag Akrahrepps: 850.000 kr.
Samtals nemur úthlutunin 9.210.000 kr.
Bókun fundar Afgreiðsla 56. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 56 Fundað verði á tveggja vikna fresti á miðvikudögum kl. 09:00. Ef miðvikudagur stendur uppá frídag er leitast við að flytja fund fram um einn dag.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir tillöguna samhljóða.
Bókun fundar Afgreiðsla 56. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 56 Landbúnaðar- og innviðanefnd óskar eftir að umfang, kostnaður og ábyrgð vegna aðgerðanna verði skýrð áður en afstaða er tekin til tímarammans. Nefndin leggur áherslu á að áhrif efnistöku í Djúpadalsá verði metin og að kannað verði hvaðan fosfat berst í innri hluta fjarðarins.
Nefndin felur sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að svara erindinu. Bókun fundar Afgreiðsla 56. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 56 Tölfræðigögn vegna refa- og minkaveiða síðustu ára yfirfarin.
Sveinn Þ. Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi sat fundinn undir þessum lið. Bókun fundar Afgreiðsla 56. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 56 Lagt fram til kynningar og umræðu. Bókun fundar Afgreiðsla 56. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 56 Lagt fram til kynningar og umræðu. Bókun fundar Afgreiðsla 56. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 56 Lagt fram til kynningar og umræðu. Bókun fundar Afgreiðsla 56. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 56 Bókun fundar Afgreiðsla 56. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
13.Skipulagsnefnd - 108
Málsnúmer 2610016FVakta málsnúmer
-
Skipulagsnefnd - 108 Lagðar fram niðurstöður frá samráðs- og vinnufundi vegna deiliskipulags Gamla bæjarins á Sauðárkróki frá 28.09.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins. Bókun fundar Afgreiðsla 108. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 108 Lagt fram minnisblað “Sæmundarhlíð - Sauðá umferðaröryggisaðgerðir", skjalalykill 115603-MIN-001-V01, dags. 05.10.2026 unnið á Eflu verkfræðistofu af Ragnari Gauta Haukssyni og Elínu Rítu Sveinbjörnsdóttur.
Þar er farið yfir fjórar tillögur að umferðaröryggisaðgerðum við göngu- og hjólaþverun yfir innkeyrslu að bílastæði veitingastaðarins Sauðár við Sæmundarhlíð ásamt áætluðum kostnaði.
Tillögurnar fjórar eru eftirfarandi:
1. Upphækkuð, samfelld þverun: meginúrræði sem lækkar hraða akandi umferðar og skýrir að ökutæki þvera göngu- og hjólaleið.
2. Lýsing: bætir sýnileika þverunar og vegfarenda í myrkri.
3. Merki: viðvörun til ökumanna.
4. Þverlínur: viðbótaraðgerð til að vekja athygli hjólandi vegfarenda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða framlagðar hugmyndir verkfræðistofunnar Eflu að umferðaröryggisaðgerðum og telur þær fullnægjandi. Jafnframt samþykkir nefndin samhljóða að vísa málinu áfram til Byggðaráð Skagafjarðar til formlegrar umfjöllunar og leggur til að ef ákveðið verður að fara í aðgerðir til að bæta umferðaröryggi við innkeysluna að mikilvægt sé að kynna þær framkvæmdir á heimasíðu sveitarfélagsins.
Jón Daníel Jónsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins vék af fundi við afgreiðslu erindisins og varamaður hans Gunnar Smári Reynaldsson kom inn í hans stað. Bókun fundar Magnús Barðdal Reynisson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Afgreiðsla 108. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með átta atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 108 Málið áður á dagskrá skipulagsnefndar á 106. fundi þeirra þann 17.9.2026, þá bókað:
“Tekið fyrir erindi Búhölda hsf. dags. 22. apríl sl. þar sem m.a. kemur fram:
Stjórn Búhölda hsf. hefur áhuga á að lagfæra óræktarbrekku fyrir austan hús félagsins við Laugatún 22 til 32 á Sauðárkróki. Svæði hefur aldrei verið gengið frá, brekkan brött og ekki er hægt að slá hana og því algjört óræktarsvæði. Það er ósk okkar að Sveitarfélagið Skagafjörður komi að verkinu því færa þarf göngustíg til hægt sé að ná réttun halla. Beðið er um að mæla svæðið út og hnitsetja svo hægt sé að skoða hvað best sé að gera. 22. maí sl. var farið á staðinn ásamt Atla Gunnari Arnórssyni hjá Stoð ehf. verkfræðistofu, svæðið mælt upp og í framhaldi gerðar tillögur að lagfæringum á þeim hæðarmun sem þar er. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins.“
Skipulagsnefnd fagnar því að Búhöldar hsf. vilji ganga frá óræktarsvæði innan úthlutaðra lóða sinna, en telur ekki tilefni til aðkomu sveitarfélagsins að því verkefni þar sem við skoðun á svæðinu er frágangur við lóðarmörk í samræmi við þau gögn sem lágu fyrir við úthlutun lóðanna.
Bókun fundar Afgreiðsla 108. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 108 Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 7. október síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 vegna umsóknar frá Sæmundi Eiríkssyni byggingartæknifræðingi, f.h. Spíru ehf.
Umsókn um leyfi til að byggja við kjallara (frysti, kæli og gang) gistiheimilis sem stendur á lóðinni númer 1 við Lindargötu á Sauðárkróki.
Framlagðir aðaluppdrættir gerðir hjá Klöpp Arkitektar-Verkfræðingar ehf. af umsækjanda. Uppdrættir í verki 26-106 númer A-101, A-102, og A-103, dagsettir sept. 2026.
Skipulagsnefnd bendir á að lóðin Lindargata 1 er innan Verndarsvæðis í byggð.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að gera ekki athugasemd við framlagða umsókn. Bókun fundar Afgreiðsla 108. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 108 Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 190/2026, "Frumvarp til laga um breytingar á skipulagslögum nr. 123/2010" sjá nánar hér: https://island.is/samradsgatt/mal/4337 .
Umsagnarfrestur er til og með 16.10.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að senda inn umsögn við frumvarpið í samræmi við umræður fundarins.
Bókun fundar Afgreiðsla 108. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 108 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 95 þann 09.10.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 108. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
14.Skipulagsnefnd - 109
Málsnúmer 2610030FVakta málsnúmer
- 14.1 2410281 Umsagnarbeiðni vegna máls nr 1293 2024 í Skipulagsgátt - Aðalskipulag Húnabyggðar 2025-2037 (Nýtt aðalskipulag)Skipulagsnefnd - 109 Húnabyggð hefur óskað eftir umsögn Skagafjarðar vegna auglýstar tillögu að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037, mál nr. 1293/2024 í Skipulagsgáttinni, https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1293 .
Kynningartími var til 23.10.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við tillögu að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037.
Nefndin áréttar að sveitarfélagamörk milli Húnabyggðar og Skagafjarðar þarfnist frekari skoðunar.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Umsagnarbeiðni vegna máls nr 1293 2024 í Skipulagsgátt - Aðalskipulag Húnabyggðar 2025-2037 (Nýtt aðalskipulag), síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 109 Lögð fram, til seinni umræðu, drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir skipulagsmál.
Anna Karítas Ingvarsdóttir sérfræðingur í fjármálum hjá sveitarfélaginu Skagafirði sat undir þessum fundarlið.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun skipulagsmála 2027 og vísar til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Bókun fundar Afgreiðsla 109. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 109 Páll Jakob Líndal skipulagsráðgjafi sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað og fór yfir niðurstöður vinnustofunnar, drög að skipulagslýsingu og tillögu að charrette vinnustofu til að þróa frumtillögu.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins. Bókun fundar Afgreiðsla 109. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 109 Ingvar Páll Ingvarsson fyrir hönd Vegagerðarinnar, óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðs varnargarðs í landi Miðhúsa og Þorleifsstaða í Blönduhlíð Skagafirði.
Garðinum er ætlað að varna landbroti og tjóni á ræktarlandi Miðhúsa og Þorleifsstaða ásamt því að verja hringveg fyrir flóðvatni frá Héraðsvötnum. Land það sem um ræðir er skv. aðalskipulagi Skagafjarðar í flokki L1. Flóð undanfarinna ára hafa valdið tjónum á túnum og flætt hefur upp á hringveginn, er vísað til flóða í m.a. apríl og maí 2025, desember 2006 og mars 2000.
Garðurinn yrði er 509 m langur og áætlað er að fari í hann um 5.700 m³ af efni sem tekið verður að mestu úr Djúpadalsárnámu. Garðurinn verður byggður á grónu landi frá stöð 0 til 260, frá stöð 260 til 509 er um að ræða styrkingu á eldri garði, því er ekki er reiknað með að framkvæmdin hafi í för með sér breytingu á streymi Héraðsvatna, né hafi önnur áhrif á vatnsbúskap svæðisins. Framkvæmdin mun tengja saman eldri garða og mynda heildstæðari flóðavarnir.
Óskað hefur verið eftir umsögn Fiskistofu og fyrirliggur jákvæð umsögn veiðifélags Héraðsvatanna.
Leyfi landeiganda Miðhúsa og Þorleifsstaða liggur fyrir, en garðurinn er allur innan eignarlands þessara jarða.
Meðfylgjandi umsókninni er afstöðumynd frá Vegagerðinni, uppdráttur D-01, drónamyndir sem sýna flóð á svæðinu, ásamt leyfi landeigenda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að fenginni jákvæðri umsögn Fiskistofu. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Varnargarður í landi Miðhúsa og Þorleifsstaða í Blönduhlíð - Framkvæmdaleyfisumsókn, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 109 Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir fyrir hönd Rarik, óskar eftir stofnun lóðar úr landi Breiðargerðis L146154 í Skagafirði.
Ný lóð er 20 m2 og er undir spennistöð sem yrði hluti af dreifikerfi Rarik.
Fyrir liggur umsókn landeiganda, Elínborgar Erlu Ásgeirsdóttur um skráningu nýrrar landeignar í fasteignaskrá skv. 14. gr. laga nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna úr landi Breiðargerðis L146154 í Skagafirði.
Framlögð merkjalýsing og uppdráttur unnin af Eflu verkfræðistofu.
Landheiti hinnar nýju lóðar vísar í nafnið á bænum, Breiðargerði spennistöð.
Stofnað hefur verið málið M004056 - Breiðargerði spennistöð í landeignaskrá HMS.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila umbeðin landskipti. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Breiðargerði (146154) - Umsókn um landskipti, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 109 Ragnheiður G Ástvaldsdóttir, Tómas Ástvaldsson, Ingimar Rúnar Ástvaldsson, Steinn Ástvaldsson, Brynleifur B. Björnsson, Birna Karen Björnsdóttir, Sandra Rós Björnsdóttir, þinglýstir eigendur Kelduvíkur, landnúmer 145900, óska eftir samþykki sveitarfélagsins á hnitsettum, ytri landamerkjum jarðarinnar skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 71980001, dags. 2. júlí. 2026, unnum á Stoð ehf. verkfræðistofu, af Dagnýju Stefánsdóttur, og merkjalýsingu, dags. 2. júlí, 2026, unninni af Birni Magnúsi Árnasyni.
Hnit á ytri merkjum Kelduvíkur byggja á landamerkjalýsingu nr. 351 sem er lýsing á merkjum Kelduvíkur, þinglesin á manntalsþingi að Skefilsstöðum 2. júní 1916 og landamerkjalýsingu nr. 264 sem er lýsing á merkjum Þangskála og Kelduvík, þinglesin á manntalsþingi á Skefilsstöðum 28. maí 1890.
Í meðfylgjandi merkjalýsingu er yfirlýsing landeigenda og aðliggjandi landeigenda, um ágreiningslaus landamerki.
Eftirtalin mannvirki eru skráð á jörðinni:
Matshluti nr. 04, sem er sumarbústaður 26 m2 að stærð, byggt árið 1961.
Matshluti nr. 05, sem er sumarbústaður 42,2 m2 að stærð, byggt árið 1964.
Matshluti nr. 10, sem er véla/verkfærageymsla 96 m2 að stærð, byggt árið 1967.
Matshluti nr. 11, sem er veiðihús 18,6 m2 að stærð, byggt árið 2004.
Matshluti nr. 12, sem er hesthús 23,1 m2 að stærð, byggt árið 1960.
Málsnúmer í landeignaskrá HMS M004335.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitastjórn að staðfesta hnitsetningar sbr. merkjalýsingu. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Kelduvík L145900 - Umsókn um staðfestingu á hnitsettum, ytri landamerkjum, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 109 Þórólfur Gíslason fyrir hönd Kaupfélags Skagfirðinga sækir um stækkun á lóðinni Gránumóum 63 samkvæmd meðfylgjandi afstöðumynd. Um er að ræða stækkun bæði að vestan og sunnan við núverandi lóð, stækkunin yrði um 1.828 m2.
Ástæða umbeðinnar stækkunar er fyrirhuguð lagfæring á öllu svæðinu í kring um Fóðurstöðina og milli Fóðurstöðvarinnar og aðstöðuhússins sem er á aðliggjandi lóð, Gránumóum 64.
Stærsta breytingin yrði fyrirhuguð malbikun á svæðinu og annar nauðsynlegur frágangur sem áætlað er að fara í vorið 2027.
Núverandi lóðarmörk vestan við stöðina liggja um vinnuplan sem er að hluta í landi sveitarfélagsins Skagafjarðar. Því til viðbótar er núverandi vinnusvæði vestan og sunnan við stöðina of þröngt þar sem erfitt er að koma stórum bílum að svæðinu til að lesta/aflesta.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna lóðarstækkun Gránumóa 63.
Sigurður Bjarni Rafnsson fulltrúi Framsóknar víkur af fundi við afgreiðslu erindisins. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Lóð 63 á Gránumóum - Beiðni um lóðarstækkun, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
15.Skipulagsnefnd - 110
Málsnúmer 2611008FVakta málsnúmer
Stutt hlé gert á fundinum.
Guðlaugur Skúlason kvaddi sér hljóðs og lagði fram bókun við lið 15.10.
Einar E. Einarsson og Högni Elfar Gylfason kvöddu sér hljóðs.
-
Skipulagsnefnd - 110 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við vinnslutillögu deiliskipulags og aðalskipulagsbreytingar fyrir Furulund 3, 5 og 7 í Varmahlíð, mál nr. 483/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/483 ) og mál nr. 484/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/484 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál.
Vinnslutillögurnar voru í auglýsingu dagana 21.10.2026- 08.11.2026 og bárust 3 umsagnir við vinnslutillögu deiliskipulags og sömuleiðis 3 umsagnir við vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingarinnar.
Umsagnirnar gefa ekki til tilefni til breytinga.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi og aðalskipulagsbreytingu fyrir Furulund í Varmahlíð, uppdrættir DS01 og AS01 dags. 01.10.2026, unnir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni og Árna Ragnarssyni.
Aðalskipulagsbreyting gengur út á að svæði fyrir samfélagsþjónustu verður íbúðarsvæði annars vegar og miðsvæði hins vegar. Deiliskipulagsuppdráttur nr. DS-01 sýnir lóðamörk, aðkomu að lóðum og byggingarreiti ásamt helstu byggingarskilmálum.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir "Furulund, Varmahlíð" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa tillögu að aðalskipulagsbreytingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Furulundur 3, 5, og 7 í Varmahlíð - Deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 110 Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Glaumbæ í Skagafirði, skipulagsuppdráttur nr. 001 og greinargerð dags. 08.11.2026, unnið á Teiknistofu Norðurlands af Arnari Birgi Ólafssyni. Greinargerðinni fylgir húsakönnun.
Samhliða er jafnframt lögð fram skipulagslýsing og vinnslutillaga fyrir aðalskipulagsbreytingu unnin á VSÓ ráðgjöf dags. nóvember 2026.
Helstu viðfangsefni skipulagsins eru að skilgreina lóðarmörk safnsins, byggingar
reiti, aðkomu, bílastæði, stígakerfi og dvalarsvæði. Markmið skipulagsins er að setja fram stefnu og skilmála um framtíðaruppbyggingu á safnsvæðinu.
Í því felst m.a. gerð nýrrar aðkomu að safninu, uppbygging bílastæðis og bygging þjónustuhúss sem mun rúma gestamótöku, þjónustu, veitingarými og aðstöðu starfsfólks. Þjónustuhúsi er valinn staður á jaðri safnsvæðisins til að hafa sem minnst sjónræn áhrif á bæjarstæðið sjálft. Skipulagið gerir ekki ráð fyrir að fleiri friðuð hús verði flutt á safnsvæðið og aukin áhersla verður lögð á að uppbygging
mannvirkja við bæjarstæði Glaumbæjar styrki miðlun á búsetumenningu og byggingarhefðum eins og þær birtust í torfbæjum og á bæjarstæðum í Skagafirði í lok 19. aldar.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir "Glaumbæ í Skagafirði" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að hluti af landi Glaumbæjar 1 L146031 verði tekið úr landbúnaðarnotkun (flokkað sem L-1 og L4 í gildandi aðalskipulagi) og að samþykkja skipulagslýsingu og vinnslutillögu að aðalskipulagsbreytingu fyrir Glaumbæ skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Glaumbær Byggðasafn Skagfirðinga - Deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 110 Lögð fram uppfærð greinargerð og uppdráttur fyrir deiliskipulag Neðri-Áss 2, land 3 og 4, dags. 11.11.2026, unnin á Kollgátu ehf. arkitektastofu þar sem fram kemur að tekið hafi verið tillit til athugasemda Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) sem bárust 19.10.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að samþykkja uppfærða deiliskipulagstillögu þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemda Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) að mestu leiti, en fellst á að lóðir og þegar byggðar lóðir innan skipulagssvæðisins séu minni og með hærra nýtingarhlutfall en lagt er til í gildandi aðalskipulagi. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitastjórn að samþykkja uppfærða tillögu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fela skipulagsfulltrúa að auglýsa gildistöku skipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Umsókn um deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 110 Finnur Kristinsson landlagsarkitekt óskar eftir fyrir hönd ábúanda og landeigenda á Dýrfinnustöðum heimild til að gera deiliskipulag á eigin kostnað fyrir um 3,7 ha svæði í kringum núverandi byggingar á jörðinni, landnúmer L146274.
Ekki er gert ráð fyrir að gera skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar skipulagsvinnu þar sem áætlaðar framkvæmdir falla undir íbúðarhús, útihús og byggingar til landbúnaðarnota og eru í samræmi við gildandi Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.
Jafnframt er lögð fram tillaga að deiliskipulagi ásamt greinargerð fyrir Dýrfinnustaði í Skagafirði dags. 10.11.2026, verknr. 2609, þar sem helstu viðfangsefni eru m.a. afmörkun á lóð með byggingarreit fyrir nýtt íbúðarhús, þrír byggingarreitir innan jarðarinnar, þar af tveir utan um núverandi byggingar vegna viðbygginga og einn fyrir nýja skemmu/verkstæði. Einnig eru sett viðeigandi ákvæði varðandi fyrirhugaða uppbyggingu á jörðinni.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila landeigendum að láta vinna deiliskipulag á eigin kostnað skv. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, jafnframt felst skipulagsnefnd á að heimila að skipulagslýsingu sé sleppt.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir "Dýrfinnustaði í Skagafirði" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Dýrfinnustaðir L146274 - Deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 110 Hallgrímur Ingi Jónsson og Guðrún Björg Egilsdóttir sækja um einbýlishúsalóðina Nestún 9 á Sauðárkróki.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni til umsækjenda.
Bókun fundar Afgreiðsla 110. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 110 Sindri Sigfússon og Erna Reynisdóttir þinglýstireigendur jarðarinnar Breið, landnúmer 146153 óska eftir heimild til að stofna 889,6m² spildu úr landi jarðarinnar, sem Breið 1, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75120000 útg. 4. nóvember 2026. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð verkfræðistofu ehf. af Þórði Karli Gunnarssyni.
Landheiti nýrrar spildu vísar til uppruna lands.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Breið landnr. 146153.
Í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er spildan á landbúnaðarlandi nr. L-4. Landskiptin samræmast stefnu aðalskipulagsins um uppbyggingu og landnotkun í dreifbýli og styðja því viðmarkmið aðalskipulags um búsetu í dreifbýli.
Landskiptin hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki. Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Eitt mannvirki eru innan útskiptar spildu. Er það íbúðarhús skráð 104,2m² (Mhl. 02) sem er með fasteignanúmer F2140944 úr landi Breiðar og byggt árið 1969. Fasteign skal fylgja útskiptri lóð. Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Breið, landnr. 146153.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004491.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti, nefndin samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Breið L146153 í Lýtingsstaðahreppi - Umsókn um stofnun landspildu, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 110 Felix Jósafatsson þinglýstur eigandi jarðarinnar Bakka, landnr. 146016, óskar eftir heimild til að stofna 2100 m² byggingarreit á landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 78970000 útg. 5. nóv. 2026. Afstöðuppdráttur var unninn á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur.
Byggingar sem nú þegar eru skráðar á landnúmerið eru:
Mhl 02 sem er fjárhús, 180.7 m2 að stærð, byggt árið 1956.
Mhl 03 sem er fjárhús með áburðark, 121,3 m2 að stærð, byggt árið 1952.
Mhl 04 sem er hlaða, 112,1 m2 að stærð, byggt árið 1952.
Mhl 05 sem er hesthús, 62,7 m2 að stærð, byggt árið 1989.
Um er að ræða byggingarreit vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar frístundahúss og tilheyrandi fylgihúsa, allt að 3 húsum innan reitsins, endanleg hönnun mannvirkja liggur ekki fyrir.
Í kafla 3.7 í greinargerð aðalskipulagsins um heildarfjölda og stærðarmörk mannvirkja segir:
"Uppbygging nýrra stakra bygginga... fari ekki yfir 2.000 m² og heildarfjöldi þeirra ekki fleiri en 3."
Auk þess er í gr. 5.3.2.12 í Skipulagsreglugerð nr. 90/2013 kveðið á um heimild til byggingar fylgihúsa með eftirfarandi hætti:
"Frístundahús ásamt tilheyrandi mannvirkjum, svo sem geymslu, gestahúsi og bátaskýli skulu að jafnaði vera á sér lóð..."
Byggingarreitur, sem sótt er um, er innan marka Bakka landnr. 146016, sem er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040.
Áform um uppbyggingu eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum (kafli 3.7) og ákvæði um stakar framkvæmdir í dreifbýli. Í kafla 3.16 í greinargerð aðalskipulagsins segir meðal annars:
"Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi fyrir stökum framkvæmdum í dreifbýli án þess að gera þurfi kröfu um skipulagsgerð umfram það sem þörf er fyrir... Meðal framkvæmda sem ákvæði skipulagsreglugerðar um stakar framkvæmdir getur átt við eru byggingar og mannvirki sem tilheyra landbúnaðarstarfsemi, stök frístundahús eða stök íbúðarhús á landbúnaðarlandi án tengsla við búrekstur... Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
Hér er sótt um byggingarreit fyrir frístundahús og fylgihús. Lögð verður áhersla á að mannvirkin samræmist yfirbragði og ásýnd umhverfisins. Núverandi innviðir nýtast áfram og er framkvæmdin ekki líkleg til að hafa neikvæð áhrif á umhverfi, mengun eða aðgengi á svæðinu.
Fyrirliggur jákvæð umsögn minjavarðar.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Bakki L146016 í Vallhólma, Skagafirði - Umsókn um stofnun byggingarreits, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 110 Magnús Bragi Magnússon, þinglýstur eigandi jarðarinnar Íbishóls, landnúmer 146044, óskar eftir heimild til að stækka Íbishól lóð landnr. 218231, um 93.954 m2 með spildu sem skipt er úr landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S-101 í verki 74570001, útg. 15. okt. 2026. Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Íbishóli landnr. 146044.
Stækkunin er á landbúnaðarsvæði nr. L-4, og samræmist Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Í kafla um skipulagsákvæði þegar taka á land úr landbúnaðarnotum, skipta því eða sameina, segir meðal annars: "Við mat á áhrifum þess að taka land úr landbúnaðarnotum og leggja til annarra nota, skipta landi eða sameina það, skal taka mið af ákvæðum 5. og 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og gera grein fyrir og taka afstöðu til eftirfarandi:
Hvort landið sé stærra en þörf er að teknu tilliti til þeirra áforma sem er lýst. Jafnframt hvort fremur megi taka annað land til sömu nota, sem hentar síður til landbúnaðar og þá sérstaklega jarðræktar.
Tekið skal tillit til ræktunarmöguleika lands skv. flokkun ræktarlands.
Hvort áform leiði af sér að girt sé fyrir búrekstrarnot í framtíðinni."
Með vísan til ofangreinds er tekið fram að landið sem bætist við lóðina leiðir ekki af sér skerðingu á búrekstrarnotum eða ræktunarmöguleikum upprunajarðarinnar í flokki L-1 og L-2. Áformin eru í samræmi við gildandi skipulag og helgast stærð landspildunnar, sem er 93.954 m², af því að innan hennar stendur hesthús (matshluti 08, 189 m² að stærð, byggt árið 1974). Stækkunin dregur íbúðarhús lóðarinnar (matshluti 01) og hesthúsið ásamt eðlilegu athafna- og beitarlandi umhverfis það saman í eina starfshæfa og samfellda lóðareiningu. Landskiptin skerða á engan hátt búrekstrarskilyrði upprunajarðarinnar Íbishóls, en öll hlunnindi og lögbýlaréttur munu áfram fylgja Íbishóli, landnr. 146044. Þá er landið í flokki L-4 og samræmist breytingin almennum skipulagsákvæðum aðalskipulagsins, kafla 2.6 og 3.7, um að styðja við fjölbreytta nýtingu landbúnaðarlands, hestamennsku og búsetu í dreifbýli.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu. Helgunarsvæði háspennulínu sem liggur um landið verður áfram virt samkvæmt gildandi skipulagsskilmálum.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004447.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og staðfesta hnitsetningar sbr. merkjalýsingu. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Íbishóll L146044 - Umsókn um stækkun lóðar og staðfestingu hnitsetningar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 110 Lögð fram afgreiðsla skipulagsfulltrúa á umsókn Rarik um framkvæmdaleyfi fyrir strenglögn á 12 kV háspennustreng og setja jarðspennistöð og tengiskáp í landi Reykjahóls í Varmahlíð, vegna heimtaugaumsóknar um land landnúmer 146064 og L146060.
Fyrirliggja umsagnir frá Minjastofnun og Skógræktarfélagi Skagafjarðar án athugasemda.
Bókun fundar Afgreiðsla 110. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 110 Jódís Helga Káradóttir fulltrúi Miðflokksins óskar í tölvupósti dags. 29.10.2026 eftir formlegri umfjöllun um stöðu virkjunaráforma í Héraðsvötnum.
Í ljósi þeirrar umræðu sem nú á sér stað um framtíð raforkuframleiðslu á Íslandi, orkuöryggi og mögulegar breytingar á regluverki virkjunarframkvæmda tel ég tímabært að við skoðum stöðu Héraðsvatna sérstaklega út frá hagsmunum Skagafjarðar.
Virkjunaráform í Héraðsvötnum eiga sér áratugalanga sögu og hafa verið til umfjöllunar bæði hjá sveitarfélaginu og á vettvangi rammaáætlunar. Að mínu mati er mikilvægt að sveitarfélagið hafi skýra yfirsýn yfir stöðu þessara mála, ekki síst í ljósi mögulegra áhrifa á atvinnuuppbyggingu, byggðaþróun og raforkuöryggi á Norðurlandi vestra.
Ég myndi því vilja óska eftir að við fengjum á fundinum stutta yfirferð yfir:
Núverandi stöðu virkjunarkosta í Héraðsvötnum samkvæmt rammaáætlun.
Hvernig virkjunaráformin samræmast gildandi Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040.
Hvaða skipulagslegu og stjórnsýslulegu forsendur þyrftu að liggja fyrir ef til frekari undirbúnings eða endurskoðunar áformanna kæmi.
Hvort ástæða sé til þess að sveitarfélagið óski eftir uppfærðum upplýsingum um möguleg áhrif orkunýtingar á atvinnulíf, byggðaþróun og afhendingaröryggi raforku í héraðinu.
Markmið mitt með þessari beiðni er fyrst og fremst að hefja upplýsta og málefnalega umræðu innan sveitarfélagsins um framtíð þessara mikilvægu náttúruauðlinda og þá hagsmuni sem eru í húfi.
Ég tel mikilvægt að Skagafjörður hafi frumkvæði að því að móta eigin sýn á þessi mál, fremur en að vera eingöngu umsagnaraðili þegar ákvarðanir um framtíð vatnasvæða koma til meðferðar á öðrum stjórnsýslustigum.
Farið var yfir fyrirliggjandi upplýsingar sem koma fram í rammaáætlun stjórnvalda, gildandi Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 og skýrslur Veðurstofu Íslands um reiknuð endurkomuflóð í Héraðsvötnunum.
Einar E. Einarsson fulltrúi Framsóknarflokksins óskar bókað:
"Rétt er að minna á stefnu stjórnvalda um að orkuskiptum á Íslandi skuli lokið fyrir árið 2040. Skatastaðavirkjun er besti virkjunarkostur á Íslandi til að stuðla að raunhæfni þess markmiðs. Einnig má benda á að á Norðurlandi öllu er verulegur skortur á orku ásamt því að vegalengdir frá virkjunum hamla meðal annars möguleikum á nýtingu jarðstrengja í uppbyggingu flutningskerfisins á Norðurlandi. Dreifing raforkuvinnslu hefur jákvæð áhrif á flutningskerfi raforku samhliða því að styrkja staðbundið orkuöryggi.
Jafnframt er rétt að minna á þá miklu jarðfræðilegu óvissu sem ríkir í dag um jarðvarmavirkjanir á Suðvesturhorni landsins en við virkjun Blöndu á sínum tíma voru meðal annars notuð þau rök að hún væri utan eldvirkra svæða. Sömu rök gilda einnig í dag um t.d. virkjun Skatastaðavirkjunar en ógnin af áhrifum eldsumbrota á virkjanir á Suðvesturhorninu hefur aldrei verið áþreifanlegri en í dag. Um hreint þjóðaröryggismál er að ræða og því mikilvægt að stjórnvöld flytji virkjunina í nýtingarflokk svo hægt sé að gera raunverulegt umhverfismat á áhrifum framkvæmdarinnar.“
Jódís Helga Káradóttir fulltrúi Miðflokksins óskar bókað:
"Ástæða þess að ég óskaði eftir því að málið yrði tekið á dagskrá er einföld. Við búum yfir miklum orkuauðlindum í Skagafirði og ég tel að okkur beri að skoða af fullri alvöru hvernig við getum nýtt þær til framtíðaruppbyggingar. Í gildandi aðalskipulagi er fjallað um Skatastaðavirkjun og Villinganesvirkjun, en þar er ekki mörkuð skýr stefna sveitarfélagsins um framtíðarnýtingu Héraðsvatna. Það vil ég að við skoðum hvort rétt sé að breyta. Ég tel mikilvægt að Skagafjörður hafi frumkvæði að því að móta eigin stefnu um orkumál, enda geta ákvarðanir á þessu sviði haft veruleg áhrif á atvinnulíf, byggðaþróun og framtíðarmöguleika svæðisins og Norðvesturlands í heild. Ég er að leggja til að sveitarfélagið hefji markvissa vinnu við að skýra stefnu sína, kanna hvaða skipulagsbreytingar eru mögulegar og stuðla að því að virkjunarhugmyndir í Héraðsvötnum fái frekari umfjöllun á grundvelli uppfærðra gagna. Það er mikilvægt að sveitarfélagið sjálft taki virkan þátt í þessari umræðu og marki afstöðu sína til framtíðarnýtingar orkuauðlinda í Skagafirði. Þess vegna legg ég til að við tökum fyrsta formlega skrefið á þessu kjörtímabili hér í dag.“ Bókun fundar Afgreiðsla 110. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
Högni Elfar Gylfason lagði fram bókun fyrir hönd Framsóknarflokks og Miðflokks, svohljóðandi:
"Fulltrúar Miðflokksins og Framsóknarflokksins telja brýnt að sveitarfélagið Skagafjörður marki sér skýra og framsýna stefnu um nýtingu orkuauðlinda héraðsins.
Virkjun Héraðsvatna, einkum Skatastaðavirkjun, felur í sér umtalsverð tækifæri til innviða- og atvinnuuppbyggingar, aukinnar verðmætasköpunar og eflingar byggðar í Skagafirði. Þá má geta þess að samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar stendur til að leggja fram frumvarp í janúar 2027 þar sem lagt er til að undanþága orkumannvirkja frá fasteignamati verði afnumin. Slík breyting laga mun jafnframt leiða til verulegra tekna vegna fasteignagjalda af Skatastaðavirkjun m.a. fyrir Skagafjörð.
Þá ber ekki síður að líta til þeirra hagsmuna sem felast í auknu orkuöryggi, landfræðilegri dreifingu raforkuframleiðslu og bættu þjóðaröryggi. Í því samhengi er mikilvægt að árétta að Skagafjörður er ekki á eldsumbrotasvæði. Staðsetning Skatastaðavirkjunar utan virkra eldsumbrotasvæða er sérstakur styrkleiki þegar litið er til náttúruvár og rekstraröryggis raforkukerfisins. Í ljósi þeirrar jarðfræðilegu óvissu sem ríkir á Suðurlandi verður mikilvægi landfræðilegrar dreifingar raforkuframleiðslu enn augljósara.
Við mat á framtíðarnýtingu Héraðsvatna verður jafnframt að horfa sérstaklega til hagsmuna heimamanna. Endurtekin flóð hafa valdið landbroti og tjóni á verðmætu ræktarlandi í Skagafirði, auk þess sem flóðvatn hefur flætt upp á Hringveginn, eina mikilvægustu samgönguæð landsins. Afleiðingar slíkra atburða einskorðast því ekki við einstakar jarðir, heldur varða þær öryggi íbúa, atvinnuhagsmuni og samgöngur milli landshluta. Fulltrúarnir telja því brýnt að samhliða endurmati á virkjunarkostum Héraðsvatna verði sérstaklega rannsakað hvort og með hvaða hætti vatnsmiðlun geti stuðlað að bættri flóðastýringu, dregið úr landbroti og aukið öryggi mikilvægra samgöngumannvirkja. Við þá vinnu verði reynsla og hagsmunir landeigenda og annarra heimamanna hafðir að leiðarljósi.
Fulltrúarnir telja að sveitarfélagið eigi að hafa frumkvæði að framgangi málsins og beita sér fyrir því að Skatastaðavirkjun verði færð í nýtingarflokk rammaáætlunar og að þá verði gert heildstætt umhverfismat á áhrifum hennar á umhverfi, náttúru og samfélagsleg áhrif. Jafnframt er mikilvægt að stefna sveitarfélagsins í þessum efnum endurspeglist í aðalskipulagi þess og að hagsmunir Skagfirðinga séu hafðir að leiðarljósi við frekari undirbúning.
Í ljósi framangreinds óska fulltrúar Miðflokksins og Framsóknarflokksins eftir skýrri afstöðu meirihluta sveitarstjórnar til virkjunar Héraðsvatna. Styður meirihlutinn að Skatastaðavirkjun verði færð í nýtingarflokk rammaáætlunar og er hann reiðubúinn að beita sér fyrir framgangi málsins gagnvart stjórnvöldum og Alþingi?
Fulltrúar Miðflokksins og Framsóknarflokksins hvetja sveitarstjórn Skagafjarðar til að sameinast um formlega ályktun um stuðning við framgang virkjunaráforma í Héraðsvötnum og senda umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra áskorun um að beita sér fyrir því að Skatastaðavirkjun verði færð úr biðflokki í nýtingarflokk rammaáætlunar. Með því taki sveitarfélagið skýra afstöðu til eins af mikilvægustu framtíðarhagsmunamálum héraðsins og leggi sitt af mörkum til þess að ákvarðanir um nýtingu orkuauðlinda Skagafjarðar verði ekki teknar án virkrar aðkomu heimamanna."
Guðlaugur Skúlason lagði fram bókun fyrir hönd meirihluta Byggðalista og Sjálfstæðisflokks, svohljóðandi:
"Meirihluti sveitarstjórnar Skagafjarðar áréttar fyrri afstöðu Skagafjarðar um að Skatastaðavirkjun fái heildstætt mat á umhverfisáhrifum, samfélagslegum áhrifum, hagkvæmni og þýðingu þeirra fyrir orkuöryggi. Tryggja þarf að ákvarðanir byggist á uppfærðum rannsóknum og að sjónarmið frá ólíkum áttum fái vandaða umfjöllun. Meirihlutinn leggur áherslu á mikilvægi aukinnar raforkuframleiðslu á Norðurlandi fyrir atvinnuuppbyggingu, orkuskipti og afhendingaröryggi. Dreifð raforkuvinnsla utan eldvirkra svæða getur jafnframt styrkt viðnámsþrótt raforkukerfis landsins gagnvart náttúruvá. Við þá vinnu verði haft náið samráð við sveitarfélagið, íbúa og annarra hagaðila og tekið mið af langtímahagsmunum Skagafjarðar" -
Skipulagsnefnd - 110 Skipulagsfulltrúi leggur fram merkjalýsingu dags. 12.11.2026 fyrir eftirtaldar lóðir við Freyjugötu á Sauðárkróki: 7a, 7b, 7c, 7d, 7e, 7f og 7g, Freyjugötu 9, opið svæði og Freyjugötu 7h.
Merkjalýsing er unnin af Birni Magnúsi Árnasyni merkjalýsanda á Stoð ehf. verkfræðistofu skv. reglugerð um merki fasteigna, nr. 160/2024 og á grundvelli 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 6. gr. laga nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna.
Merkjalýsingin er gerð í samræmi við breytingu á deiliskipulagi Gamla bæjarins á Sauðárkróki, samþykktri í sveitarstjórn Skagafjarðar 19.05.2026 sem auglýst hefur verið skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gildistakan var auglýst í B-deild 19.06.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða framlagða merkjalýsingu.
Skipulagsnefnd afgreiðir málið að fullu, á grundvelli 1. tölul. 3. gr. viðauka I við samþykkt um stjórn Skagafjarðar nr. 1336/2022 og felur skipulagsfulltrúa að ganga frá stofnun þessara lóða.
Bókun fundar Afgreiðsla 110. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
16.Gjaldskrá heimaþjónustu 2027
Málsnúmer 2608189Vakta málsnúmer
Lagt er til að gjaldskrá heimaþjónustu fyrir árið 2027 taki mið af launaflokki 128 í kjarasamningi Öldunnar/Kjalar frá 1. apríl 2026, með 8% persónuálagi og launatengdum gjöldum, og að tekjuviðmið vegna lækkunar gjalda taki mið af viðmiðunargreiðslum Tryggingastofnunar. Byggðarráð samþykkti tillöguna samhljóða og vísaði til endanlegrar afgreiðslu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum framlagða gjaldskrá heimaþjónustu fyrir árið 2027 í samræmi við tillögu félagsmála- og tómstundanefndar og afgreiðslu byggðarráðs. Gjaldskráin tekur gildi þann 1. janúar 2027 og verður birt á vef sveitarfélagsins.
17.Greiðsluviðmið jafnaðarstunda NPA samninga 2027
Málsnúmer 2608208Vakta málsnúmer
Félagsmála- og tómstundanefnd lagði til að miðað verði við jafnaðartaxta NPA-miðstöðvarinnar frá 1. janúar 2027 við útreikning á jafnaðarstundum í NPA-samningum. Stuðst verði við þrjá mismunandi taxta eftir þörfum notenda. Kostnaður skiptist í launakostnað (85%), umsýslukostnað (10%) og starfsmannakostnað (5%). Byggðarráð samþykkti tillöguna samhljóða og vísaði til endanlegrar afgreiðslu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum framlögð greiðsluviðmið jafnaðarstunda í NPA-samningum fyrir árið 2027 í samræmi við tillögu félagsmála- og tómstundanefndar og afgreiðslu byggðarráðs. Greiðsluviðmiðin taka gildi 1. janúar 2027 og verða birt á vef sveitarfélagsins.
18.Gjaldskrá íþróttamannvirkja 2027
Málsnúmer 2608185Vakta málsnúmer
Félagsmála- og tómstundanefnd afgreiddi gjaldskrá íþróttamannvirkja fyrir árið 2027 með að jafnaði 2,5% hækkun en nokkrir gjaldaliðir hækkuðu umfram það viðmið. Við meðferð málsins í byggðarráði var gjaldskránni breytt þannig að allir gjaldaliðir hækki eingöngu um 2,5%, í samræmi við viðmið sem samþykkt var samhliða ramma fjárhagsáætlunar. Byggðarráð samþykkti gjaldskrána samhljóða með þessum breytingum og vísaði til endanlegrar afgreiðslu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum framlagða gjaldskrá íþróttamannvirkja fyrir árið 2027 með þeim breytingum sem gerðar voru í byggðarráði um 2,5% hækkun gjaldaliða. Gjaldskráin tekur gildi 1. janúar 2027 og verður birt á vef sveitarfélagsins.
19.Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga 2027
Málsnúmer 2608012Vakta málsnúmer
Að ósk forstöðumanns Byggðasafns Skagfirðinga var lögð til viðbót við gjaldskrána vegna sameiginlegra miða á byggðasafnið og sundlaugarnar fyrir árið 2027. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkti viðbótina fyrir sitt leyti á 49. fundi sínum, dags. 24. september sl., og vísaði henni til félagsmála- og tómstundanefndar vegna aðkomu sundlauganna. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkti viðbótina fyrir sitt leyti og vísaði til byggðarráðs. Byggðarráð samþykkti framlagða gjaldskrá samhljóða með þeirri breytingu að hækkun gjaldaliðanna verði eingöngu 2,5%, í samræmi við viðmið rammaáætlunar, og vísaði til endanlegrar afgreiðslu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum framlagða viðbót við gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga fyrir árið 2027 vegna sameiginlegra miða á byggðasafnið og sundlaugarnar, með þeirri breytingu byggðarráðs að hækkun gjaldaliðanna verði 2,5%. Breytingin tekur gildi 1. janúar 2027 og verður birt á vef Byggðasafns Skagfirðinga.
20.Gjaldskrá vatnsveitu 2027
Málsnúmer 2608204Vakta málsnúmer
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkti gjaldskrá vatnsveitu fyrir árið 2027 og vísaði henni til byggðarráðs. Gjaldskráin gerði almennt ráð fyrir 2,5% hækkun en mælagjöld hækkuðu umfram það viðmið. Við meðferð málsins í byggðarráði var gjaldskránni breytt þannig að allir gjaldaliðir, þar á meðal mælagjöld, hækki eingöngu um 2,5%, í samræmi við viðmið rammaáætlunar. Byggðarráð samþykkti gjaldskrána samhljóða með þessum breytingum og vísaði til endanlegrar afgreiðslu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum gjaldskrá vatnsveitu fyrir árið 2027 með þeim breytingum sem samþykktar voru í byggðarráði um að allir gjaldaliðir hækki um 2,5%. Gjaldskráin tekur gildi 1. janúar 2027 og verður birt á vef sveitarfélagsins.
21.Gjaldskrá skipulagsfulltrúa þjónustu- og framkvæmdagjöld 2027
Málsnúmer 2608197Vakta málsnúmer
Gjaldskráin var lögð fram í byggðarráði og tekur að hámarki 2,5% hækkun frá núverandi gjaldskrá, í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar. Hún tekur til gjalda vegna framkvæmdaleyfa og skipulagsmála og miðast við að umsækjandi standi straum af kostnaði sveitarfélagsins vegna vinnslu máls, þar með talið vinnu við skipulagsáætlanir og framkvæmdaleyfi, kynningu, auglýsingar, umhverfismat og eftir atvikum aðkeypta þjónustu. Byggðarráð samþykkti gjaldskrána samhljóða og vísaði til endanlegrar afgreiðslu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum framlagða gjaldskrá skipulagsfulltrúa vegna þjónustu- og framkvæmdagjalda fyrir árið 2027 í samræmi við afgreiðslu byggðarráðs. Gjaldskráin tekur gildi 1. janúar 2027 og skal birt í B-deild Stjórnartíðinda og á vef sveitarfélagsins.
22.Gjaldskrá og samþykkt um gatnagerðargjöld, stofngjald fráveitu, byggingarleyfis- og þjónustugjöld 2027
Málsnúmer 2608183Vakta málsnúmer
Fyrir liggur að gjaldskráin tekur mið af uppreiknaðri vísitöluhækkun milli ára á gatnagerðargjöldum og stofngjaldi fráveitu. Byggingarleyfis- og þjónustugjöld taka mið af almennri 2,5% hækkun. Jafnframt er gerð sú breyting á texta 11. gr. samþykktarinnar að felld eru út orðin „minka- og refaskálar“.
Byggðarráð samþykkti gjaldskrána samhljóða og vísaði henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum framlagða gjaldskrá og samþykkt um gatnagerðargjöld, stofngjald fráveitu og byggingarleyfis- og þjónustugjöld í sveitarfélaginu Skagafirði fyrir árið 2027, með framangreindri breytingu á 11. gr.
Gjaldskráin tekur gildi 1. janúar 2027 og skal birt samkvæmt lögum, eftir því sem við á, þar á meðal í B-deild Stjórnartíðinda vegna þeirra gjaldliða sem birtingarskylda nær til, sbr. 8. mgr. 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna og 1. mgr. 51. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki.
23.Viðauki 8 við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 2610263Vakta málsnúmer
Fram kemur að viðaukinn felur í sér 33,7 m.kr. lækkun á rekstrarniðurstöðu A-hluta og breytingar á fjárfestingum og eignabreytingum að fjárhæð 432,2 m.kr. Helstu breytingar á rekstri lúta að leiðréttingu á álagningu fasteignaskatts, sölu fasteignanna að Háholti og Furulundi 5 og því að fallið hefur verið frá eftirstandandi eignasölu á árinu. Þá er gert ráð fyrir auknum tekjum Byggðasafns og hækkun launakostnaðar hjá Vinnuskóla Skagafjarðar, stjórnsýslu- og fjármálasviði, Húsi frítímans og Sundlaug Sauðárkróks. Jafnframt eru fjárheimildir vegna lögfræði- og sérfræðiþjónustu, tölvuþjónustu, þjónustu- og færslugjalda, félags- og aðildargjalda og framlaga til samstarfsverkefna hækkaðar.
Sveitarstjórn bókar að auknum launakostnaði sé að hluta mætt með millifærslu úr launapotti. Að öðru leyti felst jafnvægi viðaukans í framangreindri leiðréttingu tekju- og gjaldaliða, breytingum á eignasöluáformum og breytingum á fjárfestingaráætlun, þannig að fram komi hvernig tekjulækkun og auknum útgjöldum verði mætt í heild.
Breytingar á fjárfestingaráætlun felast meðal annars í því að fjárheimildir vegna menningarhúss, stækkunar verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, íþróttahúss við Grunnskólann austan Vatna, gatnagerðar, opinna svæða og sjóveitu eru lækkaðar. Á móti eru fjárheimildir vegna bifreiða og tækja, gatnagerðar við Borgarsíðu, sorpmóttökustöðvar, fráveituframkvæmda og aðstöðuhúss Hitaveitu Skagafjarðar hækkaðar. Þá er fallið frá áætluðum kaupum á fasteignum.
Að samþykktum viðaukanum verður áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 518,5 m.kr. og rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta jákvæð um 2.165,5 m.kr. Áætlað handbært fé í árslok verður 943,9 m.kr. hjá A-hluta og 1.448,1 m.kr. hjá samstæðu A- og B-hluta.
Sveitarstjórn samþykkir neð níu atkvæðum framlagðan viðauka 8 við fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árið 2026.
24.Gjaldskrá sorphirðu- og sorpeyðingar 2027
Málsnúmer 2608198Vakta málsnúmer
Málið var áður tekið fyrir á 55. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar 4. nóvember 2026. Nefndin lagði til við byggðarráð að samþykkja framlagða gjaldskrá, sem felur í sér 3,1-7,2% hækkun vegna áætlaðs kostnaðar við þjónustuna. Málið var tekið á dagskrá 218. fundar byggðarráðs með afbrigðum, sem voru samþykkt samhljóða. Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, sat fundinn undir þessum lið. Við umfjöllun byggðarráðs kom fram að gjaldtaka vegna þjónustunnar skyldi taka mið af raunkostnaði og byggjast á rekjanlegum kostnaðargrunni. Byggðarráð samþykkti gjaldskránna samhljóða og vísaði til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Högni Elfar Gylfason, Guðlaugur Skúlason, Hrund Pétursdóttir, Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir og Einar E. Einarsson kvöddu sér hljóðs.
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum framlagða gjaldskrá sorphirðu- og sorpeyðingar fyrir árið 2027. Gjaldskráin tekur gildi 1. janúar 2027 og skal birt í B-deild Stjórnartíðinda og á vef sveitarfélagsins.
25.Gjaldskrá Skagafjarðarhafna 2027
Málsnúmer 2608196Vakta málsnúmer
Málið var áður tekið fyrir á 55. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar 4. nóvember 2026. Nefndin lagði til við byggðarráð að samþykkja fyrirliggjandi gjaldskrá fyrir Sauðárkróks- og Hofsóshafnir. Málið var tekið á dagskrá 218. fundar byggðarráðs með afbrigðum, sem voru samþykkt samhljóða. Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, sat fundinn undir þessum lið. Samkvæmt framlögðum gögnum felur gjaldskráin í sér 2,5% hækkun frá árinu 2026. Byggðarráð samþykkti gjaldskránna samhljóða og vísaði til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum framlagða gjaldskrá Skagafjarðarhafna fyrir árið 2027.
26.Reglur um heilsueflingarstyrki - breyting
Málsnúmer 2611084Vakta málsnúmer
Á fundi byggðarráðs voru lögð fram drög að uppfærðum reglum um heilsueflingarstyrki til starfsfólks Skagafjarðar fyrir árið 2027. Í drögunum er lagt til að 8. grein reglnanna verði breytt þannig að heimilt verði að nýta heilsueflingarstyrk til greiðslu kostnaðar við heilsunudd. Byggðarráð samþykkti framlögð drög samhljóða og vísaði til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum, framlagðar reglur um heilsueflingarstyrki til starfsfólks Skagafjarðar fyrir árið 2027, þar sem 8. grein er breytt þannig að heimilt verði að nýta styrkinn til greiðslu kostnaðar við heilsunudd.
27.Stofnun lögbýlis Prestbær - beiðni um umsögn
Málsnúmer 2610066Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn hefur tekið málið til umfjöllunar og lýsir jákvæðri afstöðu til stofnunar lögbýlis á Prestbæ, 551 Sauðárkróki, fastanúmer 232-1369. Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum að veita umsögn þess efnis að hún geri ekki athugasemd við stofnun lögbýlis á jörðinni. Sveitarstjórn felur sviðsstjóra stjórnsýlu- og fjármálasviðs að koma umsögninni á framfæri við ráðuneytið ásamt þeim gögnum sem lög mæla fyrir um.
28.Lindargata 1 - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2610086Vakta málsnúmer
Þar sem mannvirkið stendur innan verndarsvæðis í byggð óskar byggingarfulltrúi eftir afstöðu sveitarstjórnar sbr. 6. gr. laga nr. 87/2015 um verndarsvæði í byggð. Fyrir liggur jafnframt bókun 108. fundar skipulagsnefndar frá 15. október 2026, þar sem nefndin samþykkti samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við framlagða umsókn.
Sveitarstjórn tekur undir tillögu skipulagsnefndar og gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd. Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum að fela byggingarfulltrúa að auglýsa framkvæmdina sbr. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 87/2015 og skal auglýsingatími vera tvær vikur.
Berist engar athugasemdir á auglýsingatíma telst samþykki sveitarstjórnar skv. 6. gr. laga nr. 87/2015 veitt og er byggingarfulltrúa þá heimilt að taka umsókn um byggingarleyfi til lokaafgreiðslu, að uppfylltum öðrum skilyrðum laga um mannvirki nr. 160/2010. Berist athugasemdir á auglýsingatíma skal málið lagt að nýju fyrir sveitarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.
29.Umsagnarbeiðni vegna máls nr 1293 2024 í Skipulagsgátt - Aðalskipulag Húnabyggðar 2025-2037 (Nýtt aðalskipulag)
Málsnúmer 2410281Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd samþykkti samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við tillögu að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037. Nefndin áréttar að sveitarfélagamörk milli Húnabyggðar og Skagafjarðar þarfnist frekari skoðunar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við tillögu að Aðalskipulagi Húnabyggðar 2025-2037. Sveitarstjórn tekur undir áréttingar skipulagsnefndar að sveitarfélagamörk milli Húnabyggðar og Skagafjarðar þarfnast frekari skoðunar.
30.Varnargarður í landi Miðhúsa og Þorleifsstaða í Blönduhlíð - Framkvæmdaleyfisumsókn
Málsnúmer 2610217Vakta málsnúmer
Högni Elfar Gylfason kvaddi sér hljóðs.
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi vegna varnargarðs í landi Miðhúsa og Þorleifsstaða í Blönduhlíð samkvæmt fyrirliggjandi umsókn og uppdrætti D-01, að fenginni jákvæðri umsögn Fiskistofu.
31.Breiðargerði (146154) - Umsókn um landskipti
Málsnúmer 2610175Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum að heimila umbeðin landskipti úr landi Breiðargerðis L146154 með stofnun 20 m² lóðar undir spennistöð, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn, merkjalýsingu og uppdrátt. Hin nýja lóð ber landheitið Breiðargerði spennistöð.
32.Kelduvík L145900 - Umsókn um staðfestingu á hnitsettum, ytri landamerkjum
Málsnúmer 2610220Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum að staðfesta hnitsetningu ytri landamerkja Kelduvíkur L145900 samkvæmt fyrirliggjandi merkjalýsingu og afstöðuuppdrætti.
33.Lóð 63 á Gránumóum - Beiðni um lóðarstækkun
Málsnúmer 2610186Vakta málsnúmer
Einar E. Einarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Sveitarstjórn samþykkir með átta atkvæðum umbeðna stækkun lóðarinnar Gránumóa 63 um u.þ.b. 1.828 m², í samræmi við fyrirliggjandi afstöðumynd.
34.Furulundur 3, 5, og 7 í Varmahlíð - Deiliskipulag
Málsnúmer 2603229Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum að auglýsa framlagða tillögu að deiliskipulagi fyrir Furulund í Varmahlíð samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn með níu atkvæðum að auglýsa framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi samkvæmt 1. mgr. 31. gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa er falið að annast framhald málsins samkvæmt lögum, þar á meðal að senda tillögu að aðalskipulagsbreytingu til lögboðinnar athugunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar áður en hún er auglýst.
35.Glaumbær Byggðasafn Skagfirðinga - Deiliskipulag
Málsnúmer 2101290Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum framlagða skipulagslýsingu og vinnslutillögu að aðalskipulagsbreytingu fyrir Glaumbæ til kynningar og samráðs samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn með níu atkvæðum að vinnslutillaga að deiliskipulagi verði kynnt samhliða til samráðs, en formleg auglýsing deiliskipulagstillögu samkvæmt 1. mgr. 41. gr. sömu laga fari fram samhliða auglýsingu aðalskipulagsbreytingarinnar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. laganna. Sveitarstjórn fellst fyrir sitt leyti með níu atkvæðum á að unnið verði áfram með þau áform að taka hluta lands Glaumbæjar 1, L146031, úr landbúnaðarnotkun í samræmi við málsmeðferð aðalskipulagsbreytingarinnar og 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Skipulagsfulltrúa er falið að annast kynningu og frekari málsmeðferð.
36.Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Umsókn um deiliskipulag
Málsnúmer 1505046Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum uppfærða deiliskipulagstillögu fyrir Neðri-Ás 2, lönd 3 og 4, samkvæmt framlagðri greinargerð og uppdrætti Kollgátu ehf., dags. 11. nóvember 2026, sbr. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með vísan til fyrirliggjandi fylgigagna telur sveitarstjórn fullnægjandi skýringar liggja fyrir um viðbrögð við athugasemdum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar frá 19. október 2026 og að útfærsla skipulagsins samræmist gildandi Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Skipulagsfulltrúa er falið að senda samþykkt deiliskipulag til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar og annast birtingu auglýsingar um gildistöku þess í B-deild Stjórnartíðinda samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laganna.
37.Dýrfinnustaðir L146274 - Deiliskipulag
Málsnúmer 2611086Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum að heimila gerð deiliskipulags á eigin kostnað samkvæmt 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fellst á að skipulagslýsingu sé sleppt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. sömu laga. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn með níu atkvæðum að auglýsa framlagða deiliskipulagstillögu samkvæmt 1. mgr. 41. gr. laganna og felur skipulagsfulltrúa að annast lögboðna kynningu og auglýsingu.
38.Breið L146153 í Lýtingsstaðahreppi - Umsókn um stofnun landspildu
Málsnúmer 2611074Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum umbeðin landskipti og stofnun spildunnar Breiðar 1 samkvæmt 1. mgr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 13. gr. jarðalaga nr. 81/2004, í samræmi við framlagðan afstöðuuppdrátt og forsendur í afgreiðslu skipulagsnefndar. Skipulagsfulltrúa er falið að annast tilkynningu og skráningu landskiptanna í landeignaskrá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
39.Bakki L146016 í Vallhólma, Skagafirði - Umsókn um stofnun byggingarreits
Málsnúmer 2611075Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum umbeðinn byggingarreit samkvæmt framlögðum afstöðuuppdrætti og með vísan til forsendna í afgreiðslu skipulagsnefndar. Samþykktin felur ekki í sér byggingarleyfi eða samþykki á mannvirkjahönnun, en skipulagsfulltrúa er falið að annast lögboðna grenndarkynningu samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ef við á.
40.Íbishóll L146044 - Umsókn um stækkun lóðar og staðfestingu hnitsetningar
Málsnúmer 2611083Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum umbeðin landskipti og stækkun lóðarinnar samkvæmt 1. mgr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 13. gr. jarðalaga nr. 81/2004, í samræmi við framlagðan afstöðuuppdrátt og merkjalýsingu, með vísan til forsendna í afgreiðslu skipulagsnefndar. Skipulagsfulltrúa er falið að ganga frá skráningu hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.
41.Gjaldskrá hunda- og kattahalds 2027
Málsnúmer 2608193Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá með níu atkvæðum. Gjaldskráin tekur gildi 1. janúar 2027 og skal birt með auglýsingu í B-deild Sjtónrartíðinda og á vef sveitarfélagsins.
42.Niðurgreiðslur til dagforeldra og foreldragreiðslur 2027
Málsnúmer 2608207Vakta málsnúmer
Högni Elfar Gylfason kvaddi sér hljóðs.
Sveitarstjórn samþykkir með sex atkvæðum að hækka foreldragreiðslur í 120.000 krónur á mánuði. Hækkunin tekur gildi 1. janúar 2027 og verður birt á vef sveitarfélagsins. Einar E. Einarsson og Hrund Pétursdóttir fulltrúar Framsóknarflokks og Högni Elfar Gylfason fulltrúi Miðflokks sitja hjá við afgreiðslu málsins.
43.Þjónustustefna Skagafjarðar 2027
Málsnúmer 2610108Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggja drög að þjónustustefnu Skagafjarðar 2027-2030 sem byggja á gildandi þjónustustefnu. Byggðarráð samþykkti samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að drögunum yrði vísað til fyrri umræðu og að auglýst yrði eftir athugasemdum og ábendingum frá íbúum og öðrum hagsmunaaðilum um breytingar á gildandi þjónustustefnu, í samræmi við 2. mgr. 130. gr. a sveitarstjórnarlaga um samráð við íbúa.
Sveitarstjórn tekur drög að þjónustustefnu Skagafjarðar 2027-2030 til fyrri umræðu og samþykkir með níu atkvæðum að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að auglýsa eftir athugasemdum og ábendingum við drögin. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn með níu atkvæðum að vísa drögum að þjónustustefnunni til kynningar og samráðs áður en hún kemur til síðari umræðu og endanlegrar afgreiðslu í sveitarstjórn, sbr. 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Stutt hlé gert á fundi.
44.Fjárhagsáætlun 2027-2030
Málsnúmer 2606022Vakta málsnúmer
Hér er lögð fram til síðari umræðu og afgreiðslu fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árið 2027 ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2028 til 2030.
Áætlunin er sett fram í samræmi við sveitarstjórnarlög. Annars vegar tekur hún til A-hluta, það er aðalsjóðs og eignasjóðs. Hins vegar tekur hún til samstæðu A- og B-hluta, sem nær einnig til veitna, hafnarsjóðs, félagslegra íbúða og tengdra félaga.
Við leggjum þessa áætlun fram við krefjandi efnahagsaðstæður. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 5,9% á tólf mánuðum. Launakostnaður, sem er langstærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins, hækkar umtalsvert samkvæmt kjarasamningum og ráðgert að svo verði áfram. Spáð er samdrætti í hagvexti og við sjáum að atvinnuleysi eykst a landsvísu.
Við höfum engu að síður skuldbundið okkur til að halda hækkunum gjaldskráa innan við 2,5% eða að því marki. Með því leggjum við okkar af mörkum í baráttunni við verðbólgu. Hækkanirnar verða undir verðbólgu og þjónustugjöldin lækka því að raungildi.
Við göngum skrefi lengra og leggjum til að álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði, svokallaðs A-skatts, lækki úr 0,435% í 0,430%. Þannig komum við til móts við heimilin í Skagafirði með lægra skatthlutfalli, þrátt fyrir aukinn kostnað í rekstri sveitarfélagsins.
Aðhald í rekstri þýðir ekki að við sláum af í uppbyggingu. Áætlunin markar upphaf framkvæmdatímabils þar sem fjárfestingar munu nema milljörðum króna á næstu árum.
-
Við höldum áfram að stækka Sauðárkrókshöfn með byggingu nýs Útgarðs og bættri hafnaraðstöðu.
-
Við hefjum stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra til að efla iðn- og verknám á svæðinu.
-
Við tökum stór skref í uppbyggingu nýs Menningarhúss Skagfirðinga og í endurbótum á Safnahúsinu.
-
Við hefjum uppbyggingu nýs íþróttahúss á Hofsósi. Það mun gjörbreyta aðstöðu til íþrótta- og félagsstarfs austan Vatna.
-
Við endurnýjum fráveituna á Hólum í Hjaltadal og höldum áfram endurnýjun gatnakerfisins í eldri hluta Sauðárkróks. Jafnframt greiðum við fyrir nýrri íbúðauppbyggingu um allt sveitarfélagið.
Að mörgum þessara verkefna vinnum við með ríkinu og öðrum samstarfsaðilum sem taka þátt í fjármögnuninni. Framkvæmdirnar eiga að efla atvinnulífið, bæta lífsgæði og styðja við áframhaldandi fjölgun íbúa.
Helstu niðurstöður ársins 2027
Sterkur grunnrekstur gerir okkur kleift að ráðast í þessa uppbyggingu.
Áætlun ársins 2027 sýnir sterka rekstrarafkomu á heildarvísu. Samstæða Skagafjarðar (A- og B-hluti samtals) skilar áætluðum rekstrarafgangi upp á 862,0 m.kr. og veltufé frá rekstri samstæðunnar nemur 1.491,3 m.kr. (12,85% af heildartekjum). Í A-hluta er áætluð jákvæð rekstrarniðurstaða upp á 607,3 m.kr. og veltufé frá rekstri nemur 1.018,3 m.kr. (10,08% af tekjum). Veltufé frá rekstri er einn allra mikilvægasti mælikvarðinn á fjárhagslegan styrk sveitarfélagsins. Veltufé frá rekstri mælir hversu mikið fé reksturinn skapar til að mæta afborgunum langtímalána, bregðast við ófyrirséðum áföllum og síðast en ekki síst fjármagna nýframkvæmdir og innviðauppbyggingu af eigin rammleik án þess að þurfa að auka skuldsetningu.
-
Framlegð rekstrar (EBITDA): Rekstrarafkoma fyrir afskriftir og fjármagnsliði er áætluð 1.625 m.kr. hjá samstæðunni (14,0% af heildartekjum) og 1.122 m.kr. hjá A-hluta (11,1% af tekjum).
-
Rekstrarafgangur samstæðunnar samsvarar 7,43% af tekjum, sem er traust vísbending um jafnvægi í rekstri.
-
Veltufjárhlutfall samstæðunnar er 1,248, sem þýðir að lausafjármunir (2.686 m.kr.) eru umtalsvert hærri en skammtímaskuldir (2.153 m.kr.). Hreint veltufé er jákvætt um 533,2 m.kr.
-
Eigið fé samstæðunnar er áætlað 9.316 m.kr. og eiginfjárhlutfallið 46,49%, sem hækkar í yfir 51,8% í lok áætlunartímabilsins.
Efnahagur og skuldastaða
Í árslok 2027 er gert ráð fyrir að heildareignir samstæðunnar nemi 20.040 milljónum króna. Eigið fé er áætlað 9.316 milljónir króna og eiginfjárhlutfallið 46,5%. Samkvæmt áætluninni hækkar það í tæp 52% í lok árs 2030.
Skuldir og skuldbindingar samstæðunnar eru áætlaðar 10.724 milljónir króna. Skuldahlutfallið er áætlað 92,4% árið 2027 og lækkar ár frá ári, niður í 83,6% árið 2030.
Skuldaviðmið samstæðunnar er áætlað 62% árið 2027, langt undir 150% hámarki laganna. Það lækkar í 59,6% árið 2030 og er vel innan þeirra marka sem sveitarstjórn hefur sett sér.
Forseti.
Með þessari áætlun lækkum við álagningarhlutfall fasteignaskatts á heimilin, stöndum vörð um grunnþjónustuna og ráðumst í mikilvægar framkvæmdir um allan Skagafjörð. Á sama tíma gerum við ráð fyrir að skuldahlutfallið lækki á hverju ári út áætlunartímabilið.
Ég þakka nefndum, ráðum, stjórnendum og starfsfólki kærlega fyrir framlag þeirra til vinnu við áætlunina.
Ég legg hér með fjárhagsáætlun ársins 2027 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2028 til 2030 fram til síðari umræðu og samþykktar.
Einar E. Einarsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram bókun, svohljóðandi:
"Í framlagðri fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir góðum afgangi af bæði rekstri A-hluta og samstæðunnar í heild fyrir árið 2027. Sú niðurstaða kemur okkur ekki á óvart því mikið hefur verið gert á liðnum árum til að bæta og styrkja rekstur sveitarfélagsins og er það í dag grunnurinn að getu sveitarfélagsins til að hækka gjaldskrár langt um minna en þörf hefði verið á vegna verðbólgu og mikilla launahækkana síðustu ár. Eins er jákvætt að inni í framkvæmdaáætlun 2027 eru verkefni sem unnið hefur verið að til lengri tíma og eru nú að verða að veruleika. Má þar nefna menningarhús á Sauðárkróki, stækkun verknámshúss Fjölbrautaskólans og byggingu á nýjum hafnargarði í Sauðárkrókshöfn. Margt fleira mætti nefna sem unnið hefur verið að eins og að taka fyrir eina götu á ári í allsherjar endurnýjun og er það fagnaðarefni að það verklag sem komið var af stað haldi áfram.
Með hliðsjón af góðri afkomu í rekstri sveitarfélagsins fyrir árið 2027 hörmum við hins vegar að núverandi meirihluti skyldi fella tillögu okkar um að lækka álagningarprósentu fasteignagjalda á fyrirtæki, en þau munu hækka um 7,8% milli áranna 2026 og 2027. Hér hefði verið lítið mál, ef vilji hefði verið, til að draga úr álögum á fyrirtæki í Skagafirði.
Eins lögðum við til að framkvæmdir við nýtt íþróttahús á Hofsósi yrðu teknar fastari tökum og það gert að markmiði að byggingu hússins myndi ljúka á árinu 2028. Fyrir því var heldur ekki vilji, en ljóst er af þessari framkvæmdaáætlun sem hér liggur fyrir að mjög lítið annað verður gert á komandi ári en að bjóða verkið út og kannski grafa grunn fyrir húsinu sem þýðir þá að framkvæmdum mun í besta falli ljúka árið 2029. Eins bíða mörg önnur brýn verkefni sem ekki er sýndur vilji til að koma í farveg í þessari áætlun og má þar nefna bætta kennsluaðstöðu fyrir tónlist í Árskóla, nauðsynlegar og áframhaldandi framkvæmdir við Sundlaug Sauðárkróks, viðhald á gervigrasvelli og stækkun íþróttahúss á Sauðárkróki svo eitthvað sé nefnt.
Þriggja ára fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2028-2030, sem er hér einnig til samþykktar, sýnir verulega minnkandi veltufé frá rekstri og er þar gert ráð fyrir að veltuféð, sem er í raun það fjármagn sem sveitarfélagið hefur til framkvæmda án þess að taka lán, lækki öll árin og verði langt undir þeim markmiðum sem sveitarstjórn setti sér árið 2024. Jafnframt er gert ráð fyrir mjög versnandi rekstrarniðurstöðu A-hluta og samstæðunnar í heild út áætlunina sem er áhyggjuefni. Niðurstaða án fjármagnsliða lækkar einnig sem sýnir líka ákveðinn veikleika í grunnrekstrinum fyrir árin 2028-2030, og við hvorugu þessu er reynt að bregðast við í þessari áætlun, sem er miður. Sama er með hlutfall launa, en þriggja ára áætlunin gerir ráð fyrir hækkandi launahlutfalli öll árin ásamt því að vera verulega undir þeim markmiðum sem öll sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti árið 2024.
Ef þessi framtíðarsýn meirihlutans raungerist gætum við horft fram á stöðnun í framkvæmdum og þar með framförum í Skagafirði.
Við viljum að lokum þakka starfsmönnum sveitarfélagsins fyrir þeirra vinnu við gerð þessarar fjárhagsáætlunar en um leið hvetjum við núverandi meirihluta til að vinnan fari fyrr af stað á næsta ári. Traustar og metnaðarfullar fjárhagsáætlanir eru mikilvæg forsenda fyrir ábyrgum og farsælum rekstri sveitarfélagsins og við gerð þeirra skal hafa það að markmiði að þær séu í samræmi við samþykkt rekstrarmarkmið sveitarstjórnar."
Högni Elfar Gylfason kvaddi sér hljóðs og lagði fram bókun, svohljóðandi:
"Mikil og góð vinna hefur farið í gerð fjárhagsáætlunar Skagafjarðar af hálfu starfsmanna sveitarfélagsins, nefndamanna og sveitarstjórnarfulltrúa. Áætluð afkoma A-hluta árið 2027 batnaði milli umræðna. Fulltrúi Miðflokksins telur engu að síður að áætlunin hefði þurft að gera ráð fyrir markvissara aðhaldi í rekstri á árunum 2028?2030 til að verja svigrúm til nauðsynlegs viðhalds og framkvæmda. Samkvæmt áætluninni lækkar veltufé frá rekstri A-hluta úr 10,1% af tekjum árið 2027 í 6,5% árið 2030. Samþykkt markmið sveitarfélagsins fyrir árið 2030 er að hlutfallið verði að minnsta kosti 12%. Á sama tíma hækkar launahlutfall A-hluta úr 61,1% í 65,6%. Það er vel yfir samþykktu markmiði um að hlutfallið verði undir 60% árið 2030. Sú þróun er áhyggjuefni.
Fjármunir sveitarfélagsins eru ekki ótakmarkaðir og því þarf að forgangsraða fjármunum til þeirra verkefna sem brýnust eru. Verkefni sem bæta öryggi íbúa, einkum barna, eða koma í veg fyrir skemmdir þurfa að ganga fyrir. Við eldri hluta Birkimels í Varmahlíð hefði þannig verið rétt að verja fé til lagningar gangstétta og lagfæringa skemmda í götunni, með öryggi barna á leið í skólann að leiðarljósi. Í hesthúsahverfinu við Flæðagerði á Sauðárkróki er líka aðkallandi að hefja löngu tímabærar úrbætur á götulýsingu. Forgang hefðu átt að fá þær götur þar sem lýsingu vantar alveg, til að bæta öryggi barna og annarra vegfarenda.
Í áætluninni er gert ráð fyrir mörgum stórum og tímabærum verkefnum sem kalla á veruleg útgjöld úr sveitarsjóði. Sveitarfélagið þarf að krefjast þess að ríkið standi við fyrirliggjandi áætlanir um kostnaðarþátttöku í stækkun Sauðárkrókshafnar og að framlög þess fylgi framvindu verksins. Að öðrum verkefnum ólöstuðum ber að fagna sérstaklega fyrirhugaðri viðbyggingu við verknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki og byggingu íþróttahúss á Hofsósi.
Í samræmi við tillögur Miðflokksins í félagsmála- og tómstundanefnd telur undirritaður að í fjárhagsáætlun ársins 2027 hefði átt að gera ráð fyrir foreldragreiðslum að fjárhæð 150.000 kr. á mánuði til að styðja betur við fjölskyldur frá lokum fæðingarorlofs þar til barn fær leikskólapláss. Jafnframt hefði verið rétt að láta hvatapeninga ná til barna frá fæðingu til 18 ára aldurs, svo yngstu börnin nytu einnig stuðnings til þátttöku í skipulögðu íþrótta-, lista- og tómstundastarfi."
Hrund Pétursdóttir, Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir kvöddu sér hljóðs.
Eyþór Fannar Sveinsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram svohljóðandi bókun:
"Meirihluti sveitarstjórnar fagnar framlagðri fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2028?2030. Í áætluninni fer saman ábyrg fjármálastjórn og uppbygging innviða víðs vegar um Skagafjörð.
Með fjárhagsáætluninni eru stigin fyrstu skrefin í uppbyggingu sem nemur milljörðum króna á næstu þremur til fjórum árum. Um er að ræða stór verkefni sem sveitarfélagið vinnur að í samstarfi við ríkið og önnur sveitarfélög, sem taka jafnframt þátt í að greiða verulegan hluta framkvæmdakostnaðarins. Samstarfið gerir okkur kleift að ráðast í stærri verkefni en ella, en þýðir jafnframt að sveitarfélagið ræður ekki eitt forgangsröðun, áfangaskiptingu og framkvæmdahraða.
Þótt aðstæður í íslensku efnahagslífi séu krefjandi, með auknu atvinnuleysi og minni hagvexti, gerir áætlunin ráð fyrir áframhaldandi uppbyggingu í Skagafirði. Þar má nefna framkvæmdir við hafnarmannvirki, menningarhús, verknámshús og íþróttamannvirki. Samhliða þessum framkvæmdum gerir áætlunin ráð fyrir lækkandi skuldahlutfalli og traustu veltufé frá rekstri.
Fjárhagsáætlunin gerir jafnframt ráð fyrir lækkun fasteignaskatts og að gjaldskrár sveitarfélagsins hækki um 2,5%, á sama tíma og ársverðbólga mælist 5,9%. Þannig er lögð áhersla á að halda álögum á íbúa í skefjum samhliða uppbyggingu innviða í Skagafirði.
Sérstkar þakkir færum við kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn, byggðarráði og fagnefndum, svo og sviðsstjórum, fjármálastjóra og öllu starfsfólki sveitarfélagsins fyrir frábært og lausnamiðað samstarf við gerð þessarar áætlunar. Það er samhent vinnulag og skýr forgangsröðun sem skilar þeim góða árangri sem hér birtist."
Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir tók við stjórn fundarins og Sveinn Þ. Finnster Úlfarsson kvaddi sér hljóðs. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson tók aftur við stjórn fundarins.
Stutt hlé gert á fundinum.
Magnús Barðdal Reynisson, Högni Elfar Gylfason, Einar E. Einarsson, Magnús Reynisson Barðdal og Hrund Pétursdóttir kvöddu sér hljóðs.
Fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027 ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030 borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með sex atkvæðum. Einar E. Einarsson og Hrund Pétursdóttir fulltrúar Framsóknarflokks og Högni Elfar Gylfason fulltrúi Miðflokks sitja hjá við afgreiðslu málsins.
45.Fundargerðir SSNV 2026
Málsnúmer 2601010Vakta málsnúmer
46.Fundargerðir SÍS 2026
Málsnúmer 2601009Vakta málsnúmer
47.Minnisblað vegna fræðsluferðar sveitarstjórnarfulltrúa og sveitarstjóra 2027
Málsnúmer 2610156Vakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 19:27.