Byggðarráð Skagafjarðar - 216
Málsnúmer 2611002F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 55. fundur - 23.11.2026
Fundargerð 216. fundar byggðarráðs frá 5. nóvember 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 55. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Magnús Barðdal Reynisson og Einar E. Einarsson kvöddu sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Verkefnisstjórn samfélagssjóðs Kaupfélags Skagfirðinga, þau Herdís Sæmundsdóttir, Sigfús Ingi Sigfússon, Álfhildur Leifsdóttir og Friðbjörn Ásbjörnsson sátu fundinn undir þessum lið. Einar E. Einarsson fulltrúi Framsóknarflokks í byggðarráði, á auk framangreindra, sæti í verkefnisstjórninni.
Á árinu 2021 samþykkti stjórn Kaupfélags Skagfirðinga að veita 200 milljónum króna til samfélagsverkefna í Skagafirði í samstarfi við sveitarfélagið Skagafjörð. Markmið sjóðsins er að styðja við verkefni sem til þess eru fallin að fegra umhverfið, gera ásýnd samfélagsins meira aðlaðandi og auka lífsgæði íbúa.
Verkefnisstjórnin fór yfir úthlutanir úr sjóðnum og stöðu þeirra verkefna.
Nú hefur Samfélagssjóður Kaupfélags Skagfirðinga lokið við úthlutun á þessum 200 milljónum króna til verkefna víðsvegar í Skagafirði í samstarfi við sveitarfélagið Skagafjörð.
Alls voru 16 verkefni valin og þau styrkt með misháum upphæðum eftir atvikum, en verkefnum þessum er ýmist lokið, þau í framkvæmd eða undirbúningur farinn af stað. Verkefnin eru eftirfarandi:
1.
Gerð göngustíga og lýsing vítt og breitt í sveitarfélaginu
2.
Endurgerð leikskólalóðar á Hólum í Hjaltadal
3.
Aðstöðuhús við íþróttavöll í Varmahlíð
4.
Bætt aðgengi að Bifröst á Sauðárkróki - lyfta, rampur og salerni
5.
Körfuboltavöllur á Hofsósi
6.
Endurbætur á aðstöðu við sundlaugina á Sólgörðum
7.
Rennibrautir við Sundlaug Sauðárkróks
8.
Lóðaframkvæmdir og leiktæki við leik- og grunnskólana á Hofsósi og í Varmahlíð
9.
Lagfæringar á íþróttavelli í Varmahlíð
10.
Frisbígolfvöllur í Varmahlíð
11.
Battavöllur á Steinsstöðum
12.
Nýr golfskáli við golfvöllinn á Sauðárkróki
13.
Styrkur vegna undirbúnings endurbóta og uppbyggingar í gamla bænum á Sauðárkróki
14.
Körfuboltavöllur í Fljótum
15.
Skólahreystibrautir við grunnskólana í Skagafirði
16.
Bekkir á þéttbýlisstöðum í Skagafirði
Byggðarráð þakkar Kaupfélagi Skagfirðinga kærlega fyrir ómetanlegt framlag til samfélagsins og það góða samstarf sem hefur verið um framgang verkefnanna. Jafnframt vill byggðarráð koma á framfæri kærum þökkum til verkefnisstjórnarinnar fyrir gott starf. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.
Sveitarstjórn leggur fram svohljóðandi bókun:
"Sveitarstjórn Skagafjarðar þakkar Kaupfélagi Skagfirðinga sérstaklega fyrir 200 milljóna króna framlag til samfélagsverkefna í Skagafirði. Framlagið hefur gert sveitarfélaginu kleift að ráðast í fjölbreytt verkefni sem bæta aðstöðu íbúa og umhverfi víðs vegar í sveitarfélaginu. Sveitarstjórn þakkar Kaupfélaginu einnig fyrir gott samstarf um verkefnin.
Sveitarstjórn hefur farið yfir úthlutanir úr sjóðnum og stöðu verkefnanna. Úthlutun er lokið og alls hlutu 16 verkefni styrk. Þar á meðal eru göngustígar og lýsing, bætt aðgengi að Bifröst og endurbætur á skólalóðum, íþróttasvæðum og sundlaugum. Sumum verkefnanna er lokið en önnur eru í framkvæmd eða undirbúningi.
Sveitarstjórn þakkar jafnframt verkefnisstjórn sjóðsins fyrir gott starf við úthlutun styrkjanna og eftirfylgni með verkefnunum." -
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Lögð fram til kynningar drög að minnisblaði frá Vegagerðinni, dags. 3. nóvember 2026, um framkvæmdir og fjármögnun við Útgarð við Sauðárkrókshöfn.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga og leggja málið fyrir byggðarráð að nýju. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Magnús Barðdal Reynisson, sveitarstjóri lagði fram áætlun eignasjóðs um meiriháttar viðhald fasteigna annars vegar og hins vegar framkvæmdaáætlun eignasjóðs og B-hluta fyrirtækja á árinu 2026.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að halda umræðum áfram á næsta fundi byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 07 - Bruna- og almannavarnir til seinni umræðu fyrir fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 07 - Bruna- og almannavarnir og vísar henni til frekari umræðu og afgreiðslu sem hluta af heildarfjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokka 21, 22, 27 og 28 sameiginlegur kostnaður o.fl. til seinni umræðu fyrir fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlanir fyrir málaflokka 21, 22, 27 og 28 og vísar þeim til frekari umræðu og afgreiðslu sem hluta af heildarfjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 31 - eignasjóður til seinni umræðu fyrir fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 31, með fyrirvara um afgreiðslu máls 2611015 - Áætlun um fjárfestingar og meiriháttar viðhald 2027-2030, og vísar henni til frekari umræðu og afgreiðslu sem hluta af heildarfjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Málið var áður á dagskrá 211. fundar byggðarráðs þann 1. október sl., þar sem farið var yfir stöðu mála vegna fyrirhugaðrar eignasölu og framvindu samnings Skagafjarðar og Bríetar ehf. Sameiginlegur vilji aðila er að tryggja áframhaldandi framgang verkefnisins.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 216 Lagðar fram til kynningar fyrir byggðarráð fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 99. fundi frá 24. ágúst 2026, 100. fundi frá 21. september 2026 og 101. fundi frá 2. október 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 216. fundar byggðarráðs var staðfest á 55. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2026 með níu atkvæðum.