Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Yfirferð yfir úthlutanir Samfélagssjóðs KS
Málsnúmer 2610293Vakta málsnúmer
2.Framkvæmdir við stækkun á höfn - fjármögnun o.fl.
Málsnúmer 2611016Vakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar drög að minnisblaði frá Vegagerðinni, dags. 3. nóvember 2026, um framkvæmdir og fjármögnun við Útgarð við Sauðárkrókshöfn.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga og leggja málið fyrir byggðarráð að nýju.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga og leggja málið fyrir byggðarráð að nýju.
3.Kostnaðarhlutdeild til að sporna gegn ágangi Svartár
Málsnúmer 2610168Vakta málsnúmer
Mál áður á 214. fundi byggðarráðs þann 22. október sl. þar sem sveitarstjóra var falið að afla frekari upplýsinga um aðgerðir sem ráðist var í við Stafnsrétt í Svartárdal í Húnabyggð og óskað eftir að Skagafjörður taki þátt í kostnaði við aðgerðirnar.
4.Áætlun um fjárfestingar og meiriháttar viðhald 2027-2030
Málsnúmer 2611015Vakta málsnúmer
Magnús Barðdal Reynisson, sveitarstjóri lagði fram áætlun eignasjóðs um meiriháttar viðhald fasteigna annars vegar og hins vegar framkvæmdaáætlun eignasjóðs og B-hluta fyrirtækja á árinu 2026.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að halda umræðum áfram á næsta fundi byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að halda umræðum áfram á næsta fundi byggðarráðs.
5.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 07_Bruna- og almannavarnir
Málsnúmer 2608077Vakta málsnúmer
Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 07 - Bruna- og almannavarnir til seinni umræðu fyrir fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 07 - Bruna- og almannavarnir og vísar henni til frekari umræðu og afgreiðslu sem hluta af heildarfjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 07 - Bruna- og almannavarnir og vísar henni til frekari umræðu og afgreiðslu sem hluta af heildarfjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030.
6.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkar 21-22-27-28_sameiginlegur kostnaður ofl.
Málsnúmer 2608084Vakta málsnúmer
Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokka 21, 22, 27 og 28 sameiginlegur kostnaður o.fl. til seinni umræðu fyrir fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlanir fyrir málaflokka 21, 22, 27 og 28 og vísar þeim til frekari umræðu og afgreiðslu sem hluta af heildarfjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlanir fyrir málaflokka 21, 22, 27 og 28 og vísar þeim til frekari umræðu og afgreiðslu sem hluta af heildarfjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030.
7.Fjárhagsáætlun 2027 - málaflokkur 31_Eignasjóður
Málsnúmer 2608085Vakta málsnúmer
Baldur Hrafn Björnsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs, lagði fram fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 31 - eignasjóður til seinni umræðu fyrir fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 31, með fyrirvara um afgreiðslu máls 2611015 - Áætlun um fjárfestingar og meiriháttar viðhald 2027-2030, og vísar henni til frekari umræðu og afgreiðslu sem hluta af heildarfjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027-2030.

8.Samstarf um uppbyggingu leigumarkaðar í Skagafirði
Málsnúmer 2604050Vakta málsnúmer
Málið var áður á dagskrá 211. fundar byggðarráðs þann 1. október sl., þar sem farið var yfir stöðu mála vegna fyrirhugaðrar eignasölu og framvindu samnings Skagafjarðar og Bríetar ehf. Sameiginlegur vilji aðila er að tryggja áframhaldandi framgang verkefnisins.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
9.Fundargerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Málsnúmer 2611006Vakta málsnúmer
Lagðar fram til kynningar fyrir byggðarráð fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 99. fundi frá 24. ágúst 2026, 100. fundi frá 21. september 2026 og 101. fundi frá 2. október 2026.
Fundi slitið - kl. 12:30.
Á árinu 2021 samþykkti stjórn Kaupfélags Skagfirðinga að veita 200 milljónum króna til samfélagsverkefna í Skagafirði í samstarfi við sveitarfélagið Skagafjörð. Markmið sjóðsins er að styðja við verkefni sem til þess eru fallin að fegra umhverfið, gera ásýnd samfélagsins meira aðlaðandi og auka lífsgæði íbúa.
Verkefnisstjórnin fór yfir úthlutanir úr sjóðnum og stöðu þeirra verkefna.
Nú hefur Samfélagssjóður Kaupfélags Skagfirðinga lokið við úthlutun á þessum 200 milljónum króna til verkefna víðsvegar í Skagafirði í samstarfi við sveitarfélagið Skagafjörð.
Alls voru 16 verkefni valin og þau styrkt með misháum upphæðum eftir atvikum, en verkefnum þessum er ýmist lokið, þau í framkvæmd eða undirbúningur farinn af stað. Verkefnin eru eftirfarandi:
1.
Gerð göngustíga og lýsing vítt og breitt í sveitarfélaginu
2.
Endurgerð leikskólalóðar á Hólum í Hjaltadal
3.
Aðstöðuhús við íþróttavöll í Varmahlíð
4.
Bætt aðgengi að Bifröst á Sauðárkróki - lyfta, rampur og salerni
5.
Körfuboltavöllur á Hofsósi
6.
Endurbætur á aðstöðu við sundlaugina á Sólgörðum
7.
Rennibrautir við Sundlaug Sauðárkróks
8.
Lóðaframkvæmdir og leiktæki við leik- og grunnskólana á Hofsósi og í Varmahlíð
9.
Lagfæringar á íþróttavelli í Varmahlíð
10.
Frisbígolfvöllur í Varmahlíð
11.
Battavöllur á Steinsstöðum
12.
Nýr golfskáli við golfvöllinn á Sauðárkróki
13.
Styrkur vegna undirbúnings endurbóta og uppbyggingar í gamla bænum á Sauðárkróki
14.
Körfuboltavöllur í Fljótum
15.
Skólahreystibrautir við grunnskólana í Skagafirði
16.
Bekkir á þéttbýlisstöðum í Skagafirði
Byggðarráð þakkar Kaupfélagi Skagfirðinga kærlega fyrir ómetanlegt framlag til samfélagsins og það góða samstarf sem hefur verið um framgang verkefnanna. Jafnframt vill byggðarráð koma á framfæri kærum þökkum til verkefnisstjórnarinnar fyrir gott starf.