Verkefnisstjórn samfélagssjóðs Kaupfélags Skagfirðinga, þau Herdís Sæmundsdóttir, Sigfús Ingi Sigfússon, Álfhildur Leifsdóttir og Friðbjörn Ásbjörnsson sátu fundinn undir þessum lið. Einar E. Einarsson fulltrúi Framsóknarflokks í byggðarráði, á auk framangreindra, sæti í verkefnisstjórninni.
Á árinu 2021 samþykkti stjórn Kaupfélags Skagfirðinga að veita 200 milljónum króna til samfélagsverkefna í Skagafirði í samstarfi við sveitarfélagið Skagafjörð. Markmið sjóðsins er að styðja við verkefni sem til þess eru fallin að fegra umhverfið, gera ásýnd samfélagsins meira aðlaðandi og auka lífsgæði íbúa.
Verkefnisstjórnin fór yfir úthlutanir úr sjóðnum og stöðu þeirra verkefna.
Nú hefur Samfélagssjóður Kaupfélags Skagfirðinga lokið við úthlutun á þessum 200 milljónum króna til verkefna víðsvegar í Skagafirði í samstarfi við sveitarfélagið Skagafjörð.
Alls voru 16 verkefni valin og þau styrkt með misháum upphæðum eftir atvikum, en verkefnum þessum er ýmist lokið, þau í framkvæmd eða undirbúningur farinn af stað. Verkefnin eru eftirfarandi:
1. Gerð göngustíga og lýsing vítt og breitt í sveitarfélaginu
2. Endurgerð leikskólalóðar á Hólum í Hjaltadal
3. Aðstöðuhús við íþróttavöll í Varmahlíð
4. Bætt aðgengi að Bifröst á Sauðárkróki - lyfta, rampur og salerni
5. Körfuboltavöllur á Hofsósi
6. Endurbætur á aðstöðu við sundlaugina á Sólgörðum
7. Rennibrautir við Sundlaug Sauðárkróks
8. Lóðaframkvæmdir og leiktæki við leik- og grunnskólana á Hofsósi og í Varmahlíð
9. Lagfæringar á íþróttavelli í Varmahlíð
10. Frisbígolfvöllur í Varmahlíð
11. Battavöllur á Steinsstöðum
12. Nýr golfskáli við golfvöllinn á Sauðárkróki
13. Styrkur vegna undirbúnings endurbóta og uppbyggingar í gamla bænum á Sauðárkróki
14. Körfuboltavöllur í Fljótum
15. Skólahreystibrautir við grunnskólana í Skagafirði
16. Bekkir á þéttbýlisstöðum í Skagafirði
Byggðarráð þakkar Kaupfélagi Skagfirðinga kærlega fyrir ómetanlegt framlag til samfélagsins og það góða samstarf sem hefur verið um framgang verkefnanna. Jafnframt vill byggðarráð koma á framfæri kærum þökkum til verkefnisstjórnarinnar fyrir gott starf.
Á árinu 2021 samþykkti stjórn Kaupfélags Skagfirðinga að veita 200 milljónum króna til samfélagsverkefna í Skagafirði í samstarfi við sveitarfélagið Skagafjörð. Markmið sjóðsins er að styðja við verkefni sem til þess eru fallin að fegra umhverfið, gera ásýnd samfélagsins meira aðlaðandi og auka lífsgæði íbúa.
Verkefnisstjórnin fór yfir úthlutanir úr sjóðnum og stöðu þeirra verkefna.
Nú hefur Samfélagssjóður Kaupfélags Skagfirðinga lokið við úthlutun á þessum 200 milljónum króna til verkefna víðsvegar í Skagafirði í samstarfi við sveitarfélagið Skagafjörð.
Alls voru 16 verkefni valin og þau styrkt með misháum upphæðum eftir atvikum, en verkefnum þessum er ýmist lokið, þau í framkvæmd eða undirbúningur farinn af stað. Verkefnin eru eftirfarandi:
1.
Gerð göngustíga og lýsing vítt og breitt í sveitarfélaginu
2.
Endurgerð leikskólalóðar á Hólum í Hjaltadal
3.
Aðstöðuhús við íþróttavöll í Varmahlíð
4.
Bætt aðgengi að Bifröst á Sauðárkróki - lyfta, rampur og salerni
5.
Körfuboltavöllur á Hofsósi
6.
Endurbætur á aðstöðu við sundlaugina á Sólgörðum
7.
Rennibrautir við Sundlaug Sauðárkróks
8.
Lóðaframkvæmdir og leiktæki við leik- og grunnskólana á Hofsósi og í Varmahlíð
9.
Lagfæringar á íþróttavelli í Varmahlíð
10.
Frisbígolfvöllur í Varmahlíð
11.
Battavöllur á Steinsstöðum
12.
Nýr golfskáli við golfvöllinn á Sauðárkróki
13.
Styrkur vegna undirbúnings endurbóta og uppbyggingar í gamla bænum á Sauðárkróki
14.
Körfuboltavöllur í Fljótum
15.
Skólahreystibrautir við grunnskólana í Skagafirði
16.
Bekkir á þéttbýlisstöðum í Skagafirði