Fara í efni

Samstarf um uppbyggingu leigumarkaðar í Skagafirði

Málsnúmer 2604050

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 190. fundur - 17.04.2026

Lagt fram yfirlit yfir íbúðir í eigu Skagafjarðar ásamt drögum að viljayfirlýsingu Leigufélagsins Bríetar og Skagafjarðar um kaup Bríetar á íbúðum Skagafjarðar í skiptum fyrir hlutafé í Leigufélaginu Bríet, ásamt skuldbindingu leigufélagsins um að byggja upp leiguíbúðir á Sauðárkróki, Hofsósi, í Varmahlíð og í Fljótum. Samhliða þeirri skuldbindingu hafa aðilar komið sér saman um forleigurétt Skagafjarðar á leigueignum í Skagafirði í eigu Bríetar til handa einstaklinga sem á þurfa að halda vegna félagslegra aðstæðna.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

Byggðarráð Skagafjarðar - 191. fundur - 22.04.2026

Mál áður á dagskrá 190. fundar byggðarráðs þann 17. apríl sl.

Fyrir fundinn var lagt fram yfirlit yfir íbúðir í eigu Skagafjarðar ásamt drögum að viljayfirlýsingu Leigufélagsins Bríetar og Skagafjarðar um kaup Bríetar á íbúðum Skagafjarðar í skiptum fyrir hlutafé í Leigufélaginu Bríeti, ásamt skuldbindingu leigufélagsins um að byggja upp leiguíbúðir á Sauðárkróki, Hofsósi, í Varmahlíð og í Fljótum. Samhliða þeirri skuldbindingu hafa aðilar komið sér saman um forleigurétt Skagafjarðar á leigueignum í Skagafirði í eigu Bríetar til handa einstaklinga sem á þurfa að halda vegna félagslegra aðstæðna. Viljayfirlýsingin er háð fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar og stjórnar Bríetar, samþykki hluthafafundar Bríetar vegna aukningar hlutafjár, fjármögnun viðskiptanna, ásamt því að uppbygging íbúða er háð þeim fyrirvara að samningar náist við byggingaraðila þannig að tryggt sé að byggingarkostnaður sé í takt við rekstrarhæfi íbúða að uppbyggingu lokinni.

Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að viljayfirlýsingun með áorðnum breytingum fyrir sitt leyti og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar. Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs gerð viðauka vegna málsins.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 48. fundur - 22.04.2026

Vísað frá 191. fundi byggðarráðs frá því fyrr í dag, þannig bókað:
"Mál áður á dagskrá 190. fundar byggðarráðs þann 17. apríl sl.

Fyrir fundinn var lagt fram yfirlit yfir íbúðir í eigu Skagafjarðar ásamt drögum að viljayfirlýsingu Leigufélagsins Bríetar og Skagafjarðar um kaup Bríetar á íbúðum Skagafjarðar í skiptum fyrir hlutafé í Leigufélaginu Bríeti, ásamt skuldbindingu leigufélagsins um að byggja upp leiguíbúðir á Sauðárkróki, Hofsósi, í Varmahlíð og í Fljótum. Samhliða þeirri skuldbindingu hafa aðilar komið sér saman um forleigurétt Skagafjarðar á leigueignum í Skagafirði í eigu Bríetar til handa einstaklinga sem á þurfa að halda vegna félagslegra aðstæðna. Viljayfirlýsingin er háð fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar og stjórnar Bríetar, samþykki hluthafafundar Bríetar vegna aukningar hlutafjár, fjármögnun viðskiptanna, ásamt því að uppbygging íbúða er háð þeim fyrirvara að samningar náist við byggingaraðila þannig að tryggt sé að byggingarkostnaður sé í takt við rekstrarhæfi íbúða að uppbyggingu lokinni.

Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að viljayfirlýsingun með áorðnum breytingum fyrir sitt leyti og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar. Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs gerð viðauka vegna málsins."

Fyrirliggjandi drög að viljayfirlýsingu borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.

Byggðarráð Skagafjarðar - 192. fundur - 29.04.2026

Mál áður á dagskrá 191. fundi byggðarráðs þann 22. apríl sl. Áður hafði byggðarráð og sveitarstjórn staðfest viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu leigumarkaðar í Skagafirði. Stjórn Bríetar hefur lagt til smávægilegar breytingar á orðalagi viljayfirlýsingarinnar sem lagðar voru fyrir byggðarráð.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu með áorðnum breytingum.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 49. fundur - 19.05.2026

Mál áður á dagskrá 48. fundar sveitarstjórar þann 22. apríl sl.

Fyrir fundinum liggur undirrituð viljayfirlýsing sveitarfélagsins Skagafjarðar og Leigufélagsins Bríetar ehf. um samstarf í uppbyggingu leigumarkaðar í Skagafirði. Í viljayfirlýsingunni lýsir Skagafjörður yfir að sveitarfélagið leggi inn íbúðir í eigu félagslegra leiguíbúða Skagafjarðar og eignasjóðs Skagafjarðar inn í Leigufélagið Bríet ehf. gegn eignarhluti í félaginu. Skagafjörður skal þó hafa forgangsrétt til að vísa leigjendum í íbúðirnar sem renna inn í Leigufélagið Bríet ehf. Leigufélagið Bríet ehf. lýsir yfir að félagið skuldbindi sig til að hefja byggingu leiguíbúða á Hofsósi og Sauðárkróki á þessu ári og í framhaldi af því byggingu leiguíbúða í Varmahlíð og í Fljótunum.

Jafnframt liggur fyrir fundinum undirritaður samningur milli Skagafjarðar og Leifufélagsins Bríetar ehf. um framsal íbúða sveitarfélagsins Skagafjarðar til Leigufélagsins Bríetar ehf. þar sem nánar er útfært fyrirkomulag við framkvæmd ofangreindrar viljayfirlýsingar.

Sveinn Þ. Finster Úlfarsson og Sigfús Ingi Sigfússon kvöddu sér hljóðs.

Framlögð viljayfirlýsing og framlagður samningur borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.