Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

191. fundur 22. apríl 2026 kl. 13:10 - 14:19 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Guðlaugur Skúlason formaður
  • Einar Eðvald Einarsson varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar fór formaður þess á leit við fundarmenn að mál 2601230 - "Staðarbjargavík framkvæmdir 2026" og 2604120 - "Menningarhúsið Miðgarður 2140833 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi" verði tekin á dagskrá fundarins með afbrigðum. Samþykkt samhljóða.

1.Samstarf um uppbyggingu leigumarkaðar í Skagafirði

Málsnúmer 2604050Vakta málsnúmer

Mál áður á dagskrá 190. fundar byggðarráðs þann 17. apríl sl.

Fyrir fundinn var lagt fram yfirlit yfir íbúðir í eigu Skagafjarðar ásamt drögum að viljayfirlýsingu Leigufélagsins Bríetar og Skagafjarðar um kaup Bríetar á íbúðum Skagafjarðar í skiptum fyrir hlutafé í Leigufélaginu Bríeti, ásamt skuldbindingu leigufélagsins um að byggja upp leiguíbúðir á Sauðárkróki, Hofsósi, í Varmahlíð og í Fljótum. Samhliða þeirri skuldbindingu hafa aðilar komið sér saman um forleigurétt Skagafjarðar á leigueignum í Skagafirði í eigu Bríetar til handa einstaklinga sem á þurfa að halda vegna félagslegra aðstæðna. Viljayfirlýsingin er háð fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar og stjórnar Bríetar, samþykki hluthafafundar Bríetar vegna aukningar hlutafjár, fjármögnun viðskiptanna, ásamt því að uppbygging íbúða er háð þeim fyrirvara að samningar náist við byggingaraðila þannig að tryggt sé að byggingarkostnaður sé í takt við rekstrarhæfi íbúða að uppbyggingu lokinni.

Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að viljayfirlýsingun með áorðnum breytingum fyrir sitt leyti og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar. Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs gerð viðauka vegna málsins.

2.Viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2604067Vakta málsnúmer

Álfhildur Leifsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Lögð fram beiðni um gerð viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Fyrir liggur rekstrarviðauki þar sem breytingar í framlagðri beiðni gera ráð fyrir aukningu útgjalda um kr. 5.117.015. Helstu breytur eru tímabundin aukning um hálft stöðugildi á málaflokki 21, útvistun þjónustu skiptiborðs og hækkun styrks til Alþýðulistar. Niðurstaðan er lækkun á handbæru fé um sömu fjárhæð, kr. 5.117.015.

Jafnframt er efnahagsviðauki að fjárhæð kr. 5.000.000 til kaupa á lyftara í nýtt áhaldahús Skagafjarðaveitna. Jafnframt eru kr. 105.000.000 fluttar frá byggingu mötuneytisbyggingar við Grunnskólann austan Vatna yfir í hönnun og byggingu íþróttamannvirkja við Grunnskólann austan Vatna.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða beiðni um viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2026 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Tillaga um tímabundna lækkun gjaldskráa í A-hluta

Málsnúmer 2604052Vakta málsnúmer

Mál áður á dagskrá 190. fundar byggðarráðs þann 17. apríl sl. Samþykkt var breytingartillaga fulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks þess efnis að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að taka saman upplýsingar um hvernig 0,2%-0,3% lækkun almennra gjaldskráa kemur út fyrir íbúa Skagafjarðar. Eins að leggja mat á vinnu sem þarf að inna af hendi af hálfu starfsmanna Skagafjarðar við að uppfæra og breyta gjaldskrám og bera þær til samþykktar í gegnum stjórnkerfi nefnda og sveitarstjórnar.

Fyrir liggur að verði farin sú leið að tryggja að hækkanir gjaldskráa fari ekki fram úr 2,5% á árs grundvelli mun það leiða til raunlækkunar gjaldskráa um 0,3% eða 3 krónur á hverjar 1.000 krónur. Sem dæmi má nefna að leikskólagjald fyrir eitt barn, sem nemur tæplega 40.000 krónum á mánuði, myndi það lækka reikninginn um 120 krónur.

Verði ráðist í þessa vinnu þarf að uppfæra alls 22 gjaldskrár. Möguleiki er á að samþykkja allar breytingar með einni sameiginlegri ákvörðun í byggðarráði og í framhaldi í sveitarstjórn, svokölluðum bandormi. Að þeirri afgreiðslu lokinni yrði þó nauðsynlegt að ráðast í handavinnu við útreikning og uppfærslu hverrar gjaldskrár fyrir sig. Umfang þeirrar vinnu er áætlað um 30-35 klukkustundir.

Af þessum 22 gjaldskrám þurfa 7 að birtast í Stjórnartíðindum. Birting þar kostar 9.000 kr. í lágmarksgjald fyrir hverja gjaldskrá. Að auki greiðast 2 krónur fyrir hvert stafabil umfram fyrstu 1.000 stafabil. Hver gjaldskrá þarf að handslá inn í vefform Stjórnartíðinda. Áætlað er að vinna við umsýslu og birtingu þessara gjaldskráa taki um 10 klukkustundir.

Til viðbótar er áætluð 8-10 klst. vinna við uppfærslu gjaldskráa á heimasíðu Skagafjarðar. Samtals er því áætlað vinnuálag vegna lækkunar gjaldskráa í A-hluta nemi 48-55 klukkustundum.

Vert er að benda á að síðastliðin fimm ár hefur í reynd verið niðurskurður í rekstri Skagafjarðar. Gjaldskrárhækkanir hafa verið mjög hóflegar og árin 2022-2025 voru þær alla tíð undir raunverðbólgu. Í gjaldskrám og fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 er miðað við 2,7% hækkun, sem samkvæmt bestu vitneskju sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs er lægsta gjaldskrárhækkun meðal sveitarfélaga á landinu og deilir Skagafjörður þeirri stöðu með einu öðru sveitarfélagi.

Samkvæmt hagspá Landsbanka Íslands, sem birt var 17. apríl sl., er gert ráð fyrir 4,8% raunverðbólgu árið 2026. Gangi sú spá eftir þýðir það að verðlagsþróun verði um 2,1% umfram gjaldskrárhækkanir sveitarfélagsins. Það er því mat sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að sveitarfélagið hafi sýnt bæði aðhald og hófsemi í gjaldskrárhækkunum undanfarin ár.

Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks telur að út frá fyrirliggjandi upplýsingum sem koma fram hér að ofan ásamt þeirri staðreynd að farið hefur verið varlega í gjaldskrárhækkanir síðustu ára hjá Skagafirði, er ljóst að áhrif tillögunnar fyrir íbúa yrðu óverulegar miðað við 0,2 ? 0,3 prósent lækkun. Að auki fylgir svona breytingum mikill kostnaður sem sveitarfélagið þarf að leggja út til að koma þeim í gegn. Sjáum við því ekki ástæðu að fara í umbeðnar gjaldskrárbreytingar.

Jóhanna Ey Harðardaóttir fulltrúi Byggðalista óskar bókað:
"Að framan greindum upplýsingum tel ég ekki rétt að lækka gjaldskrár tímabundið um 2,7% að svo stöddu, miðað við umfang framkvæmdarinnar tel ég réttara að halda gjaldskráhækkunum hólflegum eftir fremsta megni við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs nú á komandi mánuðum."

Álfhildur Leifsdóttir fulltrúi VG og óháðra óskar bókað:
"Fulltrúar VG og óháðra harma að tillaga um tímabundna lækkun gjaldskrár í A-hluta hafi verið felld. Á sama tíma og rekstur sveitarfélagsins er sterkur og svigrúm til staðar, er ákveðið að nýta það ekki til að létta undir með íbúum sem finna fyrir auknum framfærslukostnaði. Gjaldskrár í A-hluta hafa bein áhrif á daglegt líf fólks, ekki síst barnafjölskyldna. Hækkun hefur áhrif á fólk og má því ætla að lækkun geri það líka þó ekki séu þetta endilega stórar fjárhæðir í hverri gjaldskrá fyrir sig, en safnast þegar saman kemur. Meirihluti hefur í ræðu og riti lagt áherslu á góðan rekstur sveitarfélagsins og því hefði verið eðlilegt að skila hluta þess svigrúms sem hefur myndast, til baka til íbúa."

4.Aðalfundur Landskerfi bókasafna hf 2026

Málsnúmer 2604095Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Landskerfi bókasafna hf. dagsett 17. apríl 2026. Í bréfinu er boðað til aðalfundar Landskerfis bókasafna hf. þriðjudaginn 12. maí, kl. 14:00. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum félagsins að Katrínartúni 4, jarðhæð, 105 Reykjavík.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela Kristínu Sigurrósu Einarsdóttur, héraðsbókaverði Héraðsbókasafns Skagfirðinga, að fara með atkvæðisrétt Skagafjarðar á fundinum.

5.Staðarbjargavík framkvæmdir 2026

Málsnúmer 2601230Vakta málsnúmer

Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum lið.

Lögð fram opnunarskýrsla vegna útboðs fyrir tröppur og palla í Staðabjargavík á Hofsósi. Fram komu tvö tilboð sem bæði eru yfir kostnaðaráætlun, lægra tilboðið er 130,6% af kostnaðaráætlun.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafna báðum tilboðum og felur sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að undirbúa útboð með breyttu sniði.

6.Menningarhúsið Miðgarður 2140833 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi

Málsnúmer 2604120Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni úr máli 2026-028981, dagsett 21. apríl 2026 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Tenor slf., kt. 650111-0520, Hólabrekku, 561 Varmahlíð um leyfi til reksturs Gististaðir í Flokki III - D Gistiskáli í Menningarhúsinu Miðgarði, F214-0833, 560 Varmahlíð fyrir allt að 130 gesti.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við umsóknina fyrir sitt leyti.

7.Útboð á losun rotþróa

Málsnúmer 2406054Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar niðurstaða útboðs á hreinsun rotþróa sem unnið var af Consensa fyrir Húnaþing vestra, Húnabyggð og Skagafjörð. Tilboð lægstbjóðanda er 80% af kostnaðaráætlun.

8.Sorpmóttaka á Hofsósi 2. áfangi - uppbygging svæðis

Málsnúmer 2601222Vakta málsnúmer

Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum lið.

Lögð fram til kynningar niðurstaða útboðs á frágangi svæðis við sorpmóttöku á Hofsósi. Fimm tilboð bárust og átti Steypustöð Skagafjarðar ehf. lægsta tilboðið í verkið sem var 94,4% af kostnaðaráætlun frá Stoð verkfræðistofu.

Fundi slitið - kl. 14:19.