Menningarhúsið Miðgarður 2140833 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi
Málsnúmer 2604120
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 84. fundur - 30.04.2026
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 21. apríl 2026 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli nr. 2026-028981. Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Snorra Snorrasonar f.h. Tenors slf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki III - D Gistiskáli í Menningarhúsinu Miðgarði, Varmahlíð, fasteignanúmer F2140833. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við umsóknina fyrir sitt leyti.