Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
Álfhildur Leifsdóttir sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.
1.Trúnaðarbók byggðarráðs
Málsnúmer 2412006Vakta málsnúmer
Fært í trúnaðarbók.
2.Samstarf um uppbyggingu leigumarkaðar í Skagafirði
Málsnúmer 2604050Vakta málsnúmer
Lagt fram yfirlit yfir íbúðir í eigu Skagafjarðar ásamt drögum að viljayfirlýsingu Leigufélagsins Bríetar og Skagafjarðar um kaup Bríetar á íbúðum Skagafjarðar í skiptum fyrir hlutafé í Leigufélaginu Bríet, ásamt skuldbindingu leigufélagsins um að byggja upp leiguíbúðir á Sauðárkróki, Hofsósi, í Varmahlíð og í Fljótum. Samhliða þeirri skuldbindingu hafa aðilar komið sér saman um forleigurétt Skagafjarðar á leigueignum í Skagafirði í eigu Bríetar til handa einstaklinga sem á þurfa að halda vegna félagslegra aðstæðna.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

3.Ársfundur Brák íbúðafélag hses
Málsnúmer 2604059Vakta málsnúmer
Lagt fram fundarboð þar sem stjórn Brákar íbúðafélags hses. boðar til ársfundar sem haldinn verður þriðjudaginn 28. apríl 2026 kl. 12:00. Atkvæðisrétt hafa skipaðir fulltrúar stofnaðilasveitarfélaga. Stjórn og fulltrúaráð hefur seturétt á fundinum og hann er opin öllum samkvæmt samþykktum Brákar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að fara með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á fundinum.

4.Uppbygging hjúkrunarrýma á Sauðárkróki
Málsnúmer 2604054Vakta málsnúmer
Lögð er fram fyrirspurn Sigfúsar Inga Sigfússonar, sveitarstjóra Skagafjarðar, annars vegar til forstjóra Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, dagsett 16. mars 2026, og hins vegar til ráðherra mennta- og barnamála, dagsett 8. apríl 2026, um uppbyggingu hjúkrunarrýma í kjölfar frétta um að 146 af um 900 nýjum hjúkrunarrýmum á landsvísu verði byggð á Norðurlandi. Fyrirspurnin beinist að því hversu mörg rými séu fyrirhuguð á Sauðárkróki.
Jafnframt liggur fyrir svar Ásdísar Höllu Bragadóttur, ráðuneytisstjóra mennta- og barnamálaráðuneytisins, dagsett 14. apríl 2026, þar sem staðfest er að engin uppbygging hjúkrunarrýma sé fyrirhuguð á Sauðárkróki í gildandi áætlunum ríkisstjórnarinnar.
Byggðarráð Skagafjarðar lýsir verulegri óánægju með að í framkvæmdaáætlun ríkisins um uppbyggingu hjúkrunarheimila 2026-2030 sé ekki gert ráð fyrir nýjum hjúkrunarrýmum á Sauðárkróki, þrátt fyrir umfangsmikla uppbyggingu á landsvísu og á Norðurlandi. Hér hafa jafnframt verið biðlistar um dvöl á hjúkrunarrýmum nokkuð reglulega í gegnum tíðina þó staðan sé ásættanlega í dag.
Byggðarráð telur því brýna þörf á fjölgun hjúkrunarrýma á Sauðárkróki í ljósi aldurssamsetningar íbúa, fyrirsjáanlegrar fjölgunar eldra fólks og stöðu Norðurlands hvað varðar langan biðtíma eftir hjúkrunarrýmum. Þá uppfylla hluti núverandi rýma ekki nútímakröfur, m.a. vegna tvíbýla og ófullnægjandi aðstöðu og er sú staða engan veginn boðleg Við leggjum því mikla áherslu að samhliða byggingu nýrra dvalarrýma verði ráðist í endurbætur þannig að öll rými verði sérbýli og aðstaða uppfærð í samræmi við gildandi kröfur og sjónarmið um mannúðlega umönnun.
Byggðarráð telur ósanngjarnt og óásættanlegt að Sauðárkrókur og Skagafjörður, sem eitt stærsta þjónustusvæði á Norðurlandi utan Akureyrar, njóti ekki hlutdeildar í fyrirhugaðri uppbyggingu. Slík ráðstöfun gengur gegn markmiðum um jafnræði í þjónustu, byggðafestu og eflingu heilbrigðis- og velferðarþjónustu á landsbyggðinni.
Byggðarráð skorar á ríkisstjórnina, mennta- og barnamálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið að endurskoða áætlunina án tafar, hefja frumathugun og tryggja að Sauðárkrókur verði hluti af næstu áföngum uppbyggingar hjúkrunarrýma, bæði hvað varðar ný rými og nauðsynlegar endurbætur á núverandi aðstöðu.

5.27. Unglingalandsmót UMFÍ 2026
Málsnúmer 2412122Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að þríhliða samstarfssamningi Skagafjarðar, UMSS og UMFÍ um að halda unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina dagana 30. júlí - 3. ágúst 2026.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan samstarfssamning um unglingalandsmót 2026 og felur sveitarstjóra að undirrita hann fyrir hönd Skagafjarðar. Áætlaður kostnaður Skagafjarðar við mótshaldið er ráðgert um 7,6 milljónir króna.
Byggðarrráð samþykkir samninginn samhljóða og felur sveitarstjóra undirritun hans.

6.Tillaga um tímabundna lækkun gjaldskráa í A-hluta
Málsnúmer 2604052Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga frá Álfhildi Leifsdóttur, fulltrúa VG og óháðra, dagsett 13. apríl 2026, svohljóðandi:
"Fulltrúar VG og óháðra leggja til að byggðarráð Skagafjarðar samþykki tímabundna lækkun gjaldskráa í A-hluta sveitarfélagsins um 2,7% til loka árs 2026, með það að markmiði að styðja við verðbólgumarkmið og létta undir með heimilum í sveitarfélaginu.
Greinargerð:
Það er fagnaðarefni að rekstur sveitarfélagsins sé það sterkur og ábyrgur að svigrúm skapist til að létta álögur á íbúa án þess að það komi niður á framkvæmdagetu eða uppbyggingu sveitarfélagsins. Við síðustu áramót voru gjaldskrár sveitarfélagsins sem tilheyra A-hluta, almennt hækkaðar um 2,7% í samræmi við verðlagsþróun. Þegar hefur álagning A-flokks fasteignagjalda lækkað úr 0,47% í 0,435% milli ára og eins hafa sorpgjöld lækkað um 9% milli ára. Það er gleðilegt þegar hægt er að ná fram hagræðingu og skilvirkni í rekstri sem skilar sér beint til íbúa.
VG og óháð telja að sveitarfélagið hafi svigrúm til að halda áfram á sömu braut og beita markvissum aðgerðum til að styðja bæði við heimilin og verðbólgumarkmið. A-hluti sveitarfélagsins snýr að grunnþjónustu við íbúa og gjaldskrár innan þess hluta hafa bein áhrif á daglegt líf, sérstaklega hjá barnafjölskyldum. Nú þegar rekstrarstaða sveitarfélagsins er sterk er eðlilegt að horfa til þess að skila hluta þess svigrúms til baka til íbúa."
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks leggja fram eftirfarandi breytingartillögu:
"Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks þakka jákvæð orð af hálfu VG- og óháðra um góðan rekstur og sterka fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins. Það er rétt að almennar gjaldskrár í Skagafirði voru einungis hækkaðar um 2,7% um síðustu áramót og var sú hækkun langt undir hækkunum flestra annarra sveitarfélaga á Íslandi og ríkisins, sem hækkaði margar af sínum gjaldskrám verulega mikið um síðustu áramót. Sú forsenda sem við lögðum upp með í fjárhagsáætlunargerðinni, að hækka okkar gjaldskrár einungis um 2,7% var jafnframt samþykkt samhljóða í bæði byggðarráði og sveitarstjórn af fulltrúum allra flokka. Með þessari lágmarkshækkun, ásamt lækkun á álagningarstuðli fyrir A-flokk fasteignagjalda, lækkun sorpgjalda og fleiri aðgerða til að sporna við verðbólgu og þenslu í þjóðfélaginu, teljum við að við höfum sýnt mikla viðleitni í að draga úr álögum á íbúa Skagafjarðar.
Að þessu sögðu tökum við jákvætt í erindið og leggjum fram þá breytingartillögu að sveitarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs verði falið að taka saman upplýsingar um hvernig 0,2%-0,3% lækkun almennra gjaldskráa kemur út fyrir íbúa Skagafjarðar. Eins að leggja mat á vinnu sem þarf að inna af hendi af hálfu starfsmanna Skagafjarðar við að uppfæra og breyta gjaldskrám og bera þær til samþykktar í gegnum stjórnkerfi nefnda og sveitarstjórnar."
Byggðarráð samþykkir breytingartillöguna og felur sveitarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að afla umbeðinna gagna fyrir næsta fund byggðarráðs.

7.Gervigreindarstefna Skagafjarðar
Málsnúmer 2603289Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að stefnu um hagnýtingu gervigreindar í starfsemi Skagafjarðar ásamt reglum um ábyrga notkun gervigreindarlausna. Tilgangur stefnunnar er að tryggja að notkun gervigreindar samræmist lögum, sé ábyrg, gegnsæ og bæti þjónustu sveitarfélagsins gagnvart bæði íbúum og starfsfólki. Mikilvægt er að nýta tæknina á ábyrgan hátt og er stefnunni jafnframt ætlað að minnka áhættu á gagnaleka eða ólögmætri vinnslu upplýsinga.
Byggðarráð samþykkir samhljóða stefnuna með áorðnum breytingum og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

8.Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna
Málsnúmer 2604053Vakta málsnúmer
Lagt fram bréf frá Umboðsmanni barna, dagsett 13. apríl 2026. Umboðsmaður barna hvetur sveitarfélög til að efla lýðræðislega þátttöku barna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 16. maí nk. Þar sem hefðbundnar krakkakosningar eru flóknar í framkvæmd fyrir sveitarstjórnarkosningar er lagt til að haldnir verði umræðufundir milli framboða og nemenda grunnskóla, auk þess sem sveitarfélög og ungmennaráð eru hvött til að standa fyrir krakkakosningum í samstarfi við skóla og nemendaráð. Óskað er eftir upplýsingum um hvort og með hvaða hætti sveitarfélagið hyggst bregðast við hvatningunni.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að vinna málið áfram.

9.Raunuppdráttur Túngötu 2
Málsnúmer 2603292Vakta málsnúmer
Túngata 2 Hofsósi. Landnúmer lóðar L146685, fasteignanúmer eignar F2143709.
Fyrir fundinum liggja gögn varðandi fyrirhugaða skiptingu hússins sem upphaflega er byggt sem dvalarheimili fyrir aldraða með fimm íbúðarrýmum auk þjónusturýma.
Framlagðir ófullgerðir uppdrættir dagsettir 30.01.2026 gerðir á Nýhönnun Ásvegi 12 Hvanneyri af Ómari Péturssyni byggingarfræðingi gera grein fyrir fyrirhugaðri skiptingu hússins í sjö séreignarhluta. Skráð byggingarár hússins er 1982. Í húsinu auk þessa er rými fyrir spennistöð rafveitu. Húsið er steinsteypt, þrjár hæðir, kjallari og tvær íbúðarhæðir.
Byggðarráð samþykkir samhljóða skiptingu hússins í sjö séreignarhluta sbr. framlögð gögn og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að sækja um þessar breytingar jafnframt því að láta vinna eignaskiptayfirlýsing á grundvelli laga nr. 26/1994.

10.Samráð; Reglugerð um talningu atkvæða
Málsnúmer 2604045Vakta málsnúmer
Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 73/2026, "Reglugerð um talningu atkvæða".
Umsagnarfrestur er til og með 15.04.2026.

Fundi slitið - kl. 14:37.