Fara í efni

Uppbygging hjúkrunarrýma á Sauðárkróki

Málsnúmer 2604054

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 190. fundur - 17.04.2026

Lögð er fram fyrirspurn Sigfúsar Inga Sigfússonar, sveitarstjóra Skagafjarðar, annars vegar til forstjóra Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, dagsett 16. mars 2026, og hins vegar til ráðherra mennta- og barnamála, dagsett 8. apríl 2026, um uppbyggingu hjúkrunarrýma í kjölfar frétta um að 146 af um 900 nýjum hjúkrunarrýmum á landsvísu verði byggð á Norðurlandi. Fyrirspurnin beinist að því hversu mörg rými séu fyrirhuguð á Sauðárkróki.

Jafnframt liggur fyrir svar Ásdísar Höllu Bragadóttur, ráðuneytisstjóra mennta- og barnamálaráðuneytisins, dagsett 14. apríl 2026, þar sem staðfest er að engin uppbygging hjúkrunarrýma sé fyrirhuguð á Sauðárkróki í gildandi áætlunum ríkisstjórnarinnar.

Byggðarráð Skagafjarðar lýsir verulegri óánægju með að í framkvæmdaáætlun ríkisins um uppbyggingu hjúkrunarheimila 2026-2030 sé ekki gert ráð fyrir nýjum hjúkrunarrýmum á Sauðárkróki, þrátt fyrir umfangsmikla uppbyggingu á landsvísu og á Norðurlandi. Hér hafa jafnframt verið biðlistar um dvöl á hjúkrunarrýmum nokkuð reglulega í gegnum tíðina þó staðan sé ásættanlega í dag.

Byggðarráð telur því brýna þörf á fjölgun hjúkrunarrýma á Sauðárkróki í ljósi aldurssamsetningar íbúa, fyrirsjáanlegrar fjölgunar eldra fólks og stöðu Norðurlands hvað varðar langan biðtíma eftir hjúkrunarrýmum. Þá uppfylla hluti núverandi rýma ekki nútímakröfur, m.a. vegna tvíbýla og ófullnægjandi aðstöðu og er sú staða engan veginn boðleg Við leggjum því mikla áherslu að samhliða byggingu nýrra dvalarrýma verði ráðist í endurbætur þannig að öll rými verði sérbýli og aðstaða uppfærð í samræmi við gildandi kröfur og sjónarmið um mannúðlega umönnun.

Byggðarráð telur ósanngjarnt og óásættanlegt að Sauðárkrókur og Skagafjörður, sem eitt stærsta þjónustusvæði á Norðurlandi utan Akureyrar, njóti ekki hlutdeildar í fyrirhugaðri uppbyggingu. Slík ráðstöfun gengur gegn markmiðum um jafnræði í þjónustu, byggðafestu og eflingu heilbrigðis- og velferðarþjónustu á landsbyggðinni.

Byggðarráð skorar á ríkisstjórnina, mennta- og barnamálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið að endurskoða áætlunina án tafar, hefja frumathugun og tryggja að Sauðárkrókur verði hluti af næstu áföngum uppbyggingar hjúkrunarrýma, bæði hvað varðar ný rými og nauðsynlegar endurbætur á núverandi aðstöðu.