Sveitarstjórn Skagafjarðar
1.Byggðarráð Skagafjarðar - 191
Málsnúmer 2604018FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 191 Mál áður á dagskrá 190. fundar byggðarráðs þann 17. apríl sl.
Fyrir fundinn var lagt fram yfirlit yfir íbúðir í eigu Skagafjarðar ásamt drögum að viljayfirlýsingu Leigufélagsins Bríetar og Skagafjarðar um kaup Bríetar á íbúðum Skagafjarðar í skiptum fyrir hlutafé í Leigufélaginu Bríeti, ásamt skuldbindingu leigufélagsins um að byggja upp leiguíbúðir á Sauðárkróki, Hofsósi, í Varmahlíð og í Fljótum. Samhliða þeirri skuldbindingu hafa aðilar komið sér saman um forleigurétt Skagafjarðar á leigueignum í Skagafirði í eigu Bríetar til handa einstaklinga sem á þurfa að halda vegna félagslegra aðstæðna. Viljayfirlýsingin er háð fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar og stjórnar Bríetar, samþykki hluthafafundar Bríetar vegna aukningar hlutafjár, fjármögnun viðskiptanna, ásamt því að uppbygging íbúða er háð þeim fyrirvara að samningar náist við byggingaraðila þannig að tryggt sé að byggingarkostnaður sé í takt við rekstrarhæfi íbúða að uppbyggingu lokinni.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að viljayfirlýsingun með áorðnum breytingum fyrir sitt leyti og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar. Byggðarráð felur sveitarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs gerð viðauka vegna málsins. Bókun fundar Mál tekið með afbrigðum á dagskrá 48. fundar sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 22. apríl 2026 og afgreitt á þeim fundi. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 191 Álfhildur Leifsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Lögð fram beiðni um gerð viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Fyrir liggur rekstrarviðauki þar sem breytingar í framlagðri beiðni gera ráð fyrir aukningu útgjalda um kr. 5.117.015. Helstu breytur eru tímabundin aukning um hálft stöðugildi á málaflokki 21, útvistun þjónustu skiptiborðs og hækkun styrks til Alþýðulistar. Niðurstaðan er lækkun á handbæru fé um sömu fjárhæð, kr. 5.117.015.
Jafnframt er efnahagsviðauki að fjárhæð kr. 5.000.000 til kaupa á lyftara í nýtt áhaldahús Skagafjarðaveitna. Jafnframt eru kr. 105.000.000 fluttar frá byggingu mötuneytisbyggingar við Grunnskólann austan Vatna yfir í hönnun og byggingu íþróttamannvirkja við Grunnskólann austan Vatna.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða beiðni um viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2026 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Mál tekið með afbrigðum á dagskrá 48. fundar sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 22. apríl 2026 og afgreitt á þeim fundi. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 191 Mál áður á dagskrá 190. fundar byggðarráðs þann 17. apríl sl. Samþykkt var breytingartillaga fulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks þess efnis að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að taka saman upplýsingar um hvernig 0,2%-0,3% lækkun almennra gjaldskráa kemur út fyrir íbúa Skagafjarðar. Eins að leggja mat á vinnu sem þarf að inna af hendi af hálfu starfsmanna Skagafjarðar við að uppfæra og breyta gjaldskrám og bera þær til samþykktar í gegnum stjórnkerfi nefnda og sveitarstjórnar.
Fyrir liggur að verði farin sú leið að tryggja að hækkanir gjaldskráa fari ekki fram úr 2,5% á árs grundvelli mun það leiða til raunlækkunar gjaldskráa um 0,3% eða 3 krónur á hverjar 1.000 krónur. Sem dæmi má nefna að leikskólagjald fyrir eitt barn, sem nemur tæplega 40.000 krónum á mánuði, myndi það lækka reikninginn um 120 krónur.
Verði ráðist í þessa vinnu þarf að uppfæra alls 22 gjaldskrár. Möguleiki er á að samþykkja allar breytingar með einni sameiginlegri ákvörðun í byggðarráði og í framhaldi í sveitarstjórn, svokölluðum bandormi. Að þeirri afgreiðslu lokinni yrði þó nauðsynlegt að ráðast í handavinnu við útreikning og uppfærslu hverrar gjaldskrár fyrir sig. Umfang þeirrar vinnu er áætlað um 30-35 klukkustundir.
Af þessum 22 gjaldskrám þurfa 7 að birtast í Stjórnartíðindum. Birting þar kostar 9.000 kr. í lágmarksgjald fyrir hverja gjaldskrá. Að auki greiðast 2 krónur fyrir hvert stafabil umfram fyrstu 1.000 stafabil. Hver gjaldskrá þarf að handslá inn í vefform Stjórnartíðinda. Áætlað er að vinna við umsýslu og birtingu þessara gjaldskráa taki um 10 klukkustundir.
Til viðbótar er áætluð 8-10 klst. vinna við uppfærslu gjaldskráa á heimasíðu Skagafjarðar. Samtals er því áætlað vinnuálag vegna lækkunar gjaldskráa í A-hluta nemi 48-55 klukkustundum.
Vert er að benda á að síðastliðin fimm ár hefur í reynd verið niðurskurður í rekstri Skagafjarðar. Gjaldskrárhækkanir hafa verið mjög hóflegar og árin 2022-2025 voru þær alla tíð undir raunverðbólgu. Í gjaldskrám og fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 er miðað við 2,7% hækkun, sem samkvæmt bestu vitneskju sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs er lægsta gjaldskrárhækkun meðal sveitarfélaga á landinu og deilir Skagafjörður þeirri stöðu með einu öðru sveitarfélagi.
Samkvæmt hagspá Landsbanka Íslands, sem birt var 17. apríl sl., er gert ráð fyrir 4,8% raunverðbólgu árið 2026. Gangi sú spá eftir þýðir það að verðlagsþróun verði um 2,1% umfram gjaldskrárhækkanir sveitarfélagsins. Það er því mat sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að sveitarfélagið hafi sýnt bæði aðhald og hófsemi í gjaldskrárhækkunum undanfarin ár.
Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks telur að út frá fyrirliggjandi upplýsingum sem koma fram hér að ofan ásamt þeirri staðreynd að farið hefur verið varlega í gjaldskrárhækkanir síðustu ára hjá Skagafirði, er ljóst að áhrif tillögunnar fyrir íbúa yrðu óverulegar miðað við 0,2 ? 0,3 prósent lækkun. Að auki fylgir svona breytingum mikill kostnaður sem sveitarfélagið þarf að leggja út til að koma þeim í gegn. Sjáum við því ekki ástæðu að fara í umbeðnar gjaldskrárbreytingar.
Jóhanna Ey Harðardaóttir fulltrúi Byggðalista óskar bókað:
"Að framan greindum upplýsingum tel ég ekki rétt að lækka gjaldskrár tímabundið um 2,7% að svo stöddu, miðað við umfang framkvæmdarinnar tel ég réttara að halda gjaldskráhækkunum hólflegum eftir fremsta megni við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs nú á komandi mánuðum."
Álfhildur Leifsdóttir fulltrúi VG og óháðra óskar bókað:
"Fulltrúar VG og óháðra harma að tillaga um tímabundna lækkun gjaldskrár í A-hluta hafi verið felld. Á sama tíma og rekstur sveitarfélagsins er sterkur og svigrúm til staðar, er ákveðið að nýta það ekki til að létta undir með íbúum sem finna fyrir auknum framfærslukostnaði. Gjaldskrár í A-hluta hafa bein áhrif á daglegt líf fólks, ekki síst barnafjölskyldna. Hækkun hefur áhrif á fólk og má því ætla að lækkun geri það líka þó ekki séu þetta endilega stórar fjárhæðir í hverri gjaldskrá fyrir sig, en safnast þegar saman kemur. Meirihluti hefur í ræðu og riti lagt áherslu á góðan rekstur sveitarfélagsins og því hefði verið eðlilegt að skila hluta þess svigrúms sem hefur myndast, til baka til íbúa."
Bókun fundar Afgreiðsla 191. fundar byggðarráðs var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
VG og óháð ítreka bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"Fulltrúar VG og óháðra harma að tillaga um tímabundna lækkun gjaldskrár í A-hluta hafi verið felld. Á sama tíma og rekstur sveitarfélagsins er sterkur og svigrúm til staðar, er ákveðið að nýta það ekki til að létta undir með íbúum sem finna fyrir auknum framfærslukostnaði. Gjaldskrár í A-hluta hafa bein áhrif á daglegt líf fólks, ekki síst barnafjölskyldna. Hækkun hefur áhrif á fólk og má því ætla að lækkun geri það líka þó ekki séu þetta endilega stórar fjárhæðir í hverri gjaldskrá fyrir sig, en safnast þegar saman kemur. Meirihluti hefur í ræðu og riti lagt áherslu á góðan rekstur sveitarfélagsins og því hefði verið eðlilegt að skila hluta þess svigrúms sem hefur myndast, til baka til íbúa." -
Byggðarráð Skagafjarðar - 191 Lagt fram bréf frá Landskerfi bókasafna hf. dagsett 17. apríl 2026. Í bréfinu er boðað til aðalfundar Landskerfis bókasafna hf. þriðjudaginn 12. maí, kl. 14:00. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum félagsins að Katrínartúni 4, jarðhæð, 105 Reykjavík.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela Kristínu Sigurrósu Einarsdóttur, héraðsbókaverði Héraðsbókasafns Skagfirðinga, að fara með atkvæðisrétt Skagafjarðar á fundinum.
Bókun fundar Afgreiðsla 191. fundar byggðarráðs var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 191 Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum lið.
Lögð fram opnunarskýrsla vegna útboðs fyrir tröppur og palla í Staðabjargavík á Hofsósi. Fram komu tvö tilboð sem bæði eru yfir kostnaðaráætlun, lægra tilboðið er 130,6% af kostnaðaráætlun.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafna báðum tilboðum og felur sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að undirbúa útboð með breyttu sniði. Bókun fundar Afgreiðsla 191. fundar byggðarráðs var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 191 Lögð fram umsagnarbeiðni úr máli 2026-028981, dagsett 21. apríl 2026 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Tenor slf., kt. 650111-0520, Hólabrekku, 561 Varmahlíð um leyfi til reksturs Gististaðir í Flokki III - D Gistiskáli í Menningarhúsinu Miðgarði, F214-0833, 560 Varmahlíð fyrir allt að 130 gesti.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við umsóknina fyrir sitt leyti. Bókun fundar Afgreiðsla 191. fundar byggðarráðs var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 191 Lögð fram til kynningar niðurstaða útboðs á hreinsun rotþróa sem unnið var af Consensa fyrir Húnaþing vestra, Húnabyggð og Skagafjörð. Tilboð lægstbjóðanda er 80% af kostnaðaráætlun.
Bókun fundar Afgreiðsla 191. fundar byggðarráðs var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 191 Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum lið.
Lögð fram til kynningar niðurstaða útboðs á frágangi svæðis við sorpmóttöku á Hofsósi. Fimm tilboð bárust og átti Steypustöð Skagafjarðar ehf. lægsta tilboðið í verkið sem var 94,4% af kostnaðaráætlun frá Stoð verkfræðistofu. Bókun fundar Afgreiðsla 191. fundar byggðarráðs var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
2.Byggðarráð Skagafjarðar - 192
Málsnúmer 2604025FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 192 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 192. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 192 Einar E. Einarsson vék af fundinum við afgreiðslu þessa máls.
Á fundinum var lagt fram bréf dagsett 20. apríl 2026, frá sóknarnefnd Glaumbæjarkirkju. Í bréfinu fer sóknarnefnd þess á leit við byggðarráð að sveitarfélagið malbiki bílaplan Glaumbæjarkirkju sem gjöf í tilefni 100 ára afmælis kirkjunnar.
Byggðarráð óskar Glaumbæjarkirkju innilega til hamingju með 100 ára afmælið og samþykkir samhljóða að styðja sóknarnefndina um 1,5 m.kr. til framkvæmdarinnar. Styrkurinn greiðist út af lið 21890. Bókun fundar Einar E. Einarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Afgreiðsla 192. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með átta atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 192 Mál áður á dagskrá 191. fundi byggðarráðs þann 22. apríl sl. Áður hafði byggðarráð og sveitarstjórn staðfest viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu leigumarkaðar í Skagafirði. Stjórn Bríetar hefur lagt til smávægilegar breytingar á orðalagi viljayfirlýsingarinnar sem lagðar voru fyrir byggðarráð.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu með áorðnum breytingum. Bókun fundar Afgreiðsla 192. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 192 Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 595. mál - Loftslagslög.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 8. maí nk.
Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að styrkja ramma loftslagsmála og fagnar því að sett sé fram heildstæð endurskoðun laga um loftslagsmál með aukinni áherslu á markmiðasetningu, eftirfylgni og aðlögun að loftslagsbreytingum. Frumvarpið endurspeglar alþjóðlegar skuldbindingar Íslands og mikilvægi réttlátra umskipta. Byggðarráð telur þó að skoða þurfi frekar nokkur atriði áður en frumvarpið verður að lögum. Þar ber fyrst að nefna að í frumvarpinu eru gerðar ítarlegri og umfangsmeiri kröfur til sveitarfélaga um gerð loftslagsstefnu, losunarbókhald, árlegt mat á framgangi og gerð áhættumats og aðlögunaraðgerða. Byggðarráð telur ljóst að þetta feli í sér verulegan aukinn umsýslukostnað, sérstaklega fyrir lítil og meðalstór sveitarfélög með litla yfirbyggingu þar sem augljóst er að svo ríkar kröfur til stefnumótunar og greiningar skapi aukið vinnuálag í stjórnsýslu sveitarfélagsins sem eingöngu verði mætt með auknum stöðugildafjölda eða aðkeyptri ráðgjöf. Byggðarráð leggur ríka áherslu á að slík lögbundin verkefni verði fjármögnuð með skýrum hætti af hálfu ríkisins, í samræmi við meginreglur sveitarstjórnarréttar.
Vert er að benda á að frumvarpið leggur ríka áherslu á losun og kolefnisbindingu vegna landnotkunar. Mikilvægt er að skýrt verði í lögum eða reglugerð hver beri ábyrgð á aðgerðum tengdum landnotkun og að tryggt verði að slíkar aðgerðir séu fjármagnaðar af ríkinu, einkum þegar þær byggjast á almennum loftslagsmarkmiðum en ekki ákvörðunum sveitarfélaga sjálfra. Skagafjörður er landmikið sveitarfélag með mikla landbúnaðarstarfsemi og raunverulegt framlag til kolefnisbindingar. Í frumvarpinu er mikilvægi landnotkunar og skógræktar við kolefnisbindingu viðurkennt en ekki skilgreint nægilega vel hver ber ábyrgð, hvort það falli á sveitarfélagið, landeiganda eða ríkið. Slík óljós skil skapa áhættu að væntingar ríkisins um bindingu færist á sveitarfélagið, beint eða óbeint. Þá leggur byggðarráð einnig áherslu á að aðgerðir á landi kalli á sanngjarna hvata og fjármögnun.
Byggðarráð tekur undir mikilvægi aðlögunar að loftslagsbreytingum en bendir á að áhættumat og aðlögunaraðgerðir geta leitt til verulegra fjárútláta í framtíðinni. Mikilvægt er að ríkið taki skýra ábyrgð á samstarfi og fjármögnun slíkra aðgerða, sérstaklega þegar um er að ræða varnir og innviði sem þjóna almannaöryggi. Bókun fundar Afgreiðsla 192. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 192 Vísað frá 47. fundi fræðslunefndar þann 21. apríl sl., þannig bókað:
"Fundargerðir skólaráðs Árskóla frá 3. desember 2025, 11. febrúar 2026 og 4. mars 2026 lagðar fram til kynningar.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að vísa ályktun skólanefndar frá 5. nóvember 2025 til byggðarráðs."
Ályktun skólanefndar er svohljóðandi:
"Skólaráð lýsir áhyggjum sínum vegna styttingar á tímabili skólaaksturs innanbæjar á þessu skólaári. Styttingin hefur í för með sér aukna bílaumferð í kringum skólann sem getur skapað hættu fyrir gangandi umferð í myrkri eða slæmu skyggni og færð. Einnig má benda á að aukin bílaumferð hefur í för með sér stærra kolefnisspor."
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að vinna drög að mögulegum úrbótum til að auka öryggi vegfarenda í kringum sleppistæði við Árskóla. Bókun fundar Afgreiðsla 192. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 192 Lagðar fram til kynningar ábendingar sem borist hafa sveitarfélaginu á tímabilinu janúar til apríl 2026 ásamt viðbrögðum við innsendum ábendingum. Skagafjörður tekur við ábendingum í gegnum ábendingagátt á heimasíðu sveitarfélagsins eða með tölvupósti á skagafjordur@skagafjordur.is. Bókun fundar Afgreiðsla 192. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
3.Byggðarráð Skagafjarðar - 193
Málsnúmer 2605002FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 193 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 193. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 193 Lagður var fram tölvupóstur frá Erni Elíasi Guðmundssyni dagsettur 2. maí 2026. Örn Elías, betur þekktur sem Mugison, er að skipuleggja tónleikaferðalag um landið næsta sumar þar sem markmiðið er að spila á fallegum útivistarsvæðum svo sem í görðum, lautum, giljum og ströndum. Hann óskar eftir heimild landeiganda til viðburðarhalds 18. júlí nk. milli 15-16 og leggur fram tvær tillögur. Annars vegar í brekkunni til hliðar við Vesturfararsetrið eða á grasbalanum við hliðina Pakkhúsinu.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við að viðburðurinn verði haldinn í brekkunni til hliðar við Vesturfararsetrið, með fyrirvara um jákvæða umsögn forsvarsmanna Vesturfarasetursins. Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs er falið að afla umsagnar Vesturfarasetursins.
Bókun fundar Afgreiðsla 193. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 193 Lóðarleigusamningur frá 28.12. 1990 um lóðina Steinahlíð L146229 við Steinsstaðahverfi er útrunninn. Leigutaki hefur forleigurétt að hinni leigðu lóð að leigutíma loknum og óskar eftir áframhaldandi leigu hennar. Í gildandi aðalskipulagi Skagafjarðar er lóðin á skilgreindu frístundasvæði utan þéttbýlismarka Steinsstaða.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna að gerð nýs lóðarleigusamnings við leigutaka og að skilmálar umrædds lóðarleigusamnings verði sömu skilmálar og gilda um aðra nýlega samninga um lóðir á frístundasvæðum í sveitarfélaginu.
Bókun fundar Afgreiðsla 193. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 193 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 78/2026, "Breyting á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir". Umsagnarfrestur er til og með 13.05. 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 193. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 193 Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 79/2026, "Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Byggðastofnun". Umsagnarfrestur er til og með 30.06. 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 193. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
4.Byggðarráð Skagafjarðar - 194
Málsnúmer 2605004FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 194 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 194. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 194 Lögð fram beiðni um viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun ársins 2026.
Fyrir liggur rekstrarviðauki með nettó tekjuauka að fjárhæð 1.505 m.kr. Þar vegur þyngst söluhagnaður íbúða sem renna inn í Leigufélagið Bríet ehf. Samhliða þessu er óskað eftir auknu fjármagni til tímabundinnar aukningar stöðugilda við sundlaugina í Varmahlíð.
Einnig liggur fyrir efnahagsviðauki vegna sölu íbúða í eigu Eignasjóðs og Félagslegra íbúða Skagafjarðar til Leigufélagsins Bríetar ehf. Í því er sala fasteigna, greidd upp fasteignalán og hlutafé sem Skagafjörður eignast í Leigufélaginu Bríeti ehf.
Niðurstaðan er hækkun á handbæru fé um 491 m.kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða beiðni um viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2026 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2026, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 194 Lögð fram drög að samkomulagi á milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og íslenska ríkisins um fyrirkomulag lóða og innviða á Hólum í Hjaltadal. Samkvæmt samkomulaginu mun ríkið leggja til eingreiðslu til Skagafjarðar gegn yfirtöku sveitarfélagsins á rekstri og viðhaldi allra innviða þéttbýlis á Hólum, innan afmörkunar svæðis sem ríkið afsalar eignarhaldi til sveitarfélagsins. Skagafjörður skuldbindur sig jafnframt til að hefja endurbætur og viðhald á fráveituinnviðum svæðisins innan eins árs frá undirritun samkomulagsins og ljúka innan fimm ára.
Jafnframt er samkomulag um að ríkissjóður muni afsala til sveitarfélagsins eignarhaldi á jörðinni Nýrækt í Fljótum, þar sem sveitarfélagið áformar íbúðauppbyggingu. Undanskilið við sölu er hluti jarðarinnar sem fer undir breytta legu Siglufjarðarvegar vegna fyrirhugaðra Fljótaganga.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram og undirrita samkomulagið f.h. Skagafjarðar með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar. Byggðarráð samþykkir jafnframt samhljóða að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs gerð viðauka vegna málsins. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Eignarhald þéttbýlis á Hólum í Hjaltadal, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 194 Lögð fram drög að uppfærðum innkaupareglum og innkaupastefnu Skagafjarðar en lagðar eru til breytingar á viðmiðunarfjárhæðum til samræmis við gildandi lög og reglugerðir.
Byggðarráð samþykkir innkaupareglur og innkaupastefnu Skagafjarðar samhljóða með áorðnum breytingum og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Innkaupareglur og -stefna fyrir Skagafjörð, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 194 Vísað frá 44. fundi félagsmála- og tómstundanefndar, 7. maí 2026, þannig bókað:
"Félagsmála- og tómstundanefnd leggur til að mönnun verði aukin í sundlauginni í Varmahlíð sumarið 2026, þannig að opið verði frá 7:00-21:00 á virkum dögum.
Opnunartími sundlauga er að jafnaði ákveðinn við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert. Á 39. fundi félagsmála- og tómstundanefndar, þann 27. október síðastliðinn, var bókað að opnunartími væri ekki meitlaður í stein og mætti endurskoða þegar lægi fyrir hver eftirspurn og staða á mönnun væri.
Leiðtogi frístunda- og íþróttamála fór yfir stöðuna með nefndinni. Útlit er fyrir að það takist að manna áður samþykktan opnunartíma. Lenging á opnunartíma þýðir að 1,4 stöðugildi þarf til viðbótar við núverandi fjárhagsáætlun. Miðað við stöðuna á sumarafleysingum í öðrum málaflokkum verður að setja fyrirvara á að starfsfólk fáist til að sinna viðbótarvöktum sem verða til við lengingu opnunartíma.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að lengja opnunartíma í sundlauginni í Varmahlíð ef næst að manna 1,4 stöðugildi með fyrirvara um fjármögnun í viðauka. Vísað til byggðarráðs.
Jafnframt samþykkir nefndin samhljóða að fela starfsmönnum nefndarinnar að endurskoða opnunartíma í sundlaugum Skagafjarðar. Starfsmönnum er falið að skila minnisblaði með kostnaði og tillögu að breyttum opnunartíma og leggja fyrir á næsta fundi nefndarinnar."
Byggðarráð samþykkir samhljóða að lengja opnunartíma, þannig að opið verði frá 7:00-21:00 á virkum dögum í sundlauginni í Varmahlíð ef næst að manna 1,4 stöðugildi. Bókun fundar Afgreiðsla 194. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 194 Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu þar sem tilkynnt er að ráðuneytið hefur ákveðið að skipa starfshóp sem falið er það hlutverk að leggja fram tillögur að framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa landsins. Vinna starfshópsins byggir á fyrra samráði sem ráðuneytið hefur átt við sveitarfélög sem standa að náttúrustofum um endurskoðun á stjórnskipulagi náttúrustofanna. Samráð var einnig haft við Náttúrufræðistofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Markmið vinnu starfshópsins er að fyrir liggi tillögur sem tryggi markvissari ráðstöfun fjármuna, auki skýrleika um verkefni sem ríkið fjármagnar, bæti fyrirsjáanleika í rekstri náttúrustofa og tryggi varðveislu og aðgengi að gögnum. Bókun fundar Afgreiðsla 194. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
5.Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46
Málsnúmer 2604006FVakta málsnúmer
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni frá síðasta fundi.
Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.
Á síðasta fundi var samþykkt að taka fyrir erindi vegna listamanns Skagafjarðar ásamt ramma að menningarvitund. Ekki tókst að ljúka þeirri vinnu og þeim erindum því frestað til næsta fundar.
Nefndin þakkar fyrir yfirferðina.
Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir óskar bókað:
"Fulltrúar VG og óháðra vekja athygli á því að þessi tillaga um tilnefningu listamanns Skagafjarðar var sett fram af nefndarmanni okkar fyrir um ári síðan, en hefur allan þennan tíma ekki hlotið afgreiðslu og er afgreiðslu málsins ennþá frestað. Þetta getur ekki talist eðlileg stjórnsýsla. Það hlýtur því að vera þörf á skýrari verkferlum og betra utanumhaldi innan stjórnsýslunnar svo tryggt sé að bókaðar afgreiðslur nefnda falli ekki niður eða dragist óeðlilega á langinn án eftirfylgni eins og raunin er hér. Gerum betur takk." -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Tekin fyrir styrkbeiðni frá stjórn Byggjum upp Hofsós og nágrennis, dagsett 17.04.2026 vegna bæjarhátíðarinnar Hofsós heim sem haldin verður 18. - 21. júní 2026.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar erindið og samþykkir samhljóða að styrkja hátíðina um 450.000 kr.
Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Framlagt erindi dagsett 9. apríl 2026, frá Ágústi Brynjarssyni þar sem óskað er eftir styrk til að halda tónlistardag fyrir samfélagið sem felur í sér skólaheimsóknir, tónlistarstundir og kvöldtónleika með hljómsveit. Markmiðið með verkefninu er að færa lifandi íslenska tónlist til fólks um allt land.
Nefndin þakkar fyrir erindið og samþykkir samhljóða að styrkja tónlistardag með Ágústi um 150.000 kr. og felur starfsmönnum að skipuleggja daginn með Ágústi með það að markmiði að sem flestir í sveitarfélaginu njóti góðs af.
Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Framlögð styrkbeiðni Leikhópsins Lottu dagsett 20.04.2026, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 90.400 vegna leiksýningar leikhópsins á Sauðárkróki í sumar.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar fyrir erindið en telur sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.
Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Tekið fyrir erindi frá Helga Grím Hermannssyni og Helga Sæmundi Guðmundssyni dagsett 15.04.2026 þar sem óskað er eftir styrk vegna tónlistahátíðarinnar Sveitavegir á Hofsósi.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar framtakinu og samþykkir samhljóða að styrkja hátíðina um 150.000 kr.
Jafnframt vill nefndin nota tækifærið til að minna á uppbyggingasjóð SSNV fyrir verkefni sem þessi og hvetur fólk til að sækja þar um. Næsti umsóknarfrestur sjóðsins verður 16. september til 21. október 2026.
Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Lagt fram til kynningar yfirlit um gestafjölda bókasafnsins frá febrúar til apríl 2026.
Nefndin þakkar fyrir yfirlitið og fagnar því hve laugardagsopnunin er vel sótt.
Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands dags. 28. apríl 2026, þar sem óskað er eftir uppfærðum lista yfir forgangsverkefni frá sveitarfélögum á Norðurlandi.
Skagafjörður auglýsti eftir tillögum að verkefnum fyrir sveitarfélagið 4. maí og er gefinn frestur til 29. júní til að skila þeim inn. Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Lagt fram til kynningar minnisblað frá Hafnasambandi Íslands dagsett 9. apríl 2026 er varðar virðisaukaskattskyldu skemmtiferðaskipa. Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
6.Félagsmála- og tómstundanefnd - 44
Málsnúmer 2604007FVakta málsnúmer
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 44 Lagt fram minnisblað frá leiðtoga fatlaðs fólks og eldra fólks um stöðu sumarafleysinga í málaflokki 01 og 02. Staða ráðninga er frekar slæm sjöunda árið í röð og má segja að þessi vandi sé orðin viðvarandi.
Á starfsstöðvum í Skagafirði vantar enn um 10 - 12 stöðugildi. Á starfsstöðum í Húnaþingi vestra og Húnabyggð er staðan nokkuð góð. Um lögbundna þjónustu er að ræða og alvarlegt að ekki hafi tekist að fá fólk til starfa. Í minnisblaðinu koma fram ýmsar leiðir sem búið er að reyna til að leysa mönnunarvanda en hafa ekki skilað tilætluðum árangri.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að skerða heimaþjónustu og dagdvöl aldraðra eins og þörf er á í sumar ef ekki tekst að manna sumarafleysingar. Skoða verður hvort þurfi að loka dagdvöl tímabundið í sumar. Nefndin lýsir yfir áhyggjum sínum af viðvarandi mönnunarvanda og vekur athygli á því að félagsþjónustan sinnir lögbundnu hlutverki í þjónustu við fatlað fólk og eldra fólk.
Nefndin felur starfsmönnum nefndarinnar að vinna áfram með minnisblað leiðtoga og skoða hvort og þá hvaða leiðir eru færar til að búa til hvata til framtíðar fyrir starfsmenn í samráði við mannauðsstjóra og nefndina.
Einnig lagt fram minnisblað frá leiðtoga frístunda- og íþróttamála um stöðu sumarafleysinga í málaflokki 06. Ágætlega hefur gengið að ráða inn í sumarafleysingar og miðað við stöðuna á ráðningum núna er ekki útlit fyrir að skerða þurfi áður samþykkta opnunartíma íþróttamannavirkja.
Félagsmála- og tómstundanefnd vísar málinu samhljóða til sveitarstjórnar. Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 44 Félagsmála- og tómstundanefnd leggur til að mönnun verði aukin í sundlauginni í Varmahlíð sumarið 2026, þannig að opið verði frá 7:00-21:00 á virkum dögum.
Opnunartími sundlauga er að jafnaði ákveðinn við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert. Á 39. fundi félagsmála- og tómstundanefndar, þann 27. október síðastliðinn, var bókað að opnunartími væri ekki meitlaður í stein og mætti endurskoða þegar lægi fyrir hver eftirspurn og staða á mönnun væri.
Leiðtogi frístunda- og íþróttamála fór yfir stöðuna með nefndinni. Útlit er fyrir að það takist að manna áður samþykktan opnunartíma. Lenging á opnunartíma þýðir að 1,4 stöðugildi þarf til viðbótar við núverandi fjárhagsáætlun. Miðað við stöðuna á sumarafleysingum í öðrum málaflokkum verður að setja fyrirvara á að starfsfólk fáist til að sinna viðbótarvöktum sem verða til við lengingu opnunartíma.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að lengja opnunartíma í sundlauginni í Varmahlíð ef næst að manna 1,4 stöðugildi með fyrirvara um fjármögnun í viðauka. Vísað til byggðarráðs.
Jafnframt samþykkir nefndin samhljóða að fela starfsmönnum nefndarinnar að endurskoða opnunartíma í sundlaugum Skagafjarðar. Starfsmönnum er falið að skila minnisblaði með kostnaði og tillögu að breyttum opnunartíma og leggja fyrir á næsta fundi nefndarinnar. Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 44 Lagt fram minnisblað leiðtoga fatlaðs fólks og eldra fólks um innleiðingu Memaxi í þjónustu Skammtímavalar árið 2026 og mögulega innleiðingu á fleiri starfsstöðvar í þjónustu við fatlað fólk á Nl. vestra árið 2027. Um er að ræða leiðandi samskipta- og skipulagslausn í velferðarþjónustu sem tengir saman fagfólk, notendur þjónustu og aðstandendur, heldur utan um einstaklingsmiðaðar áætlanir notenda sem þurfa aðstoð í daglegu lífi og er notað í íbúðakjörnum, hæfingarstöðvum, heimahjúkrun og stuðnings- og stoðþjónustu víðs vegar um landið. Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 44 Lagðar fram til kynningar tvær fundargerðir frá fundi nr. 46 frá 16. mars og fundi nr. 47 frá 27. apríl 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 44 Lagðar fram til kynningar tvær fundargerðir frá fundi nr. 67 frá 15. desember 2025 og fundi nr. 68 frá 4. maí 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 44. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
7.Fræðslunefnd - 47
Málsnúmer 2604009FVakta málsnúmer
-
Fræðslunefnd - 47 Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga lagt fram til kynningar. Í bréfinu eru skólanefndir sveitarfélaga hvattar til að senda inn tillögur til tilnefninga íslensku menntaverðlaunanna. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbóta. Verðlaunin eru veitt árlega á Bessastöðum. Tillögur skulu hafa borist fyrir 1. júní nk. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 47 Nemendagrunnur er miðlægur gagnagrunnur sem geymir áreiðanlegar og samræmdar upplýsingar um alla nemendur á grunnskólaaldri á Íslandi. Markmiðið er að tryggja að réttar upplýsingar fylgi hverju barni í gegnum alla skólagöngu þess frá leikskóla til framhaldsskóla og áfram í nám og þjálfun.
Verklag um heimila notkun nemendagrunns lagt fram og samþykkt samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 47 Minnisblað frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs lagt fram til kynningar. Í því kemur fram að Tröllaborg er með fullmannaðan leikskóla og þar hafa börn verið innrituð í kringum 12 mánaða aldur. Í Birkilundi vantar að lágmarki þrjá starfsmenn og á biðlista eru níu börn sem náð hafa 12 mánaða aldri. Í Ársölum vantar fjóra starfsmenn svo hægt sé að fullnýta leikskólapláss. Alls eru 13 börn á biðlista sem náð hafa 12 mánaða aldri.
Skólahópar í Birkilundi og Ársölum eru stórir og mun því vera hægt að vinna niður biðlista í haust ef mönnun leyfir. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
Fulltrúar VG og óháðra óska bókað:
"Fulltrúar VG og óháðra lýsa áhyggjum af stöðu leikskólamála í sveitarfélaginu þar sem ljóst er að mannekkla en ekki skortur á húsnæði er meginorsök þess að börn komast ekki inn í leikskóla. Við minnum jafnframt á að við lögðum fram tillögu í vetur um nafnlausa könnun meðal starfsfólks leikskólanna með það að markmiði að fá fram hugmyndir og sjónarmið um hvernig bæta megi starfsumhverfi og gera vinnustaðina eftirsóknarverðari. Tillagan var felld af meirihluta. Í samtölum okkar við starfsfólk er greinilegt ákall um slíka könnun og aukið samtal. Það að eiga samtöl við stjórnendur og atvinnulíf er ekki það sama og fá frá starfsfólkinu sjálfu hugmyndir um hvað betur má fara, heldur þarf að hlusta á raddir starfsfólksins sem sinnir þessum mikilvægu störfum daglega." -
Fræðslunefnd - 47 Samningur við Stá ehf. um hádegisverð í Ársölum og Árskóla rennur út þann 31. júlí nk. Í samningi er heimild til þess að framlengja við Stá ehf. um eitt ár í senn, að hámarki tvisvar sinnum. Lagt er til að framlengingarákvæði samnings verði nýtt.
VG og óháð hafa frá árinu 2018 lagt áherslu á að matur sé eldaður frá grunni fyrir alla skóla í Skagafirði í samræmi við gildi heilsueflandi skólastarfs. Frá þeim tíma hafa VG og óháð ítrekað óskað eftir kostnaðarmati á breytingum á eldhúsi Ársala, þannig að þar verði hægt að elda mat fyrir leik- og grunnskóla á Sauðárkróki, með áherslu á hagkvæmni og nýtingu hráefnis úr héraði.
Í bókun Fræðslunefndar frá 22. mars 2024 segir m.a.:
“Jafnframt leggur nefndin til að horft verði til lengri tíma og hafist handa strax við að kostnaðarmeta fjárfestingar og rekstrarkostnað þess að elda skólamat fyrir grunnskóla og leikskóla á Sauðárkróki í Varmahlíðarskóla eða með viðbyggingu við eldra stig leikskólans Ársali, hvort sem rekstur slíkra eininga yrði á hendi starfsmanna sveitarfélagsins eða reksturinn boðinn út.?
Þrátt fyrir þessa skýru bókun hefur kostnaðarmat á viðbyggingu við Ársali enn ekki farið fram.
VG og óháð harma þá skammsýni að Ársalir hafi ekki frá upphafi verið hannaðir með fullbúnu eldhúsi og að hagsmunir barna í Ársölum og Árskóla hafi ekki verið settir í forgang með því að leita markvisst raunhæfra leiða til að elda mat frá grunni á liðnum árum.
VG og óháð leggja áfram áherslu á að ráðist verði í þessar breytingar hið fyrsta, svo ekki verði áfram endurtekin krísa í útboðum hádegisverða fyrir Ársali og Árskóla.
Fulltrúar meirihluta, Sólborg S. Borgarsdóttir og Hrund Pétursdóttir, óska bókað að búið sé að vinna mikið í málinu og margar sviðsmyndir hafa verið skoðaðar þ.á.m. stækkun á eldhúsi Ársala og nýta eldhús Varmahlíðarskóla. Taka þarf tillit til þess að bæði fjölskyldusvið og veitu- og framkvæmdasvið hafa verið undirmönnuð síðustu tvö árin sem hefur orðið til þess að forgangsraða hefur þurft verkefnum. Matur sem keyptur er í Árskóla og Ársali er eldaður frá grunni innan Sauðárkróks og til þess nýtt hágæða hráefni úr héraði eins og kröfur voru gerðar um í útboði.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra að semja við fyrirtækið Stá ehf. um framlengingu til 31. júlí 2027. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
Fulltrúar VG og óháðra ítreka bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"VG og óháð hafa frá árinu 2018 lagt áherslu á að matur sé eldaður frá grunni fyrir alla skóla í Skagafirði í samræmi við gildi heilsueflandi skólastarfs. Frá þeim tíma hafa VG og óháð ítrekað óskað eftir kostnaðarmati á breytingum á eldhúsi Ársala, þannig að þar verði hægt að elda mat fyrir leik- og grunnskóla á Sauðárkróki, með áherslu á hagkvæmni og nýtingu hráefnis úr héraði.
Í bókun Fræðslunefndar frá 22. mars 2024 segir m.a.:
“Jafnframt leggur nefndin til að horft verði til lengri tíma og hafist handa strax við að kostnaðarmeta fjárfestingar og rekstrarkostnað þess að elda skólamat fyrir grunnskóla og leikskóla á Sauðárkróki í Varmahlíðarskóla eða með viðbyggingu við eldra stig leikskólans Ársali, hvort sem rekstur slíkra eininga yrði á hendi starfsmanna sveitarfélagsins eða reksturinn boðinn út.?
Þrátt fyrir þessa skýru bókun hefur kostnaðarmat á viðbyggingu við Ársali enn ekki farið fram.
VG og óháð harma þá skammsýni að Ársalir hafi ekki frá upphafi verið hannaðir með fullbúnu eldhúsi og að hagsmunir barna í Ársölum og Árskóla hafi ekki verið settir í forgang með því að leita markvisst raunhæfra leiða til að elda mat frá grunni á liðnum árum.
VG og óháð leggja áfram áherslu á að ráðist verði í þessar breytingar hið fyrsta, svo ekki verði áfram endurtekin krísa í útboðum hádegisverða fyrir Ársali og Árskóla."
Fulltrúar meirihluta ítreka einnig bókun sína frá fundinum svohljóðandi:
"Fulltrúar meirihluta, Sólborg S. Borgarsdóttir og Hrund Pétursdóttir, óska bókað að búið sé að vinna mikið í málinu og margar sviðsmyndir hafa verið skoðaðar þ.á.m. stækkun á eldhúsi Ársala og nýta eldhús Varmahlíðarskóla. Taka þarf tillit til þess að bæði fjölskyldusvið og veitu- og framkvæmdasvið hafa verið undirmönnuð síðustu tvö árin sem hefur orðið til þess að forgangsraða hefur þurft verkefnum. Matur sem keyptur er í Árskóla og Ársali er eldaður frá grunni innan Sauðárkróks og til þess nýtt hágæða hráefni úr héraði eins og kröfur voru gerðar um í útboði." -
Fræðslunefnd - 47 Sjálfsmatsskýrsla Tröllaborgar fyrir skóla árið 2024-25 lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 47 Fundargerð skólaráðsfundar Varmahlíðarskóla frá 25. mars 2026 lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 47 Fundargerðir skólaráðs Árskóla frá 3. desember 2025, 11. febrúar 2026 og 4. mars 2026 lagðar fram til kynningar.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að vísa ályktun skólanefndar frá 5. nóvember 2025 til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 47 Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
8.Fræðslunefnd - 48
Málsnúmer 2604030FVakta málsnúmer
-
Fræðslunefnd - 48 Tillaga að úthlutun kennslukvóta til grunnskólanna í Skagafirði fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram. Tillagan er unnin í samstarfi við stjórnendur og tekur mið af mörgum þáttum, svo sem nemendafjölda, samsetningu nemendahópa o.fl. Fræðslunefnd samþykkir tillöguna samhljóða og vísar til byggðarráðs vegna kostnaðaraukningar. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 48 Starfsáætlun leikskólans Tröllaborgar fyrir skólaárið 2025-2026 lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 48 Lagt fram minnisblað sviðsstjóra með tillögum að breytingum á reglum um leikskóla og fyrirkomulagi skráningardaga. Niðurstöður kannana meðal foreldra og starfsfólks voru nýttar þegar fyrirkomulagið var endurskoðað. Niðurstöður sýna að viðhorf foreldra til núverandi fyrirkomulags er fremur neikvætt og kalla til að mynda margir eftir fækkun skráningardaga. Eins er það staðreynd að leikskólastjórnendur standa frammi fyrir mjög miklum áskorunum í núverandi kerfi þegar kemur að því að skipuleggja orlof og vinnustyttingu starfsfólks.
Nefndin tekur undir að þörf sé á endurskoðun kerfisins með hagsmuni barna, starfsfólks og foreldra að leiðarljósi. Sérstaklega var rætt um áskoranir í mönnun og skipulagningu vegna vinnustyttingar og orlofs. Nefndin telur mikilvægt að leggja áherslu á starfsumhverfi starfsfólks með það í huga að halda í allt það góða starfsfólk sem vinnur í leikskólum Skagafjarðar og laða að nýtt starfsfólk.
Fram kom tillaga sviðsstjóra, sem unnin var í samráði við leikskólastjórnendur, um að taka upp fyrirkomulag að fyrirmynd Árborgar. Það felur í sér að börn eru almennt skráð með vistun til klukkan 14 á föstudögum en foreldrum gefst kostur á því að skrá börnin sín til klukkan 16:15 gegn gjaldi, með viku fyrirvara. Lagt er til að heilum skráningardögum verði fækkað úr 20 í 9 og verða þeir dagar bundnir við haust- og vetrarfrí grunnskóla, Þorláksmessu og dymbilviku.
Tillaga er um að lokað verði á milli jóla og nýárs og að sumarlokun verði 24 virkir dagar.
Nefndin telur tillögurnar geta stuðlað að auknum stöðugleika í mönnun og bættu starfsumhverfi, án þess að draga úr þjónustu við fjölskyldur.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögur og drög að reglum sem taka gildi 10. ágúst 2026. Jafnframt felur fræðslunefnd sviðsstjóra að kynna nýtt fyrirkomulag vel fyrir öllum hlutaðeigandi í samráði við leikskólastjórnendur. Mikilvægt er að meta reynslu af fyrirkomulaginu í síðasta lagi að tveimur árum liðnum. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 48 Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
9.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 46
Málsnúmer 2604026FVakta málsnúmer
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 46 Umhverfisdagar Skagafjarðar 2026 verða haldnir dagana 10. - 31. maí. Íbúar eru hvattir til að hlúa að umhverfinu og er takmarkið, snyrtilegra og fegurra umhverfi. Mikilvægt er að íbúar, fyrirtæki, býli og félagasamtök taki höndum saman, tíni rusl, komi bílhræjum, vélhræjum og öðrum hræjum í endurvinnslu. Snyrti til í og við lóðir sínar og lönd, og á nærliggjandi opnum svæðum. Lóðarhafar eru hvattir til þess að halda vexti trjáa og runna á lóðum innan lóðarmarka og stuðla þannig að auknu öryggi vegfarenda.
Allur almennur garðaúrgangur s.s jarðvegur, gras/hey og smærri greinar eiga að fara í jarðvegstippinn rétt sunnan við leikskólann Ársali, austan við veginn Borgargerði á Sauðárkróki, móttökustöðina í Varmahlíð eða jarðvegstipp sunnan við Hofsós.
Stærri greinar, tré og steypuafgangar, hellur, flísar o.þ.h fer upp í gryfjur við Gránumóa ofan Sauðárkróks.
Sameinumst öll í átakinu, lögum til og höldum Skagafirði snyrtilegum.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að einstaklingar geti losað sig við úrgang gjaldfrjálst á móttökustöðvum sveitarfélagsins meðan á átakinu stendur.
Sérstaklega skorar nefndin á fyrirtæki og stofnanir að snyrta sitt nærumhverfi.
Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 46 Sviðstjóri Veitu- og framkvæmdasviðs lagði fram uppfærða forgangsröðun að endurnýjun gatna á Sauðárkróki. Í endurnýjun felst heildarendurnýjun götu ásamt gangstéttum og öllum lögnum. Gert er ráð fyrir að lágmarki einni götu á ári.
Forgangur, m.v. stöðu 2026
Víðigrund
2026
Grundarstígur
2027
Smáragrund
2028
Hólavegur að Öldustíg 2029
Hólavegur frá Öldustíg að Ránarstíg 2030
Freyjugata að Freyjugötu 11 2030
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir áætlunina samhljóða og felur sviðsstjóra að vinna hana áfram með tilliti til fjárhagsáætlunar.
Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 46 Á fundi Landbúnaðar- og innviðanefndar 19. mars sl. var samþykkt áætlun fyrir refa- og minkaveiði ársins 2026, ásamt uppfærðri gjaldskrá vegna veiðanna. Þar sem ekki er búið að ganga frá ráðningu fulltrúa í starf umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa samþykkir Landbúnaðar- og innviðanefnd samhljóða að í ár verði fallið frá árlegum fundi með veiðimönnum en þeim í þess stað sendar rafrænt upplýsingar um áætlað veiðimagn á hvern ráðinn veiðimann ásamt gjaldskrá og upplýsingum um heildarveiði síðasta árs. Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 46 Aðalfundur Heiðadeildar Veiðif. Blöndu og Svartár fer fram í kvöld 30. apríl.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fulltrúar sveitarfélagsins á aðalfundi 2026 séu:
Sviðstjóri veitu- og framkvæmdasviðs Hjörvar Halldórsson, Aron Pétursson, Þórunn Eyjólfsdóttir og Gunnar Valgarðsson. Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 46 Forstöðumaður framkvæmda Sigurður Arnar Friðriksson lagði fram niðurstöðu úr sameiginlegu útboði með Húnavatnssýslunum um losun rotþróa á svæðinu og lagði fram uppfærða gjaldskrá vegna losunar. Tekið hefur verið lægsta tilboði frá Verkvali ehf.
Landbúnaðar- og innviðanefnd fagnar niðurstöðu útboðsins sem leiðir til lækkunar gjalda til eigenda fyrir losun á rotþróm sem fram fer á þriggja ára fresti á hverju svæði, en Skagafirði er skipt í þrjú losunarsvæði.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða og verður hún birt á heimasíðu sveitarfélagsins. Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 46 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026 lagðar fram til kynningar Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 46 Fjallskilamál - ný reglugerð um flutning yfir varnarlínur lögð fram til kynningar.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að reglugerðin verði send fjallskilastjórum og formanni félags sauðfjárbænda til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
10.Skipulagsnefnd - 97
Málsnúmer 2605001FVakta málsnúmer
-
Skipulagsnefnd - 97 Lögð fram óveruleg aðalskipulagsbreyting dags. 4. maí 2026 unnin hjá VSÓ ráðgjöf af Írisi Önnu Karsldóttur fyrir frístundabyggð F8 í landi Neðri-Áss, Hjaltadal, Skagafirði sem var auglýst áður í B-deild Stjórnartíðinda þann 4. júní 2024.
Fyrir mistök var umrædd aðalskipulagsbreyting ekki tekin með í nýja Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 og engar ábendingar vegna þessa bárust á auglýsingartíma skipulagsins.
Skipulagsnefnd fellst á að um óverulega breytingu á gildandi aðalskipulagi sé að ræða og samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja ofangreinda breytingingu og senda Skipulagsstofnun, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Aðalskipulagsbreyting - Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Frístundabyggð F-8, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 97 Lögð fram drög að vinnslutillögu deiliskipulags fyrir Glaumbæ í Skagafirði, Glaumbær bílastæði og byggingarreitir, dags. 18.03.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins. Bókun fundar Afgreiðsla 97. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. - 10.3 2602024 Skagfirðingabraut 45, Sauðárkróki, 2. hæð, F2132154 - Beiðni um heimild til að stækka svalirSkipulagsnefnd - 97 Málið áður á dagskrá á 46. fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 25.02.2026, þá bókað:
"Vísað frá 91. fundi skipulagsnefndar frá 5. febrúar sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað: "Þann 18.06.2025 tók skipulagsnefnd Skagafjarðar fyrri umsókn umsækjenda eigenda íbúðar á 2. hæð Skagfirðingabrautar 45 (L143712, F2132154), málsnúmer 2505059, um leyfi til að stækka svalir íbúðarinnar. Skipulagsnefnd samþykkti samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að grenndarkynna framkvæmdina fyrir lóðarhöfum Skagfirðingabrautar 43, 45 (eiganda neðri hæðar), 47 og 49, Öldustígs 1, 3, 5 og 7 og Bárustígs 1, 2 og 4. Sveitarstjórn samþykkti grenndarkynningu þann 23.06.2025. Grenndarkynning fór fram dagana 26.06.2025-27.07.2025, málsnúmer á vef skipulagsgáttar er 875/2025. Tvær umsagnir bárust, önnur án athugasemda. Í umsögn eigenda Skagfirðingabrautar 47 voru gerðar athugasemdir við framkvæmdina og mögulegra áhrifa á landnotkun, útsýni, skuggavarp og innsýn. Þann 18.09.2025 sendu íbúar Skagfirðingabrautar 45 inn umsögn fasteignasala vegna áhrifa umbeðinna framkvæmda þar sem ekki var talið að að framkvæmdin myndi valda fjártjóni á nærliggjandi húsum. Þann 22.01.2026 fór skipulagsnefnd Skagafjarðar í vettvangsferð á lóðina við Skagfirðingabraut 47 og hittu þar lóðarhafa til að meta betur möguleg áhrif umbeðinnar framkvæmdar. Lóðarhafar Skagfirðingabrautar 45 komu á fund nefndar í Ráðhúsinu í kjölfarið. Eftir umræður við lóðarhafa, þar sem farið var yfir helstu athugasemdir og mótvægisaðgerðir, samþykkti skipulagsnefnd að hafna umbeðinni framkvæmd þar sem lóðarhafar Skagfirðingabrautar 45 upplýstu að þau myndu leggja inn uppfærða umsókn. Edda Lúðvíksdóttir og Þórður Hansen, eigendur íbúðar á 2. hæð Skagfirðingabrautar 45 (L143712, F2132154), óska eftir með uppfærðri umsókn, um heimild til að stækka svalir íbúðarinnar skv. meðfylgjandi uppdrætti nr. S01 í verki nr. 79012100, dags. 02. feb. 2026 unnum hjá Stoð verkfræðistofu ehf. Á meðfylgjandi gögnum telja umsækjendur sig hafa komið til móts við athugasemdir nágranna varðandi skuggavarp og innsýn með því að stytta svalir til austurs, þannig að austurhlið svala verður í flútti við norðurhorn íbúðarhúss á Skagfirðingabraut 47, líkt og sýnt er á meðfylgjandi gögnum. Þá er gert ráð fyrir að svalaveggir verði úr efni sem hleypir sólarljósi í gegn, t.d. gleri, sem dregur enn meira úr skuggavarpi. Þá verður heitur pottur færður nær húsi til að koma í veg fyrir að vatn smitist yfir á lóð nr. 47. Með umsókn þessari eru því lagðar fram mótvægisaðgerðir þeim umhverfisáhrifum sem fram hafa komið í grenndarkynningu og á fundum íbúa með skipulagsnefnd. Að sögn umsækjenda mun framkvæmd þessi auka gæði og notkunarmöguleika lóðar Skagfirðingabrautar 45 verulega. Miðað við núverandi aðstæður eru umsækjendur útsettir fyrir mikilli umferð frá Skagfirðingabraut og útsvæði lóðarinnar takmarkað með tilliti til stærðar og aðgengis. Með framkvæmdinni, sem sótt er um, myndi aðgengi að útisvæði og útiveru batna verulega, núverandi íbúar, og íbúar í framtíðinni, ná talsvert fleiri sólarstundum og lífsgæði íbúa og notagildi eignarinnar munu aukast til muna. Með erindinu fylgir einnig samþykki eiganda neðri hæðar Skagfirðingabrautar 45. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Skagfirðingabrautar 43, 45 (eiganda neðri hæðar), 47 og 49, Öldustígs 1,3, 5 og 7, og Bárustígs 1, 2 og 4." Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls. Sveitarstjórn samþykkir, með átta atkvæðum að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Skagfirðingabrautar 43, 45 (eiganda neðri hæðar), 47 og 49, Öldustígs 1,3, 5 og 7, og Bárustígs 1, 2 og 4."
Framkvæmdin var grenndarkynnt dagana 27.02.2026-31.03.2026 á Skipulagsgáttinni, mál nr. 245/2026 og bárust tvær umsagnir, einnig voru grenndarkynningargögnin send á ofangreinda lóðarhafa í gegnum vefinn island.is þann 27.02.2026.
Edda Lúðvíksdóttir og Þórður Hansen, eigendur íbúðar á 2. hæð Skagfirðingabrautar 45 (L143712, F2132154), óska með uppfærðri umsókn eftir heimild til að stækka svalir íbúðar skv. meðfylgjandi uppdrætti nr. S01 í verki nr. 79012100, dags. 2. feb. 2026 unnum hjá Stoð verkfræðistofu ehf. Á meðfylgjandi gögnum telja umsækjendur sig hafa komið til móts við athugasemdir eigenda Skagfirðingabrautar 47 sem gerðar voru við grenndarkynningu á fyrri umsókn þeirra sbr. málsnúmer á vef skipulagsgáttar nr. 875/2025.
Við grenndarkynninguna, mál nr. 245/2026, bárust tvær umsagnir, önnur þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við framkvæmdina. Samkvæmt því sem fram kemur í athugasemdum frá eigendum að Skagfirðingabraut 47 telja þau að í uppfærði umsókn frá eigendum íbúðar á 2. hæð að Skagfirðingabrautar 45, hafi ekki verið komið til móts við fyrri athugasemdir þeirra varðandi framkvæmdina. Framkvæmdin sé allt of stór og yfirþyrmandi og grenndaráhrif hennar vanmetin, og muni m.a. hafa neikvæð áhrif gagnvart söluverðmæti þeirra eignar, sérstaklega varðandi íbúðina á neðri hæðinni.
Að mati skipulagsnefndar hefur í fyrirliggjandi umsókn verið komið til móts við þær athugasemdir er fram komu við grenndarkynningu í máli nr. 875/2025 og í vettvangsferð skipulagsnefndar 22.01.2026 á lóðina við Skagfirðingabraut 47, í þeim tilgangi að skoða og meta möguleg áhrif umbeðinnar framkvæmdar, ásamt í viðræðum nefndarinnar við eigendur beggja lóðanna. Vísast þá til að samkvæmt uppdráttum með fyrirliggjandi umsókn sbr. mál nr. 245/2026, hafa svalir verið styttar og dregnar inn að austan þannig að austurhlið svala verði í línu við norð-austurhlið hússins á Skagfirðingabraut 47. Með þessu er ekki lengur innsýn frá svölunum inn í húsið að Skagfirðingabraut 47 (eldhús e.h. og þvottahús n.h.), eins og athugasemdir við fyrri umsókn lutu að. Þá er skv. teikningu gert ráð fyrir að svalaveggir verði úr efni sem hleypi sólarljósi í gegn, t.d. gleri, er dregur mikið úr skuggavarpi á lóð Skagfirðingabraut 47. Skuggavarp væri og eingöngu að því er varðar lóðina Skagfirðingabraut 47 inn á norðausturhluta lóðar, á svæði sem er almennt lítt fallið til útiveru og nú nýtt undir þvottasnúru. Þá hefur heitur pottur á umbeðnum svölum verið færður eins nálægt húsi Skagfirðingabrautar 45 og hægt er, til að koma í veg fyrir að vatn smitist yfir á lóð nr. 47. Stækkun svala íbúðar umsækjenda í því formi sem nú er sótt um, hefur að mati nefndarinnar ekki meiri grenndaráhrif en að almennt megi búast við þegar breytingar eru gerðar á húsum í þéttbýli. Vísast til að nokkur dæmi eru um það á svæðinu að bílskúrar við hús séu með sólsvölum ofan á. Framkvæmdin hafi því ekki í för með sér teljandi breytingu á útliti eða formi svæðis, né heldur að því er varði útsýni. Þá vísast til hagsmunamats hjá nefndinni í því efni að ekki verði séð að möguleikar séu á annan hátt að búa til dvalarsvæði utanhúss á lóðinni Skagfirðingabraut 45, þar sem notið verði bæði ljós og skjóls.
Athugasemdir þær er bárust frá eigendum húss við Skagfirðingabraut 47 við grenndarkynningu á framkvæmd, sbr. mál nr. 245/2026 í Skipulagsgáttinni, þykja ekki að mati nefndarinnar geta verið ástæða þess að heimila ekki framkvæmdina.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila á grundvelli skipulagslaga nr. 123/2010, umbeðna framkvæmd til samræmis við umsókn eigenda íbúðar á 2. hæð Skagfirðingabrautar 45 (L143712, F2132154) um heimild til að stækka svalir íbúðarinnar skv. meðfylgjandi uppdrætti nr. S01 í verki nr. 79012100, dags. 02. feb. 2026 unnum hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
Þá bendir nefndin jafnframt á að umbeðin framkvæmd er háð byggingarleyfi sbr. lög um mannvirki nr. 160/2010. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Skagfirðingabraut 45, Sauðárkróki, 2. hæð, F2132154 - Beiðni um heimild til að stækka svalir, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. - 10.4 2605002 Nafir 14 L143946, Sauðárkróki - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir fráveitulögn að sundlaug SauðárkróksSkipulagsnefnd - 97 Hjörvar Halldórsson f.h. Veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar, þinglýsts eiganda lóðarinnar Nafir 14, landnr. 143946, og Skagfirðingabrautar, landnr. 143721, óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu fráveitulagnar frá samþykktum byggingarreit á lóðinni Nafir 14, meðfram göngustíg niður Nafir og að fráveitubrunni norðvestan við Sundlaug Sauðárkróks.
Meðfylgjandi er greinargerð og afstöðuuppdráttur, í verki nr. 41200001 útg. 28. apríl 2026, sem gera grein fyrir framkvæmdinni. Gögn voru unnin á Stoð verkfræðistofu ehf. Um er að ræða lagningu um 220 metra langrar fráveitulagnar (110 mm og 160 mm PVC) frá nýju þjónustuhúsi tjaldstæðisins í Nöfum að tengipunkti við sundlaug Sauðárkróks. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í maí 2026 og að þeim verði lokið í júní 2026.
Skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn ákveðið að veita megi framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag þótt ekki liggi fyrir deiliskipulag. Ekki liggur fyrir deiliskipulag. Skipulagsnefnd er heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Um er að ræða framkvæmd neðanjarðar á opnu svæði og ekki verður séð að lögnin skerði hagsmuni annarra hvað varðar landnotkun, innsýn, aðgengi eða aðra umhverfisþætti.
Óskað hefur verið eftir umsögn Minjastofnunar.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að fallið verði frá grenndarkynningu í samræmi við ákvæði 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og jafnframt að sveitarstjórn veiti umbeðið framkvæmdaleyfi að fenginni jákvæðri umsögn Minjastofnunar.
Eyþór Fannar Sveinsson fulltrúi Byggðalista óskar bókað:
Mikilvægt er að vanda til verka við skipulag og framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins.
Forsaga þessa máls er ákvörðun sem tekin var fyrir á 91. fundi Skipulagsnefndar, um stofnun byggingarreits á Nöfum og umsókn um framkvæmdaleyfi vegna tilfærslu á aðstöðuhúsi tjaldsvæðis frá Flæðum og upp á Nafir. Forsendur fyrir stofnun byggingarreits gerði meðal annars ráð fyrir innviðum nálægt reitnum og kemur það kómískt fyrir sjónir að inn á borð komi umsókn af þessum toga.
Skipulagslýsing fyrir nýtt tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki er nú þegar í auglýsingaferli, og rennur út 21. maí n.k. Ef skynsemi réði för yrði beðið með flutning á aðstöðuhúsi af Flæðum þar til deiliskipulag yrði staðfest við Borgargerði. Með flutningi frá Flæðum beint í Borgargerði myndi sparast bæði flutningskostnaður hússins upp á Nafir og framkvæmdir við fráveitu sem þessa, sem eðlilega þyrfti að skoða í stærra samhengi með framtíðar íbúðabyggð á Nöfum í huga. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Nafir 14 L143946, Sauðárkróki - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir fráveitulögn að sundlaug Sauðárkróks, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. - 10.5 2605001 Lóð 22 Hlíðarenda L143908, Sauðárkróki - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna niðurlagðar hitaveitulagnar að golfskála GSSSkipulagsnefnd - 97 Þórður Karl Gunnarson f.h. Golfklúbbs Skagafjarðar, lóðarhafa Lóðar 22 Hlíðarenda, landnúmer 143908, óskar eftir að á að leggja hitaveitulögn í jörð frá tengipunkti við Gránumóa 63 (Fóðurstöð KS) að nýjum gólfskála á landi Lóð 22 Hlíðarenda, Sauðárkróki. Meðfylgjandi afstöðuuppdráttur og greinargerð, í verki GSS-HIT-01 útg. 30.04.2026, gera grein fyrir framkvæmdinni.
Gögn voru unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Um er að ræða hitaveitulögn, PEX 32/90mm með plægingu frá núv. hitaveitulögn í lóð Gránumóa 63 að nýjum golfskála á Lóð 22 Hlíðarenda.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist í maí/júní 2026 og að þeim verði lokið fyrir ágúst 2026.
Í aðalskipulagi sveitarfélagsins Skagafjarðar 2025-2040 er golfskáli á íþróttasvæði nr. ÍÞ-402. Skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn ákveðið að veita megi framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag þótt ekki liggi fyrir deiliskipulag.
Skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn ákveðið að veita megi framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag þótt ekki liggi fyrir deiliskipulag. Ekki liggur fyrir deiliskipulag á umræddu svæði. Skipulagsnefnd er heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Um er að ræða framkvæmd neðanjarðar á opnu svæði og ekki verður séð að lögnin skerði hagsmuni annarra hvað varðar landnotkun, innsýn, aðgengi eða aðra umhverfisþætti.
Fyrirliggur umsögn Minjastofnunar án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að fallið verði frá grenndarkynningu í samræmi við ákvæði 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og jafnframt að sveitarstjórn veiti umbeðið framkvæmdaleyfi. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Lóð 22 Hlíðarenda L143908, Sauðárkróki - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna niðurlagðar hitaveitulagnar að golfskála GSS, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 97 Guðný Þórhallsdóttir, Birgir Gunnarsson, Jónbjörg K Þórhallsdóttir, Skarphéðinn Guðmundsson, Stefanía S Guðmundsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Hjörleifur Þórhallsson og Sigurlaug Þórhallsdóttir, þinglýstir eigendur jarðarinnar Gautastaðir, landnúmer 146797 óska eftir með vísan til laga um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2021 og reglugerð um merki fasteigna 160/2024, staðfestingar á hnitsettum landamerkjum jarðarinnar eins og þau eru sýnd á meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti, útg. 20. janúar 2026.
Hnitsetning byggir á þinglýstum heimildum sem getið er á forsenduskjali/uppdrætti. Um tvískipta aðgerð er að ræða. Annars vegar að klára að afmarka Gautstaði með hnitum gagnvart jörðinni Skeið, en búið er að gera merkjalýsingu gagnvart jörðinni Tungu. Hins vegar er verið að skipta út stærsta eignarhluta Gautastaða sem er í eigu Birgis Gunnarssonar. Stærð þessa hlutar er 41,6668 %. Þessi hluti mun halda landnúmeri jarðarinnar sem er 146797 og eins lögbýlisréttinum. Þessi hluti er syðsti hluti jarðarinnar og á landamerki við Tungu, landnr. 146914 og nær að landamerkjapunkti LM01 úr merkjalýsingu Gautastaða gagnvart Tungu sem er í mörkum Gautastaða, Tungu og Skeiðs. Hinn hluti jarðarinnar fær nýtt landnúmer og verður í óskiptri sameign annarra eiganda Gautastaða og verður með staðfangið Gautastaðir 2. Framangreind merkjalýsing (M003678) og uppdráttur er unnin af Sigurgeiri Skúlasyni merkjalýsanda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðið nafnleyfi og jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila umbeðin landskipti og að staðfesta hnitsett landamerki.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gautastaðir L146797 - Umsókn um staðfestingu á hnitsettum landamerkjum og landskipti, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 97 Ingvar Páll Ingvarsson og Valdís Brá Þorsteinsdóttir lóðarhafar Iðutúns 14, Sauðárkróki óska eftir leyfi til breikkunar innkeyrslu við Iðutún 14. Núverandi innkeyrsla er malbikuð og er 5,1 m að breidd. Óskað er eftir að breikka innkeyrslu í 6,1 m og gangstíg þar við hliðina 1,5 m, samtals breidd 7,6 m.
Á aðaluppdrætti sem samþykktur var 20.9.2019, er fyrirhuguð breidd innkeyrslu og gangstígs, 7,6 m. Jarðvegsskipti voru gerð í samræmi við þann uppdrátt. Þá má einnig sjá á meðfylgjandi ljósmynd að syðri kantsteinn á núverandi innkeyrslu stefnir inn í bílskúrshurðarop.
Um framkvæmdina, stefnt er að því að planið/innkeyrslan verði steinsteypt frá götu og að bílskúr, breidd 6,1 m, en gangstígur þar við hliðina verði hellulagður, breidd 1,5 m. Niðurfallsrenna verður í planinu, samsíða götu, staðsett um 3 m frá götu. Snjóbrætt verður frá niðurfallsrennu og að húsi, þ.e. ekki verður snjóbræðsla í plani eða gangstíg 3 m frá götubrún og í átt að húsi. Planið verður því sem næst samskonar og við húsið Iðutún 12.
Engir lokar eða veitubrunnar eru á framkvæmdasvæði.
Fyrirliggur jákvæð umsögn Veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar.
Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum umbeðna breikkun á innkeyrslu en minnir á að verkið skal unnið í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.
Sigurður H. Ingvarsson og Jón Daníel Jónsson véku af fundi við afgreiðslu málsins. Bókun fundar Afgreiðsla 97. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 97 Árni Gísli Brynleifsson lóðarhafi Víðigrundar 13 óskar eftir breikkun innkeyrslu lóðarinnar. Fyrri eigandi sótti um breikkun innkeyrslu (15. október 2014) eins og sýnt er á meðfylgjandi gögnum, með svörtum lit er merkt innkeyrslan eins og hún var/er. Fyrir liggur samþykki frá sveitarfélaginu (málsnúmer 1409167) þar sem breikkunin fór í samtals 7,5 metra.
Nú er óskað eftir 1,0 metra aukalega í norður og 2,0 metra til suðurs sem gera samtals 10,5 metrar í heildina. Frá norðurhlið hússins eru 3 metrar að lóðamörkum og munu því enn vera 2 metrar að lóðarmörkum verði umsóknin samþykkt.
Umsækjandi telur að umsóknin sé innan þeirra marka sem Sveitarfélagið
hefur samþykkt áður.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta erindinu og felur skipulagsfulltrúa að afla frekari gagna. Bókun fundar Afgreiðsla 97. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. - 10.9 2605005 Hraðahindrun með gangbraut við gatnamót Víðigrundar og Grundarstígs - Tillaga frá íbúumSkipulagsnefnd - 97 Árni Gísli Brynleifsson lóðarhafi Víðigrundar 13 leggur til við Sveitarfélagið að sett verði hraðahindrun með gangbraut á tilteknu svæði við gatnamót Víðigrundar og Grundarstígs, tillaga að staðsetningu er sýnd með svörtum ramma á mynd sem fylgir erindinu. Mikil umferð gangandi vegfarenda fer um svæðið á hverjum degi og sérstaklega í kringum skólahald. Hámarkshraði er 30 km/klst en er ekki virtur að
miklu leiti og hefur Árni Gísli orðið ótal mörgum sinnum vitni að því þegar bílar keyra ansi greiðlega hér framhjá þegar gangandi vegfarendur reyna að komast þarna yfir götuna á mjög fjölfarinn göngustíg sem liggur upp að Árskóla.
Tel ég að þetta auki umferðaröryggi til muna og þá sérstaklega fyrir þau börn sem þarna fara yfir á leið í og úr skóla. Mun þetta einungis hafa áhrif á bílastæði við mitt hús við Víðigrund 13 og skal ég glaður láta þar undan svæði til að auka öryggi gangandi vegfarenda.
Í sumar verður ráðist í stórar framkvæmdir við götuna og er því borðliggjandi að nýta tækifærið og klára þetta mál fyrir þann tíma.
Eins væri möguleiki á sambærilegri lausn við Víðigrund 1 eða í námunda við hana en veit ég að eigandi þeirrar fasteignar hefur einnig áhyggjur af þeim sem fara yfir götuna á þeim slóðum.
Skipulagsnefnd þakkar fyrir ábendinguna mun hafa hana til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu við deiliskipulag við Víðigrund og mun jafnframt vísa erindinu áfram til landbúnaðar- og innviðanefndar Skagafjarðar. Bókun fundar Afgreiðsla 97. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 97 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 84 þann 30.04.2026. Bókun fundar Afgreiðsla 97. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
11.Skipulagsnefnd - 98
Málsnúmer 2605012FVakta málsnúmer
-
Skipulagsnefnd - 98 Lögð fram deiliskipulagstillaga fyrir Neðri-Ás, land 3 og 4 í Skagafirði, greinargerð og uppdráttur dags. 11.05.2026 unnin af Kollgátu arkitektastofu.
Málið var áður kynnt á skipulagsgáttinni undir málsnúmeri 880/2024 en eftir ábendingu frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Gerðar hafa verið nokkrar breytingar frá fyrri deiliskipulagstillögu þar sem m.a. ein lóð stækkar, nokkrir byggingarreitir stækka og vegir bætast við að lóðum 4 og 6. Uppdrátturinn sýnir staðsetningu byggingarreita, lóðamarka, bílastæða, vegtenginga og aðkomu að byggingum, ásamt helstu byggingarskilmálum.
Stærð skipulagssvæðisins er um 32,1 ha.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna “Neðri-Ás, land 3 og 4 í Skagafirði", í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Umsókn um deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 98 Lögð fram skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag Freyjugötureitur suðurhluti, Sauðárkróki, uppdráttur nr. SL01, verknúmer 56292120, dags. 13.05.2026 unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Markmið fyrirhugaðrar deiliskipulagstillögu er að skilgreina framtíðarsýn reitsins hvað varðar aðkomu, lóðarmörk, byggingarreiti og skipulagsskilmála. Skipulagssvæðið er um 4.574 m² að stærð. Áætlað er að umrætt skipulagssvæði verði felt úr gildi í gildandi deiliskipulagi Gamla bæjarins frá 1987 við gildistöku nýs deiliskipulags.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa skipulagslýsingu fyrir deiliskipulagið “Freyjugötureitur suðurhluti, Sauðárkróki" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Freyjugötureitur suður, Sauðárkróki - Deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 98 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Skógargötureitur, íbúðabyggð á Sauðárkróki" og deiliskipulagsbreytingu fyrir “Gamli bærinn á Sauðárkróki, Skógargötureitur" sem var í kynningu dagana 31.03.2026- 12.05.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 392/2026 og nr. 393/2026, sjá tengla hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/392 og https://skipulagsgatt.is/issues/2026/393 .
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun var málsmeðferð endurtekin skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunum frá fyrri auglýsingu (mál nr. 208/2024, https://skipulagsgatt.is/issues/2024/208/ og mál nr. 1156/2024, https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1156 ), var sérstaklega tekið fram í auglýsingum að fyrri umsagnir myndu gilda bærust ekki fleiri.
Fimm nýjar umsagnir bárust við deilskipulagstillöguna mál nr. 392/2026, sem gefa ekki tilefni til breytinga og áður höfðu borist ellefu umsagnir og standa fyrri viðbrögð skipulagsnefndar við þeim frá dags. 26.11.2024.
Fjórar nýjar umsagnir bárust við deilskipulagsbreytingartillöguna mál nr. 393/2026, sem gefa ekki tilefni til breytinga og áður höfðu borist sjö umsagnir sem gáfu ekki tilefni til breytinga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Skógargötureitur, íbúðarbyggð á Sauðárkróki" og deiliskipulagsbreytinguna fyrir “Gamli bærinn á Sauðárkróki, Skógargötureitur" og senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Sigríður Magnúsdóttir víkur af fundi við þennan dagskrálið og Einar E. Einarsson varamaður hennar kemur inn í hennar stað. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Sauðárkrókur - Deiliskipulag. Skógargata, Aðalgata frá leikvelli að Kambastíg, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 98 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Tumabrekka land 2, Skagafirði" sem var í kynningu dagana 31.03.2026- 12.05.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 389/2026, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/389 .
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun var málsmeðferð endurtekin skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engin breyting var gerð á tillögunni frá fyrri auglýsingu (mál nr. 806/2024, https://skipulagsgatt.is/issues/2024/806 ), var sérstaklega tekið fram í auglýsingunni að fyrri umsagnir gilda bærust ekki fleiri.
Fimm nýjar umsagnir bárust við deilskipulagstillöguna, sem gefur tilefni til minniháttar breytingar og áður höfðu borist fimm umsagnir sem gáfu ekki tilefni til breytinga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Tumabrekka land 2, Skagafirði" og senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Tumabrekka land 2 L220570 - Deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 98 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Sorpmóttaka og gámalóð, Hofsósi, Skagafirði" sem var í kynningu dagana 31.03.2026- 12.05.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 394/2026, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/394 .
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun var málsmeðferð endurtekin skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engin breyting var gerð á tillögunni frá fyrri auglýsingu (mál nr. 206/2023, https://skipulagsgatt.is/issues/2023/206 ), var sérstaklega tekið fram í auglýsingunni að fyrri umsagnir gilda bærust ekki fleiri.
Fimm nýjar umsagnir bárust við deilskipulagstillöguna, sem gefa tilefni til minnihátta breytinga og áður höfðu borist sex umsagnir sem gáfu ekki tilefni til breytinga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Sorpmóttaka og gámalóð, Hofsósi, Skagafirði" og senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Hofsós - Sorpmóttaka og gámasvæði - Deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 98 Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagsbreytingartillögu fyrir "Deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki - Freyjugata 7 og 9" sem var í kynningu dagana 31.03.2026- 12.05.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 388/2026, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/388 .
Átta umsagnir bárust við deilskipulagsbreytingartillöguna, sem gefa tilefni til minniháttar breytinga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagsbreytingu fyrir "Deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki - Freyjugata 7 og 9" og senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010, og að samhliða því fella umrætt svæði úr gildi í gildandi deiliskipulagi Gamla bæjarins frá 1987. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Freyjugata - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 98 Lögð fram Vinnuskrá 4, 56193YFIRL Skógarstígur lóðamörk vinnuskrá 4.dgn dags. 13.05.2025, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Vinnuskráin var unnin út frá gildandi deiliskipulagi svæðisins auk annarra fyrirliggjandi gagna, ásamt því sem haft var samráð við lóðarhafa svæðisins.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja lóðarmörk Skógarstígs eins og þau koma fram í fyrirliggjandi gögnum og fela skipulagsfulltrúa að láta útbúa merkjalýsingu og ný lóðarblöð og endurnýja lóðarleigsamninga við hluteigandi.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Skógarstígur 6. Varmahlíð - Lóðarmál, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. - 11.8 2605127 Skarðseyri 5 á Sauðárkróki - Beiðni um samþykki fyrir nýrri akstursleið út af bílastæðiSkipulagsnefnd - 98 Tryggvi Harðarson verksmiðjustjóri fyrir hönd Steinull hf. óskar eftir samþykki fyrir því að bæta við nýrri akstursleið út af bílastæði félagsins að Skarðseyri 5 á Sauðárkróki.
Beiðnin er lögð fram í framhaldi af endurskipulagningu bílastæðisins við húsnæði félagsins. Í þeirri vinnu hefur bílastæðinu verið breytt með það að markmiði að bæta nýtingu svæðisins og fjölga bílastæðum. Þá hafa verið settar upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla ásamt tilheyrandi stæðum.
Við endurskipulagninguna er jafnframt gert ráð fyrir bílastæði fyrir hreyfihamlaða við húsið, þannig að aðgengi að húsnæðinu verði tryggt með viðeigandi hætti.
Meðfylgjandi er teikning sem sýnir fyrirhugað fyrirkomulag bílastæðisins, staðsetningu hleðslustöðva og stæða, stæði fyrir hreyfihamlaða og hina nýju akstursleið sem óskað er eftir að verði heimiluð.
Steinull hf. fer því formlega fram á að heimild verði veitt fyrir umræddri akstursleið út af bílastæðinu í samræmi við meðfylgjandi gögn.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða erindið eins og það er fyrirlagt. Bókun fundar Afgreiðsla 98. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 98 Árni Gísli Brynleifsson og Heiða B. Jóhannsdóttir lóðarhafar Víðigrundar 13 á Sauðárkróki óska eftir breikkun innkeyrslu. Fyrri eigandi sótti um breikkun innkeyrslu (15. október 2014) eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd, með gulum lit er innkeyrslan merkt eins og hún er samþykkt í dag fyrir umsókn. Fyrir liggur samþykki frá sveitarfélaginu Skagafirði (málsnúmer 1409167) þar sem breikkunin fer í samtals 7,5 metra, afrit af þeirri samþykkt fylgir einnig umsókninni.
Að auki við þá breikkun er óskað eftir 1,0 auka meter til norðurs og 2,0 metra til suðurs sem gera samtals 10,5 metrar í heildina. Merkt með rauðum lit á meðfylgjandi mynd.
Frá norðurhlið hússins eru 3 metrar að lóðamörkum og munu því enn vera 2 metrar að lóðarmörkum verði umsóknin samþykkt.
Umsækjendur telja umbeðna stækkun vera innan þeirra marka sem sveitarfélagið hefur samþykkt áður.
Tilgangur breikkunar er að koma bílum, kerrum, fellihýsi af götunni og inn á lóð, fyrirhugað er að útbúa bílastæði sitt hvoru megin við niðurkeyrslu niður í bílskúr. Bílastæðin að norðan og sunnanverðu yrðu í sömu hæð og lóð en ekki hallandi niður að húsi.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna stækkun á innkeyslu lóðar Víðigrundar 13. Bókun fundar Afgreiðsla 98. fundar skipulagsnefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. - 11.10 2605132 Birkihlíð 14, Sauðárkróki F2131259 - Beiðni um heimild til breytinga á útitröppum og stækkun bílastæðisSkipulagsnefnd - 98 Halldór Örn Kristjánsson og Vilborg Hrefna Sæmundardóttir lóðarhafar Birkihlíðar 14 á Sauðárkróki, óska eftir heimild til breytinga á útisvæði fasteignarinnar skv. meðfylgjandi uppdráttum í verki nr. 74090000, unnum hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
Fyrirhugað er að bæta aðgengi að húsinu vegna hreyfihamlaðs barns lóðarhafa. Framkvæmdin felst í því að færa núverandi útitröppur á austurhlið hússins til suðurs. Við þessa breytingu stækkar núverandi bílastæði við húsið sem er nauðsynlegt til að tryggja fullnægjandi athafnarými fyrir hjálpartæki og öruggt aðgengi frá ökutæki að inngangi.
Meðfylgjandi uppdrættir (T-100 til T-105) sýna tillögu að breytingunni, þar á meðal afstöðumynd og þrívíddarmyndir sem gera grein fyrir nýrri ásýnd og staðsetningu trappa.
Í ljósi þess að deiliskipulag liggur ekki fyrir á þessu svæði, er óskað eftir því að skipulagsnefnd taki ákvörðun um hvort framkvæmdin skuli grenndarkynnt skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eigendur hafa þegar kynnt fyrirætlanir sínar fyrir íbúum aðliggjandi lóða og leitað samþykkis þeirra. Með vísan til þess að fyrir liggur skriflegt samþykki næstu nágranna og að framkvæmdin varðar hagsmuni hreyfihamlaðs einstaklings án þess að skerða hagsmuni annarra hvað varðar útsýni, skuggavarp eða innsýn, er þess farið á leit að skipulagsnefnd taki til skoðunar að falla frá grenndarkynningu í samræmi við 3. mgr. 44. gr. sömu laga.
Meðfylgjandi er árituð yfirlýsing nágranna um að þeir hafi séð meðfylgjandi tillöguteikningar T101-T105, dags 17.02.2026 og að þeir geri ekki athugasemdir um áformaðar framkvæmdir.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að falla frá grenndarkynningu vegna málsins þar sem skriflegt samþykki nágranna liggur fyrir og ekki sé verið að skerða hagsmuni annarra hvað varðar útsýni, skuggavarp eða innsýn, jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða umbeðna breytingu varðandi innkeyrslu lóðarinnar.
Þá bendir nefndin jafnframt á að hluti framkvæmdar er háð byggingarleyfi sbr. lög um mannvirki nr. 160/2010. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Birkihlíð 14, Sauðárkróki F2131259 - Beiðni um heimild til breytinga á útitröppum og stækkun bílastæðis, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 98 Björn Helgi Ófeigsson, eigandi jarðarinnar Hyrnu, landnr. 146216, óskar eftir heimild til að stofna þrjár spildur, úr landi jarðarinnar sem “Hyrna 1", 1.899 m2 að stærð, "Hyrna 2", 1.536 m2 að stærð og "Hyrna 3", 3.318 m2 að stærð, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 73175000 dags. 7. maí 2026 og merkjalýsingu dags. 07.05.2026.
Afstöðuppdráttur og merkjalýsing voru unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Óskað er eftir því að útskiptar spildur verði skráðar sem lóðir.
Landheiti hinna nýju lóða vísa í heiti upprunajarðar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Hyrnu landnúmer 146216.
Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 eru lóðirnar á landbúnaðarlandi nr. L-4. Landskiptin samræmast stefnu aðalskipulags um uppbyggingu og landnotkun í dreifbýli og styðja við búsetu í dreifbýli.
Hér er ekki um að ræða ný framkvæmdaáform eða nýja landnotkun, heldur er einungis verið að afmarka og stofna lóðir utan um þegar byggð mannvirki á jörðinni sem reist voru á árunum 1986 til 2003. Landskiptin fela því hvorki í sér nýtt rask né ný umhverfisáhrif. Í kafla 3.7 í aðalskipulaginu um landbúnaðarland segir meðal annars um skiptingu lands: "Við mat á áhrifum þess að taka land úr landbúnaðarnotum og leggja til annarra nota, skipta landi eða sameina það, skal taka mið af ákvæðum 5. og 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og gera grein fyrir og taka afstöðu til eftirfarandi: Hvort landið sé stærra en þörf er að teknu tilliti til þeirra áforma sem er lýst. Tekið skal tillit til ræktunarmöguleika lands skv. flokkun ræktarlands."
Með vísan til þessa er gætt vel að því að hinar nýju lóðir séu hóflegar, ekki stærri en þörf krefur og nákvæmlega sniðnar að þörfum og nauðsynlegu athafnarými mannvirkjanna. Þar sem mannvirkin eru nú þegar til staðar hefur stofnun lóðanna engin frekari áhrif á búrekstrarskilyrði upprunajarðarinnar. Jörðin er flokkuð sem L-4 og því er afmörkunin ekki að skerða dýrmætt ræktarland í flokki L-1 eða L-2. Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptra lóða.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Hyrnu, landnúmer 146216.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M003789.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja erindið eins og það er fyrirlagt. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Hyrna L146216 á neðribyggð - Umsókn um stofnun þriggja lóða, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. - 11.12 2605139 Hvalnes L145892 á Skaga, Skagafirði - Umsókn um stofnun landspildu og tilfærslu byggingarreitsSkipulagsnefnd - 98 Bjarni Egilsson, f.h. Hvalnesbúsins ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Hvalnes, landnúmer 145892, á Skaga óskar eftir heimild til að stofna 4.088 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem "Hvalnes 2", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75560101 útg. 11. maí 2026 og merkjalýsingu dags. 11. maí 2026. Afstöðuppdráttur og merkjalýsing voru unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Jafnframt er með erindi þessu óskað eftir að heiti upprunajarðarinnar verði leiðrétt í fasteignaskrá. Upprunajörðin landnr. 145892 er þar ranglega skráð sem Hvalnes 2 en á réttilega að bera heitið Hvalnes. Hin nýja útskipta lóð mun hins vegar fá heitið Hvalnes 2.
Landheiti útskiptrar lóðar vísar í heiti upprunajarðar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Hvalnesi L145892.
Óskað er þess að útskipt lóð verði skráð sem íbúðarhúsalóð (10). Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er lóðin á landbúnaðarsvæði L-2. Landskipti eru í samræmi við ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæði.
Breytt landnotkun hefur óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði.
Ekkert ræktað land er innan útskiptrar spildu.
Innan afmörkunar útskiptrar spildu er matshluti 16, sem er einbýlishús að stærð 141,8 m2, byggt árið 2020. Mannvirki þetta skal fylgja útskiptri lóð.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Hvalnesi, landnr. 145892.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003804.
Þá er einnig óskað eftir tilfærslu byggingarreits, sem samþykktur var í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 16.10.2019. Óskað er eftir hliðrun byggingarreits um 2,6 m til suðurs. Stærð reitsins verður óbreytt og íbúðarhús fellur innan reits eftir tilfærslu. Staðsetning byggingarreits, fyrir og eftir umsótta breytingu, er sýnd á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti.
Óskað hefur verið eftir umsögn Minjastofnunar.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leiðrétta heiti upprunajarðarinnar í fasteignaskrá. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja landskiptin og færslu byggingarreitsins að fenginni jákvæðri umsögn Minjastofnunar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Hvalnes L145892 á Skaga, Skagafirði - Umsókn um stofnun landspildu og tilfærslu byggingarreits, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
12.Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 7
Málsnúmer 2604019FVakta málsnúmer
-
Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 7 Á fundinum var lögð fram tillöguteikning að límtréshúsi sem hannað er af Ómari Péturssyni hjá Nýhönnun ehf. og teiknuð af Þorvaldi E. Þorvaldssyni. Fyrirliggjandi tillöguteikning sýnir viðbyggingu við Grunnskólann austan Vatna sem ætlað er að rúma íþróttahús, skólamötuneyti og sal, tónlistarkennslu, fundarherbergi, tæknirými og fleira, í einni og sömu byggingunni.
Á fundinum fór sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs einnig yfir frumdrög að kostnaðaráætlun fyrrgreindrar tillöguteikningar.
Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra að vinna áfram að nánari útfærslum tillöguteikninga. Byggingarnefnd felur jafnframt sviðsstjóra fjölskyldusviðs í samráði við stjórnendur að kynna teikningar fyrir starfsfólki grunn-, leik- og tónlistarskóla á Hofsósi. Bókun fundar Fundargerð 7. fundar byggingarnefndar skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
13.Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 8
Málsnúmer 2605006FVakta málsnúmer
-
Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 8 Á fundinum var lögð fram uppfærð tillöguteikning að límtréshúsi sem hannað er af Ómari Péturssyni hjá Nýhönnun ehf. og teiknuð af Þorvaldi E. Þorvaldssyni. Fyrirliggjandi tillöguteikning sýnir viðbyggingu við Grunnskólann austan Vatna sem ætlað er að rúma íþróttahús, skólamötuneyti og sal, tónlistarkennslu, fundarherbergi, tæknirými og fleira, í einni og sömu byggingunni.
Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi samþykkir samhljóða að stefna að næsta fundi 27. maí nk. Á þeim fundi verður tekin til afgreiðslu þarfagreining sem skólastjórar og leiðtogi frístunda- og íþróttamála vinna fram að því. Bókun fundar Fundargerð 8. fundar byggingarnefndar skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
14.Samstarf um uppbyggingu leigumarkaðar í Skagafirði
Málsnúmer 2604050Vakta málsnúmer
Fyrir fundinum liggur undirrituð viljayfirlýsing sveitarfélagsins Skagafjarðar og Leigufélagsins Bríetar ehf. um samstarf í uppbyggingu leigumarkaðar í Skagafirði. Í viljayfirlýsingunni lýsir Skagafjörður yfir að sveitarfélagið leggi inn íbúðir í eigu félagslegra leiguíbúða Skagafjarðar og eignasjóðs Skagafjarðar inn í Leigufélagið Bríet ehf. gegn eignarhluti í félaginu. Skagafjörður skal þó hafa forgangsrétt til að vísa leigjendum í íbúðirnar sem renna inn í Leigufélagið Bríet ehf. Leigufélagið Bríet ehf. lýsir yfir að félagið skuldbindi sig til að hefja byggingu leiguíbúða á Hofsósi og Sauðárkróki á þessu ári og í framhaldi af því byggingu leiguíbúða í Varmahlíð og í Fljótunum.
Jafnframt liggur fyrir fundinum undirritaður samningur milli Skagafjarðar og Leifufélagsins Bríetar ehf. um framsal íbúða sveitarfélagsins Skagafjarðar til Leigufélagsins Bríetar ehf. þar sem nánar er útfært fyrirkomulag við framkvæmd ofangreindrar viljayfirlýsingar.
Sveinn Þ. Finster Úlfarsson og Sigfús Ingi Sigfússon kvöddu sér hljóðs.
Framlögð viljayfirlýsing og framlagður samningur borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.
15.Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 2605071Vakta málsnúmer
"Lögð fram beiðni um viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun ársins 2026.
Fyrir liggur rekstrarviðauki með nettó tekjuauka að fjárhæð 1.505 m.kr. Þar vegur þyngst söluhagnaður íbúða sem renna inn í Leigufélagið Bríet ehf. Samhliða þessu er óskað eftir auknu fjármagni til tímabundinnar aukningar stöðugilda við sundlaugina í Varmahlíð.
Einnig liggur fyrir efnahagsviðauki vegna sölu íbúða í eigu Eignasjóðs og Félagslegra íbúða Skagafjarðar til Leigufélagsins Bríetar ehf. Í því er sala fasteigna, greidd upp fasteignalán og hlutafé sem Skagafjörður eignast í Leigufélaginu Bríeti ehf.
Niðurstaðan er hækkun á handbæru fé um 491 m.kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða beiðni um viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2026 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."
Framlagður viðauki borinn upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykktur með níu atkvæðum.
16.Innkaupareglur og -stefna fyrir Skagafjörð
Málsnúmer 2410344Vakta málsnúmer
"Lögð fram drög að uppfærðum innkaupareglum og innkaupastefnu Skagafjarðar en lagðar eru til breytingar á viðmiðunarfjárhæðum til samræmis við gildandi lög og reglugerðir.
Byggðarráð samþykkir innkaupareglur og innkaupastefnu Skagafjarðar samhljóða með áorðnum breytingum og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar."
Sveinn Þ. Finster Úlfarsson og Sigfús Ingi Sigfússon kvöddu sér hljóðs.
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum, framlagðar innkaupareglur og innkaupastefnu Skagafjarðar.
17.Eignarhald þéttbýlis á Hólum í Hjaltadal
Málsnúmer 2602105Vakta málsnúmer
"Lögð fram drög að samkomulagi á milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og íslenska ríkisins um fyrirkomulag lóða og innviða á Hólum í Hjaltadal. Samkvæmt samkomulaginu mun ríkið leggja til eingreiðslu til Skagafjarðar gegn yfirtöku sveitarfélagsins á rekstri og viðhaldi allra innviða þéttbýlis á Hólum, innan afmörkunar svæðis sem ríkið afsalar eignarhaldi til sveitarfélagsins. Skagafjörður skuldbindur sig jafnframt til að hefja endurbætur og viðhald á fráveituinnviðum svæðisins innan eins árs frá undirritun samkomulagsins og ljúka innan fimm ára.
Jafnframt er samkomulag um að ríkissjóður muni afsala til sveitarfélagsins eignarhaldi á jörðinni Nýrækt í Fljótum, þar sem sveitarfélagið áformar íbúðauppbyggingu. Undanskilið við sölu er hluti jarðarinnar sem fer undir breytta legu Siglufjarðarvegar vegna fyrirhugaðra Fljótaganga.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram og undirrita samkomulagið f.h. Skagafjarðar með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar. Byggðarráð samþykkir jafnframt samhljóða að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs gerð viðauka vegna málsins."
Framlagt var undirritað samkomulag milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og íslenska ríkisins um fyrirkomulag lóða og innviða á Hólum í Hjaltadal dagsett 13. maí 2026. Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri undirritar samkomulagið fyrir hönd Skagafjarðar, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra undirrita samkomulagið fyrir hönd íslenska ríkisins.
Sveinn Þ. Finster Úlfarsson, Sigfús Ingi Sigfússon, Álfhildur Leifsdóttir, Guðlaugur Skúlason og Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kvöddu sér hljóðs.
Samkomulagið er borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og staðfest með níu atkvæðum.
18.Aðalskipulagsbreyting - Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Frístundabyggð F-8
Málsnúmer 2604191Vakta málsnúmer
"Lögð fram óveruleg aðalskipulagsbreyting dags. 4. maí 2026 unnin hjá VSÓ ráðgjöf af Írisi Önnu Karsldóttur fyrir frístundabyggð F8 í landi Neðri-Áss, Hjaltadal, Skagafirði sem var auglýst áður í B-deild Stjórnartíðinda þann 4. júní 2024.
Fyrir mistök var umrædd aðalskipulagsbreyting ekki tekin með í nýja Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 og engar ábendingar vegna þessa bárust á auglýsingartíma skipulagsins.
Skipulagsnefnd fellst á að um óverulega breytingu á gildandi aðalskipulagi sé að ræða og samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja ofangreinda breytingingu og senda Skipulagsstofnun, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
Sveitarstjórn fellst á að um óverulega breytingu á gildandi aðalskipulagi sé að ræða og samþykkir, með níu atkvæðum ofangreinda breytingingu og felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
19.Skagfirðingabraut 45, Sauðárkróki, 2. hæð, F2132154 - Beiðni um heimild til að stækka svalir
Málsnúmer 2602024Vakta málsnúmer
"Málið áður á dagskrá á 46. fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 25.02.2026, þá bókað:
"Vísað frá 91. fundi skipulagsnefndar frá 5. febrúar sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað: "Þann 18.06.2025 tók skipulagsnefnd Skagafjarðar fyrri umsókn umsækjenda eigenda íbúðar á 2. hæð Skagfirðingabrautar 45 (L143712, F2132154), málsnúmer 2505059, um leyfi til að stækka svalir íbúðarinnar. Skipulagsnefnd samþykkti samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að grenndarkynna framkvæmdina fyrir lóðarhöfum Skagfirðingabrautar 43, 45 (eiganda neðri hæðar), 47 og 49, Öldustígs 1, 3, 5 og 7 og Bárustígs 1, 2 og 4. Sveitarstjórn samþykkti grenndarkynningu þann 23.06.2025. Grenndarkynning fór fram dagana 26.06.2025-27.07.2025, málsnúmer á vef skipulagsgáttar er 875/2025. Tvær umsagnir bárust, önnur án athugasemda. Í umsögn eigenda Skagfirðingabrautar 47 voru gerðar athugasemdir við framkvæmdina og mögulegra áhrifa á landnotkun, útsýni, skuggavarp og innsýn. Þann 18.09.2025 sendu íbúar Skagfirðingabrautar 45 inn umsögn fasteignasala vegna áhrifa umbeðinna framkvæmda þar sem ekki var talið að að framkvæmdin myndi valda fjártjóni á nærliggjandi húsum. Þann 22.01.2026 fór skipulagsnefnd Skagafjarðar í vettvangsferð á lóðina við Skagfirðingabraut 47 og hittu þar lóðarhafa til að meta betur möguleg áhrif umbeðinnar framkvæmdar. Lóðarhafar Skagfirðingabrautar 45 komu á fund nefndar í Ráðhúsinu í kjölfarið. Eftir umræður við lóðarhafa, þar sem farið var yfir helstu athugasemdir og mótvægisaðgerðir, samþykkti skipulagsnefnd að hafna umbeðinni framkvæmd þar sem lóðarhafar Skagfirðingabrautar 45 upplýstu að þau myndu leggja inn uppfærða umsókn. Edda Lúðvíksdóttir og Þórður Hansen, eigendur íbúðar á 2. hæð Skagfirðingabrautar 45 (L143712, F2132154), óska eftir með uppfærðri umsókn, um heimild til að stækka svalir íbúðarinnar skv. meðfylgjandi uppdrætti nr. S01 í verki nr. 79012100, dags. 02. feb. 2026 unnum hjá Stoð verkfræðistofu ehf. Á meðfylgjandi gögnum telja umsækjendur sig hafa komið til móts við athugasemdir nágranna varðandi skuggavarp og innsýn með því að stytta svalir til austurs, þannig að austurhlið svala verður í flútti við norðurhorn íbúðarhúss á Skagfirðingabraut 47, líkt og sýnt er á meðfylgjandi gögnum. Þá er gert ráð fyrir að svalaveggir verði úr efni sem hleypir sólarljósi í gegn, t.d. gleri, sem dregur enn meira úr skuggavarpi. Þá verður heitur pottur færður nær húsi til að koma í veg fyrir að vatn smitist yfir á lóð nr. 47. Með umsókn þessari eru því lagðar fram mótvægisaðgerðir þeim umhverfisáhrifum sem fram hafa komið í grenndarkynningu og á fundum íbúa með skipulagsnefnd. Að sögn umsækjenda mun framkvæmd þessi auka gæði og notkunarmöguleika lóðar Skagfirðingabrautar 45 verulega. Miðað við núverandi aðstæður eru umsækjendur útsettir fyrir mikilli umferð frá Skagfirðingabraut og útsvæði lóðarinnar takmarkað með tilliti til stærðar og aðgengis. Með framkvæmdinni, sem sótt er um, myndi aðgengi að útisvæði og útiveru batna verulega, núverandi íbúar, og íbúar í framtíðinni, ná talsvert fleiri sólarstundum og lífsgæði íbúa og notagildi eignarinnar munu aukast til muna. Með erindinu fylgir einnig samþykki eiganda neðri hæðar Skagfirðingabrautar 45. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Skagfirðingabrautar 43, 45 (eiganda neðri hæðar), 47 og 49, Öldustígs 1,3, 5 og 7, og Bárustígs 1, 2 og 4." Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls. Sveitarstjórn samþykkir, með átta atkvæðum að framkvæmdin skuli grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Skagfirðingabrautar 43, 45 (eiganda neðri hæðar), 47 og 49, Öldustígs 1,3, 5 og 7, og Bárustígs 1, 2 og 4."
Framkvæmdin var grenndarkynnt dagana 27.02.2026-31.03.2026 á Skipulagsgáttinni, mál nr. 245/2026 og bárust tvær umsagnir, einnig voru grenndarkynningargögnin send á ofangreinda lóðarhafa í gegnum vefinn island.is þann 27.02.2026.
Edda Lúðvíksdóttir og Þórður Hansen, eigendur íbúðar á 2. hæð Skagfirðingabrautar 45 (L143712, F2132154), óska með uppfærðri umsókn eftir heimild til að stækka svalir íbúðar skv. meðfylgjandi uppdrætti nr. S01 í verki nr. 79012100, dags. 2. feb. 2026 unnum hjá Stoð verkfræðistofu ehf. Á meðfylgjandi gögnum telja umsækjendur sig hafa komið til móts við athugasemdir eigenda Skagfirðingabrautar 47 sem gerðar voru við grenndarkynningu á fyrri umsókn þeirra sbr. málsnúmer á vef skipulagsgáttar nr. 875/2025.
Við grenndarkynninguna, mál nr. 245/2026, bárust tvær umsagnir, önnur þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við framkvæmdina. Samkvæmt því sem fram kemur í athugasemdum frá eigendum að Skagfirðingabraut 47 telja þau að í uppfærði umsókn frá eigendum íbúðar á 2. hæð að Skagfirðingabrautar 45, hafi ekki verið komið til móts við fyrri athugasemdir þeirra varðandi framkvæmdina. Framkvæmdin sé allt of stór og yfirþyrmandi og grenndaráhrif hennar vanmetin, og muni m.a. hafa neikvæð áhrif gagnvart söluverðmæti þeirra eignar, sérstaklega varðandi íbúðina á neðri hæðinni.
Að mati skipulagsnefndar hefur í fyrirliggjandi umsókn verið komið til móts við þær athugasemdir er fram komu við grenndarkynningu í máli nr. 875/2025 og í vettvangsferð skipulagsnefndar 22.01.2026 á lóðina við Skagfirðingabraut 47, í þeim tilgangi að skoða og meta möguleg áhrif umbeðinnar framkvæmdar, ásamt í viðræðum nefndarinnar við eigendur beggja lóðanna. Vísast þá til að samkvæmt uppdráttum með fyrirliggjandi umsókn sbr. mál nr. 245/2026, hafa svalir verið styttar og dregnar inn að austan þannig að austurhlið svala verði í línu við norð-austurhlið hússins á Skagfirðingabraut 47. Með þessu er ekki lengur innsýn frá svölunum inn í húsið að Skagfirðingabraut 47 (eldhús e.h. og þvottahús n.h.), eins og athugasemdir við fyrri umsókn lutu að. Þá er skv. teikningu gert ráð fyrir að svalaveggir verði úr efni sem hleypi sólarljósi í gegn, t.d. gleri, er dregur mikið úr skuggavarpi á lóð Skagfirðingabraut 47. Skuggavarp væri og eingöngu að því er varðar lóðina Skagfirðingabraut 47 inn á norðausturhluta lóðar, á svæði sem er almennt lítt fallið til útiveru og nú nýtt undir þvottasnúru. Þá hefur heitur pottur á umbeðnum svölum verið færður eins nálægt húsi Skagfirðingabrautar 45 og hægt er, til að koma í veg fyrir að vatn smitist yfir á lóð nr. 47. Stækkun svala íbúðar umsækjenda í því formi sem nú er sótt um, hefur að mati nefndarinnar ekki meiri grenndaráhrif en að almennt megi búast við þegar breytingar eru gerðar á húsum í þéttbýli. Vísast til að nokkur dæmi eru um það á svæðinu að bílskúrar við hús séu með sólsvölum ofan á. Framkvæmdin hafi því ekki í för með sér teljandi breytingu á útliti eða formi svæðis, né heldur að því er varði útsýni. Þá vísast til hagsmunamats hjá nefndinni í því efni að ekki verði séð að möguleikar séu á annan hátt að búa til dvalarsvæði utanhúss á lóðinni Skagfirðingabraut 45, þar sem notið verði bæði ljós og skjóls.
Athugasemdir þær er bárust frá eigendum húss við Skagfirðingabraut 47 við grenndarkynningu á framkvæmd, sbr. mál nr. 245/2026 í Skipulagsgáttinni, þykja ekki að mati nefndarinnar geta verið ástæða þess að heimila ekki framkvæmdina.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila á grundvelli skipulagslaga nr. 123/2010, umbeðna framkvæmd til samræmis við umsókn eigenda íbúðar á 2. hæð Skagfirðingabrautar 45 (L143712, F2132154) um heimild til að stækka svalir íbúðarinnar skv. meðfylgjandi uppdrætti nr. S01 í verki nr. 79012100, dags. 02. feb. 2026 unnum hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
Þá bendir nefndin jafnframt á að umbeðin framkvæmd er háð byggingarleyfi sbr. lög um mannvirki nr. 160/2010."
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Sveitarstjórn samþykkir, með átta atkvæðum að heimila á grundvelli skipulagslaga nr. 123/2010, umbeðna framkvæmd til samræmis við umsókn eigenda íbúðar á 2. hæð Skagfirðingabrautar 45 (L143712, F2132154) um heimild til að stækka svalir íbúðarinnar skv. meðfylgjandi uppdrætti nr. S01 í verki nr. 79012100, dags. 02. feb. 2026 unnum hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
20.Nafir 14 L143946, Sauðárkróki - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir fráveitulögn að sundlaug Sauðárkróks
Málsnúmer 2605002Vakta málsnúmer
"Hjörvar Halldórsson f.h. Veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar, þinglýsts eiganda lóðarinnar Nafir 14, landnr. 143946, og Skagfirðingabrautar, landnr. 143721, óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu fráveitulagnar frá samþykktum byggingarreit á lóðinni Nafir 14, meðfram göngustíg niður Nafir og að fráveitubrunni norðvestan við Sundlaug Sauðárkróks.
Meðfylgjandi er greinargerð og afstöðuuppdráttur, í verki nr. 41200001 útg. 28. apríl 2026, sem gera grein fyrir framkvæmdinni. Gögn voru unnin á Stoð verkfræðistofu ehf. Um er að ræða lagningu um 220 metra langrar fráveitulagnar (110 mm og 160 mm PVC) frá nýju þjónustuhúsi tjaldstæðisins í Nöfum að tengipunkti við sundlaug Sauðárkróks. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í maí 2026 og að þeim verði lokið í júní 2026.
Skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn ákveðið að veita megi framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag þótt ekki liggi fyrir deiliskipulag. Ekki liggur fyrir deiliskipulag. Skipulagsnefnd er heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Um er að ræða framkvæmd neðanjarðar á opnu svæði og ekki verður séð að lögnin skerði hagsmuni annarra hvað varðar landnotkun, innsýn, aðgengi eða aðra umhverfisþætti.
Óskað hefur verið eftir umsögn Minjastofnunar.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að fallið verði frá grenndarkynningu í samræmi við ákvæði 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og jafnframt að sveitarstjórn veiti umbeðið framkvæmdaleyfi að fenginni jákvæðri umsögn Minjastofnunar.
Eyþór Fannar Sveinsson fulltrúi Byggðalista óskar bókað:
Mikilvægt er að vanda til verka við skipulag og framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins.
Forsaga þessa máls er ákvörðun sem tekin var fyrir á 91. fundi Skipulagsnefndar, um stofnun byggingarreits á Nöfum og umsókn um framkvæmdaleyfi vegna tilfærslu á aðstöðuhúsi tjaldsvæðis frá Flæðum og upp á Nafir. Forsendur fyrir stofnun byggingarreits gerði meðal annars ráð fyrir innviðum nálægt reitnum og kemur það kómískt fyrir sjónir að inn á borð komi umsókn af þessum toga.
Skipulagslýsing fyrir nýtt tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki er nú þegar í auglýsingaferli, og rennur út 21. maí n.k. Ef skynsemi réði för yrði beðið með flutning á aðstöðuhúsi af Flæðum þar til deiliskipulag yrði staðfest við Borgargerði. Með flutningi frá Flæðum beint í Borgargerði myndi sparast bæði flutningskostnaður hússins upp á Nafir og framkvæmdir við fráveitu sem þessa, sem eðlilega þyrfti að skoða í stærra samhengi með framtíðar íbúðabyggð á Nöfum í huga."
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að fallið verði frá grenndarkynningu í samræmi við ákvæði 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og jafnframt að veita umbeðið framkvæmdaleyfi að fenginni jákvæðri umsögn Minjastofnunar.
21.Lóð 22 Hlíðarenda L143908, Sauðárkróki - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna niðurlagðar hitaveitulagnar að golfskála GSS
Málsnúmer 2605001Vakta málsnúmer
"Þórður Karl Gunnarson f.h. Golfklúbbs Skagafjarðar, lóðarhafa Lóðar 22 Hlíðarenda, landnúmer 143908, óskar eftir að á að leggja hitaveitulögn í jörð frá tengipunkti við Gránumóa 63 (Fóðurstöð KS) að nýjum gólfskála á landi Lóð 22 Hlíðarenda, Sauðárkróki. Meðfylgjandi afstöðuuppdráttur og greinargerð, í verki GSS-HIT-01 útg. 30.04.2026, gera grein fyrir framkvæmdinni.
Gögn voru unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Um er að ræða hitaveitulögn, PEX 32/90mm með plægingu frá núv. hitaveitulögn í lóð Gránumóa 63 að nýjum golfskála á Lóð 22 Hlíðarenda.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist í maí/júní 2026 og að þeim verði lokið fyrir ágúst 2026.
Í aðalskipulagi sveitarfélagsins Skagafjarðar 2025-2040 er golfskáli á íþróttasvæði nr. ÍÞ-402. Skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn ákveðið að veita megi framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag þótt ekki liggi fyrir deiliskipulag.
Skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn ákveðið að veita megi framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag þótt ekki liggi fyrir deiliskipulag. Ekki liggur fyrir deiliskipulag á umræddu svæði. Skipulagsnefnd er heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Um er að ræða framkvæmd neðanjarðar á opnu svæði og ekki verður séð að lögnin skerði hagsmuni annarra hvað varðar landnotkun, innsýn, aðgengi eða aðra umhverfisþætti.
Fyrirliggur umsögn Minjastofnunar án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að fallið verði frá grenndarkynningu í samræmi við ákvæði 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og jafnframt að sveitarstjórn veiti umbeðið framkvæmdaleyfi."
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að fallið verði frá grenndarkynningu í samræmi við ákvæði 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og jafnframt að veita umbeðið framkvæmdaleyfi.
22.Gautastaðir L146797 - Umsókn um staðfestingu á hnitsettum landamerkjum og landskipti
Málsnúmer 2604139Vakta málsnúmer
"Guðný Þórhallsdóttir, Birgir Gunnarsson, Jónbjörg K Þórhallsdóttir, Skarphéðinn Guðmundsson, Stefanía S Guðmundsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Hjörleifur Þórhallsson og Sigurlaug Þórhallsdóttir, þinglýstir eigendur jarðarinnar Gautastaðir, landnúmer 146797 óska eftir með vísan til laga um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2021 og reglugerð um merki fasteigna 160/2024, staðfestingar á hnitsettum landamerkjum jarðarinnar eins og þau eru sýnd á meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti, útg. 20. janúar 2026.
Hnitsetning byggir á þinglýstum heimildum sem getið er á forsenduskjali/uppdrætti. Um tvískipta aðgerð er að ræða. Annars vegar að klára að afmarka Gautstaði með hnitum gagnvart jörðinni Skeið, en búið er að gera merkjalýsingu gagnvart jörðinni Tungu. Hins vegar er verið að skipta út stærsta eignarhluta Gautastaða sem er í eigu Birgis Gunnarssonar. Stærð þessa hlutar er 41,6668 %. Þessi hluti mun halda landnúmeri jarðarinnar sem er 146797 og eins lögbýlisréttinum. Þessi hluti er syðsti hluti jarðarinnar og á landamerki við Tungu, landnr. 146914 og nær að landamerkjapunkti LM01 úr merkjalýsingu Gautastaða gagnvart Tungu sem er í mörkum Gautastaða, Tungu og Skeiðs. Hinn hluti jarðarinnar fær nýtt landnúmer og verður í óskiptri sameign annarra eiganda Gautastaða og verður með staðfangið Gautastaðir 2. Framangreind merkjalýsing (M003678) og uppdráttur er unnin af Sigurgeiri Skúlasyni merkjalýsanda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðið nafnleyfi og jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila umbeðin landskipti og að staðfesta hnitsett landamerki."
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að heimila umbeðin landskipti og staðfestir hnitsett landamerki.
23.Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Umsókn um deiliskipulag
Málsnúmer 1505046Vakta málsnúmer
"Lögð fram deiliskipulagstillaga fyrir Neðri-Ás, land 3 og 4 í Skagafirði, greinargerð og uppdráttur dags. 11.05.2026 unnin af Kollgátu arkitektastofu.
Málið var áður kynnt á skipulagsgáttinni undir málsnúmeri 880/2024 en eftir ábendingu frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Gerðar hafa verið nokkrar breytingar frá fyrri deiliskipulagstillögu þar sem m.a. ein lóð stækkar, nokkrir byggingarreitir stækka og vegir bætast við að lóðum 4 og 6. Uppdrátturinn sýnir staðsetningu byggingarreita, lóðamarka, bílastæða, vegtenginga og aðkomu að byggingum, ásamt helstu byggingarskilmálum.
Stærð skipulagssvæðisins er um 32,1 ha.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna “Neðri-Ás, land 3 og 4 í Skagafirði", í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að auglýsa deiliskipulagstillöguna “Neðri-Ás, land 3 og 4 í Skagafirði", í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
24.Freyjugötureitur suður, Sauðárkróki - Deiliskipulag
Málsnúmer 2605113Vakta málsnúmer
"Lögð fram skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag Freyjugötureitur suðurhluti, Sauðárkróki, uppdráttur nr. SL01, verknúmer 56292120, dags. 13.05.2026 unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Markmið fyrirhugaðrar deiliskipulagstillögu er að skilgreina framtíðarsýn reitsins hvað varðar aðkomu, lóðarmörk, byggingarreiti og skipulagsskilmála. Skipulagssvæðið er um 4.574 m² að stærð. Áætlað er að umrætt skipulagssvæði verði felt úr gildi í gildandi deiliskipulagi Gamla bæjarins frá 1987 við gildistöku nýs deiliskipulags.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa skipulagslýsingu fyrir deiliskipulagið “Freyjugötureitur suðurhluti, Sauðárkróki" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Gestir: Björn Magnús Árnason"
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að auglýsa skipulagslýsingu fyrir deiliskipulagið “Freyjugötureitur suðurhluti, Sauðárkróki" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
25.Sauðárkrókur - Deiliskipulag. Skógargata, Aðalgata frá leikvelli að Kambastíg
Málsnúmer 2202094Vakta málsnúmer
"Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Skógargötureitur, íbúðabyggð á Sauðárkróki" og deiliskipulagsbreytingu fyrir “Gamli bærinn á Sauðárkróki, Skógargötureitur" sem var í kynningu dagana 31.03.2026- 12.05.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 392/2026 og nr. 393/2026, sjá tengla hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/392 og https://skipulagsgatt.is/issues/2026/393 .
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun var málsmeðferð endurtekin skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunum frá fyrri auglýsingu (mál nr. 208/2024, https://skipulagsgatt.is/issues/2024/208/ og mál nr. 1156/2024, https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1156 ), var sérstaklega tekið fram í auglýsingum að fyrri umsagnir myndu gilda bærust ekki fleiri.
Fimm nýjar umsagnir bárust við deilskipulagstillöguna mál nr. 392/2026, sem gefa ekki tilefni til breytinga og áður höfðu borist ellefu umsagnir og standa fyrri viðbrögð skipulagsnefndar við þeim frá dags. 26.11.2024.
Fjórar nýjar umsagnir bárust við deilskipulagsbreytingartillöguna mál nr. 393/2026, sem gefa ekki tilefni til breytinga og áður höfðu borist sjö umsagnir sem gáfu ekki tilefni til breytinga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Skógargötureitur, íbúðarbyggð á Sauðárkróki" og deiliskipulagsbreytinguna fyrir “Gamli bærinn á Sauðárkróki, Skógargötureitur" og senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Sigríður Magnúsdóttir víkur af fundi við þennan dagskrálið og Einar E. Einarsson varamaður hennar kemur inn í hennar stað.
Gestir: Björn Magnús Árnason"
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum tillöguna að deiliskipulagi "Skógargötureitur, íbúðarbyggð á Sauðárkróki" og deiliskipulagsbreytinguna fyrir “Gamli bærinn á Sauðárkróki, Skógargötureitur" og felur skipulagsfulltrúa að senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
26.Tumabrekka land 2 L220570 - Deiliskipulag
Málsnúmer 2405682Vakta málsnúmer
"Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Tumabrekka land 2, Skagafirði" sem var í kynningu dagana 31.03.2026- 12.05.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 389/2026, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/389 .
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun var málsmeðferð endurtekin skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engin breyting var gerð á tillögunni frá fyrri auglýsingu (mál nr. 806/2024, https://skipulagsgatt.is/issues/2024/806 ), var sérstaklega tekið fram í auglýsingunni að fyrri umsagnir gilda bærust ekki fleiri.
Fimm nýjar umsagnir bárust við deilskipulagstillöguna, sem gefur tilefni til minniháttar breytingar og áður höfðu borist fimm umsagnir sem gáfu ekki tilefni til breytinga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Tumabrekka land 2, Skagafirði" og senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Gestir: Björn Magnús Árnason"
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum tillöguna að deiliskipulagi "Tumabrekka land 2, Skagafirði" og felur skipulagsfulltrúa að senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
27.Hofsós - Sorpmóttaka og gámasvæði - Deiliskipulag.
Málsnúmer 2302209Vakta málsnúmer
"Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Sorpmóttaka og gámalóð, Hofsósi, Skagafirði" sem var í kynningu dagana 31.03.2026- 12.05.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 394/2026, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/394 .
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun var málsmeðferð endurtekin skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engin breyting var gerð á tillögunni frá fyrri auglýsingu (mál nr. 206/2023, https://skipulagsgatt.is/issues/2023/206 ), var sérstaklega tekið fram í auglýsingunni að fyrri umsagnir gilda bærust ekki fleiri.
Fimm nýjar umsagnir bárust við deilskipulagstillöguna, sem gefa tilefni til minnihátta breytinga og áður höfðu borist sex umsagnir sem gáfu ekki tilefni til breytinga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Sorpmóttaka og gámalóð, Hofsósi, Skagafirði" og senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Gestir: Björn Magnús Árnason"
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum tillöguna að deiliskipulagi "Sorpmóttaka og gámalóð, Hofsósi, Skagafirði" og felur skipulagsfulltrúa að senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
28.Freyjugata - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Málsnúmer 2511082Vakta málsnúmer
"Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagsbreytingartillögu fyrir "Deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki - Freyjugata 7 og 9" sem var í kynningu dagana 31.03.2026- 12.05.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 388/2026, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/388 .
Átta umsagnir bárust við deilskipulagsbreytingartillöguna, sem gefa tilefni til minniháttar breytinga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagsbreytingu fyrir "Deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki - Freyjugata 7 og 9" og senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010, og að samhliða því fella umrætt svæði úr gildi í gildandi deiliskipulagi Gamla bæjarins frá 1987.
Gestir: Björn Magnús Árnason"
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum tillöguna að deiliskipulagsbreytingu fyrir "Deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki - Freyjugata 7 og 9" og felur skipulagsfulltrúa að senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010, og að samhliða því fella umrætt svæði úr gildi í gildandi deiliskipulagi Gamla bæjarins frá 1987.
29.Skógarstígur 6. Varmahlíð - Lóðarmál
Málsnúmer 2103351Vakta málsnúmer
"Lögð fram Vinnuskrá 4, 56193YFIRL Skógarstígur lóðamörk vinnuskrá 4.dgn dags. 13.05.2025, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Vinnuskráin var unnin út frá gildandi deiliskipulagi svæðisins auk annarra fyrirliggjandi gagna, ásamt því sem haft var samráð við lóðarhafa svæðisins.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja lóðarmörk Skógarstígs eins og þau koma fram í fyrirliggjandi gögnum og fela skipulagsfulltrúa að láta útbúa merkjalýsingu og ný lóðarblöð og endurnýja lóðarleigsamninga við hluteigandi.
Gestir: Björn Magnús Árnason"
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum lóðarmörk Skógarstígs eins og þau koma fram í fyrirliggjandi gögnum og fela skipulagsfulltrúa að láta útbúa merkjalýsingu og ný lóðarblöð og endurnýja lóðarleigsamninga við hluteigandi.
30.Birkihlíð 14, Sauðárkróki F2131259 - Beiðni um heimild til breytinga á útitröppum og stækkun bílastæðis
Málsnúmer 2605132Vakta málsnúmer
"Halldór Örn Kristjánsson og Vilborg Hrefna Sæmundardóttir lóðarhafar Birkihlíðar 14 á Sauðárkróki, óska eftir heimild til breytinga á útisvæði fasteignarinnar skv. meðfylgjandi uppdráttum í verki nr. 74090000, unnum hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
Fyrirhugað er að bæta aðgengi að húsinu vegna hreyfihamlaðs barns lóðarhafa. Framkvæmdin felst í því að færa núverandi útitröppur á austurhlið hússins til suðurs. Við þessa breytingu stækkar núverandi bílastæði við húsið sem er nauðsynlegt til að tryggja fullnægjandi athafnarými fyrir hjálpartæki og öruggt aðgengi frá ökutæki að inngangi.
Meðfylgjandi uppdrættir (T-100 til T-105) sýna tillögu að breytingunni, þar á meðal afstöðumynd og þrívíddarmyndir sem gera grein fyrir nýrri ásýnd og staðsetningu trappa.
Í ljósi þess að deiliskipulag liggur ekki fyrir á þessu svæði, er óskað eftir því að skipulagsnefnd taki ákvörðun um hvort framkvæmdin skuli grenndarkynnt skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eigendur hafa þegar kynnt fyrirætlanir sínar fyrir íbúum aðliggjandi lóða og leitað samþykkis þeirra. Með vísan til þess að fyrir liggur skriflegt samþykki næstu nágranna og að framkvæmdin varðar hagsmuni hreyfihamlaðs einstaklings án þess að skerða hagsmuni annarra hvað varðar útsýni, skuggavarp eða innsýn, er þess farið á leit að skipulagsnefnd taki til skoðunar að falla frá grenndarkynningu í samræmi við 3. mgr. 44. gr. sömu laga.
Meðfylgjandi er árituð yfirlýsing nágranna um að þeir hafi séð meðfylgjandi tillöguteikningar T101-T105, dags 17.02.2026 og að þeir geri ekki athugasemdir um áformaðar framkvæmdir.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að falla frá grenndarkynningu vegna málsins þar sem skriflegt samþykki nágranna liggur fyrir og ekki sé verið að skerða hagsmuni annarra hvað varðar útsýni, skuggavarp eða innsýn, jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða umbeðna breytingu varðandi innkeyrslu lóðarinnar.
Þá bendir nefndin jafnframt á að hluti framkvæmdar er háð byggingarleyfi sbr. lög um mannvirki nr. 160/2010."
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að falla frá grenndarkynningu vegna málsins þar sem skriflegt samþykki nágranna liggur fyrir og ekki sé verið að skerða hagsmuni annarra hvað varðar útsýni, skuggavarp eða innsýn.
31.Hyrna L146216 á neðribyggð - Umsókn um stofnun þriggja lóða
Málsnúmer 2605137Vakta málsnúmer
"Björn Helgi Ófeigsson, eigandi jarðarinnar Hyrnu, landnr. 146216, óskar eftir heimild til að stofna þrjár spildur, úr landi jarðarinnar sem “Hyrna 1", 1.899 m2 að stærð, "Hyrna 2", 1.536 m2 að stærð og "Hyrna 3", 3.318 m2 að stærð, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 73175000 dags. 7. maí 2026 og merkjalýsingu dags. 07.05.2026.
Afstöðuppdráttur og merkjalýsing voru unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Óskað er eftir því að útskiptar spildur verði skráðar sem lóðir.
Landheiti hinna nýju lóða vísa í heiti upprunajarðar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Hyrnu landnúmer 146216.
Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 eru lóðirnar á landbúnaðarlandi nr. L-4. Landskiptin samræmast stefnu aðalskipulags um uppbyggingu og landnotkun í dreifbýli og styðja við búsetu í dreifbýli.
Hér er ekki um að ræða ný framkvæmdaáform eða nýja landnotkun, heldur er einungis verið að afmarka og stofna lóðir utan um þegar byggð mannvirki á jörðinni sem reist voru á árunum 1986 til 2003. Landskiptin fela því hvorki í sér nýtt rask né ný umhverfisáhrif. Í kafla 3.7 í aðalskipulaginu um landbúnaðarland segir meðal annars um skiptingu lands: "Við mat á áhrifum þess að taka land úr landbúnaðarnotum og leggja til annarra nota, skipta landi eða sameina það, skal taka mið af ákvæðum 5. og 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og gera grein fyrir og taka afstöðu til eftirfarandi: Hvort landið sé stærra en þörf er að teknu tilliti til þeirra áforma sem er lýst. Tekið skal tillit til ræktunarmöguleika lands skv. flokkun ræktarlands."
Með vísan til þessa er gætt vel að því að hinar nýju lóðir séu hóflegar, ekki stærri en þörf krefur og nákvæmlega sniðnar að þörfum og nauðsynlegu athafnarými mannvirkjanna. Þar sem mannvirkin eru nú þegar til staðar hefur stofnun lóðanna engin frekari áhrif á búrekstrarskilyrði upprunajarðarinnar. Jörðin er flokkuð sem L-4 og því er afmörkunin ekki að skerða dýrmætt ræktarland í flokki L-1 eða L-2. Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptra lóða.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Hyrnu, landnúmer 146216.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M003789.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja erindið eins og það er fyrirlagt."
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum erindið eins og það er fyrirlagt.
32.Hvalnes L145892 á Skaga, Skagafirði - Umsókn um stofnun landspildu og tilfærslu byggingarreits
Málsnúmer 2605139Vakta málsnúmer
"Bjarni Egilsson, f.h. Hvalnesbúsins ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Hvalnes, landnúmer 145892, á Skaga óskar eftir heimild til að stofna 4.088 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem "Hvalnes 2", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75560101 útg. 11. maí 2026 og merkjalýsingu dags. 11. maí 2026. Afstöðuppdráttur og merkjalýsing voru unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Jafnframt er með erindi þessu óskað eftir að heiti upprunajarðarinnar verði leiðrétt í fasteignaskrá. Upprunajörðin landnr. 145892 er þar ranglega skráð sem Hvalnes 2 en á réttilega að bera heitið Hvalnes. Hin nýja útskipta lóð mun hins vegar fá heitið Hvalnes 2.
Landheiti útskiptrar lóðar vísar í heiti upprunajarðar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Hvalnesi L145892.
Óskað er þess að útskipt lóð verði skráð sem íbúðarhúsalóð (10). Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er lóðin á landbúnaðarsvæði L-2. Landskipti eru í samræmi við ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæði.
Breytt landnotkun hefur óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði.
Ekkert ræktað land er innan útskiptrar spildu.
Innan afmörkunar útskiptrar spildu er matshluti 16, sem er einbýlishús að stærð 141,8 m2, byggt árið 2020. Mannvirki þetta skal fylgja útskiptri lóð.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Hvalnesi, landnr. 145892.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003804.
Þá er einnig óskað eftir tilfærslu byggingarreits, sem samþykktur var í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 16.10.2019. Óskað er eftir hliðrun byggingarreits um 2,6 m til suðurs. Stærð reitsins verður óbreytt og íbúðarhús fellur innan reits eftir tilfærslu. Staðsetning byggingarreits, fyrir og eftir umsótta breytingu, er sýnd á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti.
Óskað hefur verið eftir umsögn Minjastofnunar.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leiðrétta heiti upprunajarðarinnar í fasteignaskrá. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja landskiptin og færslu byggingarreitsins að fenginni jákvæðri umsögn Minjastofnunar."
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum landskiptin og færslu byggingarreitsins að fenginni jákvæðri umsögn Minjastofnunar.
33.Byggðarráð Skagafjarðar - 195
Málsnúmer 2605013FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 195 Lögð var fram beiðni um viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins 2026.
Í framlögðum viðauka er gert ráð fyrir 1,8 m.kr. útgjöldum vegna endurnýjunar á hljóðkerfi við gervigrasvöll á Sauðárkróki.
Einnig eru framkvæmdir og eignabreytingar sem stafa af nýundirrituðu samkomulagi við íslenska ríkið þar sem að Skagafjörður eignast lóðir og lendur á Hólum í Hjaltadal og í Nýrækt í Fljótum að matsvirði 183,6 m.kr. ásamt 376 m.kr. skuldbindingu um fráveituframkvæmdir, en þar kemur á móti greiðsla frá ríkinu upp á 150 m.kr. sem hlutdeild ríkisins í framkvæmdunum. Því til viðbótar er gert ráð fyrir 16,1 m.kr. vegna fjölgunar bílastæða við sundlaug Sauðárkróks.
Niðurstaða viðaukans er hækkun á handbæru fé um 132,1 m.kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Viðauki 5 við fjárhagsáætlun 2026, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 195 Lagður var fram tölvupóstur frá stjórn Körfuknattleiksdeildar Tindastóls dagsettur 18. maí 2026. Í tölvupóstinum er óskað eftir afnotum af Síkinu, íþróttahúsi Sauðárkróks, þann 22. maí nk. til að halda lokahóf Körfuknattleiksdeildarinnar. Einnig er óskað eftir að afnotin verði gjaldfrjáls.
Samkvæmt reglum vegna útleigu íþróttahúsa Skagafjarðar til skemmtanahalds, sem staðfestar voru í sveitarstjórn 18. september 2024, segir í 2. grein að heimilt er að leigja íþróttahús Skagafjarðar undir skemmtanir þegar um er að ræða skemmtanir sem önnur húsakynni Skagafjarðar geta ekki hýst. Skal þá gæta sérstaklega að því að hefðbundin starfsemi raskist sem minnst. Slík umsókn skal berast forstöðumanni íþróttamannvirkja með minnst fjögurra vikna fyrirvara.
Þá segir einnig í 4. grein reglnanna að óhagnaðardrifin félagasamtök geta óskað eftir afslætti af leigu gegn því að skila inn formlegu erindi til félagsmála- og tómstundanefndar. Í erindinu skal koma fram ástæður umsóknar, hvers vegna annað húsnæði í Skagafirði henti ekki og hvert ágóði af viðburðinum fari, verði einhver.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fallast á það að þessu sinni að gerð verði undantekning frá 2. og 4. grein gildandi reglna um útleigu íþróttahúsa Skagafjarðar til skemmtanahalds og þar með heimila að viðburðurinn fari fram í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafna beiðni um að afnotin verði gjaldfrjáls og afnotin verða því heimiluð samkvæmt fyrirliggjandi gjaldskrá.
Byggðarráð áréttar að vel sé hægt að halda umsóknarfresti með því að sækja um tímanlega með fyrirvara um mögulega breytingu á dagsetningu. Bókun fundar Afgreiðsla 195. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 195 Lagður fram tölvupóstur frá Innviðaráðueytinu, dags. 8. maí 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna endurskoðunar á byggðakvótakerfinu.
Auk bréfsins fylgir yfirlit yfir helstu tillögur og ábendingar sem komið hafa fram um breytingar á byggðakvótakerfinu. Þá fylgir spurningalisti í Word-formi, samhljóða þeim atriðum sem fram koma í bréfinu.
Óskað er eftir að umsögn sveitarfélagsins berist ráðuneytinu eigi síðar en 26. maí 2026.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að skila inn útfylltum spurningalista í samræmi við umræður á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 195. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 195 Lagt fram bréf frá Ingólfi Jóhanssyni fyrir hönd áhugasamra fyrirtækja um málefni leikskóla í Skagafirði, dagsett 10. maí 2026. Í bréfinu er þess farið á leit við byggðarráð að leita leiða til að efla þjónustu leikskólanna við fjölskyldur og atvinnulíf.
Tillaga bréfritara er að atvinnufyrirtæki í héraði skipi tvo aðila úr sínum röðum í starfshóp á vegum sveitarfélagsins um málefni leikskóla í Skagafirði með það að markmiði að sætta ólík sjónarmið og finna sameiginlega niðurstöðu til að efla þjónustu leikskóla Skagafjarðar við fjölskyldur og atvinnulíf í firðinum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra og formanni byggðarráðs að finna fundartíma. Bókun fundar Afgreiðsla 195. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 195 Lögð fram gjaldskrá leikskóla Skagafjarðar sem gilda mun frá 10. ágúst 2026 en hún byggir á minnisblaði sem lagt var fram í fræðslunefnd á 48. fundi hennar 13. maí sl. og samþykkt á breytingu á reglum um leikskóla og skráningardaga sem vísað er til byggðarráðs frá sama fundi.
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána samhljóða og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá leikskóla Skagafjarðar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 195 Máli vísað frá 48. fundi fræðslunefndar þann 13. maí sl., þannig bókað:
"Tillaga að úthlutun kennslukvóta til grunnskólanna í Skagafirði fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram. Tillagan er unnin í samstarfi við stjórnendur og tekur mið af mörgum þáttum, svo sem nemendafjölda, samsetningu nemendahópa o.fl. Fræðslunefnd samþykkir tillöguna samhljóða og vísar til byggðarráðs vegna kostnaðaraukningar."
Byggðarráð samþykkir tillöguna samhljóða fyrir skólaárið 2026-2027 með fyrirvara um gerð viðauka. Byggðarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að undirbúa viðauka vegna hennar. Byggðarráð leggur jafnframt áherslu á að vinnu við fjármögnunarlíkan grunnskóla verði hraðað. Bókun fundar Afgreiðsla 195. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 195 Mál áður á dagskrá 48. fundi fræðslunefndar þann 13. maí sl., þannig bókað:
"Lagt fram minnisblað sviðsstjóra með tillögum að breytingum á reglum um leikskóla og fyrirkomulagi skráningardaga. Niðurstöður kannana meðal foreldra og starfsfólks voru nýttar þegar fyrirkomulagið var endurskoðað. Niðurstöður sýna að viðhorf foreldra til núverandi fyrirkomulags er fremur neikvætt og kalla til að mynda margir eftir fækkun skráningardaga. Eins er það staðreynd að leikskólastjórnendur standa frammi fyrir mjög miklum áskorunum í núverandi kerfi þegar kemur að því að skipuleggja orlof og vinnustyttingu starfsfólks.
Nefndin tekur undir að þörf sé á endurskoðun kerfisins með hagsmuni barna, starfsfólks og foreldra að leiðarljósi. Sérstaklega var rætt um áskoranir í mönnun og skipulagningu vegna vinnustyttingar og orlofs. Nefndin telur mikilvægt að leggja áherslu á starfsumhverfi starfsfólks með það í huga að halda í allt það góða starfsfólk sem vinnur í leikskólum Skagafjarðar og laða að nýtt starfsfólk.
Fram kom tillaga sviðsstjóra, sem unnin var í samráði við leikskólastjórnendur, um að taka upp fyrirkomulag að fyrirmynd Árborgar. Það felur í sér að börn eru almennt skráð með vistun til klukkan 14 á föstudögum en foreldrum gefst kostur á því að skrá börnin sín til klukkan 16:15 gegn gjaldi, með viku fyrirvara. Lagt er til að heilum skráningardögum verði fækkað úr 20 í 9 og verða þeir dagar bundnir við haust- og vetrarfrí grunnskóla, Þorláksmessu og dymbilviku.
Tillaga er um að lokað verði á milli jóla og nýárs og að sumarlokun verði 24 virkir dagar.
Nefndin telur tillögurnar geta stuðlað að auknum stöðugleika í mönnun og bættu starfsumhverfi, án þess að draga úr þjónustu við fjölskyldur.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögur og drög að reglum sem taka gildi 10. ágúst 2026. Jafnframt felur fræðslunefnd sviðsstjóra að kynna nýtt fyrirkomulag vel fyrir öllum hlutaðeigandi í samráði við leikskólastjórnendur. Mikilvægt er að meta reynslu af fyrirkomulaginu í síðasta lagi að tveimur árum liðnum."
Framlögð voru drög að reglum um leikskóla Skagafjarðar, sem áður hafa verið samþykktar á 48. fundi fræðslunefndar þann 13. maí 2026.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Breytingar á reglum um leikskóla og skráningardaga, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
34.Viðauki 5 við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 2605172Vakta málsnúmer
"Lögð var fram beiðni um viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins 2026.
Í framlögðum viðauka er gert ráð fyrir 1,8 m.kr. útgjöldum vegna endurnýjunar á hljóðkerfi við gervigrasvöll á Sauðárkróki.
Einnig eru framkvæmdir og eignabreytingar sem stafa af nýundirrituðu samkomulagi við íslenska ríkið þar sem að Skagafjörður eignast lóðir og lendur á Hólum í Hjaltadal og í Nýrækt í Fljótum að matsvirði 183,6 m.kr. ásamt 376 m.kr. skuldbindingu um fráveituframkvæmdir, en þar kemur á móti greiðsla frá ríkinu upp á 150 m.kr. sem hlutdeild ríkisins í framkvæmdunum. Því til viðbótar er gert ráð fyrir 16,1 m.kr. vegna fjölgunar bílastæða við sundlaug Sauðárkróks.
Niðurstaða viðaukans er hækkun á handbæru fé um 132,1 m.kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar."
Framlagður viðauki 5 við fjárhagsáætlun ársins 2026 borinn upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykktur með níu atkvæðum.
35.Gjaldskrá leikskóla Skagafjarðar
Málsnúmer 2605174Vakta málsnúmer
"Lögð fram gjaldskrá leikskóla Skagafjarðar sem gilda mun frá 10. ágúst 2026 en hún byggir á minnisblaði sem lagt var fram í fræðslunefnd á 48. fundi hennar 13. maí sl. og samþykkt á breytingu á reglum um leikskóla og skráningardaga sem vísað er til byggðarráðs frá sama fundi.
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána samhljóða og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."
Framlögð gjaldskrá leikskóla Skagafjarðar borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.
36.Breytingar á reglum um leikskóla og skráningardaga
Málsnúmer 2605074Vakta málsnúmer
"Mál áður á dagskrá 48. fundi fræðslunefndar þann 13. maí sl., þannig bókað:
"Lagt fram minnisblað sviðsstjóra með tillögum að breytingum á reglum um leikskóla og fyrirkomulagi skráningardaga. Niðurstöður kannana meðal foreldra og starfsfólks voru nýttar þegar fyrirkomulagið var endurskoðað. Niðurstöður sýna að viðhorf foreldra til núverandi fyrirkomulags er fremur neikvætt og kalla til að mynda margir eftir fækkun skráningardaga. Eins er það staðreynd að leikskólastjórnendur standa frammi fyrir mjög miklum áskorunum í núverandi kerfi þegar kemur að því að skipuleggja orlof og vinnustyttingu starfsfólks.
Nefndin tekur undir að þörf sé á endurskoðun kerfisins með hagsmuni barna, starfsfólks og foreldra að leiðarljósi. Sérstaklega var rætt um áskoranir í mönnun og skipulagningu vegna vinnustyttingar og orlofs. Nefndin telur mikilvægt að leggja áherslu á starfsumhverfi starfsfólks með það í huga að halda í allt það góða starfsfólk sem vinnur í leikskólum Skagafjarðar og laða að nýtt starfsfólk.
Fram kom tillaga sviðsstjóra, sem unnin var í samráði við leikskólastjórnendur, um að taka upp fyrirkomulag að fyrirmynd Árborgar. Það felur í sér að börn eru almennt skráð með vistun til klukkan 14 á föstudögum en foreldrum gefst kostur á því að skrá börnin sín til klukkan 16:15 gegn gjaldi, með viku fyrirvara. Lagt er til að heilum skráningardögum verði fækkað úr 20 í 9 og verða þeir dagar bundnir við haust- og vetrarfrí grunnskóla, Þorláksmessu og dymbilviku.
Tillaga er um að lokað verði á milli jóla og nýárs og að sumarlokun verði 24 virkir dagar.
Nefndin telur tillögurnar geta stuðlað að auknum stöðugleika í mönnun og bættu starfsumhverfi, án þess að draga úr þjónustu við fjölskyldur.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögur og drög að reglum sem taka gildi 10. ágúst 2026. Jafnframt felur fræðslunefnd sviðsstjóra að kynna nýtt fyrirkomulag vel fyrir öllum hlutaðeigandi í samráði við leikskólastjórnendur. Mikilvægt er að meta reynslu af fyrirkomulaginu í síðasta lagi að tveimur árum liðnum."
Framlögð voru drög að reglum um leikskóla Skagafjarðar, sem áður hafa verið samþykktar á 48. fundi fræðslunefndar þann 13. maí 2026.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."
Framlögð drög af reglum um leikskóla og skráningardaga bornar upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykktar með níu atkvæðum.
37.Fundargerðir SÍS 2026
Málsnúmer 2601009Vakta málsnúmer
38.Fundargerðir SSNV 2026
Málsnúmer 2601010Vakta málsnúmer
39.Ársfundur Brák íbúðafélag hses
Málsnúmer 2604059Vakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 18:15.