Þórður Karl Gunnarson f.h. Golfklúbbs Skagafjarðar, lóðarhafa Lóðar 22 Hlíðarenda, landnúmer 143908, óskar eftir að á að leggja hitaveitulögn í jörð frá tengipunkti við Gránumóa 63 (Fóðurstöð KS) að nýjum gólfskála á landi Lóð 22 Hlíðarenda, Sauðárkróki. Meðfylgjandi afstöðuuppdráttur og greinargerð, í verki GSS-HIT-01 útg. 30.04.2026, gera grein fyrir framkvæmdinni.
Gögn voru unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Um er að ræða hitaveitulögn, PEX 32/90mm með plægingu frá núv. hitaveitulögn í lóð Gránumóa 63 að nýjum golfskála á Lóð 22 Hlíðarenda.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist í maí/júní 2026 og að þeim verði lokið fyrir ágúst 2026.
Í aðalskipulagi sveitarfélagsins Skagafjarðar 2025-2040 er golfskáli á íþróttasvæði nr. ÍÞ-402. Skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn ákveðið að veita megi framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag þótt ekki liggi fyrir deiliskipulag.
Skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn ákveðið að veita megi framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag þótt ekki liggi fyrir deiliskipulag. Ekki liggur fyrir deiliskipulag á umræddu svæði. Skipulagsnefnd er heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Um er að ræða framkvæmd neðanjarðar á opnu svæði og ekki verður séð að lögnin skerði hagsmuni annarra hvað varðar landnotkun, innsýn, aðgengi eða aðra umhverfisþætti.
Fyrirliggur umsögn Minjastofnunar án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að fallið verði frá grenndarkynningu í samræmi við ákvæði 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og jafnframt að sveitarstjórn veiti umbeðið framkvæmdaleyfi.