Guðný Þórhallsdóttir, Birgir Gunnarsson, Jónbjörg K Þórhallsdóttir, Skarphéðinn Guðmundsson, Stefanía S Guðmundsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Hjörleifur Þórhallsson og Sigurlaug Þórhallsdóttir, þinglýstir eigendur jarðarinnar Gautastaðir, landnúmer 146797 óska eftir með vísan til laga um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2021 og reglugerð um merki fasteigna 160/2024, staðfestingar á hnitsettum landamerkjum jarðarinnar eins og þau eru sýnd á meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti, útg. 20. janúar 2026.
Hnitsetning byggir á þinglýstum heimildum sem getið er á forsenduskjali/uppdrætti. Um tvískipta aðgerð er að ræða. Annars vegar að klára að afmarka Gautstaði með hnitum gagnvart jörðinni Skeið, en búið er að gera merkjalýsingu gagnvart jörðinni Tungu. Hins vegar er verið að skipta út stærsta eignarhluta Gautastaða sem er í eigu Birgis Gunnarssonar. Stærð þessa hlutar er 41,6668 %. Þessi hluti mun halda landnúmeri jarðarinnar sem er 146797 og eins lögbýlisréttinum. Þessi hluti er syðsti hluti jarðarinnar og á landamerki við Tungu, landnr. 146914 og nær að landamerkjapunkti LM01 úr merkjalýsingu Gautastaða gagnvart Tungu sem er í mörkum Gautastaða, Tungu og Skeiðs. Hinn hluti jarðarinnar fær nýtt landnúmer og verður í óskiptri sameign annarra eiganda Gautastaða og verður með staðfangið Gautastaðir 2. Framangreind merkjalýsing (M003678) og uppdráttur er unnin af Sigurgeiri Skúlasyni merkjalýsanda.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðið nafnleyfi og jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila umbeðin landskipti og að staðfesta hnitsett landamerki.