Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Trúnaðarbók byggðarráðs
Málsnúmer 2412006Vakta málsnúmer
Fært í trúnaðarbók.
2.Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 2605071Vakta málsnúmer
Lögð fram beiðni um viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun ársins 2026.
Fyrir liggur rekstrarviðauki með nettó tekjuauka að fjárhæð 1.505 m.kr. Þar vegur þyngst söluhagnaður íbúða sem renna inn í Leigufélagið Bríet ehf. Samhliða þessu er óskað eftir auknu fjármagni til tímabundinnar aukningar stöðugilda við sundlaugina í Varmahlíð.
Einnig liggur fyrir efnahagsviðauki vegna sölu íbúða í eigu Eignasjóðs og Félagslegra íbúða Skagafjarðar til Leigufélagsins Bríetar ehf. Í því er sala fasteigna, greidd upp fasteignalán og hlutafé sem Skagafjörður eignast í Leigufélaginu Bríeti ehf.
Niðurstaðan er hækkun á handbæru fé um 491 m.kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða beiðni um viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2026 og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Eignarhald þéttbýlis á Hólum í Hjaltadal
Málsnúmer 2602105Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að samkomulagi á milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og íslenska ríkisins um fyrirkomulag lóða og innviða á Hólum í Hjaltadal. Samkvæmt samkomulaginu mun ríkið leggja til eingreiðslu til Skagafjarðar gegn yfirtöku sveitarfélagsins á rekstri og viðhaldi allra innviða þéttbýlis á Hólum, innan afmörkunar svæðis sem ríkið afsalar eignarhaldi til sveitarfélagsins. Skagafjörður skuldbindur sig jafnframt til að hefja endurbætur og viðhald á fráveituinnviðum svæðisins innan eins árs frá undirritun samkomulagsins og ljúka innan fimm ára.
Jafnframt er samkomulag um að ríkissjóður muni afsala til sveitarfélagsins eignarhaldi á jörðinni Nýrækt í Fljótum, þar sem sveitarfélagið áformar íbúðauppbyggingu. Undanskilið við sölu er hluti jarðarinnar sem fer undir breytta legu Siglufjarðarvegar vegna fyrirhugaðra Fljótaganga.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram og undirrita samkomulagið f.h. Skagafjarðar með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar. Byggðarráð samþykkir jafnframt samhljóða að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs gerð viðauka vegna málsins.

4.Innkaupareglur og -stefna yrir Skagafjörð
Málsnúmer 2410344Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að uppfærðum innkaupareglum og innkaupastefnu Skagafjarðar en lagðar eru til breytingar á viðmiðunarfjárhæðum til samræmis við gildandi lög og reglugerðir.
Byggðarráð samþykkir innkaupareglur og innkaupastefnu Skagafjarðar samhljóða með áorðnum breytingum og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.

5.Opnunartími sundlaugarinnar í Varmahlíð sumar 2026
Málsnúmer 2605015Vakta málsnúmer
Vísað frá 44. fundi félagsmála- og tómstundanefndar, 7. maí 2026, þannig bókað:
"Félagsmála- og tómstundanefnd leggur til að mönnun verði aukin í sundlauginni í Varmahlíð sumarið 2026, þannig að opið verði frá 7:00-21:00 á virkum dögum.
Opnunartími sundlauga er að jafnaði ákveðinn við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert. Á 39. fundi félagsmála- og tómstundanefndar, þann 27. október síðastliðinn, var bókað að opnunartími væri ekki meitlaður í stein og mætti endurskoða þegar lægi fyrir hver eftirspurn og staða á mönnun væri.
Leiðtogi frístunda- og íþróttamála fór yfir stöðuna með nefndinni. Útlit er fyrir að það takist að manna áður samþykktan opnunartíma. Lenging á opnunartíma þýðir að 1,4 stöðugildi þarf til viðbótar við núverandi fjárhagsáætlun. Miðað við stöðuna á sumarafleysingum í öðrum málaflokkum verður að setja fyrirvara á að starfsfólk fáist til að sinna viðbótarvöktum sem verða til við lengingu opnunartíma.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að lengja opnunartíma í sundlauginni í Varmahlíð ef næst að manna 1,4 stöðugildi með fyrirvara um fjármögnun í viðauka. Vísað til byggðarráðs.
Jafnframt samþykkir nefndin samhljóða að fela starfsmönnum nefndarinnar að endurskoða opnunartíma í sundlaugum Skagafjarðar. Starfsmönnum er falið að skila minnisblaði með kostnaði og tillögu að breyttum opnunartíma og leggja fyrir á næsta fundi nefndarinnar."
Byggðarráð samþykkir samhljóða að lengja opnunartíma, þannig að opið verði frá 7:00-21:00 á virkum dögum í sundlauginni í Varmahlíð ef næst að manna 1,4 stöðugildi.

6.Stýrihópur um framtíðarskipulag náttúrustofa
Málsnúmer 2605021Vakta málsnúmer
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu þar sem tilkynnt er að ráðuneytið hefur ákveðið að skipa starfshóp sem falið er það hlutverk að leggja fram tillögur að framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa landsins. Vinna starfshópsins byggir á fyrra samráði sem ráðuneytið hefur átt við sveitarfélög sem standa að náttúrustofum um endurskoðun á stjórnskipulagi náttúrustofanna. Samráð var einnig haft við Náttúrufræðistofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Markmið vinnu starfshópsins er að fyrir liggi tillögur sem tryggi markvissari ráðstöfun fjármuna, auki skýrleika um verkefni sem ríkið fjármagnar, bæti fyrirsjáanleika í rekstri náttúrustofa og tryggi varðveislu og aðgengi að gögnum.

Fundi slitið.