Eignarhald þéttbýlis á Hólum í Hjaltadal
Málsnúmer 2602105
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 49. fundur - 19.05.2026
Vísað frá 194. fundi byggðarráðs frá 13. maí sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram drög að samkomulagi á milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og íslenska ríkisins um fyrirkomulag lóða og innviða á Hólum í Hjaltadal. Samkvæmt samkomulaginu mun ríkið leggja til eingreiðslu til Skagafjarðar gegn yfirtöku sveitarfélagsins á rekstri og viðhaldi allra innviða þéttbýlis á Hólum, innan afmörkunar svæðis sem ríkið afsalar eignarhaldi til sveitarfélagsins. Skagafjörður skuldbindur sig jafnframt til að hefja endurbætur og viðhald á fráveituinnviðum svæðisins innan eins árs frá undirritun samkomulagsins og ljúka innan fimm ára.
Jafnframt er samkomulag um að ríkissjóður muni afsala til sveitarfélagsins eignarhaldi á jörðinni Nýrækt í Fljótum, þar sem sveitarfélagið áformar íbúðauppbyggingu. Undanskilið við sölu er hluti jarðarinnar sem fer undir breytta legu Siglufjarðarvegar vegna fyrirhugaðra Fljótaganga.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram og undirrita samkomulagið f.h. Skagafjarðar með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar. Byggðarráð samþykkir jafnframt samhljóða að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs gerð viðauka vegna málsins."
Framlagt var undirritað samkomulag milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og íslenska ríkisins um fyrirkomulag lóða og innviða á Hólum í Hjaltadal dagsett 13. maí 2026. Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri undirritar samkomulagið fyrir hönd Skagafjarðar, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra undirrita samkomulagið fyrir hönd íslenska ríkisins.
Sveinn Þ. Finster Úlfarsson, Sigfús Ingi Sigfússon, Álfhildur Leifsdóttir, Guðlaugur Skúlason og Sveinn Þ. Finster Úlfarsson kvöddu sér hljóðs.
Samkomulagið er borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og staðfest með níu atkvæðum.

Byggðarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram og undirrita samkomulagið f.h. Skagafjarðar með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar. Byggðarráð samþykkir jafnframt samhljóða að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs gerð viðauka vegna málsins.