Fara í efni

Stýrihópur um framtíðarskipulag náttúrustofa

Málsnúmer 2605021

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 194. fundur - 13.05.2026

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu þar sem tilkynnt er að ráðuneytið hefur ákveðið að skipa starfshóp sem falið er það hlutverk að leggja fram tillögur að framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa landsins. Vinna starfshópsins byggir á fyrra samráði sem ráðuneytið hefur átt við sveitarfélög sem standa að náttúrustofum um endurskoðun á stjórnskipulagi náttúrustofanna. Samráð var einnig haft við Náttúrufræðistofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Markmið vinnu starfshópsins er að fyrir liggi tillögur sem tryggi markvissari ráðstöfun fjármuna, auki skýrleika um verkefni sem ríkið fjármagnar, bæti fyrirsjáanleika í rekstri náttúrustofa og tryggi varðveislu og aðgengi að gögnum.