Fara í efni

Skógarstígur 6. Varmahlíð - Lóðarmál

Málsnúmer 2103351

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 403. fundur - 08.04.2021

Óskar Már Atlason kt. 190981-5099, leggur fram ósk um að lóðamörk við Skógargötu 6, í Varmahlíð, verði innmæld og gefið verði út lóðarblað með afmörkun og stærð lóðar.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að hefja vinnu við að fá allar lóðir við Skógarstíg og Skólaveg, í Varmahlíð, hnitasettar og afmarkaðar.

Skipulags- og byggingarnefnd - 408. fundur - 23.06.2021

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar 8.4.2021 fól nefndin skipulagsfulltrúa að hefja vinnu við afmörkun lóða við Skógarstíg og Skólaveg í Varmahlíð. Við nánari skoðun telur nefndin nauðsynlegt að taka stærra svæði undir og leggur til að hafin verði endurskoðun á gildandi deiliskipulagi fyrir núverandi byggð í Varmahlíð.

Skipulagsnefnd - 98. fundur - 15.05.2026

Lögð fram Vinnuskrá 4, 56193YFIRL Skógarstígur lóðamörk vinnuskrá 4.dgn dags. 13.05.2025, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Vinnuskráin var unnin út frá gildandi deiliskipulagi svæðisins auk annarra fyrirliggjandi gagna, ásamt því sem haft var samráð við lóðarhafa svæðisins.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja lóðarmörk Skógarstígs eins og þau koma fram í fyrirliggjandi gögnum og fela skipulagsfulltrúa að láta útbúa merkjalýsingu og ný lóðarblöð og endurnýja lóðarleigsamninga við hluteigandi.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 49. fundur - 19.05.2026

Vísað frá 98. fundi skipulagsnefndar frá 15. maí sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Lögð fram Vinnuskrá 4, 56193YFIRL Skógarstígur lóðamörk vinnuskrá 4.dgn dags. 13.05.2025, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Vinnuskráin var unnin út frá gildandi deiliskipulagi svæðisins auk annarra fyrirliggjandi gagna, ásamt því sem haft var samráð við lóðarhafa svæðisins.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja lóðarmörk Skógarstígs eins og þau koma fram í fyrirliggjandi gögnum og fela skipulagsfulltrúa að láta útbúa merkjalýsingu og ný lóðarblöð og endurnýja lóðarleigsamninga við hluteigandi.

Gestir: Björn Magnús Árnason"

Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum lóðarmörk Skógarstígs eins og þau koma fram í fyrirliggjandi gögnum og fela skipulagsfulltrúa að láta útbúa merkjalýsingu og ný lóðarblöð og endurnýja lóðarleigsamninga við hluteigandi.