Fara í efni

Skipulagsnefnd

98. fundur 15. maí 2026 kl. 13:15 - 15:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigríður Magnúsdóttir formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir
  • Einar Eðvald Einarsson varam.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Umsókn um deiliskipulag

Málsnúmer 1505046Vakta málsnúmer

Lögð fram deiliskipulagstillaga fyrir Neðri-Ás, land 3 og 4 í Skagafirði, greinargerð og uppdráttur dags. 11.05.2026 unnin af Kollgátu arkitektastofu.

Málið var áður kynnt á skipulagsgáttinni undir málsnúmeri 880/2024 en eftir ábendingu frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Gerðar hafa verið nokkrar breytingar frá fyrri deiliskipulagstillögu þar sem m.a. ein lóð stækkar, nokkrir byggingarreitir stækka og vegir bætast við að lóðum 4 og 6. Uppdrátturinn sýnir staðsetningu byggingarreita, lóðamarka, bílastæða, vegtenginga og aðkomu að byggingum, ásamt helstu byggingarskilmálum.
Stærð skipulagssvæðisins er um 32,1 ha.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna “Neðri-Ás, land 3 og 4 í Skagafirði", í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.Freyjugötureitur suður, Sauðárkróki - Deiliskipulag

Málsnúmer 2605113Vakta málsnúmer

Lögð fram skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag Freyjugötureitur suðurhluti, Sauðárkróki, uppdráttur nr. SL01, verknúmer 56292120, dags. 13.05.2026 unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.

Markmið fyrirhugaðrar deiliskipulagstillögu er að skilgreina framtíðarsýn reitsins hvað varðar aðkomu, lóðarmörk, byggingarreiti og skipulagsskilmála. Skipulagssvæðið er um 4.574 m² að stærð. Áætlað er að umrætt skipulagssvæði verði felt úr gildi í gildandi deiliskipulagi Gamla bæjarins frá 1987 við gildistöku nýs deiliskipulags.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa skipulagslýsingu fyrir deiliskipulagið “Freyjugötureitur suðurhluti, Sauðárkróki" í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

3.Sauðárkrókur - Deiliskipulag. Skógargata, Aðalgata frá leikvelli að Kambastíg

Málsnúmer 2202094Vakta málsnúmer

Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Skógargötureitur, íbúðabyggð á Sauðárkróki" og deiliskipulagsbreytingu fyrir “Gamli bærinn á Sauðárkróki, Skógargötureitur" sem var í kynningu dagana 31.03.2026- 12.05.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 392/2026 og nr. 393/2026, sjá tengla hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/392 og https://skipulagsgatt.is/issues/2026/393 .
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun var málsmeðferð endurtekin skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunum frá fyrri auglýsingu (mál nr. 208/2024, https://skipulagsgatt.is/issues/2024/208/ og mál nr. 1156/2024, https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1156 ), var sérstaklega tekið fram í auglýsingum að fyrri umsagnir myndu gilda bærust ekki fleiri.

Fimm nýjar umsagnir bárust við deilskipulagstillöguna mál nr. 392/2026, sem gefa ekki tilefni til breytinga og áður höfðu borist ellefu umsagnir og standa fyrri viðbrögð skipulagsnefndar við þeim frá dags. 26.11.2024.

Fjórar nýjar umsagnir bárust við deilskipulagsbreytingartillöguna mál nr. 393/2026, sem gefa ekki tilefni til breytinga og áður höfðu borist sjö umsagnir sem gáfu ekki tilefni til breytinga.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Skógargötureitur, íbúðarbyggð á Sauðárkróki" og deiliskipulagsbreytinguna fyrir “Gamli bærinn á Sauðárkróki, Skógargötureitur" og senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Sigríður Magnúsdóttir víkur af fundi við þennan dagskrálið og Einar E. Einarsson varamaður hennar kemur inn í hennar stað.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

4.Tumabrekka land 2 L220570 - Deiliskipulag

Málsnúmer 2405682Vakta málsnúmer

Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Tumabrekka land 2, Skagafirði" sem var í kynningu dagana 31.03.2026- 12.05.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 389/2026, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/389 .
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun var málsmeðferð endurtekin skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engin breyting var gerð á tillögunni frá fyrri auglýsingu (mál nr. 806/2024, https://skipulagsgatt.is/issues/2024/806 ), var sérstaklega tekið fram í auglýsingunni að fyrri umsagnir gilda bærust ekki fleiri.

Fimm nýjar umsagnir bárust við deilskipulagstillöguna, sem gefur tilefni til minniháttar breytingar og áður höfðu borist fimm umsagnir sem gáfu ekki tilefni til breytinga.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Tumabrekka land 2, Skagafirði" og senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

5.Hofsós - Sorpmóttaka og gámasvæði - Deiliskipulag.

Málsnúmer 2302209Vakta málsnúmer

Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagstillögu fyrir "Sorpmóttaka og gámalóð, Hofsósi, Skagafirði" sem var í kynningu dagana 31.03.2026- 12.05.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 394/2026, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/394 .
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun var málsmeðferð endurtekin skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engin breyting var gerð á tillögunni frá fyrri auglýsingu (mál nr. 206/2023, https://skipulagsgatt.is/issues/2023/206 ), var sérstaklega tekið fram í auglýsingunni að fyrri umsagnir gilda bærust ekki fleiri.

Fimm nýjar umsagnir bárust við deilskipulagstillöguna, sem gefa tilefni til minnihátta breytinga og áður höfðu borist sex umsagnir sem gáfu ekki tilefni til breytinga.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Sorpmóttaka og gámalóð, Hofsósi, Skagafirði" og senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

6.Freyjugata - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2511082Vakta málsnúmer

Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við deiliskipulagsbreytingartillögu fyrir "Deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki - Freyjugata 7 og 9" sem var í kynningu dagana 31.03.2026- 12.05.2026 í Skipulagsgáttinni mál nr. 388/2026, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/388 .

Átta umsagnir bárust við deilskipulagsbreytingartillöguna, sem gefa tilefni til minniháttar breytinga.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagsbreytingu fyrir "Deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki - Freyjugata 7 og 9" og senda þær til skipulagssviðs Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010, og að samhliða því fella umrætt svæði úr gildi í gildandi deiliskipulagi Gamla bæjarins frá 1987.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

7.Skógarstígur 6. Varmahlíð - Lóðarmál

Málsnúmer 2103351Vakta málsnúmer

Lögð fram Vinnuskrá 4, 56193YFIRL Skógarstígur lóðamörk vinnuskrá 4.dgn dags. 13.05.2025, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Vinnuskráin var unnin út frá gildandi deiliskipulagi svæðisins auk annarra fyrirliggjandi gagna, ásamt því sem haft var samráð við lóðarhafa svæðisins.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja lóðarmörk Skógarstígs eins og þau koma fram í fyrirliggjandi gögnum og fela skipulagsfulltrúa að láta útbúa merkjalýsingu og ný lóðarblöð og endurnýja lóðarleigsamninga við hluteigandi.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

8.Skarðseyri 5 á Sauðárkróki - Beiðni um samþykki fyrir nýrri akstursleið út af bílastæði

Málsnúmer 2605127Vakta málsnúmer

Tryggvi Harðarson verksmiðjustjóri fyrir hönd Steinull hf. óskar eftir samþykki fyrir því að bæta við nýrri akstursleið út af bílastæði félagsins að Skarðseyri 5 á Sauðárkróki.
Beiðnin er lögð fram í framhaldi af endurskipulagningu bílastæðisins við húsnæði félagsins. Í þeirri vinnu hefur bílastæðinu verið breytt með það að markmiði að bæta nýtingu svæðisins og fjölga bílastæðum. Þá hafa verið settar upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla ásamt tilheyrandi stæðum.
Við endurskipulagninguna er jafnframt gert ráð fyrir bílastæði fyrir hreyfihamlaða við húsið, þannig að aðgengi að húsnæðinu verði tryggt með viðeigandi hætti.
Meðfylgjandi er teikning sem sýnir fyrirhugað fyrirkomulag bílastæðisins, staðsetningu hleðslustöðva og stæða, stæði fyrir hreyfihamlaða og hina nýju akstursleið sem óskað er eftir að verði heimiluð.
Steinull hf. fer því formlega fram á að heimild verði veitt fyrir umræddri akstursleið út af bílastæðinu í samræmi við meðfylgjandi gögn.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða erindið eins og það er fyrirlagt.

9.Víðigrund 13 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2605003Vakta málsnúmer

Árni Gísli Brynleifsson og Heiða B. Jóhannsdóttir lóðarhafar Víðigrundar 13 á Sauðárkróki óska eftir breikkun innkeyrslu. Fyrri eigandi sótti um breikkun innkeyrslu (15. október 2014) eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd, með gulum lit er innkeyrslan merkt eins og hún er samþykkt í dag fyrir umsókn. Fyrir liggur samþykki frá sveitarfélaginu Skagafirði (málsnúmer 1409167) þar sem breikkunin fer í samtals 7,5 metra, afrit af þeirri samþykkt fylgir einnig umsókninni.
Að auki við þá breikkun er óskað eftir 1,0 auka meter til norðurs og 2,0 metra til suðurs sem gera samtals 10,5 metrar í heildina. Merkt með rauðum lit á meðfylgjandi mynd.
Frá norðurhlið hússins eru 3 metrar að lóðamörkum og munu því enn vera 2 metrar að lóðarmörkum verði umsóknin samþykkt.
Umsækjendur telja umbeðna stækkun vera innan þeirra marka sem sveitarfélagið hefur samþykkt áður.
Tilgangur breikkunar er að koma bílum, kerrum, fellihýsi af götunni og inn á lóð, fyrirhugað er að útbúa bílastæði sitt hvoru megin við niðurkeyrslu niður í bílskúr. Bílastæðin að norðan og sunnanverðu yrðu í sömu hæð og lóð en ekki hallandi niður að húsi.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna stækkun á innkeyslu lóðar Víðigrundar 13.

10.Birkihlíð 14, Sauðárkróki F2131259 - Beiðni um heimild til breytinga á útitröppum og stækkun bílastæðis

Málsnúmer 2605132Vakta málsnúmer

Halldór Örn Kristjánsson og Vilborg Hrefna Sæmundardóttir lóðarhafar Birkihlíðar 14 á Sauðárkróki, óska eftir heimild til breytinga á útisvæði fasteignarinnar skv. meðfylgjandi uppdráttum í verki nr. 74090000, unnum hjá Stoð verkfræðistofu ehf.

Fyrirhugað er að bæta aðgengi að húsinu vegna hreyfihamlaðs barns lóðarhafa. Framkvæmdin felst í því að færa núverandi útitröppur á austurhlið hússins til suðurs. Við þessa breytingu stækkar núverandi bílastæði við húsið sem er nauðsynlegt til að tryggja fullnægjandi athafnarými fyrir hjálpartæki og öruggt aðgengi frá ökutæki að inngangi.
Meðfylgjandi uppdrættir (T-100 til T-105) sýna tillögu að breytingunni, þar á meðal afstöðumynd og þrívíddarmyndir sem gera grein fyrir nýrri ásýnd og staðsetningu trappa.
Í ljósi þess að deiliskipulag liggur ekki fyrir á þessu svæði, er óskað eftir því að skipulagsnefnd taki ákvörðun um hvort framkvæmdin skuli grenndarkynnt skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eigendur hafa þegar kynnt fyrirætlanir sínar fyrir íbúum aðliggjandi lóða og leitað samþykkis þeirra. Með vísan til þess að fyrir liggur skriflegt samþykki næstu nágranna og að framkvæmdin varðar hagsmuni hreyfihamlaðs einstaklings án þess að skerða hagsmuni annarra hvað varðar útsýni, skuggavarp eða innsýn, er þess farið á leit að skipulagsnefnd taki til skoðunar að falla frá grenndarkynningu í samræmi við 3. mgr. 44. gr. sömu laga.
Meðfylgjandi er árituð yfirlýsing nágranna um að þeir hafi séð meðfylgjandi tillöguteikningar T101-T105, dags 17.02.2026 og að þeir geri ekki athugasemdir um áformaðar framkvæmdir.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að falla frá grenndarkynningu vegna málsins þar sem skriflegt samþykki nágranna liggur fyrir og ekki sé verið að skerða hagsmuni annarra hvað varðar útsýni, skuggavarp eða innsýn, jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða umbeðna breytingu varðandi innkeyrslu lóðarinnar.
Þá bendir nefndin jafnframt á að hluti framkvæmdar er háð byggingarleyfi sbr. lög um mannvirki nr. 160/2010.

11.Hyrna L146216 á neðribyggð - Umsókn um stofnun þriggja lóða

Málsnúmer 2605137Vakta málsnúmer

Björn Helgi Ófeigsson, eigandi jarðarinnar Hyrnu, landnr. 146216, óskar eftir heimild til að stofna þrjár spildur, úr landi jarðarinnar sem “Hyrna 1", 1.899 m2 að stærð, "Hyrna 2", 1.536 m2 að stærð og "Hyrna 3", 3.318 m2 að stærð, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 73175000 dags. 7. maí 2026 og merkjalýsingu dags. 07.05.2026.
Afstöðuppdráttur og merkjalýsing voru unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Óskað er eftir því að útskiptar spildur verði skráðar sem lóðir.
Landheiti hinna nýju lóða vísa í heiti upprunajarðar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Hyrnu landnúmer 146216.
Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 eru lóðirnar á landbúnaðarlandi nr. L-4. Landskiptin samræmast stefnu aðalskipulags um uppbyggingu og landnotkun í dreifbýli og styðja við búsetu í dreifbýli.
Hér er ekki um að ræða ný framkvæmdaáform eða nýja landnotkun, heldur er einungis verið að afmarka og stofna lóðir utan um þegar byggð mannvirki á jörðinni sem reist voru á árunum 1986 til 2003. Landskiptin fela því hvorki í sér nýtt rask né ný umhverfisáhrif. Í kafla 3.7 í aðalskipulaginu um landbúnaðarland segir meðal annars um skiptingu lands: "Við mat á áhrifum þess að taka land úr landbúnaðarnotum og leggja til annarra nota, skipta landi eða sameina það, skal taka mið af ákvæðum 5. og 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og gera grein fyrir og taka afstöðu til eftirfarandi: Hvort landið sé stærra en þörf er að teknu tilliti til þeirra áforma sem er lýst. Tekið skal tillit til ræktunarmöguleika lands skv. flokkun ræktarlands."
Með vísan til þessa er gætt vel að því að hinar nýju lóðir séu hóflegar, ekki stærri en þörf krefur og nákvæmlega sniðnar að þörfum og nauðsynlegu athafnarými mannvirkjanna. Þar sem mannvirkin eru nú þegar til staðar hefur stofnun lóðanna engin frekari áhrif á búrekstrarskilyrði upprunajarðarinnar. Jörðin er flokkuð sem L-4 og því er afmörkunin ekki að skerða dýrmætt ræktarland í flokki L-1 eða L-2. Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptra lóða.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Hyrnu, landnúmer 146216.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M003789.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja erindið eins og það er fyrirlagt.

12.Hvalnes L145892 á Skaga, Skagafirði - Umsókn um stofnun landspildu og tilfærslu byggingarreits

Málsnúmer 2605139Vakta málsnúmer

Bjarni Egilsson, f.h. Hvalnesbúsins ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Hvalnes, landnúmer 145892, á Skaga óskar eftir heimild til að stofna 4.088 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem "Hvalnes 2", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75560101 útg. 11. maí 2026 og merkjalýsingu dags. 11. maí 2026. Afstöðuppdráttur og merkjalýsing voru unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Jafnframt er með erindi þessu óskað eftir að heiti upprunajarðarinnar verði leiðrétt í fasteignaskrá. Upprunajörðin landnr. 145892 er þar ranglega skráð sem Hvalnes 2 en á réttilega að bera heitið Hvalnes. Hin nýja útskipta lóð mun hins vegar fá heitið Hvalnes 2.
Landheiti útskiptrar lóðar vísar í heiti upprunajarðar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Hvalnesi L145892.
Óskað er þess að útskipt lóð verði skráð sem íbúðarhúsalóð (10). Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er lóðin á landbúnaðarsvæði L-2. Landskipti eru í samræmi við ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæði.
Breytt landnotkun hefur óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði.
Ekkert ræktað land er innan útskiptrar spildu.
Innan afmörkunar útskiptrar spildu er matshluti 16, sem er einbýlishús að stærð 141,8 m2, byggt árið 2020. Mannvirki þetta skal fylgja útskiptri lóð.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Hvalnesi, landnr. 145892.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003804.

Þá er einnig óskað eftir tilfærslu byggingarreits, sem samþykktur var í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 16.10.2019. Óskað er eftir hliðrun byggingarreits um 2,6 m til suðurs. Stærð reitsins verður óbreytt og íbúðarhús fellur innan reits eftir tilfærslu. Staðsetning byggingarreits, fyrir og eftir umsótta breytingu, er sýnd á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti.
Óskað hefur verið eftir umsögn Minjastofnunar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leiðrétta heiti upprunajarðarinnar í fasteignaskrá. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja landskiptin og færslu byggingarreitsins að fenginni jákvæðri umsögn Minjastofnunar.

Fundi slitið - kl. 15:45.