Fara í efni

Skarðseyri 5 á Sauðárkróki - Beiðni um samþykki fyrir nýrri akstursleið út af bílastæði

Málsnúmer 2605127

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 98. fundur - 15.05.2026

Tryggvi Harðarson verksmiðjustjóri fyrir hönd Steinull hf. óskar eftir samþykki fyrir því að bæta við nýrri akstursleið út af bílastæði félagsins að Skarðseyri 5 á Sauðárkróki.
Beiðnin er lögð fram í framhaldi af endurskipulagningu bílastæðisins við húsnæði félagsins. Í þeirri vinnu hefur bílastæðinu verið breytt með það að markmiði að bæta nýtingu svæðisins og fjölga bílastæðum. Þá hafa verið settar upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla ásamt tilheyrandi stæðum.
Við endurskipulagninguna er jafnframt gert ráð fyrir bílastæði fyrir hreyfihamlaða við húsið, þannig að aðgengi að húsnæðinu verði tryggt með viðeigandi hætti.
Meðfylgjandi er teikning sem sýnir fyrirhugað fyrirkomulag bílastæðisins, staðsetningu hleðslustöðva og stæða, stæði fyrir hreyfihamlaða og hina nýju akstursleið sem óskað er eftir að verði heimiluð.
Steinull hf. fer því formlega fram á að heimild verði veitt fyrir umræddri akstursleið út af bílastæðinu í samræmi við meðfylgjandi gögn.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða erindið eins og það er fyrirlagt.