Halldór Örn Kristjánsson og Vilborg Hrefna Sæmundardóttir lóðarhafar Birkihlíðar 14 á Sauðárkróki, óska eftir heimild til breytinga á útisvæði fasteignarinnar skv. meðfylgjandi uppdráttum í verki nr. 74090000, unnum hjá Stoð verkfræðistofu ehf.
Fyrirhugað er að bæta aðgengi að húsinu vegna hreyfihamlaðs barns lóðarhafa. Framkvæmdin felst í því að færa núverandi útitröppur á austurhlið hússins til suðurs. Við þessa breytingu stækkar núverandi bílastæði við húsið sem er nauðsynlegt til að tryggja fullnægjandi athafnarými fyrir hjálpartæki og öruggt aðgengi frá ökutæki að inngangi.
Meðfylgjandi uppdrættir (T-100 til T-105) sýna tillögu að breytingunni, þar á meðal afstöðumynd og þrívíddarmyndir sem gera grein fyrir nýrri ásýnd og staðsetningu trappa.
Í ljósi þess að deiliskipulag liggur ekki fyrir á þessu svæði, er óskað eftir því að skipulagsnefnd taki ákvörðun um hvort framkvæmdin skuli grenndarkynnt skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eigendur hafa þegar kynnt fyrirætlanir sínar fyrir íbúum aðliggjandi lóða og leitað samþykkis þeirra. Með vísan til þess að fyrir liggur skriflegt samþykki næstu nágranna og að framkvæmdin varðar hagsmuni hreyfihamlaðs einstaklings án þess að skerða hagsmuni annarra hvað varðar útsýni, skuggavarp eða innsýn, er þess farið á leit að skipulagsnefnd taki til skoðunar að falla frá grenndarkynningu í samræmi við 3. mgr. 44. gr. sömu laga.
Meðfylgjandi er árituð yfirlýsing nágranna um að þeir hafi séð meðfylgjandi tillöguteikningar T101-T105, dags 17.02.2026 og að þeir geri ekki athugasemdir um áformaðar framkvæmdir.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að falla frá grenndarkynningu vegna málsins þar sem skriflegt samþykki nágranna liggur fyrir og ekki sé verið að skerða hagsmuni annarra hvað varðar útsýni, skuggavarp eða innsýn, jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða umbeðna breytingu varðandi innkeyrslu lóðarinnar.
Þá bendir nefndin jafnframt á að hluti framkvæmdar er háð byggingarleyfi sbr. lög um mannvirki nr. 160/2010.