Fara í efni

Víðigrund 13 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2605003

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 97. fundur - 04.05.2026

Árni Gísli Brynleifsson lóðarhafi Víðigrundar 13 óskar eftir breikkun innkeyrslu lóðarinnar. Fyrri eigandi sótti um breikkun innkeyrslu (15. október 2014) eins og sýnt er á meðfylgjandi gögnum, með svörtum lit er merkt innkeyrslan eins og hún var/er. Fyrir liggur samþykki frá sveitarfélaginu (málsnúmer 1409167) þar sem breikkunin fór í samtals 7,5 metra.
Nú er óskað eftir 1,0 metra aukalega í norður og 2,0 metra til suðurs sem gera samtals 10,5 metrar í heildina. Frá norðurhlið hússins eru 3 metrar að lóðamörkum og munu því enn vera 2 metrar að lóðarmörkum verði umsóknin samþykkt.
Umsækjandi telur að umsóknin sé innan þeirra marka sem Sveitarfélagið
hefur samþykkt áður.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fresta erindinu og felur skipulagsfulltrúa að afla frekari gagna.

Skipulagsnefnd - 98. fundur - 15.05.2026

Árni Gísli Brynleifsson og Heiða B. Jóhannsdóttir lóðarhafar Víðigrundar 13 á Sauðárkróki óska eftir breikkun innkeyrslu. Fyrri eigandi sótti um breikkun innkeyrslu (15. október 2014) eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd, með gulum lit er innkeyrslan merkt eins og hún er samþykkt í dag fyrir umsókn. Fyrir liggur samþykki frá sveitarfélaginu Skagafirði (málsnúmer 1409167) þar sem breikkunin fer í samtals 7,5 metra, afrit af þeirri samþykkt fylgir einnig umsókninni.
Að auki við þá breikkun er óskað eftir 1,0 auka meter til norðurs og 2,0 metra til suðurs sem gera samtals 10,5 metrar í heildina. Merkt með rauðum lit á meðfylgjandi mynd.
Frá norðurhlið hússins eru 3 metrar að lóðamörkum og munu því enn vera 2 metrar að lóðarmörkum verði umsóknin samþykkt.
Umsækjendur telja umbeðna stækkun vera innan þeirra marka sem sveitarfélagið hefur samþykkt áður.
Tilgangur breikkunar er að koma bílum, kerrum, fellihýsi af götunni og inn á lóð, fyrirhugað er að útbúa bílastæði sitt hvoru megin við niðurkeyrslu niður í bílskúr. Bílastæðin að norðan og sunnanverðu yrðu í sömu hæð og lóð en ekki hallandi niður að húsi.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða umbeðna stækkun á innkeyslu lóðar Víðigrundar 13.