Fara í efni

Hvalnes L145892 á Skaga, Skagafirði - Umsókn um stofnun landspildu og tilfærslu byggingarreits

Málsnúmer 2605139

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 98. fundur - 15.05.2026

Bjarni Egilsson, f.h. Hvalnesbúsins ehf., þinglýsts eiganda jarðarinnar Hvalnes, landnúmer 145892, á Skaga óskar eftir heimild til að stofna 4.088 m2 spildu úr landi jarðarinnar, sem "Hvalnes 2", skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75560101 útg. 11. maí 2026 og merkjalýsingu dags. 11. maí 2026. Afstöðuppdráttur og merkjalýsing voru unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Jafnframt er með erindi þessu óskað eftir að heiti upprunajarðarinnar verði leiðrétt í fasteignaskrá. Upprunajörðin landnr. 145892 er þar ranglega skráð sem Hvalnes 2 en á réttilega að bera heitið Hvalnes. Hin nýja útskipta lóð mun hins vegar fá heitið Hvalnes 2.
Landheiti útskiptrar lóðar vísar í heiti upprunajarðar.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Hvalnesi L145892.
Óskað er þess að útskipt lóð verði skráð sem íbúðarhúsalóð (10). Í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er lóðin á landbúnaðarsvæði L-2. Landskipti eru í samræmi við ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæði.
Breytt landnotkun hefur óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði.
Ekkert ræktað land er innan útskiptrar spildu.
Innan afmörkunar útskiptrar spildu er matshluti 16, sem er einbýlishús að stærð 141,8 m2, byggt árið 2020. Mannvirki þetta skal fylgja útskiptri lóð.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Hvalnesi, landnr. 145892.
Málsnúmer í landeignaskrá er M003804.

Þá er einnig óskað eftir tilfærslu byggingarreits, sem samþykktur var í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 16.10.2019. Óskað er eftir hliðrun byggingarreits um 2,6 m til suðurs. Stærð reitsins verður óbreytt og íbúðarhús fellur innan reits eftir tilfærslu. Staðsetning byggingarreits, fyrir og eftir umsótta breytingu, er sýnd á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti.
Óskað hefur verið eftir umsögn Minjastofnunar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leiðrétta heiti upprunajarðarinnar í fasteignaskrá. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja landskiptin og færslu byggingarreitsins að fenginni jákvæðri umsögn Minjastofnunar.