Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd
Dagskrá
1.Skýrsla deildarstjóra
Málsnúmer 2508066Vakta málsnúmer
2.Hofsós heim - Bæjarhátíð 2026
Málsnúmer 2601155Vakta málsnúmer
Tekin fyrir styrkbeiðni frá stjórn Byggjum upp Hofsós og nágrennis, dagsett 17.04.2026 vegna bæjarhátíðarinnar Hofsós heim sem haldin verður 18. - 21. júní 2026.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar erindið og samþykkir samhljóða að styrkja hátíðina um 450.000 kr.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar erindið og samþykkir samhljóða að styrkja hátíðina um 450.000 kr.
3.Styrkbeiðni vegna menningardags
Málsnúmer 2604026Vakta málsnúmer
Framlagt erindi dagsett 9. apríl 2026, frá Ágústi Brynjarssyni þar sem óskað er eftir styrk til að halda tónlistardag fyrir samfélagið sem felur í sér skólaheimsóknir, tónlistarstundir og kvöldtónleika með hljómsveit. Markmiðið með verkefninu er að færa lifandi íslenska tónlist til fólks um allt land.
Nefndin þakkar fyrir erindið og samþykkir samhljóða að styrkja tónlistardag með Ágústi um 150.000 kr. og felur starfsmönnum að skipuleggja daginn með Ágústi með það að markmiði að sem flestir í sveitarfélaginu njóti góðs af.

4.Sumarsýning Leik. Lottu - styrkbeiðni 2026
Málsnúmer 2604127Vakta málsnúmer
Framlögð styrkbeiðni Leikhópsins Lottu dagsett 20.04.2026, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 90.400 vegna leiksýningar leikhópsins á Sauðárkróki í sumar.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar fyrir erindið en telur sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar fyrir erindið en telur sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.
5.Sveitavegir - tónlistarhátíð á Hofsósi
Málsnúmer 2604135Vakta málsnúmer
Tekið fyrir erindi frá Helga Grím Hermannssyni og Helga Sæmundi Guðmundssyni dagsett 15.04.2026 þar sem óskað er eftir styrk vegna tónlistahátíðarinnar Sveitavegir á Hofsósi.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar framtakinu og samþykkir samhljóða að styrkja hátíðina um 150.000 kr.
Jafnframt vill nefndin nota tækifærið til að minna á uppbyggingasjóð SSNV fyrir verkefni sem þessi og hvetur fólk til að sækja þar um. Næsti umsóknarfrestur sjóðsins verður 16. september til 21. október 2026.

6.Aðsókn á laugardögum 2026
Málsnúmer 2604126Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar yfirlit um gestafjölda bókasafnsins frá febrúar til apríl 2026.
Nefndin þakkar fyrir yfirlitið og fagnar því hve laugardagsopnunin er vel sótt.
Nefndin þakkar fyrir yfirlitið og fagnar því hve laugardagsopnunin er vel sótt.
7.Forgangsverkefni áfangastaðaáætlunar Norðurlands 2026
Málsnúmer 2604173Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands dags. 28. apríl 2026, þar sem óskað er eftir uppfærðum lista yfir forgangsverkefni frá sveitarfélögum á Norðurlandi.
Skagafjörður auglýsti eftir tillögum að verkefnum fyrir sveitarfélagið 4. maí og er gefinn frestur til 29. júní til að skila þeim inn.
Skagafjörður auglýsti eftir tillögum að verkefnum fyrir sveitarfélagið 4. maí og er gefinn frestur til 29. júní til að skila þeim inn.
8.Minnisblað vegna vsk á skemmtiferðaskip
Málsnúmer 2604044Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar minnisblað frá Hafnasambandi Íslands dagsett 9. apríl 2026 er varðar virðisaukaskattskyldu skemmtiferðaskipa.
Fundi slitið - kl. 16:00.
Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.
Á síðasta fundi var samþykkt að taka fyrir erindi vegna listamanns Skagafjarðar ásamt ramma að menningarvitund. Ekki tókst að ljúka þeirri vinnu og þeim erindum því frestað til næsta fundar.
Nefndin þakkar fyrir yfirferðina.