Fara í efni

Sveitavegir - tónlistarhátíð á Hofsósi

Málsnúmer 2604135

Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46. fundur - 07.05.2026

Tekið fyrir erindi frá Helga Grím Hermannssyni og Helga Sæmundi Guðmundssyni dagsett 15.04.2026 þar sem óskað er eftir styrk vegna tónlistahátíðarinnar Sveitavegir á Hofsósi.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar framtakinu og samþykkir samhljóða að styrkja hátíðina um 150.000 kr.

Jafnframt vill nefndin nota tækifærið til að minna á uppbyggingasjóð SSNV fyrir verkefni sem þessi og hvetur fólk til að sækja þar um. Næsti umsóknarfrestur sjóðsins verður 16. september til 21. október 2026.