Fara í efni

Fræðslunefnd

47. fundur 21. apríl 2026 kl. 16:15 - 17:30 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir formaður
  • Hrund Pétursdóttir varaform.
  • Agnar Halldór Gunnarsson aðalm.
  • Steinunn Rósa Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Ásrún Leósdóttir áheyrnarftr. leikskóla
  • Unnur Ólöf Halldórsdóttir áheyrnarftr. foreldra grunnsk.barna
  • Sandra Hilmarsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Tillögur til tilnefninga íslensku menntaverðlaunanna

Málsnúmer 2604098Vakta málsnúmer

Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga lagt fram til kynningar. Í bréfinu eru skólanefndir sveitarfélaga hvattar til að senda inn tillögur til tilnefninga íslensku menntaverðlaunanna. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbóta. Verðlaunin eru veitt árlega á Bessastöðum. Tillögur skulu hafa borist fyrir 1. júní nk.

2.Nemendagrunnur

Málsnúmer 2512156Vakta málsnúmer

Nemendagrunnur er miðlægur gagnagrunnur sem geymir áreiðanlegar og samræmdar upplýsingar um alla nemendur á grunnskólaaldri á Íslandi. Markmiðið er að tryggja að réttar upplýsingar fylgi hverju barni í gegnum alla skólagöngu þess frá leikskóla til framhaldsskóla og áfram í nám og þjálfun.
Verklag um heimila notkun nemendagrunns lagt fram og samþykkt samhljóða.

3.Staða í leikskólamálum 2025-26

Málsnúmer 2508092Vakta málsnúmer

Minnisblað frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs lagt fram til kynningar. Í því kemur fram að Tröllaborg er með fullmannaðan leikskóla og þar hafa börn verið innrituð í kringum 12 mánaða aldur. Í Birkilundi vantar að lágmarki þrjá starfsmenn og á biðlista eru níu börn sem náð hafa 12 mánaða aldri. Í Ársölum vantar fjóra starfsmenn svo hægt sé að fullnýta leikskólapláss. Alls eru 13 börn á biðlista sem náð hafa 12 mánaða aldri.
Skólahópar í Birkilundi og Ársölum eru stórir og mun því vera hægt að vinna niður biðlista í haust ef mönnun leyfir.

4.Hádegisverður í Ársölum og Árskóla

Málsnúmer 2402092Vakta málsnúmer

Samningur við Stá ehf. um hádegisverð í Ársölum og Árskóla rennur út þann 31. júlí nk. Í samningi er heimild til þess að framlengja við Stá ehf. um eitt ár í senn, að hámarki tvisvar sinnum. Lagt er til að framlengingarákvæði samnings verði nýtt.

VG og óháð hafa frá árinu 2018 lagt áherslu á að matur sé eldaður frá grunni fyrir alla skóla í Skagafirði í samræmi við gildi heilsueflandi skólastarfs. Frá þeim tíma hafa VG og óháð ítrekað óskað eftir kostnaðarmati á breytingum á eldhúsi Ársala, þannig að þar verði hægt að elda mat fyrir leik- og grunnskóla á Sauðárkróki, með áherslu á hagkvæmni og nýtingu hráefnis úr héraði.
Í bókun Fræðslunefndar frá 22. mars 2024 segir m.a.:
“Jafnframt leggur nefndin til að horft verði til lengri tíma og hafist handa strax við að kostnaðarmeta fjárfestingar og rekstrarkostnað þess að elda skólamat fyrir grunnskóla og leikskóla á Sauðárkróki í Varmahlíðarskóla eða með viðbyggingu við eldra stig leikskólans Ársali, hvort sem rekstur slíkra eininga yrði á hendi starfsmanna sveitarfélagsins eða reksturinn boðinn út.?
Þrátt fyrir þessa skýru bókun hefur kostnaðarmat á viðbyggingu við Ársali enn ekki farið fram.
VG og óháð harma þá skammsýni að Ársalir hafi ekki frá upphafi verið hannaðir með fullbúnu eldhúsi og að hagsmunir barna í Ársölum og Árskóla hafi ekki verið settir í forgang með því að leita markvisst raunhæfra leiða til að elda mat frá grunni á liðnum árum.
VG og óháð leggja áfram áherslu á að ráðist verði í þessar breytingar hið fyrsta, svo ekki verði áfram endurtekin krísa í útboðum hádegisverða fyrir Ársali og Árskóla.

Fulltrúar meirihluta, Sólborg S. Borgarsdóttir og Hrund Pétursdóttir, óska bókað að búið sé að vinna mikið í málinu og margar sviðsmyndir hafa verið skoðaðar þ.á.m. stækkun á eldhúsi Ársala og nýta eldhús Varmahlíðarskóla. Taka þarf tillit til þess að bæði fjölskyldusvið og veitu- og framkvæmdasvið hafa verið undirmönnuð síðustu tvö árin sem hefur orðið til þess að forgangsraða hefur þurft verkefnum. Matur sem keyptur er í Árskóla og Ársali er eldaður frá grunni innan Sauðárkróks og til þess nýtt hágæða hráefni úr héraði eins og kröfur voru gerðar um í útboði.

Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra að semja við fyrirtækið Stá ehf. um framlengingu til 31. júlí 2027.
Hlé gert á fundi frá kl. 17:01 til 17:16

5.Sjálfsmatsskýrslur leikskóla 2024-2025

Málsnúmer 2604076Vakta málsnúmer

Sjálfsmatsskýrsla Tröllaborgar fyrir skóla árið 2024-25 lögð fram til kynningar.

6.Fundargerðir skólaráðs Varmahlíðarskóla 2025-26

Málsnúmer 2603319Vakta málsnúmer

Fundargerð skólaráðsfundar Varmahlíðarskóla frá 25. mars 2026 lögð fram til kynningar.

7.Fundargerðir skólaráðs Árskóla 2025-26

Málsnúmer 2604100Vakta málsnúmer

Fundargerðir skólaráðs Árskóla frá 3. desember 2025, 11. febrúar 2026 og 4. mars 2026 lagðar fram til kynningar.

Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að vísa ályktun skólanefndar frá 5. nóvember 2025 til byggðarráðs.

8.Trúnaðarbók fræðslunefndar

Málsnúmer 2601069Vakta málsnúmer

Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók.

Fundi slitið - kl. 17:30.