Fundargerðir skólaráðs Árskóla 2025-26
Málsnúmer 2604100
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 192. fundur - 29.04.2026
Vísað frá 47. fundi fræðslunefndar þann 21. apríl sl., þannig bókað:
"Fundargerðir skólaráðs Árskóla frá 3. desember 2025, 11. febrúar 2026 og 4. mars 2026 lagðar fram til kynningar.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að vísa ályktun skólanefndar frá 5. nóvember 2025 til byggðarráðs."
Ályktun skólanefndar er svohljóðandi:
"Skólaráð lýsir áhyggjum sínum vegna styttingar á tímabili skólaaksturs innanbæjar á þessu skólaári. Styttingin hefur í för með sér aukna bílaumferð í kringum skólann sem getur skapað hættu fyrir gangandi umferð í myrkri eða slæmu skyggni og færð. Einnig má benda á að aukin bílaumferð hefur í för með sér stærra kolefnisspor."
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að vinna drög að mögulegum úrbótum til að auka öryggi vegfarenda í kringum sleppistæði við Árskóla.

Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að vísa ályktun skólanefndar frá 5. nóvember 2025 til byggðarráðs.