Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Viðauki 5 við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 2605172Vakta málsnúmer
2.Erindi til byggðarráðs
Málsnúmer 2605176Vakta málsnúmer
Lagður var fram tölvupóstur frá stjórn Körfuknattleiksdeildar Tindastóls dagsettur 18. maí 2026. Í tölvupóstinum er óskað eftir afnotum af Síkinu, íþróttahúsi Sauðárkróks, þann 22. maí nk. til að halda lokahóf Körfuknattleiksdeildarinnar. Einnig er óskað eftir að afnotin verði gjaldfrjáls.
Samkvæmt reglum vegna útleigu íþróttahúsa Skagafjarðar til skemmtanahalds, sem staðfestar voru í sveitarstjórn 18. september 2024, segir í 2. grein að heimilt er að leigja íþróttahús Skagafjarðar undir skemmtanir þegar um er að ræða skemmtanir sem önnur húsakynni Skagafjarðar geta ekki hýst. Skal þá gæta sérstaklega að því að hefðbundin starfsemi raskist sem minnst. Slík umsókn skal berast forstöðumanni íþróttamannvirkja með minnst fjögurra vikna fyrirvara.
Þá segir einnig í 4. grein reglnanna að óhagnaðardrifin félagasamtök geta óskað eftir afslætti af leigu gegn því að skila inn formlegu erindi til félagsmála- og tómstundanefndar. Í erindinu skal koma fram ástæður umsóknar, hvers vegna annað húsnæði í Skagafirði henti ekki og hvert ágóði af viðburðinum fari, verði einhver.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fallast á það að þessu sinni að gerð verði undantekning frá 2. og 4. grein gildandi reglna um útleigu íþróttahúsa Skagafjarðar til skemmtanahalds og þar með heimila að viðburðurinn fari fram í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafna beiðni um að afnotin verði gjaldfrjáls og afnotin verða því heimiluð samkvæmt fyrirliggjandi gjaldskrá.
Byggðarráð áréttar að vel sé hægt að halda umsóknarfresti með því að sækja um tímanlega með fyrirvara um mögulega breytingu á dagsetningu.

3.Endurskoðun byggðakvótakerfisins - umsagnarbeiðni
Málsnúmer 2605069Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur frá Innviðaráðueytinu, dags. 8. maí 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna endurskoðunar á byggðakvótakerfinu.
Auk bréfsins fylgir yfirlit yfir helstu tillögur og ábendingar sem komið hafa fram um breytingar á byggðakvótakerfinu. Þá fylgir spurningalisti í Word-formi, samhljóða þeim atriðum sem fram koma í bréfinu.
Óskað er eftir að umsögn sveitarfélagsins berist ráðuneytinu eigi síðar en 26. maí 2026.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að skila inn útfylltum spurningalista í samræmi við umræður á fundinum.

4.Málefni leikskóla
Málsnúmer 2605077Vakta málsnúmer
Lagt fram bréf frá Ingólfi Jóhanssyni fyrir hönd áhugasamra fyrirtækja um málefni leikskóla í Skagafirði, dagsett 10. maí 2026. Í bréfinu er þess farið á leit við byggðarráð að leita leiða til að efla þjónustu leikskólanna við fjölskyldur og atvinnulíf.
Tillaga bréfritara er að atvinnufyrirtæki í héraði skipi tvo aðila úr sínum röðum í starfshóp á vegum sveitarfélagsins um málefni leikskóla í Skagafirði með það að markmiði að sætta ólík sjónarmið og finna sameiginlega niðurstöðu til að efla þjónustu leikskóla Skagafjarðar við fjölskyldur og atvinnulíf í firðinum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra og formanni byggðarráðs að finna fundartíma.

5.Gjaldskrá leikskóla Skagafjarðar
Málsnúmer 2605174Vakta málsnúmer
Lögð fram gjaldskrá leikskóla Skagafjarðar sem gilda mun frá 10. ágúst 2026 en hún byggir á minnisblaði sem lagt var fram í fræðslunefnd á 48. fundi hennar 13. maí sl. og samþykkt á breytingu á reglum um leikskóla og skráningardaga sem vísað er til byggðarráðs frá sama fundi.
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána samhljóða og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

6.Kennslukvóti 2026-2027
Málsnúmer 2604192Vakta málsnúmer
Máli vísað frá 48. fundi fræðslunefndar þann 13. maí sl., þannig bókað:
"Tillaga að úthlutun kennslukvóta til grunnskólanna í Skagafirði fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram. Tillagan er unnin í samstarfi við stjórnendur og tekur mið af mörgum þáttum, svo sem nemendafjölda, samsetningu nemendahópa o.fl. Fræðslunefnd samþykkir tillöguna samhljóða og vísar til byggðarráðs vegna kostnaðaraukningar."
Byggðarráð samþykkir tillöguna samhljóða fyrir skólaárið 2026-2027 með fyrirvara um gerð viðauka. Byggðarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að undirbúa viðauka vegna hennar. Byggðarráð leggur jafnframt áherslu á að vinnu við fjármögnunarlíkan grunnskóla verði hraðað.

7.Breytingar á reglum um leikskóla og skráningardaga
Málsnúmer 2605074Vakta málsnúmer
Mál áður á dagskrá 48. fundi fræðslunefndar þann 13. maí sl., þannig bókað:
"Lagt fram minnisblað sviðsstjóra með tillögum að breytingum á reglum um leikskóla og fyrirkomulagi skráningardaga. Niðurstöður kannana meðal foreldra og starfsfólks voru nýttar þegar fyrirkomulagið var endurskoðað. Niðurstöður sýna að viðhorf foreldra til núverandi fyrirkomulags er fremur neikvætt og kalla til að mynda margir eftir fækkun skráningardaga. Eins er það staðreynd að leikskólastjórnendur standa frammi fyrir mjög miklum áskorunum í núverandi kerfi þegar kemur að því að skipuleggja orlof og vinnustyttingu starfsfólks.
Nefndin tekur undir að þörf sé á endurskoðun kerfisins með hagsmuni barna, starfsfólks og foreldra að leiðarljósi. Sérstaklega var rætt um áskoranir í mönnun og skipulagningu vegna vinnustyttingar og orlofs. Nefndin telur mikilvægt að leggja áherslu á starfsumhverfi starfsfólks með það í huga að halda í allt það góða starfsfólk sem vinnur í leikskólum Skagafjarðar og laða að nýtt starfsfólk.
Fram kom tillaga sviðsstjóra, sem unnin var í samráði við leikskólastjórnendur, um að taka upp fyrirkomulag að fyrirmynd Árborgar. Það felur í sér að börn eru almennt skráð með vistun til klukkan 14 á föstudögum en foreldrum gefst kostur á því að skrá börnin sín til klukkan 16:15 gegn gjaldi, með viku fyrirvara. Lagt er til að heilum skráningardögum verði fækkað úr 20 í 9 og verða þeir dagar bundnir við haust- og vetrarfrí grunnskóla, Þorláksmessu og dymbilviku.
Tillaga er um að lokað verði á milli jóla og nýárs og að sumarlokun verði 24 virkir dagar.
Nefndin telur tillögurnar geta stuðlað að auknum stöðugleika í mönnun og bættu starfsumhverfi, án þess að draga úr þjónustu við fjölskyldur.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögur og drög að reglum sem taka gildi 10. ágúst 2026. Jafnframt felur fræðslunefnd sviðsstjóra að kynna nýtt fyrirkomulag vel fyrir öllum hlutaðeigandi í samráði við leikskólastjórnendur. Mikilvægt er að meta reynslu af fyrirkomulaginu í síðasta lagi að tveimur árum liðnum."
Framlögð voru drög að reglum um leikskóla Skagafjarðar, sem áður hafa verið samþykktar á 48. fundi fræðslunefndar þann 13. maí 2026.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 15:28.
Í framlögðum viðauka er gert ráð fyrir 1,8 m.kr. útgjöldum vegna endurnýjunar á hljóðkerfi við gervigrasvöll á Sauðárkróki.
Einnig eru framkvæmdir og eignabreytingar sem stafa af nýundirrituðu samkomulagi við íslenska ríkið þar sem að Skagafjörður eignast lóðir og lendur á Hólum í Hjaltadal og í Nýrækt í Fljótum að matsvirði 183,6 m.kr. ásamt 376 m.kr. skuldbindingu um fráveituframkvæmdir, en þar kemur á móti greiðsla frá ríkinu upp á 150 m.kr. sem hlutdeild ríkisins í framkvæmdunum. Því til viðbótar er gert ráð fyrir 16,1 m.kr. vegna fjölgunar bílastæða við sundlaug Sauðárkróks.
Niðurstaða viðaukans er hækkun á handbæru fé um 132,1 m.kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.