Fara í efni

Málefni leikskóla

Málsnúmer 2605077

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 195. fundur - 19.05.2026

Lagt fram bréf frá Ingólfi Jóhanssyni fyrir hönd áhugasamra fyrirtækja um málefni leikskóla í Skagafirði, dagsett 10. maí 2026. Í bréfinu er þess farið á leit við byggðarráð að leita leiða til að efla þjónustu leikskólanna við fjölskyldur og atvinnulíf.

Tillaga bréfritara er að atvinnufyrirtæki í héraði skipi tvo aðila úr sínum röðum í starfshóp á vegum sveitarfélagsins um málefni leikskóla í Skagafirði með það að markmiði að sætta ólík sjónarmið og finna sameiginlega niðurstöðu til að efla þjónustu leikskóla Skagafjarðar við fjölskyldur og atvinnulíf í firðinum.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra og formanni byggðarráðs að finna fundartíma.