Fara í efni

Erindi til byggðarráðs

Málsnúmer 2605176

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 195. fundur - 19.05.2026

Lagður var fram tölvupóstur frá stjórn Körfuknattleiksdeildar Tindastóls dagsettur 18. maí 2026. Í tölvupóstinum er óskað eftir afnotum af Síkinu, íþróttahúsi Sauðárkróks, þann 22. maí nk. til að halda lokahóf Körfuknattleiksdeildarinnar. Einnig er óskað eftir að afnotin verði gjaldfrjáls.

Samkvæmt reglum vegna útleigu íþróttahúsa Skagafjarðar til skemmtanahalds, sem staðfestar voru í sveitarstjórn 18. september 2024, segir í 2. grein að heimilt er að leigja íþróttahús Skagafjarðar undir skemmtanir þegar um er að ræða skemmtanir sem önnur húsakynni Skagafjarðar geta ekki hýst. Skal þá gæta sérstaklega að því að hefðbundin starfsemi raskist sem minnst. Slík umsókn skal berast forstöðumanni íþróttamannvirkja með minnst fjögurra vikna fyrirvara.

Þá segir einnig í 4. grein reglnanna að óhagnaðardrifin félagasamtök geta óskað eftir afslætti af leigu gegn því að skila inn formlegu erindi til félagsmála- og tómstundanefndar. Í erindinu skal koma fram ástæður umsóknar, hvers vegna annað húsnæði í Skagafirði henti ekki og hvert ágóði af viðburðinum fari, verði einhver.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fallast á það að þessu sinni að gerð verði undantekning frá 2. og 4. grein gildandi reglna um útleigu íþróttahúsa Skagafjarðar til skemmtanahalds og þar með heimila að viðburðurinn fari fram í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Byggðarráð samþykkir samhljóða að hafna beiðni um að afnotin verði gjaldfrjáls og afnotin verða því heimiluð samkvæmt fyrirliggjandi gjaldskrá.

Byggðarráð áréttar að vel sé hægt að halda umsóknarfresti með því að sækja um tímanlega með fyrirvara um mögulega breytingu á dagsetningu.