Fara í efni

Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi

8. fundur 13. maí 2026 kl. 09:35 - 10:30 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Guðlaugur Skúlason aðalm.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Jóhann Bjarnason skólastjóri grunnskóla
  • Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir skólastjóri leikskóla
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.GAV - Hofsós grunnskóli, endurbætur hönnun

Málsnúmer 2211367Vakta málsnúmer

Á fundinum var lögð fram uppfærð tillöguteikning að límtréshúsi sem hannað er af Ómari Péturssyni hjá Nýhönnun ehf. og teiknuð af Þorvaldi E. Þorvaldssyni. Fyrirliggjandi tillöguteikning sýnir viðbyggingu við Grunnskólann austan Vatna sem ætlað er að rúma íþróttahús, skólamötuneyti og sal, tónlistarkennslu, fundarherbergi, tæknirými og fleira, í einni og sömu byggingunni.

Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi samþykkir samhljóða að stefna að næsta fundi 27. maí nk. Á þeim fundi verður tekin til afgreiðslu þarfagreining sem skólastjórar og leiðtogi frístunda- og íþróttamála vinna fram að því.

Fundi slitið - kl. 10:30.