Fara í efni

GAV - Hofsós grunnskóli, endurbætur hönnun

Málsnúmer 2211367

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 35. fundur - 15.02.2023

Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs og Valur Valsson verkefnastjóri komu til fundar við byggðarráð til að kynna hugmyndir að endurbótum á húsnæði Grunnskólans austan Vatna á Hofsósi, sem snúa m.a. að þakskiptum á eldri byggingu, klæðningu á norðurhlið hennar, klæðningu og gluggaskiptum á vesturhlið nýrri byggingar og endurgerð snyrtinga.
Byggðarráð samþykkir að framkvæmdirnar verði boðnar út.

Byggðarráð Skagafjarðar - 50. fundur - 31.05.2023

Lögð fram fundargerð frá opnun tilboða í útboðsverkið "GAV-klæðningar og þak 2023", þann 10. maí 2023, kl. 13:00.
Eitt tilboð barst í verkið frá Uppsteypu ehf. sem nam 73,7% umfram kostnaðaráætlun. Undir þessum dagskrárlið sátu Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs og Ingvar Páll Ingvarsson verkefnastjóri.
Byggðarráð samþykkir að hafna fyrirliggjandi tilboði frá Uppsteypu ehf. og felur veitu- og framkvæmdasviði að setja fram verðfyrirspurnir til verktaka vegna verkhluta við eldri byggingu grunnskólans á Hofsósi.

Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 4. fundur - 24.01.2024

Farið yfir hugmyndir að breytingum vegna aðgengismála á Grunnskólanum austan Vatna á Hofsósi.
Samþykkt að ráðast í lyftubyggingu norðan við núverandi byggingu í samræmi við teikningar sem lagðar voru fram á fundinum. Jafnframt samþykkt að vinna að hönnun og kostnaðargreiningu á nýju leiksvæði vestan við grunnskólann, auk göngustígs að núverandi leiksvæði og nýju undirlagi á hluta leiksvæðis. Byggingarnefnd samþykkir einnig að unnið verði áfram að heildarhönnun breytinga á núverandi byggingu og viðbyggingum, þar sem horft yrði til nýs íþróttahúss vestan við hús sem fyrsta áfanga. Síðar kæmi ný viðbygging austan grunnskóla þar sem m.a. yrði nýtt mötuneyti.
Samþykkt er að bera hugmyndirnar undir starfsmenn Ráðgjafar- og greiningarstöðvar ásamt aðgengishópi sveitarfélagsins.
Jafnframt samþykkt að fela starfsmönnum að vinna drög að teikningu fyrir íþróttahús sem yrði með sambærilegan íþróttasal og þeim sem er hjá Engjaskóla, að viðbættri búningsaðstöðu, áhaldageymslu, þreksal og nauðsynlegum öðrum rýmum sem kröfur eru gerðar um (tæknirými, salerni o.s.frv.).

Byggðarráð Skagafjarðar - 140. fundur - 02.04.2025

Skagafjörður sendi frá sér verðfyrirspurn um klæðningu og gluggaskipti á vesturhlið Grunnskólans austan vatna á Hofsósi. Föstudaginn 21. mars 2025 klukkan 13:00 voru opnuð tilboð í verðfyrirspurnina.

Tvö tilboð bárust í verkið, annars vegar frá K-tak ehf. upp á 38,4 m.kr. og hitt tilboðið frá Uppsteypu ehf. upp á 39,2 m.kr. Bæði tilboðin eru yfir kostnaðaráætlun.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að ganga að tilboði lægstbjóðanda og felur sveitarstjóra að ganga til samninga við fyrirtækið og að gerður verði viðauki fyrir mismuni á kostnaðaráætlun og upphæð tilboðs sem tekið var.

Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 6. fundur - 19.03.2026

Lögð fram bréf frá starfsfólki leikskólans Tröllaborgar, starfsfólki Grunnskólans austan Vatna, foreldraráði leikskólans Tröllaborgar og foreldrum barna, sem og skólaráði Grunnskólans austan Vatna, dags. 11. og 13. mars 2026. Það er sammerkt með efni bréfanna að samstaða er um það meðal bréfritara að forgangsröðun næstu framkvæmda í uppbyggingu og endurbótum á skóla- og íþróttamannvirkjum á Hofsósi ættu að vera nýtt íþróttahús í fyrsta áfanga, nýtt mötuneyti í öðrum áfanga og skipulagsbreytingar innanhúss á núverandi húsnæði í þriðja áfanga. Telja bréfritarar unnt að leysa vandkvæði við frestun mötuneytisaðstöðu með skipulagsbreytingum innanhúss. Jafnframt leggja bréfritarar áherslu á að gólfflötur nýs íþróttahúss verði stækkaður frá því sem teikningar gera ráð fyrir.

Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að vinna að endurskoðun teikninga nýs íþróttahúss og tengibyggingar með breyttar stærðir og endurskipulagningu rýma að leiðarljósi. Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja samþykkir samhljóða að framkvæmdir við íþróttamannvirki verði næsti áfangi framkvæmda. Stefnt er að því að drög að nýjum teikningum liggi fyrir um miðjan apríl.

Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 7. fundur - 22.04.2026

Á fundinum var lögð fram tillöguteikning að límtréshúsi sem hannað er af Ómari Péturssyni hjá Nýhönnun ehf. og teiknuð af Þorvaldi E. Þorvaldssyni. Fyrirliggjandi tillöguteikning sýnir viðbyggingu við Grunnskólann austan Vatna sem ætlað er að rúma íþróttahús, skólamötuneyti og sal, tónlistarkennslu, fundarherbergi, tæknirými og fleira, í einni og sömu byggingunni.

Á fundinum fór sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs einnig yfir frumdrög að kostnaðaráætlun fyrrgreindrar tillöguteikningar.

Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra að vinna áfram að nánari útfærslum tillöguteikninga. Byggingarnefnd felur jafnframt sviðsstjóra fjölskyldusviðs í samráði við stjórnendur að kynna teikningar fyrir starfsfólki grunn-, leik- og tónlistarskóla á Hofsósi.