Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, kynnti fyrir byggingarnefnd tillöguteikningu að límtréshúsi sem hannað hefur verið af Ómari Péturssyni hjá Nýhönnun ehf. og teiknað af Þorvaldi E. Þorvaldssyni. Tillagan gerir ráð fyrir viðbyggingu við Grunnskólann austan Vatna sem ætlað er að hýsa íþróttahús, skólamötuneyti og sal, aðstöðu fyrir tónlistarkennslu, fundarherbergi, tæknirými og aðra stoðaðstöðu í einni samfelldri byggingu.
Kynningin var lögð fram til að veita nýjum fulltrúum í byggingarnefnd og nýkjörnum sveitarstjórnarfulltrúum yfirlit yfir stöðu verkefnisins, forsögu þess og þær forsendur sem lagðar hafa verið til grundvallar þeirri hönnun sem nú liggur fyrir. Jafnframt var farið yfir helstu áfanga verkefnisins hingað til og rædd næstu skref í undirbúningi og framgangi málsins.