Fræðslunefnd
Dagskrá
1.Kennslukvóti 2026-2027
Málsnúmer 2604192Vakta málsnúmer
Tillaga að úthlutun kennslukvóta til grunnskólanna í Skagafirði fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram. Tillagan er unnin í samstarfi við stjórnendur og tekur mið af mörgum þáttum, svo sem nemendafjölda, samsetningu nemendahópa o.fl. Fræðslunefnd samþykkir tillöguna samhljóða og vísar til byggðarráðs vegna kostnaðaraukningar.
2.Starfsáætlanir leikskóla 2025-2026
Málsnúmer 2605004Vakta málsnúmer
Starfsáætlun leikskólans Tröllaborgar fyrir skólaárið 2025-2026 lögð fram til kynningar.
3.Breytingar á reglum um leikskóla og skráningardaga
Málsnúmer 2605074Vakta málsnúmer
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra með tillögum að breytingum á reglum um leikskóla og fyrirkomulagi skráningardaga. Niðurstöður kannana meðal foreldra og starfsfólks voru nýttar þegar fyrirkomulagið var endurskoðað. Niðurstöður sýna að viðhorf foreldra til núverandi fyrirkomulags er fremur neikvætt og kalla til að mynda margir eftir fækkun skráningardaga. Eins er það staðreynd að leikskólastjórnendur standa frammi fyrir mjög miklum áskorunum í núverandi kerfi þegar kemur að því að skipuleggja orlof og vinnustyttingu starfsfólks.
Nefndin tekur undir að þörf sé á endurskoðun kerfisins með hagsmuni barna, starfsfólks og foreldra að leiðarljósi. Sérstaklega var rætt um áskoranir í mönnun og skipulagningu vegna vinnustyttingar og orlofs. Nefndin telur mikilvægt að leggja áherslu á starfsumhverfi starfsfólks með það í huga að halda í allt það góða starfsfólk sem vinnur í leikskólum Skagafjarðar og laða að nýtt starfsfólk.
Fram kom tillaga sviðsstjóra, sem unnin var í samráði við leikskólastjórnendur, um að taka upp fyrirkomulag að fyrirmynd Árborgar. Það felur í sér að börn eru almennt skráð með vistun til klukkan 14 á föstudögum en foreldrum gefst kostur á því að skrá börnin sín til klukkan 16:15 gegn gjaldi, með viku fyrirvara. Lagt er til að heilum skráningardögum verði fækkað úr 20 í 9 og verða þeir dagar bundnir við haust- og vetrarfrí grunnskóla, Þorláksmessu og dymbilviku.
Tillaga er um að lokað verði á milli jóla og nýárs og að sumarlokun verði 24 virkir dagar.
Nefndin telur tillögurnar geta stuðlað að auknum stöðugleika í mönnun og bættu starfsumhverfi, án þess að draga úr þjónustu við fjölskyldur.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögur og drög að reglum sem taka gildi 10. ágúst 2026. Jafnframt felur fræðslunefnd sviðsstjóra að kynna nýtt fyrirkomulag vel fyrir öllum hlutaðeigandi í samráði við leikskólastjórnendur. Mikilvægt er að meta reynslu af fyrirkomulaginu í síðasta lagi að tveimur árum liðnum.

4.Trúnaðarbók fræðslunefndar
Málsnúmer 2601069Vakta málsnúmer
Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók.
Fundi slitið - kl. 17:15.