Fræðslunefnd - 48
Málsnúmer 2604030F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 49. fundur - 19.05.2026
Fundargerð 48. fundar fræðslunefndar frá 13. maí 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 49. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir kvaddi sér hljóðs.
-
Fræðslunefnd - 48 Tillaga að úthlutun kennslukvóta til grunnskólanna í Skagafirði fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram. Tillagan er unnin í samstarfi við stjórnendur og tekur mið af mörgum þáttum, svo sem nemendafjölda, samsetningu nemendahópa o.fl. Fræðslunefnd samþykkir tillöguna samhljóða og vísar til byggðarráðs vegna kostnaðaraukningar. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 48 Starfsáætlun leikskólans Tröllaborgar fyrir skólaárið 2025-2026 lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 48 Lagt fram minnisblað sviðsstjóra með tillögum að breytingum á reglum um leikskóla og fyrirkomulagi skráningardaga. Niðurstöður kannana meðal foreldra og starfsfólks voru nýttar þegar fyrirkomulagið var endurskoðað. Niðurstöður sýna að viðhorf foreldra til núverandi fyrirkomulags er fremur neikvætt og kalla til að mynda margir eftir fækkun skráningardaga. Eins er það staðreynd að leikskólastjórnendur standa frammi fyrir mjög miklum áskorunum í núverandi kerfi þegar kemur að því að skipuleggja orlof og vinnustyttingu starfsfólks.
Nefndin tekur undir að þörf sé á endurskoðun kerfisins með hagsmuni barna, starfsfólks og foreldra að leiðarljósi. Sérstaklega var rætt um áskoranir í mönnun og skipulagningu vegna vinnustyttingar og orlofs. Nefndin telur mikilvægt að leggja áherslu á starfsumhverfi starfsfólks með það í huga að halda í allt það góða starfsfólk sem vinnur í leikskólum Skagafjarðar og laða að nýtt starfsfólk.
Fram kom tillaga sviðsstjóra, sem unnin var í samráði við leikskólastjórnendur, um að taka upp fyrirkomulag að fyrirmynd Árborgar. Það felur í sér að börn eru almennt skráð með vistun til klukkan 14 á föstudögum en foreldrum gefst kostur á því að skrá börnin sín til klukkan 16:15 gegn gjaldi, með viku fyrirvara. Lagt er til að heilum skráningardögum verði fækkað úr 20 í 9 og verða þeir dagar bundnir við haust- og vetrarfrí grunnskóla, Þorláksmessu og dymbilviku.
Tillaga er um að lokað verði á milli jóla og nýárs og að sumarlokun verði 24 virkir dagar.
Nefndin telur tillögurnar geta stuðlað að auknum stöðugleika í mönnun og bættu starfsumhverfi, án þess að draga úr þjónustu við fjölskyldur.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögur og drög að reglum sem taka gildi 10. ágúst 2026. Jafnframt felur fræðslunefnd sviðsstjóra að kynna nýtt fyrirkomulag vel fyrir öllum hlutaðeigandi í samráði við leikskólastjórnendur. Mikilvægt er að meta reynslu af fyrirkomulaginu í síðasta lagi að tveimur árum liðnum. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 48 Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.