Fræðslunefnd - 47
Málsnúmer 2604009F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 49. fundur - 19.05.2026
Fundargerð 47. fundar fræðslunefndar frá 21. apríl 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 49. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Álfhildur Leifsdóttir kvaddi sér hljóðs.
-
Fræðslunefnd - 47 Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga lagt fram til kynningar. Í bréfinu eru skólanefndir sveitarfélaga hvattar til að senda inn tillögur til tilnefninga íslensku menntaverðlaunanna. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbóta. Verðlaunin eru veitt árlega á Bessastöðum. Tillögur skulu hafa borist fyrir 1. júní nk. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 47 Nemendagrunnur er miðlægur gagnagrunnur sem geymir áreiðanlegar og samræmdar upplýsingar um alla nemendur á grunnskólaaldri á Íslandi. Markmiðið er að tryggja að réttar upplýsingar fylgi hverju barni í gegnum alla skólagöngu þess frá leikskóla til framhaldsskóla og áfram í nám og þjálfun.
Verklag um heimila notkun nemendagrunns lagt fram og samþykkt samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 47 Minnisblað frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs lagt fram til kynningar. Í því kemur fram að Tröllaborg er með fullmannaðan leikskóla og þar hafa börn verið innrituð í kringum 12 mánaða aldur. Í Birkilundi vantar að lágmarki þrjá starfsmenn og á biðlista eru níu börn sem náð hafa 12 mánaða aldri. Í Ársölum vantar fjóra starfsmenn svo hægt sé að fullnýta leikskólapláss. Alls eru 13 börn á biðlista sem náð hafa 12 mánaða aldri.
Skólahópar í Birkilundi og Ársölum eru stórir og mun því vera hægt að vinna niður biðlista í haust ef mönnun leyfir. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
Fulltrúar VG og óháðra óska bókað:
"Fulltrúar VG og óháðra lýsa áhyggjum af stöðu leikskólamála í sveitarfélaginu þar sem ljóst er að mannekkla en ekki skortur á húsnæði er meginorsök þess að börn komast ekki inn í leikskóla. Við minnum jafnframt á að við lögðum fram tillögu í vetur um nafnlausa könnun meðal starfsfólks leikskólanna með það að markmiði að fá fram hugmyndir og sjónarmið um hvernig bæta megi starfsumhverfi og gera vinnustaðina eftirsóknarverðari. Tillagan var felld af meirihluta. Í samtölum okkar við starfsfólk er greinilegt ákall um slíka könnun og aukið samtal. Það að eiga samtöl við stjórnendur og atvinnulíf er ekki það sama og fá frá starfsfólkinu sjálfu hugmyndir um hvað betur má fara, heldur þarf að hlusta á raddir starfsfólksins sem sinnir þessum mikilvægu störfum daglega." -
Fræðslunefnd - 47 Samningur við Stá ehf. um hádegisverð í Ársölum og Árskóla rennur út þann 31. júlí nk. Í samningi er heimild til þess að framlengja við Stá ehf. um eitt ár í senn, að hámarki tvisvar sinnum. Lagt er til að framlengingarákvæði samnings verði nýtt.
VG og óháð hafa frá árinu 2018 lagt áherslu á að matur sé eldaður frá grunni fyrir alla skóla í Skagafirði í samræmi við gildi heilsueflandi skólastarfs. Frá þeim tíma hafa VG og óháð ítrekað óskað eftir kostnaðarmati á breytingum á eldhúsi Ársala, þannig að þar verði hægt að elda mat fyrir leik- og grunnskóla á Sauðárkróki, með áherslu á hagkvæmni og nýtingu hráefnis úr héraði.
Í bókun Fræðslunefndar frá 22. mars 2024 segir m.a.:
“Jafnframt leggur nefndin til að horft verði til lengri tíma og hafist handa strax við að kostnaðarmeta fjárfestingar og rekstrarkostnað þess að elda skólamat fyrir grunnskóla og leikskóla á Sauðárkróki í Varmahlíðarskóla eða með viðbyggingu við eldra stig leikskólans Ársali, hvort sem rekstur slíkra eininga yrði á hendi starfsmanna sveitarfélagsins eða reksturinn boðinn út.?
Þrátt fyrir þessa skýru bókun hefur kostnaðarmat á viðbyggingu við Ársali enn ekki farið fram.
VG og óháð harma þá skammsýni að Ársalir hafi ekki frá upphafi verið hannaðir með fullbúnu eldhúsi og að hagsmunir barna í Ársölum og Árskóla hafi ekki verið settir í forgang með því að leita markvisst raunhæfra leiða til að elda mat frá grunni á liðnum árum.
VG og óháð leggja áfram áherslu á að ráðist verði í þessar breytingar hið fyrsta, svo ekki verði áfram endurtekin krísa í útboðum hádegisverða fyrir Ársali og Árskóla.
Fulltrúar meirihluta, Sólborg S. Borgarsdóttir og Hrund Pétursdóttir, óska bókað að búið sé að vinna mikið í málinu og margar sviðsmyndir hafa verið skoðaðar þ.á.m. stækkun á eldhúsi Ársala og nýta eldhús Varmahlíðarskóla. Taka þarf tillit til þess að bæði fjölskyldusvið og veitu- og framkvæmdasvið hafa verið undirmönnuð síðustu tvö árin sem hefur orðið til þess að forgangsraða hefur þurft verkefnum. Matur sem keyptur er í Árskóla og Ársali er eldaður frá grunni innan Sauðárkróks og til þess nýtt hágæða hráefni úr héraði eins og kröfur voru gerðar um í útboði.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra að semja við fyrirtækið Stá ehf. um framlengingu til 31. júlí 2027. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
Fulltrúar VG og óháðra ítreka bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"VG og óháð hafa frá árinu 2018 lagt áherslu á að matur sé eldaður frá grunni fyrir alla skóla í Skagafirði í samræmi við gildi heilsueflandi skólastarfs. Frá þeim tíma hafa VG og óháð ítrekað óskað eftir kostnaðarmati á breytingum á eldhúsi Ársala, þannig að þar verði hægt að elda mat fyrir leik- og grunnskóla á Sauðárkróki, með áherslu á hagkvæmni og nýtingu hráefnis úr héraði.
Í bókun Fræðslunefndar frá 22. mars 2024 segir m.a.:
“Jafnframt leggur nefndin til að horft verði til lengri tíma og hafist handa strax við að kostnaðarmeta fjárfestingar og rekstrarkostnað þess að elda skólamat fyrir grunnskóla og leikskóla á Sauðárkróki í Varmahlíðarskóla eða með viðbyggingu við eldra stig leikskólans Ársali, hvort sem rekstur slíkra eininga yrði á hendi starfsmanna sveitarfélagsins eða reksturinn boðinn út.?
Þrátt fyrir þessa skýru bókun hefur kostnaðarmat á viðbyggingu við Ársali enn ekki farið fram.
VG og óháð harma þá skammsýni að Ársalir hafi ekki frá upphafi verið hannaðir með fullbúnu eldhúsi og að hagsmunir barna í Ársölum og Árskóla hafi ekki verið settir í forgang með því að leita markvisst raunhæfra leiða til að elda mat frá grunni á liðnum árum.
VG og óháð leggja áfram áherslu á að ráðist verði í þessar breytingar hið fyrsta, svo ekki verði áfram endurtekin krísa í útboðum hádegisverða fyrir Ársali og Árskóla."
Fulltrúar meirihluta ítreka einnig bókun sína frá fundinum svohljóðandi:
"Fulltrúar meirihluta, Sólborg S. Borgarsdóttir og Hrund Pétursdóttir, óska bókað að búið sé að vinna mikið í málinu og margar sviðsmyndir hafa verið skoðaðar þ.á.m. stækkun á eldhúsi Ársala og nýta eldhús Varmahlíðarskóla. Taka þarf tillit til þess að bæði fjölskyldusvið og veitu- og framkvæmdasvið hafa verið undirmönnuð síðustu tvö árin sem hefur orðið til þess að forgangsraða hefur þurft verkefnum. Matur sem keyptur er í Árskóla og Ársali er eldaður frá grunni innan Sauðárkróks og til þess nýtt hágæða hráefni úr héraði eins og kröfur voru gerðar um í útboði." -
Fræðslunefnd - 47 Sjálfsmatsskýrsla Tröllaborgar fyrir skóla árið 2024-25 lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 47 Fundargerð skólaráðsfundar Varmahlíðarskóla frá 25. mars 2026 lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 47 Fundargerðir skólaráðs Árskóla frá 3. desember 2025, 11. febrúar 2026 og 4. mars 2026 lagðar fram til kynningar.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að vísa ályktun skólanefndar frá 5. nóvember 2025 til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 47 Eitt mál tekið fyrir og fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar fræðslunefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.