Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

193. fundur 07. maí 2026 kl. 08:15 - 08:55 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Guðlaugur Skúlason formaður
  • Einar Eðvald Einarsson varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Trúnaðarbók byggðarráðs

Málsnúmer 2412006Vakta málsnúmer

Fært í trúnaðarbók.

2.Tónleikar á Hofsósi

Málsnúmer 2605013Vakta málsnúmer

Lagður var fram tölvupóstur frá Erni Elíasi Guðmundssyni dagsettur 2. maí 2026. Örn Elías, betur þekktur sem Mugison, er að skipuleggja tónleikaferðalag um landið næsta sumar þar sem markmiðið er að spila á fallegum útivistarsvæðum svo sem í görðum, lautum, giljum og ströndum. Hann óskar eftir heimild landeiganda til viðburðarhalds 18. júlí nk. milli 15-16 og leggur fram tvær tillögur. Annars vegar í brekkunni til hliðar við Vesturfararsetrið eða á grasbalanum við hliðina Pakkhúsinu.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við að viðburðurinn verði haldinn í brekkunni til hliðar við Vesturfararsetrið, með fyrirvara um jákvæða umsögn forsvarsmanna Vesturfarasetursins. Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs er falið að afla umsagnar Vesturfarasetursins.

3.Steinahlíð (L146229) - Lóðarmál lóðarleigusamningur

Málsnúmer 2406135Vakta málsnúmer

Lóðarleigusamningur frá 28.12. 1990 um lóðina Steinahlíð L146229 við Steinsstaðahverfi er útrunninn. Leigutaki hefur forleigurétt að hinni leigðu lóð að leigutíma loknum og óskar eftir áframhaldandi leigu hennar. Í gildandi aðalskipulagi Skagafjarðar er lóðin á skilgreindu frístundasvæði utan þéttbýlismarka Steinsstaða.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna að gerð nýs lóðarleigusamnings við leigutaka og að skilmálar umrædds lóðarleigusamnings verði sömu skilmálar og gilda um aðra nýlega samninga um lóðir á frístundasvæðum í sveitarfélaginu.

4.Samráð; Breyting á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir

Málsnúmer 2604187Vakta málsnúmer

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 78/2026, "Breyting á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir". Umsagnarfrestur er til og með 13.05. 2026.

5.Samráð; Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Byggðastofnun

Málsnúmer 2604188Vakta málsnúmer

Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 79/2026, "Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Byggðastofnun". Umsagnarfrestur er til og með 30.06. 2026.

Fundi slitið - kl. 08:55.