Fara í efni

Tónleikar á Hofsósi

Málsnúmer 2605013

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 193. fundur - 07.05.2026

Lagður var fram tölvupóstur frá Erni Elíasi Guðmundssyni dagsettur 2. maí 2026. Örn Elías, betur þekktur sem Mugison, er að skipuleggja tónleikaferðalag um landið næsta sumar þar sem markmiðið er að spila á fallegum útivistarsvæðum svo sem í görðum, lautum, giljum og ströndum. Hann óskar eftir heimild landeiganda til viðburðarhalds 18. júlí nk. milli 15-16 og leggur fram tvær tillögur. Annars vegar í brekkunni til hliðar við Vesturfararsetrið eða á grasbalanum við hliðina Pakkhúsinu.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við að viðburðurinn verði haldinn í brekkunni til hliðar við Vesturfararsetrið, með fyrirvara um jákvæða umsögn forsvarsmanna Vesturfarasetursins. Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs er falið að afla umsagnar Vesturfarasetursins.