Fara í efni

Steinahlíð (L146229) - Lóðarmál lóðarleigusamningur

Málsnúmer 2406135

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 193. fundur - 07.05.2026

Lóðarleigusamningur frá 28.12. 1990 um lóðina Steinahlíð L146229 við Steinsstaðahverfi er útrunninn. Leigutaki hefur forleigurétt að hinni leigðu lóð að leigutíma loknum og óskar eftir áframhaldandi leigu hennar. Í gildandi aðalskipulagi Skagafjarðar er lóðin á skilgreindu frístundasvæði utan þéttbýlismarka Steinsstaða.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna að gerð nýs lóðarleigusamnings við leigutaka og að skilmálar umrædds lóðarleigusamnings verði sömu skilmálar og gilda um aðra nýlega samninga um lóðir á frístundasvæðum í sveitarfélaginu.